Vikublaðið


Vikublaðið - 03.11.1995, Page 6

Vikublaðið - 03.11.1995, Page 6
í Vikublaðinu 15. september sl. snarast Valþór Hlöðversson, bæjar- íulltrúi í Kópavogi, ífam á ritvöllinn með eina ágæta grein sem hann kall- ar: „Kjósum nýjar áherslur - Kjósum Margréti!“(???) Grein bæjarfulltrúans er skipt nið- ur í fimm eftírfarandi vers: 1. vers Inngangur. (Bollaleggingar um flugvana vinstri væng og 40 pró- senta Sjálfstæðisflokk, sem höfundur kallar „púkann á fjósbitanum". Með leyfi: Hvaða fjós er það? Er það fjós vinstri vængsins, eða bara þetta venjulega pólitíska fjós þar sem allar flokksnefnumar eiga hver sinn bás, rétt eins og Búkolla, Skjalda og Grána.) 2. vers Smáflokkur - fastur í sessi. (Tregafull hugleiðing um fyrrum 20 prósenta velmegun Alþýðubanda- lagsins og harmsögu síðari ára.) 3. vers Ný forysta - meira traust. (Hollustujátning við Margrétí Frí- mannsdóttur og árangursins sam- verkandi styrkan streng.) 4. vers Þanrúg mætti lengi áffam telja. (Um að læra af reynslu liðinna ára og ffamtíðar farsæla handleiðslu Margrétar.) 5. vers Tölum einum rómi. (Um meinta ótónvísi burðarása Alþýðu- bandalagsins og dæmi þar að lútandi og yfirlýsing um fulla virðingu fyrir félaga SteingrímiJ. Sigfússyni.) Eins og ráða má af þessari upptaln- ingu er grein Valþórs haganlega og sldpulega samansett og minnir um margt á fagunna poppplötu þar sem fáeinir velvaldir slagarar mynda eina samofna heild. Og víða glampar á gullkomin, ekki vantar það. Höfund- urinn er alveg grallaralaus yfir enda- lausum hjaðningavígum á vinstri vængnum góðkunna og hann er með það á hreinu að sitthvað sé að í stefnu og starfsháttum Alþýðubandalagsins, flokksstarfið hafi dofnað ár ffá ári og sldlaboð hrejdingarinnar, hafi þau einhver verið, hafi ekld náð eyrum fólksins. Nú, bæjarfulltrúi þeirra Kópavogs- búa er á því að framsetning í póhtík verði að vera skýr og einföld þannig að sem flestir skilji og það hafi algjör- lega mistekist fyrir síðustu kosningar að sýna ffam á hvað útflumingsleiðin góða snýst um í raun og vem. Það skyldi þó ekki verða grafskrift út- flutningsleiðarinnar, svo digur sem hún er að vöxtum í rituðu formi, að fátt hafi hún boðað og þá ef eitthvað hefur verið, allra síst það sem að fólk- ið vildi heyra. I 3. versi kemst bæjarfulltrúinn all- myndarlega að orði, en þar segir hann orðrétt: .„Atorka er nauðsynleg Jóhannes Ragnarsson skrifar í pólitísku starfi. Á hana hefur vem- lega skort í Alþýðubandalaginu og allt of margir, sem þó telja sig eiga er- indi í pólitík, líta á flokkinn sem póli- tískan saumaklúbb en ekld vettvang til að berjast fyrir breytingum“. Sam- kvæmt Orðabók Menningarsjóðs merkir orðið atorka; dugnaður, táp eða ffamtak. Með öðmm orðum hlýtur framangreind tílvimun að þýða að þeir sem hafa olnbogað sig til pólitískra starfa í Alþýðubandalaginu séu upp til hópa, ef ekki undantekn- ingalaust, sljóir, ffamtakslausir leti- haugar, sem í þokkabót umgangist flokkinn eins og pólitískan sauma- klúbb, hvað sem það nú þýðir. Von- andi að ekki sé hér, verið undir rós, að vega að stjómmálaþátttöku kvenna, en saumaklúbbar saman- standa sem kunnugt er aðallega af kvenfólki. I lok 3. vers kemst svo bæjarfulltrú- inn að þeirri niðurstöðu að „virkjun kraftsins sem býr í flokksfólkinu sé forsenda þess að flokkurinn nái ár- angri, því miður hafi ekki tekist að efla starf flokkseininganna sem skyldi eða nýta sér reynslu og þekkingu þústmda flokksmana vítt og breitt tmt landið“. Það er svo sem ekld að undra þó að allt hafi farið í handaskolum í þessum efnum fyrst að umræddir flokksmenn em svo lítt, eins og raun ber vitni, prýddir þeim eiginleikum sem til þarf, þ.e. dugnaði, tápi og ffamtald. Affur á móti hefur þessi lýður haft nægilega döngun í sér til að stunda innanflokksátök og það af slíkri atorku að tekist hefur að fæla fólk ffá Alþýðubandalaginu, ekki bara í sjálfum kjörklefanum, heldur utan hans Iíka og verður það að teljast nokkuð vel af sér vildð, sé tekið tillit til atgervis þeirra er hlut eiga að máli. Þegar hér er konúð sögu, en ekki fyrr, þá afhjúpar bæjarfúlltrúinn loks- ins sökudólginn, sem er menntað einveldi þingflokks og ffamkvæmda- stjómar. (Skammstafað: MEÞF (ansi snotur skammstöfun atama!)). „Og fótgönguliðamir í flokknum em fjarri góðu gamni“, bætir hann við. Áffam kristmenn krossmenn!!!.... Trallalalala.... Víkur nú að hugmyndum um póli- tík og framsetningu þeirra. Bæjarfull- trúa Alþýðubandalagsins í Kópavogi finnast, eins og vonlegt er, talsmenn flokksins ekki tala einum rómi í þeim efnum. Þykja honum talsmennimir einkum vera talsmenn úreltra við- horfa sem eigi ekki upp á pallborðið hjá kjósendum og þá ekki síst þeim yngri og tekur dæmi: 1. Sjávarútvegsstefnan ekki nógu skýr. Alþýðubandalagið er hallara undir sægreifa og útgerðar- auðvald en Morgunblaðið, sem vill láta útgerðarauðvaldið borga. Borga hverjum hvað? Stendur til að selja eða leigja auðvaldinu sameign þjóð- arinnar? Eða er nýmóðins jafnaðar- stefna, sem háttvirtir kjósendur að- hyllast, jafnvel í kjörklefanum, hluti af auðvaldinu? „Eg hef æfinlega verið góður sósíalist", sagði Pétur Þríhross (Hús skáldsins, bls. 43). 2. Húsnæðismál: Sumir enn á braggahverfaútrýmingarstiginu, aðr- ir að heimta peninga úr galtómum sjóði til að byggja lúxusíbúðir sem fáir eða engir hafa efni á að búa í, nema e.t.v. góðir sósíalistar á borð við Pétur Þríhross. 3. Landbúnaðarmál: Alþýðu- bandalagið situr eitt flokka uppi með þá skömm að hafa ekki getað talið þjóðirtni trú um að það hafi landbún- aðarstefnu, aðra en þá að verja núver- andi kerfi. Að því leyti lítur út fyrir að flokkurinn sé ffamsóknarlegri en sjálfur Framsóknarflokkurinn sam- anlagður alla þessa öld og verður það að teljast töluvert afrek út af fyrir sig. 4. Evrópustefha: Þjóðremba og heimótt. Hræðsla við að útlendingar kaupi upp fjöll og dali, fiskimiðin uppurin og tungan aflögð. Skýrara getur það ekki verið. Andstæðan við þessi ósköp er „að horfa upprétt til nýrrar aldar og nýrra aðstæðna". Það er ekki nema rétt að menn fari að gera sér grein fyrir hinni nýju hug- myndaffæði sem er óskeikul og segir: Það nýja er gott og rétt, það gamla er vont og rangt, já og úrelt. Og vei þeim er efast um hina nýju hug- myndaffæði. Svo er það víst aftur annað mál hvað það er sem í raun veru er gam- alt, og hvað nýtt, og þá ekki síður hvenær menn standa uppréttir, eða láta berast með straumnum, en það er ef til vill aukaatriði. Ja, ekki er nema von að illa sé kom- ið fyrir Alþýðubandalaginu og því ekki nema rétt og skylt að kalla til forystu þá hina vígfimusm sem enn eru eftir í flokknum til að berja í brestinga og byggja nýtt. Ekki ætla ég að synja fyrir það að Margrét Frí- mannsdóttir sé betur til þess fallin, en allir aðrir, að hafa yfirumsjón með skilvirku endurreisnarstarfi í Alþýðu- bandalaginu og þar að auki á vinstri væng, því að mér skilst að boðorð hins nýja tíma sé að sameina svokall- að vinstriflokka og félagshyggjufólk í einn stóran jafnaðarmannaflokk, sem fólk geti verið visst um að muni skáka íhaldinu svo um munar. Hitt er svo aftur verra að sama Margrét hefur til margra ára tilheyrt hinu menntaða einveldi þingflokks og ffamkvæmda- stjómar (MEÞF) og fram að þessu lagt fátt til málanna umfr am aðra sem innvígðir em í hið -menntaða ein- veldi. 12. versi greinar bæjarfúlltrúans, 4. málsgrein, gefur að líta sannkallaðan gimstein, uppteiknaðan í fomsagna- stíl er hæfir efninu ágætlega. Þar seg- ir að innri átök í Álþýðubandalaginu hafi auðvitað verið til trafala í starfinu og hafi leitt til þess að fjöldi ágætra manna hafið leitað á önnur mið í flokkaflórunni og sumir jafnvel lent úti í eyðimörldnni og endað þar sína pólitísku ævidaga. En þeir sem enn séu á lífi innanflokks teljist upp til hópa sárir og móðir, sérdeilis þeir sem staðið hafa í víglímmni og hvatt til ffekari vígaferla. Við þetta er ýmislegt að athuga: Og hugum þá fyrst að ferðum ágætra manna á önnur mið og út í eyði- mörkina. Það atriði varðar nefúilega hina sígildu spumingu að vera eða vera ekld í pólitísku tilliti. Lengi vel stóð það klárt og kvitt í 1. gr. laga Alþýðubandalagsins að flokk- urinn væri sósíalískur stjómmála- flokkur, byggður á lýðræði og þing- ræði og að markmið flokksins væri að koma á sósíalísku þjóðskipulagi á Is- landi. Á landsfundi flokksins árið 1991 var gerð tilraun til að vana flokkinn með því að breyta 1. gr. flokkslaga, eða öllu heldur að fylla hana af moð- reyk um jafnaðarstefúu og félags- hyggju. Til þessarar aðgerðar var víst gripið til að forða því að ágætir rnenn fæm sér ekld að voða úti í henni póli- tísku eyðimörk. En allt kom fyrir ekld, eyðumerkurhetjimum varð ekki forðað, sem betur fer segja sumir og bæta því gjaman við að ekki sakaði að fleiri hefðu sig á brott til að vitja grafa sirma í eyðimörkinni. Svo er það annað. Hvaða víglínu- flokksmenn em það sem eftir em, sárir og móðir og hafa á smndum hvatt til ffekari vígaferla? Hér dugir ekkert minna fyrir bæjarfulltrúann en að nefna blákalt nöffi þessara slótt- ugu misyndismanna svo að saklausir flokksmenn geti varað sig á lymsku- brögðum þeirra. Allt annað flokkast undir stílbrögð sem Þórbergur Þórð- arson kallaði mglandi og væm ýnúst ffamin óafvitandi eða af ráðnum hug. Ruglandi, ffamin af ráðnum hug, sagði Þórbergur, væri að mætti heita dagleg iðkun margra þeirra, er um stjómmál rita hér á landi. Og satt að segja hefur mglandinn oftar en ekki sett svip sinn á umræðuna um bless- aðan vinstri vænginn því að um fá málefni önnur hefur, hin síðari ár, verið fjallað hér á landi af jafúnúkilli flækjubókarlist. Árangur í stjómmálum snýst um traust, segir Valþór Hlöðversson réttilega, en árangur í stjómmálum snýst líka um að vera það sem memi segjast vera, þannig að orð og athafn- ir fari saman. Það fer t.a.m. Alþýðu- bandalaginu ákaflega illa að flíka fólki, sem stundar atvinnurekstur og annað fjáraflabrask, til trúnaðarstarfa fyrir flokkinn. Jónas Amason, fyrrverandi alþing- ismaður, segir í Viðtalsbók (bls. 91): „Meðal innsm kopanna í búri flokks- ins gefur nú að líta nienn sem telja það ekki ósamboðið virðingu sinni að safúa peningum og fasteignum. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Þeir geta talað allra manna fagurlegast um hugsjónir sósíalismans, þessir karlar stimir, það vantar ekld. En mætti ég sem einn óbreyttur flokksfélagi þeirra biðja þá vinsamlegast að þegja. Ef við sósíalistar kæmumst einhvem tímann í þá aðstöðu að hrinda í fram- kvæmd þeim þjóðfélagsbreytingum sem við boðum, þá mundu þeir þess- ir óðara snúast gegn okkur. Hjörm þeirra slá með kapítalismanum, hvað sem líður fagurgalanum um sósíal- ismann. Yndi þeirra og unaður er að auðgast. Þetta er þein a innsta eðli. Þeir geta smtt flokk eins og Alþýðu- bandalagið á meðan þeir telja tryggt að sósíalismi þess verði aðeins í orði, en strax og þeir þættust sjá ffam á að úryrði sósíalismi á borði, mundu þeir gera allt sem í þeirra valdi stæði til að hindra það. Annað væri einfaldlega ekki í samræmi við innsta eðli þessara þaulsemmanna við rúlletmborð kap- ítalismans. Að safna auði - það að stunda arðrán; slíkt sæmir ekki sósí- alistum". Á bls. 90 í sömu bók segir Jónas: „Aðalástæða þess að ferill Sósíalista- flokksins, og síðan Alþýðubandalags- ins, varð jafnglæsilegur og raun ber vimi er einmitt sú samkvæmni sem ríkti hjá hinum gömlu forystumönn- um, milli þess sem þeir boðuðu og þeirra sjálffa". Þessi orð Jónasar held ég að ölluní sé hollt að hafa í huga þegar horft er til ffamtíðar fyrir hönd Alþýðu- bandalagsins. Það er nefnilega svo að mörgum háttvirtum óbreyttum kjós- endum finnst að hentistefna og ósamkvæmni hafi einkennt Alþýðu- bandalagið um of mörg hin síðari ár, og margsinnis hef ég rekið mig á þá skoðun að flokkurinn fari ekld að braggast fyrr en hann gerir afgerandi bragarbót á ráði sínu í þessum efnum. Takist nýkjömum formanni AI- þýðubandalagsins að snúa flokknum af braut hentistefiiu og ósamkvæmni er til í dæminu að flokkurinn verði sú kjölfesta til vinstri, sem að mér skilst að hann vilji vera. Höfúndur er formaður verkalýðsfélags- ins Jökuls í Olafcvxk ogjyrrverandi for- maður Alþýðubandalagsfélagsins þar. s •AMHUGUR Leggðu þitt af tnörkum T Ti TT jTÍ I -V T/^ T inn á bankareikning nr. I 1 / r“i L7 1183-26-800 1 V JLrvJLvi í Sparisjóði Önundarfjarðar á FÍateyri. Ila-gt er aö leggja inn á reikninginn í öllum bönkum. sparisjóðum og póstliiísuni á landinu. Vllir fjölmiölar landsins, Fóstur og sími. Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauöi kross íslands. LANDSSÖFNUN VEGNA NÁTTÚRUHAMFARA Á FLATEYRI HH Ekki ætla ég að synja fyrir það að Margrét Frímannsdóttir sé betur til þess fallin, en allir aðrir, að hafa yfirumsjón með skilvirku endurreisnarstarfi í Alþýðubandalaginu og þar að auki á vinstri væng, því að mér skilst að borðorð hins nýja tíma sé að sameina svokallað vinstriflokka og félagshyggjufólk í einn stóran jafnaðarmannaflokk, sem fólk geti verið visst um að muni skáka íhaldinu svo um munar. m

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.