Vikublaðið


Vikublaðið - 03.11.1995, Síða 12

Vikublaðið - 03.11.1995, Síða 12
Þaö tekur aöeins einti ■ | ■virkan dag þinum til skila f ■ 1 Qft SWWt | mEWILL/ 588 55 22 Eldri borgarar gegn rík- isstjórnimii Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur skorað á þingmenn að sjá til þess að niðurskurðará- form ríkisstjómarinnar í fjárlaga- frumvarpinu nái ekki fram að ganga. Félagið hefur ályktað gegn „þeim yfirgripsmikla niðurskurði, sem fyrirhugaður er í fjárlaga- ftumvarpi fýrir árið 1996 og varðar afkomu lífeyrisþega, þar á meðal að lækka lífeyristryggingar um 1.115 milljónir króna. Páll Gíslason læknir og formaður félagsins segir í samtali við Vikublað- ið að töluverður hiti sé í öldruðum vegna þessara áforma í fjárlagaftum- varpinu. „Stjómvöld hafa árlega verið að hræra í réttindamálum aldraðra og að því leyti til em áformin nú engin nýlunda. En við höfúm sérstakar á- hyggjur af því að nú á að afinema sam- tengingu lífeyris og launa í landinu, þannig að lífeyririnn hækkar ekki lengur í takt við almennar launa- Frá ABR Ftmdur um sameiningu/ samvinnu vinstrimanna sem boðaður var með fúlltrúum stjómarandstöðunnar en var firestað vegna atburðanna á Flateyri verður haldinn 23. nóv. í Atthagasal Hótels Sögu. hækkanir, heldur ákvarðast af Alþingi á hverju ári. Og við þekkjum gang mála við afgreiðslu fjárlaga, það vant- ar alltaf peninga og þá er horft á stóm póstana. Þetta eykur á óvissuna hjá öldmðum og óöryggi þeirra um af- komu sína og það er mjög slæmt fyrir aldraða." Páll hefur um árabil barist ötullega fyrir málstað aldraðra, áður fyrr eink- um á vettvangi borgarstjómar, þar sem hann sat fyrir Sjálfstæöisflokkinn. Hann riljar upp að fyrir 20 árum var grunnellilífeyririnn tæplega 30 þús- und á mánuði en er nú ekld nema 12 þúsund. „Síðan hefúr komið tekju- trygging auk fleiri liða til að vega upp á móti lækkuninni. A mótd því hafa komið tekjutengingar bóta og fleiri slíkar aðgerðir og nú á að bæta um betur með því að afnema samtenging- una. Ofan á allt er það síðan í raun fá- tækasta gamla fólkið sem fyrst er látdð greiða fjámiagnstekjuskatt, því það gamla fólk sem fær einhverjar fjár- magnstekjur má þola skerðingu á bót- um. Eg er ekld á móti fjámiagnstekju- skatti, en ég vil segja um þetta og und- irstrika að ellilífeyrir er engin ölmusa, heldur peningar sem fólldð hefur lagt til hliðar og unnið fyrir.“ Páll segir að félög aldraðra og Landssamband aldraðra muni fá nýja stöðu í þjóðfélaginu verði af afúámi samtengingarinnar. Hún hafi séð til þess að lífeyrir aldraðra hafi hækkað í takt við hækkandi laun, en nú verði ekki lengur skjól í slíkum samningum. „Fari þessi áform í gegn munu félög okkar þurfa að taka upp meiri hagsmuna- gæslu en verið hefur. Eg hef verið á fúnd- um undanfarið og veit að það er hiti í fólki. Ef við reiknum dæm- ið gróflega kemur í ljós að þessi mögulegi niðurskurður upp á 1.115 milljónir króna hljóðar upp á um 40 þúsund krónur á mann á ári. Eg hef heyrt raddir um að efna til aðgerða, t.d. kom upp hugmynd um að allir aldraðir taki út allt sitt sparifé úr bankakerfinu. Félagsskapur aldraðra hefúr ekld verið hávær kröfuhópur og hefúr verið tilbúinn til að taka sinn þátt í ráðdeild og spamaði. En nú er þung undiralda,“ segir Páll. I ályktun Félags eldri borgara er áformum ríkisstjómarinnar mótmælt og þá gagnrýnisatriðin talin upp í eft- irfarandi fimm liðum: 1. Mótmælt er að verðlagsupp- fersla bóta verði ákveðin í forsendum fjárlaga hvert ár og eingreiðslur felld- ar inn í bótafjárhæðir með því að skerða tekjur h'feyrisþega um 450 milljónir króna. 224 milljónir hjá Samhug í verki Alls 224 milljónir króna söfnuðust í átakinu Samhug- ur í verki, sem fjölmiðlar landsins og fleiri aðilar efndu til vegna hins mannskæða snjóflóðs á Flateyri. Söfniminni er þó ekki lokið því út nóvember getur fólk og fyrirtæki lagt inn á reikning söfnunarinnar í Sparisjóði Onfirðinga og liggja gíróseðlar frammi í bönkum og sparisjóðum. Einnig er þess að geta að enn á eftir að berast söfnunarfé erlendis ffá og einkum vom það Færeyingar sem sýndu rausnarskap sinn og samhug í verld. Alls 35.923 aðilar gáfu í símasöfnun- ina sem þýðir að meðalffamlagið þar hefur verið upp á 6.232 krónur. Söfnunarféð samsvarar því að hver einasti landsmaður hafi gefið 834 krónur eða hver fjögurra manna fjölskylda 3.356 krónur.Vikublaðið óskar landsmönnum til hamingju með þennan frábæra árangur og óskar íbúum Flateyrar velfamaðar í upp- byggingastarfi sínu. Tíundi hver landsmaður í blysför Hátt í þrjátíu þúsund manns fóm í blysför frá Hlemmi að Ingólfstorgi sl. mánudagskvöld til að minnast þeirra 20 einstak- Iinga sem fómst í snjóflóðinu á Flat- eyri. Vigdís Finn- bogadóttir forseti Islands leiddi blys- förina og hafði með í för nálægt 10% þjóðarinnar. Minningarathöfn á Ingólfstorgi var sjónvarpað beint og má reikna með því að meirihluti landsmanna hafi fylgst með þeirri út- sendingu. Þá má geta minningarathafúar á ísafirði um hina látnu, þar sem um 1.200 manns vom mættir. Fatlaðir mótmæla árásum ríkis- valdsins Stjóm Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og ná- grenni, hefur ályktað þar sem félagið „mótmælir harð- lega áffamhaldandi gengdarlausum árásum ríkisvalds- ins á kjör og afkomuöryggi örorku- og ellilífeyrisþega, sem nú em gerðar í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks fyrir árið 1996.“ Fatlaðir mótmæla afnámi ákvæða um samtengingu bóta við launahækkanir með upptöku fyrirkomulags sem byggir á geðþótta stjórnvalda - „en því réttlæti treysta fatlaðir engan veginn.“ Félagið mótmælir ann- ars í ályktun sinni sömu aðgerðum og Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, sem lesa má um ann- ars staðar á þessari síðu. Vilja tvístefnuakstur um Hverfisgötuna Verslunar- og þjónustuaðilar við Hverfisgötuna hafa afhent borgarstjóra undirskriftarlista þar sem þeirri eindregnu áskomn er beint til borgarráðs að tvístefnu- akstur verði sem fyrst teldnn upp á götunni. A fjórða tug undirskrifta er á listanum. Telja þessir að- ilar að breytingin muni hafa jákvæð áhrif á verslun og þjónustu jafnt á Hverfisgötunni sem á Laugavegi og aðliggjandi þvergötum. Næg stæði em fyrir hendi og nýting bílageymsluhúsa myndi batna, almenningssam- göngur verða greiðari og vemlega myndi draga úr hraðakstri við götuna. Vonast þessir aðilar til að borg- arráð hrindi þessu í ffamkvæmd á fyrri hluta næsta árs. 2. Mótmælt er að skerða eigi bætur almannatrygginga um 2855 milljónir með því að tekjutengdar bætur skerð- Páll Gíslason formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni: „Eg hef heyrt raddir um að efna til aðgerða, t.d. kom upp hugmynd um að allir aldraðir taki út allt sitt sparifé úr bankakerfinu. Félagsskapur aldraðra hefur ekki verið hávær kröfúhópur og hefúr verið tilbúinn til að taka sinn þátt í ráðdeild og spamaði. En nú er þung undiralda.“ Mynd ÓI.Þ. ist við fjármagnstelcjur á meðan lög um fjármagnstekjuskatt hafa ekki ver- ið sett. 3. Mótmælt er að lækka eigi elhh'f- eyri um 250 milljónir króna með setningu nýrra reglna um útgreiðslu svokallaðra heimildarbóta. 4. Félagið mótmælir fyrirhugaðri hækkun á heilbrigðisþjónustu og auknum útgjöldum þeirra sjúldinga sem eru á aldrinum 67 til 70 ára um 40 milljónir króna. 5. Félagið mótmæhr einnig að fyr- irhuguð eru innritunargjöld á sjúkra- hús. -----------Li—wr; verjajunaur með borgarstjóra Jngibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur fund með íbúum ► Vesturbæjar- ► Miðbæjar- ► Og Þingholta v/Snorrabrautar í Ráðhúsinu mánudaginn 6. nóvember kl. 20.00 Á fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundar- manna og embættismanna borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu efni.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.