Vikublaðið - 15.12.1995, Síða 5
I
VIKUBLAÐIÐ 15. DESEMBER 1995
Rfldsqármálin
5
Milljarður í risnu og
erlendan ferðakostnað
Heilbrigðisráðherra sendir fjármálaráðherra tóninn: Skerið niður risnu og
ferðakostnað eða hækkið skatta frekar en að skera meira niður þjónustu.
Vikublaðið skoðar af þessu tilefni þá útgjaldapósta sem heilbrigðisráðherra
bendir á og kemst að því að enginn sparnaður er í gangi þegar gera skal góða
veislu eða skreppa til útlanda.
Risna. aksl tur out ferfl !a-
kostnaður 1990-1994
- milljónir króna á núvirði. Heimild: Rflásreikningar
Útgjöld ... 1990 1991 1992 1993 1994
Risna ... 174 197 154 160 188
Akstur ... 796 900 950 928 885
Ferðakostnaður: innanlands ... 480 468 474 450 394
erlendis ... 671 704 708 770 813
Kostnaður ríkisins vegna risnu, að-
keypts aksturs og ferðakostnaðar
(innanlands og erlendis) hélst
óbreyttur að raungildi 1990 til 1994
eða um 2,2 milljarðar króna á nú-
virði. Þessi niðurstaða stdngur mjög í
stúf í umræðunni um niðurskurð á
þjónusm velferðarkerfisins og upp-
töku þjónusmgjalda í vaxandi mæíi.
Þessi niðurstaða er einnig með-
mæli með þeim orðum Ingibjargar
Pálmadótmr heilbrigðisráðherra að
ffekar ætti að skera annars staðar nið-
ur eða hækka skatta en að skera meira
„góða þjónusm11 og í viðtali í sjón-
varpi-sl.; helgi benti hún einmitt á
þann möguleika á að skera niður
risnu- og ferðakosmað. Ekld er ólík-
legt að hún hafi heyrt getið um góð-
an árangur Reykjavíkurlistans í þess-
um efiium. , -
***£" ** _*** ' * ..
Annáðhljóð en úr skrokki
kynsystur Ingibjargar
Með yfirlýsingum sínum í ffétmrn
ríkissjónvarpsins sendi Ingibjörg
samstarfsflokki sínum almennt og
Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra
sérstaklega skýr sldlaboð um að ekla
yrði gengið lengra í niðurskurði í
heilbrigðisgeiranum. Eru það aðrir
tónar en Friðrik hefur að undanfömu
hlýtt á úr barka hinnar ný-sjálensku
Ruth Richardsson. Og reyndar aðrir
tónar en borist hafa ffá Ingibjörgu að
undanfömu, sem vonandi veit á
stefnubreytingu.
En er efrir einhverju að slægjast í
risnu og ferðakostnaði? Arið 1990
fóm úr ríldssjóði alls 2.121 milljónir
króna á núvirði í útgjaldaliðina risnu,
aðkeyptan akstur og ferðakostnað
innanlands og erlendis. Árið 1993
vom sömu hðir komnir í 2.309 millj-
ónir króna en 1994 tókst að lækka
þessi útgjöld niður í 2.279 milljónir
króna. Eftír sem áður vora útgjöldin
1994 alls 158 milljón krónum hærri
en árið 1990. Þess skal getíð að hér er
eingöngu átt við A-hluta ríldssjóðs og
vantar þá ýmis konar ríkisfyrirtæki
eins og t.d. Póst og síma.
Fimmtungs hækkun risnu
og ferðakostnaðar erlendis
En heildarútgjöldin segja ekki alla
söguna. Aðkeypmr akstur hljóðaði
upp á 796 milljónir króna árið 1990,
fór upp í 950 milljónir árið 1992 en
lækkaði síðan í 885 milljónir árið
1994. Eftir stórt stökk upp á við í
fyrstu hefur marktækur spamaður átt
sér stað. Undir aðkeypmm akstri em
allar greiðslur vegna leigubiffeiða,
bílaleigubiffeiða, starfsmannabif-
reiða og annars aksmrs, s.s. hóp-
ferðabifreiða vegna skólaaksmrs og
sjúkraflutninga. Arið 1994 var 42,5%
aksturskostnaðarins vegna heilbrigð-
is- og tryggingaráðuneytisins, mest
vegna sjúkrahúsa og heilsugæslukerf-
isins, en 10,6% skrifaðist á Vegagerð
ríkisins.
Ferðakosmaður innanlands hefur
lækkað þannig að mark er á takandi.
Þessi liður hljóðaði upp á 480 millj-
ónir króna árið 1990 en hefur nær ár-
lega lækkað og var 394 milljónir
króna árið 1994. Þama munar 86
milljónum króna í lækkuðum út-
gjöldum. Tæplega fjórðungur alls
innlends ferðakosmaðar 1994 var
vegna þriggja stofnana; Alþingis,
Vegargerðar ríkisins og Fiskistofu.
Ferðakosmaður erlendis hefur á
hinn bóginn farið síhækkandi og ekk-
ert lát á. Erlendur ferðakosmaður
ríkissjóðs var árið 1990 upp á 671
milljónir króna, en árið 1994 var
þessi kostnaðarliður kominn upp í
813 milljónir króna og hafði því
hækkað um 142 milljónir króna frá
1990 eða um 21% að raungildi. Árið
1994 var rúmlega þriðjungur alls hins
erlenda ferðakosmaðar vegna firnm
stofnana; aðalskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, skrifstofu Ríkisspítal-
anna, Háskóla Islands, Alþingis og
Flugmálastj órnar.
Er svona erfitt að draga úr
veisluhöldunum?
Og í hrópandi mótsögn við alla
rúðurskurðarumræðtma er sú stað-
reynd að risnukosmaður ríkisins fer
vaxandi. Hann var upp á 197 milljón-
ir króna árið 1991, en síðustu rílds-
stjóm tókst að skera hann myndar-
lega niður árið á eftir er hann fór nið-
ur í 154 milljónir króna. En ffá 1992
til 1994 fór risnan aftur í fyrra horf:
hækkaði úr 154 milljónum í 188
milljónir króna eða um 34 milljónir
(22%).
Inni í tölunum fyrir 1994 er risna
vegna opinberra heimsókna erlendra
þjóðhöfðingja vegna þjóðhátíðar,
sem kostaði aukalega um 10 núlljón-
ir króna. Risnuglöðustu stofnanimar
em að jafnaði aðalskrifstofúr ráð-
herranna sjálffa.
Þetta er reyndar umhugsunarefni.
1 akstri og ferðalögum innanlands
gætir sparnaðar, en öllu er tjaldað til
þegar góða veislu gjöra skal og þegar
til útlanda er komið. í risnu og er-
lendan ferðakosmað fór samtals einn
milljarður króna árið 1994.
Veislu- og ferðagleði ein-
stakra stofnana
Á meðfylgjandi yfirlitum er annars
vegar risnukosmaður og hins vegar
erlendur ferðakosmaður fiölmargra
stofiiana skoðaður árin 1991 og
1994. Þar sést að víða fer kostnaður
vegna þessara liða vaxandi og ekki
alltaf auðvelt að koma auga á skýring-
amar. Þannig vekur athygli hversu
risnan hefur hækkað hjá t.d. Kvik-
myndasjóði, Listasafni Islands, Skóg-
rækt ríkisins, Landlækni, Ríkisendur-
skoðun, Jafnréttisráði og Hagstof-
unni. Hins vegar hefúr risnan lækkað
hjá t.d. Biskupi og prestaköllunum,
Ríldsspítulum og Veðurstofunni.
Erlendur ferðakosmaður óx um-
talsvert hjá t.d. Þjóðminjasafninu,
Kvikyndasjóði, Skógrækt ríksins,
Jafnréttisráði, Brunamálastofnun,
Hagstofúnni og Veðurstofúnni.
Hann fór hins vegar lækkandi hjá
Listasafiúnu og sjálfu Ferðamálaráði
(á móti hækkaði þar risnan verulega).
Án nokkurs vafa er stór hluti risnu-
og ferðakosmaðar erlendis óhjá-
kvænúlegur og í mörgum tilfellum
„arðbær“. Eins ömggt er að oft sé um
hreinan óþarfa að ræða. Það er að
minnsta kosti ekkert samhengi í því
að þessir útgjaldaliðir ríkissjóðs
hækki ár efdr ár á sama tíma og klip-
ið er af öryrkjum, öldruðum, fötluð-
um, sjúklingum, atvinnulausum,
námsmönnum og öðrum þjóðfélags-
hópum sem höllum feti standa.
Friðrik Þór Guðmundsson
Góða veislu gjöra skal...
Dæmi um risnukostnað 1991 og 1994
- Þús. króna á núvirði. Heimild: Ríkisreikningar.
Stofnun 1991 1994
Hækkandi...
Þjóðhagsstoítiun . 473 576
Rannsóknarráð . 319 566
Kvikmyndasjóður . 147 496
Listasafn Islands . 62 268
Skógrækt ríkisins . 91 727
Fiskistofá 0 224
Vinnueftirhtið . 332 646
Jafnréttisráð . 99 463
Landlæknir . 587 1.217
Hollustuvemd . 399 409
Ríldsendurskoðun . 112 628
Ríkisskattstjóri . 190 782
Rannsóknamefnd sjóslysa . 0 1.036
Flugmálastjóm . 4.234 5.507
Ferðamálaráð . 1.539 2.079
Hagstofan . 1.185 1.648
Sldpulagsstjóri . 702 985
Landmælingar . 371 599
Lækkandi...
Vamarmálaskrifstofa .2.738 1.665
Húsameistari . 231 197
Rannsóknarstofmm landbúnaðarins . 409 385
Haffannsóknarstofnun . 635 590
Biskup og prestaköll .3.123 1.701
Ríkisspítalar . 905 541
Ríkisbókhald . 418 407
Ríkistollstjóri . 483 332
Landhelgisgæslan . 567 266
Iðntæknistofnun . 1.312 837
Orkustofnun . 1.295 1.108
Veðurstofan . 1.009 494
Stýra dýrum knerri ■ ■■
Dæmi um erlendan ferðakostnað 1991 og 1994
- Þús. króna á núvirði. Heimild: Ríkisreikningar.
Stofnun 1991 1994
Hækkandi...
Alþingi .45.858 46.384
Þjóðhagsstofnun . 2.722 4.529
Þjóðminjasafnið . 524 2.010
Kvikmyndasjóður . 1.007 1.771
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins . 4.193 6.302
Veiðimálastofnun . 2.401 2.422
Skógrækt ríkisins . 578 2.712
Fiskistofa 0 2.559
Umferðarráð : . 538 1.831
Biskup og prestaköll . 3.908 4.128
Rílássáttasemjari . 159 1.066
Jafnréttisráð . 1.267 3.419
Landlæknir . 3.189 3.402
Tryggingaeftirlitið . 1.394 4.742
Rfldsskattstjóri . 955 2.671
Rfldsbókhald . 501 1.013
Brunamálastofnun . 755 1.850
Flugmálastjóm .27.596 35.968
Orkustofnun . 9.811 10.278
Hagstofan . 4.365 8.215
Skipulagsstjóri . 1.786 1.993
Landmælingar . 2.621 3.658
Veðurstofan . 3.819 7.828
Lækkandi...
Námsgagnastofnun . 1.905 1.868
Listasafn íslands . 781 432
Varnarmálaskrifstofa . 3.392 3.228
Ríldssaksóknari . 558 468
Vinnueftirlitið . 2.788 2.302
Rfldstollstjóri . 2.883 1.674
Lj'þanefnd . 2.101 1.812
Lyfjaeftirlitið . 992 857
Ferðamálaráð . 3.241 2.794