Vikublaðið - 15.12.1995, Qupperneq 9
VIKUBLAÐIÐ 15. DESEMBER 1995
Verðandi
9
Viðmælandi okkar er 18 ára gamall Hafhíirðingur, Þorvarður Tjörvi
Óiafsson. Tjörvi er af miklum Alþýðubandalagsættum, hann er fóstur-
sonur Magnúsar Jóns Amasonar, bæjarfulltrúa í Hafnarfirði og hvorki
meira né minna en sonarsonur Einars Olgeirssonar.
- Eitthvað að ffétta af bæjarmálununi í Hafnarfirði?
Bara það sama. Meirihlutijóhanns Gunnars Bergþórssonar er að dunda
sér við að ffamkvæma allar þær tillögur Jóhanns sem var hafnað í fyrri meiri-
hluta. Stjómarstefnan sem er í ffamkvæmd heitir: ég um mig frá mér til mín.
- Hvað er að frétta af ungum Alþýðubandalagsmönnum í Hafhar-
firði?
Lítið, allavega núna yfir prófin. En við förum að hittast eitthvað eftir ára-
mót.
- Nú eru ungir Garðbæingar að fara að halda stofiifund, hvað um
ykkur?
Jú, það er á döfinni, verið er að mynda undirbúningshóp.
- Hvað ertu að læra?
Eg er á þriðja ári á eðlisfræðibraut í MR.
- Af hverju MR?
Það stóð ekld til. En kom til svona mánuði áður en ég kláraði 10. bekkinn.
Akvað að fara burt og reyna að læra eitfhvað sjálfur.
- Hvað ertu að spá í að læra svo?
Ætli maður sldpti bara ekld um gír, fari í sögu, jafnvel pólitík.
- Hvað langar þig mest í á jólunum?
Jólaffí.
- Býrðu í foreldrahústun?
Já, bæði minna foreldra og kærustunnar.
- Hefurðu sloppið við flensuna?
Nei, svo sannarlega ekld.
- Hvemig h'st þér á umræðuna um sameiningu vinstri manna?
Hún er tímabær, mér líst vel á hana, vona bara að menn flýti sér ekki of
mikið. Þetta gerist ekki á einum degi. Mér líst vel á samstarf þingflokkanna ef
það gengur eftir, það er skref á rétta átt.
Kjós-
umþá
bara
um
ESB!
Almenningur er orðinn lang-
þreyttur á rifrildi Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Davíðs Odds-
sonar urn hvort aðild að Evrópu-
sambandinu sé á dagskrá eða eldd.
Jón Baldvin og evrópusinnamir í
öllum flokkum em nú heldur á
því að aðildarumræður séu á dag-
skrá á meðan Davíð Oddsson og
Vikublaðið segja að svo sé ekki.
Verðandi á það sammerkt með
Alþýðubandalaginu að vera á
móti aðild Islands að Evrópusam-
bandinu. Afstaða Verðandi
markast af ffamsali fullveldisins.
Framsali á löggjafarvaldi íslend-
inga. Það er skoðun okkar að óá-
sættanlegt sé að fela stofhunum
Evrópusambandsins það vald að
geta sett íslendingum reglugerðir
og tilskipanir sem hafa bein rétt-
aráhrif í landinu án umsagnar Al-
þingis. Þetta er ein af hinum óffá-
semjanlegu meginreglum Evr-
ópusambandsins. Sem sé ekld til
umræðu í samningaviðræðum, á
nieðan yfirráð yfir auðlindinni,
fisldmiðunum, kunna hugsanlega
að vera það. Það hefur aldrei ver-
ið afstaða Verðandi að banna um-
ræður um aðild. Það hefur heldur
aldrei verið afstaða Verðandi að
i rödd þjóðarinnar sldpti ekki máli í
þessu samhengi. Rödd þjóðarinn-
ar skiptir öllu. Það er þjóðin sem á
i að ákveða hvort aðild að Evrópu-
i sambandinu sé á dagskrá eða ekki.
SPÁDÓMURINN
Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hrökklast ffá völd-
um eftir harðvítugar deilur og óffið á
vinnumarkaði í byrjun árs 1997, kem-
ur það í hlut Bjöms Bjarnasonar for-
rnanns Sjálístæðisflokksins að gang-
setja kosningavélar og móta sóknar-
línur í kosningabaráttu Sjálfstæðis-
flokksins. Mun mörgum þykja hann
skjóta yfir markið með kosningaslag-
orðinu: Herinn burt - íslenskt, já
takk. Þó ber í bakkafullan lækirui þeg-
ar hann réttlætir stofnun íslensks hers
sem: „Leiftursókn í atvinnumálum og
nýsköpun.“
ÁBENDINGIN
Ábendinguna að þessu sinni fær Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra: . , ,
„Manstu eftir „Fólk ífyrír-
ními?“ Jœja, þegar kemur að
sjúkrahúsiega, þá er ekki hægt
að taka viðfólki.
Svo talarþu um að hækka
skatta! Látt'ekki svona greyið
mitt, þetta reddast!“
Ingibjörg talaði úm það í síðustu viku
að menn þyrftu að gera upp við sig
hvort ekki væri nær að hækka skatta
ffekar en að skera meira niður í
rekstri heilbrigðiskerfisins.
KOMMENTIÐ
Það er mín skoðun að mál séu
| best atgreidd, með einum eða
öðrum hætti.
Þess vegna segi ég að á næsta
ári gefst íslendingum kjörið tæki-
færi til þess að afgreiða ESB mál-
ið, með einum eða öðmm hætti.
Notum forsetakosningamar og
kjósum um framhald málsins.
Spyrjum kjósendur: á ísland að
sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu? Afgreiðum málið! Sé
svarið já, þá ber íslenskum stjóm-
völdum að sækja um aðild og
hefja samningaviðræður, þ.e.a.s.
fáist ESB að samningaborðinu.
Þjóðinni gæfist svo tækifæri til
þess að greiða atkvæði um samn-
inginn þegar hann lægi fyrir.
Málið sem sé afgreitt, méð einum
eða öðmm hætti.
Það er ekki okkar, andstæðinga
við inngöngu, að banna þjóðinni
að segja sitt álit. Það getur aldrei
verið málflutningi ókkar í hag.
Séum við trúir okkar sannfær-
ingu, þá hljótum við að gefa okk-
ur að þjóðin láti sannfærast af
okkar málflutningi þegar þar að
kemur. Geri hún það ekki, þá
verðum við einfaldlega að viður-
kenna að þjóðin (líkt og Alþýðu-
bandalagsmenn) hefur rétt til að
gera mistök, með einum eða öðr-
um hætti.
„Það er kominn tími á nýjan forseta ASÍ úr röðum Verkamannasam-
bandsins."
Þórir Karl Jónasson,formaður Sósíalistafélagsins.
Róbert Marshall
formaður Verðandi.
Werðandi lýsir
Hfir ánœgju
með það fram-
lak Margrétar
Frím annsdótt-
ur að vekja
máls á starfs-
þjálfun nem-
enda á fram-
halds- og há-
skólastigi.
Margrét sér um sína!
Margrét Frúnannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins er með fyrirspurn
um þessar mundir í þinginu til menntamálaráðherra. Spyr hún um starfsþjálf-
un nemenda á framhalds- og háskólastigi. Meðal efnis í fyrirspurninni er
hversu margar ríkisstofnanir og fyrirtæld hafa tekið nemendur á framhalds- og
háskólastigi í starfsþjálfun árin 1990-95. Þá spyr hún um fjölda nemenda og
hvaða nám þeir stundi. Jafnffamt er spurt hvort formlegir sanuiingar hafi ver-
ið gerðir við fyrirtæki eða stofnanir um starfsþjálfun nemenda og ef svo er
ekki, hvort ráðune\tið muni beita sér f\'rir því að slíkir samningar verði gerð-
ir. Þá er spurt hvort fyrirhugaðar séu einhverjar þær aðgerðir af hálfú mennta-
málaráðuneytis eða annarra ráðuneyta sem auðveldi ríkisfyrirtækjum, stofn-
unum ríldsins eða öðrum stofnunum og fyrirtækjum að taka við nemendum í
starfsþjálfun. Verðandi lýsir yfir sérstakri ánægju með framtak formannsins í
þessu máli og fylgist spemit með ffamhaldinu.
ÚTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
gatnagerð og lagnir í nýtt íbúðahverfi.
Verkið nhefnist:
Borgarhverfi 4. áfangi, Móavegur - Vættaborgir.
Helstu magntölur eru:
Götur, breidd 7 m
Götur, breidd 6 m
Holræsi 2.900 m
Púkk , 6.400 m2
Mulin grús 5.700 m2
Lokaskiladagur verksins er 1. ágúst 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 12. desember 1995,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 21. desember
1995, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjúvegi 3 - Sími 25800
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 21. útdráttur
1. flokki 1990 - 18. útdráttur
2. flokki 1990 - 17. útdráttur
2. flokki 1991 - 15. útdráttur
3. flokki 1992 - 10. útdráttur
2. flokki 1993 - 6. útdráttur
2. flokki 1994 - 3. útdráttur
3. flokki 1994 - 2. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 1996.
‘Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í dagblaðinu Degi föstudaginn 8.
desember. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEIID • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 690