Vikublaðið - 11.10.1996, Qupperneq 4
4
ALJt ©jf suint
VIKUBLAÐIÐ 11. OKTÓBER 1996
Guðný Halldórsdóttir, leik-
stjóri, er farin að skrifa hand-
rit að skemmtiþáttum hjá Sjón-
varpi allra landsmanna. Meðhöf-
undur hennar er Sigurjón Gnarr,
sem klofnar í félagana Sigurjón
Kjartansson og Jón Gnarr að
loknum vinnudegi. Þaettimir
verða á dagskrá sjónvarpsins
hálísmánaðarlega til jóla, á móti
Hemma Girnn, og brúa bihð þar
til Spaugstofan tekur við á ný.
Vikublaðið leit inn á Laugaveginn
og truflaði Guðnýju við skriftim-
ar.
Skrifstofa Guðnýjar og félaga er
jólagræn og gylltar plussgardínur
þyngslast fýrir glugganum. Leik-
munadeildin er greinilega innan seil-
ingar því mannsfótur stendur uppi á
hillu, og afskorin hönd liggur á
þeirri næsm. A veggnum hanga hinir
finnsku Leningrad Cowboys og and-
spænis þeim er rússneskt auglýs-
ingaplakat. Hámenningin er hins
vegar best geymd úti í horni;
Brennu-Njáls saga og vínilútgáfa af
Hljómsveit Finns Eydal.
Markmiðið með þáttunum er að
gera grín að íslensku þjóðfélagi og
fréttamati, vítt og breitt, að sögn
Guðnýjar. Hún segir að af nógu sé
að taka og þau Sigurjón Gnarr
greini sjaldan á um efhistök, húmor-
inn sé á svipuðum nótum. En hvern-
ig skyldu viðbrögðin utan skrifstof-
unnar hafá verið?
- Það hringdu tvær konur í Þjóð-
arsálina í gær til að kvarta og ég var
mjög fegin því, segir hún. - Þær
vom eins og klipptar út úr þáttun-
um; þessir leiðinlegu Islendingar
sem við emm að gera grín að. Það er
þessi sort af fólki sem gerir það leið-
inlegt að búa hérna, skapvont,
þröngsýnt og það hreinlega lekur af
því sldnhelgin.
Ekki er þetta stærsti áhorfenda-
hópurinn?
- Þetta em um 2% af þjóðinni
sem hringja og fylla Þjóðarsálina og
Velvakanda alla daga. Það fer nú að
vera kominn tími til að skrúfa fyrir
þetta fólk.
Við höfum hins vegar fengið frá-
bær viðbrögð persónulega og frá
fólki sem við treystum. Þátturinn
virðist falla vel í kramið.
Fjárveitingar til innlendrar dag-
skrárgerðar hafa verið af skomum
skanunti, er einhver breyting að
verða þar á með þessum nýju
þáttum?
- Varla. Það er verið að reyna að
halda kosmaðinum innan hóflegra
marka, tökudagar em fáir og klippi-
tíminn lítill. Við vinnum mjög hratt
og þess vegna hvilir mikil ábyrgð á
leikumm og tæknimönnum. Þeir
standa undir því enda em þeir aldir
upp héma í Sjónvarpinu og kunna
að bregðast hratt við og vel.
Þáttagerðin er fullt starf hjá
Guðnýju, en skyldi kvikmynda-
gerðin þá liggja í salti á meðan?
- Ég er með mynd í bígerð sem
hinn helmingurinn af Umba er að
reyna að fjármagna. Þetta er mynd
eftir smásögu föður rníns sem heitir
Ungfrúin góða og húsið. Sagan ger-
ist um aldamótin á Islandi og í Dan-
mörku en reyndar gæti farið svo að
ég þyrfii að láta hana gerast á Irlandi
og Englandi og þá myndu söguhetj-
umar tala geh'sku.
Er það fjármagnið sem enn á ný
setur strik í reikninginn?
- Ég hef haldið því ffam að síðasta
myndin sem gerð verði á íslensku sé
Djöflaeyjan. Viðhorfið til greinar-
innar bendir ekki til annars. Kvik-
myndasjóður er skorirm niður árlega
og íslenskir kvikmyndagerðarmenn
ekld studdir á nokkum hátt. Þessi
20% sem myndir em að fá úr sjóðn-
um era út í hött miðað við það sem
þær slála til baka, segir Guðný Hall-
dórsdóttir. Að því sögðu þarf hún að
rjúka til starfa þar sem félagar henn-
ar era famir að fikta við stórhættu-
lega lándskiptiaðgerð fyrir ffaman
myndavélamar og jarma innan úr
vinnukompunni.
Ertu að verða
menntamála-
ráðherra,
Valgerður?
Samband ungra ffamsóknar-
manna samþykkti ályktun á
dögunum um mikilvægi breyt-
inga á lögum um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna og krafðist
uppstokkunar í ríkisstjóminni
ef lögpmum ffá 1992 yrði ekki
breytt. Breytingamar vora á
stefhuskrá framsóknarmanna
fyiir
kosning-
ar í fýrra
ogþví
horfðu
margir til
þess að
flokkur-
inn fengi
mennta-
tnálin í
sína
vörslu.
Valgerð-
ur Sverrisdóttir var „skugga-
ráðherra“ framsóknar í
menntamálum á sl. kjörtímabih
og væntanlega kandídatinn í
ráðherrastóhnn um leið. Því
hggur beint við að spyrja, ef
hrókerað verður að vilja ung-
hðanna, ertu þá tilbúin að taka
við menntainálaráðuncytinu,
Valgerður?
- Ég held að það komi nú ekki
til þess að það verði neinar breyt-
ingar því við numum ná sam-
stöðu um að breyta lögunum,
þetta er aðeins spurning um tíma.
Eins og allir vita era mismunandi
áherslur í þessum málatlokki, en
það er verið að vinna að breyting-
um og það tekst! Að þessu sinni
verður mér því ekki boðinn þessi
stóll, það er náttúralega alltaf á-
hugavert að fá aukin völd, en ég
veit aðþetta mun verða á þennan
veginn þetta kjörtímabilið.
Býstu við niðurstöðu innan
skamms?
-Já.
Þá út ffá starfi nefhdarinnar
sem er að fara yfir afleiðingar
lagasetningarinnar?
—Já, en það verða ráðherrar að
koma að þ.essu líka.
Og verður hún ásættanleg
fýrir unga ffamsóknarmenn?
- Það verður að koma í ljós en
ég er alveg sannfærð um að við
náum saman. Þeir fýlgjast með og
vjð vitum alveg hvert urn annað í
þessu máli.
Við höldum þá áffam að á-
varpa Bjöm Bjamason sem
menntamálaráðherra?
- Allavega á þessu kjörtímabili,
maður veit aldrei hvað gerist eftir
kosningar.
þú
kæmist yfir tímavél
og gætír ferðast
hvert sem er og
hvenær sem er,
hvert yrði ferðinni
heitíð?
Einar Kárason
rithöfundur
Ég mjTtdi vilja fara til Galíleu, um 30-31
eftir Krist og hitta þann mæta ntann. Mig
myndi langa til að heyra hann flytja Fjall-
ræðuna, í það minnsta sjá hvemig hann leit
út. Ætli maður reikni ekki með að geta lært
eitthvað af honum, jafnvel fengið eitthvað
efhi líka. Ég held ég myndi vilja eyða svo
sem einni viku þama og ná að minnsta
kosti einni kvöldmáltíð, eklá endilega þeirri
síðustu þó, það yrði dálítið stórt dæmi,
- fótþvotturinn heillar ekki það mikið.
SPJALLIÐ
yhnhHr
AcIht ntArá
tiliú 4 tnicns
Adda Geirsdóttir er í innkaupaferð í 10-10
versluninni í Suðtnveri. Hún segist ekkert
láta óveðrið á sig fá enda búi hún í nágrenninu
og þetta sé þægilegur göngutúr. Adda er heima
núorðið en starfaði áður sem kennari, bæði á
Laugarvatni og í Safamýrarskólanum.
- Við eram tveir fýrrverandi kennarar í heimili og
það gengur bara bærilega að láta enda ná saman,
segir hún. - Það er auðvitað enginn lúxus í inn-
kaupakörfunni, en maður hefur aldrei lifáð á neinum
lúxus. Nú kaupir maður hins vegar minna af fötum
og eyðir nær eingöngu í gjafir og mat.
Adda segir gjafimar vera handa bamahópnum,
hún eigi reyndar engin barnaböm sjálf; - en ég var
nógu snjöll til að koma mér upp nokkram, segir
hún.
mÆwsmwmmwK vfirbobpmmu
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, laganemi
og formaður Stúdentaráðs Háskóla ís-
Iands, var í sviðsljósinu í sfðustu viku þegar
námsmannahreyfingamar stóðu fýrir tjald-
þingi um menntamál. Ástæðan var sú að
ekki var rúm fyrir námsmenn á þingi
menntamálaráðuneytisins sem haldið var á
sama tíma, né fýrir umræðu þeirra um lof-
orð og efhdir í menntamálum.
1. Hvaða stjómmálamaður, lifandi eða lát-
inn er í mestu uppáhaldi hjá þér?
Hann hefur ekki enn komið frani á sjónarsviðið.
2. Hvaða listamaður hefur haft mest álnif á
þjg? .
Megas, Bragi Olafs, lsak Harðar, Steinn Stein-
arr.
3. Hvaða skáldsagnapersónu vildirðu helst
líkjast?
Quinn úr trílógíu Pauls Austers vegna þess að
hann leitaði ogfatin ekki. Þegar maður hættir
að leita eða telursig hafafundið hinn stóra
sannleika þá leiðirþað til stöðnunar.
4. Hvaða persóna mannkynssögunnar vild-
irðu helst hafa verið?
Jesií, það er svo hagstætt að geta gengið á vatni
þegar búið er á eyju eins og Islandi.
5. Ef þú fengir að lifa lífinu aftur, hverju
myndirðu breyta?
Sagt er að kettir hafi níu líf. Mér er ekki kunn-
ugr um að manneskjan eigi fleiri en eitt. - Ekki
vil e'g vera köttur.
6. Hver er merkilegasti atburður sem þú
hefúr upplifað?
Kosning Olafs Ragnars sem forseta og það
að fá að flytja ræðu við hyllinguna.
7. Hver er merkilegasti atburður sem þú
ætlar að upplifa?
Satneiningjafiiaðatttianna tneð stofnun öflugs
jafiiaðamianttaflokks.
8. Hvaða atburður, verk eða manneskja
hefur mótað lífsviðhorf þitt ffamar
öðm?
Foreldrar mínir.
9. Ef þú ættir kost á því að breyta einu
atriði í þjóðfélaginu eða umhverfinu,
hvað yrði fýrir valinu?
Eg myndi sameina jafnaðannenn cn það er
forsenda annarra framfará. Stóri jafiiaðar-
mannaflokkurinn myndi síðan afnema
launamisrétti kynjanna,jafna atkvæðavxgi,
auka framlög til menntamála, Irreyta lögum
um Liínasjóðinn og lögunt um stjórnfisk-
veiða, svo fátt eittse' nefnt.
10. Sérðu eitthvað sem ógnar samfélag-
inu öðm fremur?
Sundrung vinstri manna.
11. Mottó?
Notið vetjtir, það fæðist íbaldsttiaður dag-
lega!
\~
i