Frjáls þjóð

Tölublað

Frjáls þjóð - 06.11.1953, Blaðsíða 1

Frjáls þjóð - 06.11.1953, Blaðsíða 1
FRJALS ÞJOÐ 2. árg. Föstudaginn 6. nóvember 1953. 44. tbl. Vísbending um bæjarstjómarkosnmgarnar: Stórsigur þjóÓvarnarstúdenta boðar örari stjórnmálaþróun í landinu JFjrawnboð þjóðr>amarmanna felldi dhaldsmeirihlutann »(/ af- sannaði grýlu gömiu flohkanna Urslit kosningar þeirrar til stúdentaráðs, er fram fór í háskólanum síðastliðinn laugardag, er táknrænt dæmi um straumhvörf þau í íslenzkum stjórnmálum, er nú eru að gerast. Hinn mikli sigur þjóðvarnarstúdenta í kosnmgunum er órækur vitmsburður um það, að sú stund nálgast óðfluga, að allur hmn frjálslyndari hluti þjóðarinnar skipi sér í ein þjóðleg, vmstri sinnuð sam- tök, en leyfi hinum ,,æfðu stjórnmálamönnum“ að daga uppi á stjórnmálasviðinu, mðursokkna í persónu- lega valdastreitu og eiginhagsmunabaráttu. Orslit kosninganna til stúdentaráðsins hafa að vonum vakið hina mestu athygli, og þau munu beinlínis verða til þess að hraða til muna þeirri þróun, að Þjóðvarnarflokkur fslands verði hinn sameinandi aflvaki iðnaðarmanna, bænda, sjómanna og menntamanna á íslandi. Hið nýja stúdentaráð á fyrsta fundi sínum: Frá vinstri: Einar K. Laxness, Sigurður E. Guðmundsson, Sigurður V. Friðþjófs- son, Valdimar Kristinson, Björn Hermannsson, Sverrir Her- mannsson (varamaður Ólafs H. Ólafssonar), Brynleifur Stein- grímsson, Jón Hnefill Aðalsteinsson, Eyjólfur K. Jónsson. Þjóðvarnarfélag stúdenta var, sem kunnugt er, stofnað örfáum dögum fyrir stúdentaráðskosn- ingarnar, og lagði það fram lista, er sýnt var, að ekki tókst að þessu sinni sameining um lista gegn meirihluta Sjálfstæð- ismanna í stúdentaráði. Úrslit kosninganna urðu þau, að listi Alþýðuflokksmanna fékk 62 atkvæði og einn fulltrúa (55 og einn fulltrúa í fyrra) Fram- sóknarmenn 76 atkvæði og einn fulltrúa (69 og einn fulltrúa í fyrra), kommúnistar 130 at- kvæði og tvo fulltrúa (130 at- kvæði og tvo fulltrúa í fyrra), Sjálfstæðismenn 301 atkvæði og fjóra fulltrúa (301 og fimm fulltrúa í fyrra) og þjóðvarnar- menn 86 atkvæði og einn full- trúa. Fimmtán seðlar voru auðir. Öjöfn aðstaða. Þjóðvarnarstúdentar fengu þannig þegar í fyrstu atrennu mun meira fylgi en Alþýðu- flokksmenn og Framsóknar- menn og slaga orðið hátt upp í kommúnista að fylgi. Er fylgi Alþýðuflokksins 9,25%, Fram- sóknarmanna 11,34%, þjóð- varnarmanna 12,84%, komm- únista 19,4%, Sjálfstæðismanna 44,93%, en auðir seðlar 2,24%. Er sigur þjóðvarnarmanna þeim mun meiri, er á það er litið, hve stúdentafélögin stóðu ó- jafnt að vígi — annars vegar gömul flokksfélög, sem á hverju ári hafa reynt að ná til sín öllum nýjum stúdentum, sem kostur hefur verið að fá, en hins vegar alveg nystofnað félag þjóðvarnarstúdenta. Enn er á það að líta, að við þessar kosningar reyndi flokksfélag annars stjórnarfIokksins,Fram- sóknarmanna, að gera hosur sínar grænar við stúdenta með því, að efsti maðurinn á lista þess væri algerlega andvígur hernáminu, þótt hann starfi í félagi, sem stofnað er til stuðnings við annan aðalher- námsflokkinn. Svipti Sjálfstæðisflokkinn meirihluta. Fyrir kosningar var það eitt /VWLWVVV^VVWWWAWWWVWVVV^WWVMJVVVVWVVWrtVWWV VWWMWWVWUVW Ríkið §kip kaupi og reki tvö til olíuflutninga Þingmenn Þjóðvarnarflokks- ins, Gils Guðmundsson og Berg- ur Sigurbergsson, hafa flutt á þingi frumvarp til laga um að ríkið láti smíða tvö olíuflutn- ingaskip, 12—16 þúsund Iestir að stærð hvort, er ríkið eigi og reki. Til þessara kaupa er gert ráð fyrir heimild til lán- töku erlendis, allt að 80 millj- ónir króna. í greinargerðinni er það rak- íð, að kaup á olíuflutninga- skipum munu verða hagkvæm fyrir þjóðina og spara henni mikinn gjaldeyri, en auk þess sé þetta mikilvæg ráðstöfun, þvi að þeir tj'mar geti komið, að mjög sé háskalegt að vera algerlega upp á aðrar þjóðir lcomnir um aðflutning á olíu til landsins. Olíunotkun Islendinga er nú 200 þúsund lestir á ári, og eykst stöðugt. Mikið af húsakosti er hitað upp með olíu, og land- búnaður og sjávarútvegur bygffja vélanotkun sína mjög á olíu. Fyrir olíuflutningana til landsins hafa verið greiddar 30—40 milljónir króna til er- lendra aðila hin síðustu ár. Og þótt þessi flutningagjöld hafi lækkað síðustu misseri, nema þau enn gífurlegum fjárhæðum. Tvö olíuflutningaskip af þeirri gerð, sem miðað er við í frumvarpinu, eru talin kosta 70—80 milljónir, ef látið er smíða þau, en nýleg skip, sem ef til vill væri liagfelldara að kaupa, má fá á allmiklu lægi;a verði, vegna þess að flutnings- Igjöld eru nú lægri en áður var, og því nokkurt framboð á slíkum skipum. Virðist því nú hentugt tækifæri til þess að komast að sæmilegum kaupum á nýlegum og heppilegum skip- um. Þá segir enn í greinargerð- inni, að rekstur olíuflutninga- skipa sé talinn svo örugg- ur og arðvænlegur fyrir okkur, að öflun Iánsfjár til kaupa á slíkum skipum muni áð lík- indum auðveldari en til margra annarra framkvæmda, og hef- ur kunnur útgerðarmaður, sem vel hefur kynnt sér þetta mál, skýrt frá því á opinberum vett- vangi, að hann mundi geta út- vegað lánsfé í þessu skyni. Tvö olíuflutningaskip af þeirri stærð, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, eiga að geta annað olíuflutningum fyrir ís- lendinga, og mundu spara ár- lega meiri gjaldeyri en nota þyrfti til greiðslu vaxta og af- borgana af stofnláni. Engum vandkvæðum ætti að vera bundið að manna þau íslenzk- \um áhöfnum, og fengju þar níutíu sjómenn fasta atvinnu. helzta áróðursefnið gegn þjóð- varnarmönnum, að framboð þeirra væri stuðningur við Sjálfstæðismenn. Reynslan og úrslitin sýna hins vegar, svo að ekki verð- ur um deilt, að framboð þjóðvarnarmanna varð til þess að svipta Sjálfstæðis- flokkinn mcirililutaaðstöðu sinni í stúdentaráði, og án framboðs hans hefðu þau úr- slit verið óhugsandi, nema um sameiginlega lista gegn Sjálfstæðisflokknum hefði verið um að ræða, sem alls ekki fékkst framgengt. Reynslan og úrslitin sýna, að allir gömlu flokkarnir hafa tapað fylgi hlutfalls- lega meðal háskólastúdenta, en mest hó Sjálfstæðismenn og kommúnistar. Þar eru þjóðvarnarmenn, sem hafa unnið þetta fylgi, og svipt Vöku, félag Sjálfstæðis- manna, meirihlutanum í stúdentaráði. Sigurhátíð snýst í erfisdrykkju. Sjálfstæðismenn lögðu í gif- urlegan kostnað vegna stúd- entaráðskosninganna, og höfðu umfangsmikla kosningaskrif- stofu í Tjarnarkaffi. Leigubif- reiðir voru fengnar hjá bif- reiðastöðvum á flokkskostnað til þess að sækja langar leiðir út á land stúdenta, er ekki voru komnir til bæjarins, og í engu sparað, þar sem fjármunir gátu greitt veg. Svo vissir þóttust Sjálfstæð- ismennirnir um sigur, að þeir höfðu fyrirfram boðað til sig- urhátíðar í Sjálfstæðishúsinu, og var hún byrjuð, þegar hin óvæntu tíðindi um kosninga- úrslitin bárust. Urðu geðbrigði hinna sjálfumglöðu Sjálfstæð- ismanna í Vöku ærið snögg, og snerist sigurhátíðin í erfis- Framh. á 3. síðu. Annar íhaldsráðherra fer í slóð Björns Ólafssonar Rústir síldarstöðvar í eyðiþorpi látnar upp í storeignaskatt Thdrsaranna Ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins ætla að reynast skúrræksnissiðferði sínu trú- ir. Nú hefur forsætisráðherra landsins, Ólafur Thors, og bræður hans þrír fengið dóm hæstaréttar fyrir því, að þeir megi greiða stóreignaskatt að upphæð 445,660 krónur að langmestu leyti með verð- lausum kofaþyrpingum í eyðiþorpi vestur í Sléttu- hreppi. „Eignir“ þær, sem þessi ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins mun nú jafna með skatt- reikninginn við ríkissjóð, eru rústir gamalla bækistöðva útgerðarfélagsins Kveldúlfs á Hesteyri, er staðið hafa auðar og ónotaðar um langt skeið, enda þorpið verið yf- irgefið og mannlaust árum saman, þótt einn maður þraukaði lengi í þessu forna byggðarlagi. Meðal „eignanna“ á Hest- eyri, sem ríkissjóður fær nú í sinn hlut sem stóreigna- skatt frá Thórsurum, er sagt að sé svínastía, kolageymsla, smiðja og bryggjuskrifli, en allar eru þessar „fasteign- ir“ nú einskis virði vegna niðurníðslu, þótt enn væri byggð á þessum slóðum. Þessar Hesteyrareignir Kveldúlfs eru virtar á 390 þúsund krónur og duga því ekki alveg fyrir stóreigna- skattinum, því að ekki fara þó enn sögur af því, að for- sætisráðherrann hafi útvalið sér menn til þess að fram- kvæma á þeim nýtt mat til hækkunar, sem flokksbróð- ir hans í ráðherrastól, Björn Ólafsson, gerði, er hann greiddi sinn skatt með þeim hluta Hagaeignarinnar, sem átti að rífa. En að öðru leyti er þetta skatthneyksli jafnvel enn svívirðilegra eðlis en mál Björns Ólafssonar, bar sem hér eru Thórsararnir að borga einkaskatt sinn með einskis nýtu rusli annars skattaðila, hlutafélagsins Kveldúlfs. — Lengi getur vont versnað, segir máltakið. Lögin um stóreignaskatt- inn voru samin og samþykkt af Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum og gefin út af Birni Ólafssyni sjálfum. Það er ekki tilvUj- un, heldur táknrænt dæmi um stjórnmálaspillinguna og ræksnissiðferðið á hæstu stöðum, að tveir af ráðherr- um Sjálfstæðisflokksins skuli nær einir manna nota misfellur þeirra laga, er þeir sjálfir gerðu úr garði, til þess að koma sér og sínum vanda- mönnum undan því að greiða stóreignaskattinn á hlið- stæðan hátt og aðrir menn. FRJÁLS ÞJÓÐ skírskotar til réttarvitundar íslenzku þjóðarinnar og leggur það undir dóm hvers alþýðu- manns til sjávar og sveita, hvað slík beiting valds og trúnaðar í rauninni er. — Hver, sem gerir sér grein fyrir því, en Ijær þó slíkum mönnum atfylgi til þess að skipa áfram málum á þingi og í stjórn, er samsekur um þann verknað, sem fótum- treður lýðræðið í landinu og gerir það að skrípaleik ó- svífinna eiginhagsmuna- braskara, sem telja sig ekki einu sinni þurfa að hafa fyr- ir því að reyna að dyljast. — Enginn hæstaréttardómur getur réttlætt slíka skatt- greiðslu sem þessa af hálfu forsætisráðherra Iandsins. Slíkir menn sem ráðherrar þeir, er hlut eiga að þessu máli, eiga að þoka af stjórn- málasviðinu. Stiidentaráð Fulltrúar þjóðvarnarstúd- enta, Alþýðuflokksmanna, kommúnista og Framsóknar- manna hafa komið sér saman um starfsgrundvöll í stúdenta- ráði. Stjórn stúdentaráðsins var kosin á þriðjudaginn og er hún skipuð Birni Hermannssyni frá Félagi frjálslyndra stúdenta, sem er formaður, Brynleifi Steingrímssyni frá Þjóðvarnar- félagi stúdenta, sem er gjald- keri, og Jóni Hnefli Aðalsteins- syni, sem er ritari og úr flokki Sjálfstæðismanna, er höfðu bol- magn til þess að koma einum manni í stjórnina. í blaðinu í dag birtist neðanmálsgrein eftir Vilmund Jónsson landlækni um höfund 'þjóðsögunnar um Valtý á grænni treyju. En um þessar mundir er Þjóðleikhúsið einmitt að hefja sýningar á samnefndum sjónleik, er Jón Björnsson hefur samið, og er efnið sótt í þjóðsöguna. Vilmundur leiðir rök að því, að höf- undur þjóðsögunnar sé Halldór Jakobsson, er bjó að Hofi í Öræfum allmörg ár á síðari hluta nítjándu aldar. Myndin hér að ofan er af bænum að Hofi í Öræfum.

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.