Frjáls þjóð

Tölublað

Frjáls þjóð - 06.11.1953, Blaðsíða 3

Frjáls þjóð - 06.11.1953, Blaðsíða 3
Föstudaginn 6. nóvember 19S3.. FRJÁLS ÞJÓÐ 3 Verjendur ræksnissiðferð- isins flæktir í mötsagnir .stofu fúílltrúans í ráðuneyt.inu) Eysteinn Jónsson fjármála- ráðberra lét einn undirmanna : sinna í fjármálaráðuneytinu birta vottorð í blöðum, meðai , annars Tímanum 21. október síðastliðinn, og síðan skrifa í sama blað grein 29. október um hið fræga skúrmál, sem lengi mun halda uppi stjórnmála- minningu fjármálaráðherrans og Björns Ólafssonar. í seinni ritsmíðinni lýsir þessi undir- maður, Kjartan Ragnars full- trúi,-á hendur sér þeirri sök og ábyrgð, sem ráðherra einn get- ur borið, samkvæmt stjórnar- skrá landsins, og í öllu þessu máli er fulltrúinnn flæktur i ; þær mótsagnir, er gera orð hans að ómerku hjali. f vottofði fulltrúans 21. okt. er svo að orði komizt: „Var þá fyrir hendi fast- eignamat á ei gninni Haga í heild, en ekki einstökum hlut- um hennar.“ Hinn 29. okt., þegar FRJÁLS ■ ÞJÓÐ hafði upplýst málið nán- ,ar, skrifar sami fulltrúi: „Það er upplýst, að fast- .eignamatið í Reykjavík(sem er til húsa 3—-4 metra frá skrif- hafði glatað fasteignamats- gerðinni, sem sýndi mat á ein- stökum hlutum eignarinnar.“ Hér er m. ö. o. játað, að vott- <orðið ffrá 21. okt. hafi verið rangt, hvað þetta atriði snert- ir, og fráleitt að hugsa sér, að fulltrúinn hafi ekki vitað það, ef hann hafði jafn mikið með þetta mál að gera og hann vill vera iláta, því að þá tilheyrði það embættisskyldu hans að vita um sérmatið á skúrnum, gem ríláissjóði var ætlað að taka sem greiðslu á skatti Björns Ólafssonar. Enn segir í vottorði fulltrú- ans 21. ókt.: „Nú kemur í ljós, að fastéignamatið í Reykjavík hefur metið eignina að nýju, eftir að hluti hennar var orð- in eign ríkissjöðs —“ En 29.' okt. skrifar sami full- trúi: „Hitt er svo annað mál, .... að fasteignamatið í Rvík endurmetur eignina (vegna þess, að spjaldið var glatað) i sama mund (þ. e. þegar mats- gerð fulltrúa Björns Ólafsson- ar var staðfest og nánar tiltek- tvær matsgerðm ekki samhljóða — og var mér ekki kunnugt um hana fyrr en á.þessu ári.“ Hér er fulltrúinn ennþá í mótsögn við sjálfan sig, þar sem í vottorðinu segir, að skúr- inn hafi verið metinn eftir að ríkissjóður hafði tekið við hon- um, en í greininni (29. okt) í sama mund (þ. e. sama dag) og matsgerð Björns Ólafssonar var staðfest, þ. e. áður en ríkissjóð- ur tók við skúrnum, og bar fulltrúanum embættisskylda til að vita það. í vottorðunum 21. okt. segir fulltrúinn enn fremur: „Eignina varð ríkissjóður að taka á því mati, sem lagt var til grundvallar skattálagning- unni, en það var fasteignamat það sem í gildi var 31/12.1949.“ En 29. okt. segir sami full- trúi: „Með afsali félagsins fylgdi matsgerð tveggja dóm- kvaddra manna, sem borgar- dómarinn í Reykjavík hafði tilnefnt eftir ósk félagsins ‘ (Björns Ólafssonar^. Og þrátt fyrir fyrri ummælin var matið, sem Björn Ólafsson hafði látið framkvæma í árslok 1951, lagt til grundvallar ,á verðmæti skúrsins, og það enda þótt það mat væri mun hærra en fast- eignamat Rvíkur. Niðurstaðan af þessu öllu verður þá sú, að Björn Ólafs- son afhendir ríkissjóði verð- lausan hluta af eign til niður- rifs, sem greiðslu á stóreigna- skatti sínum á rúmlega sjö- földu fasteignamati í stað þess að lögin mæltu svo fyrir, að verðmætar eignir mætti ekki taka á hærra verði en sexföldu fasteignamati, til greiðslu á skattinum. Ótvíræðara ’lögbrot var naumast unnt að fremja i þessu sambandi, og verður því ekki séð, að Eysteinn komizt hjá því að segja af sér ráðherraembætti af þeim sökum, því að vit.an- lega ber hann ábyrgð á þessu máli, og dregur það þó ekki úr sök Björns Ólafssonar. Ekki er heldur ljóst, hve miklu Kjartan Ragnars hefur ráðið um skriftamál sín, því að FRJÁLSRI ÞJÓÐ er a. m. k. kunnugt um það, að greinina frá 29. okt. var hann látinn tví- skrifa áður en samþykkt var að hún yrði prentuð. Örari stjórnmáiaþróun - Framh. af 1. síðu. drykkju. Ný þjóðleg samtök, sem æskufólkið í landinu fylkir sér um, höfðu komið til sög- unnar, og fyrsta átakið í há- skóla Islands var að velta frá völdum í stúdentaráðinu um- boðsmönnum Sjálfstæðisflokks- ins svonefnda. Og meiri tíðindi munu á eftir fara. Bending um bæjarstjórnar- kosningarnar. Kosningin í stúdentaráð sýn- ir, að vakningaraldan » land- inu rís sífellt hærra og hærra, og þjóðvarnarmcnn eflast að fylgi og trausti. Hún er einnig glögg bending um bað, að nú hallar undan fæti hjá Sjálf- stæðisflokknum. Meðal annars spá bessi úrslit ekki góðu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í bæjar- stjórnarkosningunum »' vetur, allra sízt í Reykjavík. Vænt- anlega verður tekin upp af honum taugaspennt hræðslu- pólitík með gullnum loforðum um hvers konar yfirbætur, og ekki ólíklegt, að fleiri hinna gömlu flokka grípi í örvænt- ingu sinni til svipaðra ráða. En hræðsla hefur sjaldan reynzt sá fylginautur, sem mikla sigra veitir á stjórnmálasviðinu. — Hræðslupólitíkin yrði aðeins vitnisburður um það, að dómur- inn yfir stjórn íhaldsins í Reykjavík er í rauninni fallinn fyrirfram. ið sama úagj og eru þessar Fyrst um sinn breytist starfræksla Sundhallarinnar þannig, að íþróttafélögin í Reykjavík fá höllina til sund- æfinga 5 daga í viku frá mánudegi til föstudags kl. 7—8,30 síðdegis. — Áuk tíma til sundknattleiksæfinga eftir kl. 10 á kvöldin. Síðdegis fá bæjarbúar almennt aðgang að Sund- höllinni frá kL 4—6,15 og frá kl. 8,30—9,15. Bæjarbúar, munið kl. 4—6,15 og kl. 8,30—9,15. Lá mér við að slumpa á, að vísast hefðí Jón Landeyingur sagt Magnúsi söguna og lagað í hendi sér, en aftur hefði Jón vitnað til mæðgininna sem sinna heimildarmanna, og færi hér lítið eitt á milli mála hjá Magnúsi. En með því hefði þeim ráðvanda manni verið rangt og ómaklega til getið, og rak mig hér í vörðurnar. ■jVTú í suinar gistí ég á Kvi- -- ’ skerjum í Öræfum, og bar þá á góma Valtýssögu milli; mín og húsfreyjunnar, Þrúðar1 Aradóttur, móður hinrra kunnu Kvískerjabræðra, og hver væri líklegur heimildarmaður að sögunni. Var húsfreyja ófróð um það, og svo mun vera um aðra Öræfinga. Bárum við þá saman bækur um aðflutt fólk í Öræfum í tíð Magnúsar á Hnappavöllum, og nefndi hún í því sambandi Halldór Jakobs- son, er nokkur ár hefði búið á Hofi í Öræfum. Ekki vissi hún, hvaðan hann hafði flutzt í sveitina, en ljóst var henni, að það var annar maður en nafni hans, tengdasonur Magnúsar ríka á Bragðavöllum í Hamars- firði; sá Halldór Jakobsson bjó um hríð í Hestgerði í Suður- sveit og var að vísu austan af Fljótsdalshéraði, en ekki var hann þar upp alinn, heldur frá því að hann var þriggja ára í Breiðdal og síðar í Suðursveit. TTalldór Jakobsson á Hofi - ■ • reynist vera albróðir al- nafna síns, Halldórs Jakobsson- ar í Hestgerði, og var Halldór á Hofi fjórum árum yngri. Báðir voru fæddir á Hafursá í Skóg- um á Fljótsdalshéraði, Halldór yngri 3. janúar 1842. Foreldrar þeirra bræðra voru Jakob Kristjánsson, bóndi þar, ey- firzkur, og kona hans, Sesselja Þórðardóttir, er áður hafði átt Hinrik Hinriksson á Hafursá, og var þeirra sonur Einar, fað- ir Karls, fyrrverandi sýslu- manns í Vestmannaeyjum. Halldór eldri fylgdi ekki for- eldrum sínum, en það gerði aftur á móti Halldór yngri. Ólst hann upp hjá þeim, á Gíslastöðum á Völlum, frá því að hann var tveggja ára cil 16 ára aldurs; þaðan fermdist hann vorið 1856 „vel að sér i skilníngi og kunnáttu og bók- lestrí, ei óefnilegur.“ Árið 1858 flyzt Halldór léttadrengur til bróður síns frá Gíslastöðum að Hestgerði í Suðursveit, og þangað flytjast einnig for- eldrar hans á næsta ári. Vonð 1860 deyr faðir hans í Hest- gerði, og árið eftir flyzt Hall- dór í Öræfi með Sesselju móð- ur sinni, gerist bóndi þar á Hofi og móðir hans fyrir fram- an hjá honum, unz hann kvæn- ist árið 1864 Þórunni Þórarins- dóttur, ekkju Magnúsar Teits- sonar, bónda á Hofi. Þá flyzt Sesselja gamla aftur austur og nú til Einars sonar síns á Mið- húsum í Eiðaþinghá Hinriks- sonar og deyr þar hjá honum fjórum árum síðar. Halldór bjó með konu sinni á Hofi til dauðadags, sem var ekki langt að bíða. Hann hrapaði til dauða í Ingólfshöfða 27. júlí 1871, tæplega þrítugur. Þau Halldór og Þórunn eignuðust tvo sonu, og komst aðeins ann- ar þeirra upp, Friðrik Baldvin að nafni. Varð hann úti á Eskifjarðarheiði árið 1894, þá vinnumaður á Þuríðarstöðum í Eiðaþinghá, 28 ára að aldri, o- kvæntur og víst án þess að láta eftir sig afkomendur. Hér er þá kominn Múlsýsl- ungur, alinn upp í Valla- hreppi, heimildarmaður Magn- úsar á Hnappavöllum að Val- týssögu, eða höfundur sögunn- ar, ef menn vilja hafa það svo, og einnig móðir hans, og er hér ekki öðrum mæðginum til að dreifa. Um Halldór þenna Jakobsson mun nú lítið verða vitað um fram það, sem hér hefur verið sagt, enda ekki ótítt um fyrri tíma höfunda íslenzka, að fátt segi af þeim. (Þeir bæta það upp, nútíma- höfundarnir). Þó á ég í fórum mínum smásögu um hann eftir móður minni, og felst að vísu í sögunni nokkur mannlýsing, en ekki verður hún sögð hér. Halldóri Jakobssyni segist svo frá, að 18 ára að aldri hafi hann mátað við sig lærleggi Valtýs á grænni treyju á dys hans. Samkvæmt því hefði Halldór átt að bregða sér aust- ur, eftir að hann fluttist suður 16 ára, en ekki þarf það að vera, því að hann taldi sig, er hann kvæntist og jafnan eftir það, tveim árum eldri en hann var, enda átti ekkju, sem var 20 árum eldri en hann. TTalIdór Jakobsson lýkur •“ Valtýssögu með því að miiinast langafa síns, Jóns, er verið hafi ráðsmaður Jóns Arnórssonar, Múlasýslumanns. Til skila kemur Jón þessi, og vill svo til, að aðeins er um einn Jón að ræða sem langafa Halldórs Jakobssonar: I. Halldór Jakobsson á Hofi. II. 1. Jakob Kristjánsson á Gísla- stöðum á Völlum, f. 24/5 1805, d. 5/6 1860. 2. Sesselja Þórðardóttir, f. um 1800, d. 17/5 1868. III. 1. Kristján Magnússon í Ytra Villingadal í Eyjafirði. 2. Kristrún Halldórsdóttir. 3. Þórður Gíslason á Finnsstöð- um í Eiðaþinghá. 4. Eygerður Jónsdóttir. Langafinn er enginn annar en Jón pamfíll, faðir Hermanns í Firði í Mjóafirði, hinn mikli ættfaðir Austfirðinga. Tímans vegna getur það vel átt sér stað, að Jón pamfíll (f. um 1718, d. 22/2 1796) hafi verið ráðsmaður Jóns Arnórssonar, er var lögsagnari í Múlasýslu 1769—1778. Faðdr Jóns pamfíls var Jón Hjálmsson, er um skeið bjó á Eyjólfsstöðum a Völlum, einmitt þar sem Valtýr Nýtt hefti kemur í bókaverzlanir í dag. Þetta er 3. hefti af hinu vinsæla og sérstæða tímariti. Efni m.a.: Sagan af Vatnsleysuströndinni. Samtal við hina þjóðfrægu landeigendur, er undirrituðu mótmæli gegn landráni hers- ins. — Myndir af bændunum fylgja grein- inni. Ársafmæli hersins á í.síandi. Keflavíkurflugvöllur og lífið þar. (Fyrsta grein). Útlagar og fangar. Þar segir frá heimkomu 304 íslendinga, er komu með Esju að styrjöld lokinni. Islendingar i brezkum fangelsum. Frásagnir og skýrslur um lævíslegar pynd- ingaaðferðir í víti þagnarinnar vikum og mánuðum saman. — Skýrslur, sem ekki hafa birst fyrr frá Magnúsi Kjartanssyni ritstjóra, Hinriki Guðmundssyni verkfræð- ingi, Sigurði Kristj ánssyni vélfræðing og Leif Jóhannessyni rakara. íslendingar snapa úr sorpi hersins. Kvæði eftir Vilhjálm frá Skáholti og Jón Helga- son. Enn er ónefnt nokkuð af efni ritsins, svo sem þátturinn Við veginn, Satt og ýkt og önnur síðan, sem flytur ýmsan fróðleik. Heftið kostar aðeins 12 kr. til áskrifenda. Þeii, sem hafa áhuga fyrir samtíðarsögunni og þjóðernismálunum ættu að fylgjast með útgáfunni og gerast strax áskrif- endur. 2—3 hefti á ári. Einstök kostakjör fyrir nýja áskrifendur nú. Áskriftarsími 6470. Utanáskrift: Útg. Virkið, Pósthólf 1063, Rvík. i Tilkynning til félagsmanna Brunabótafélags íslands um iðgjaldalækkun. Vér viljum vekja atygli félagsmanna vora á því, að vegna hagstæðs reksturs undanfarin ár, hafa iðgjöld veriö lækkuð frá og með 15 október s.l. um 5—25% eftir bygg- ingarflokkum. Lækkun þessi samsvarar rúmlega einnar milljón króna árlegri arðsúthlutun. Virðingarfyllst, á grænni treyju á að hafa búið samkvæmt sögunni, og er hér rakin leið, að geymzt hafi með þessum kynþætti fornar — e. t. v. ævafornar — sagnaminjar um voveifleg örlög Valtýs ein- hvers í einum eða öðrum tengslum við Eyjólfsstaði, ekki sízt, þar sem einmitt á þessum slóðum er frá fyrri öldum kunnugt um menn með Valtýs- nafni (ekki fyrirferðarlitla og vel líklega í vænum treyjum) og ekki annars staðar á landinu (Sýslumannaævir 111,434). Það er ekki eingöngu svó um þjóð- sögur, heldur einnig skáldsög- ur, að þær eru yfirleitt smíð- aðar úr einhverju efni. Hafi Halldór Jakobsson „diktað“ sögu þá, er hér um ræðir, af skáldlegri íþrótt sinni, gegnir I nokkurri furðu, að hann finni upp á því af hyggjuviti sínu einu saman að nefna söguhetj- una einmitt Valtý og klæða hana í græna treyju, og er sýnu nær að ætla, að til þess liggi einhver rök. En vilji Frjáls þjóð fá sögu þessa rakta lengra aftur í aldir, ræð ég henni til að koma sér vel við Stein Dofra, því að hann veit ég manna vís- astan til að taka þar upp sögu- þráð, er aðrir enda. 1/11 1953.

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.