Frjáls þjóð

Útgáva

Frjáls þjóð - 06.11.1953, Síða 2

Frjáls þjóð - 06.11.1953, Síða 2
2 FRJÁLS ÞJÓÐ Föstudaginn 6. nóvember 1953. FRJÁLS ÞJOÐ Útgefandi: Þjóðvarnarflokkur íslands. Ritstjóm: Jón Helgason (ábm.), sími 6169, Bergur Sigurbjörnsson, simi 80631, Valdimar Jóhannsson, sími 82156. Afgreiðsla: Skólavörðustíg 17. Rvík. Sími 2923. — Pósthólf 561. Askriftagjald kr. 5,00 á mánuði. — Verð í lausasölu kr. 2,00. Félagsprentsmiðjan h.f. Menn, sem missa glæpinn í blöðum Framsóknarmanna og Alþýðuflokksins og komm- únista, á mannfundum, sem þessir aðilar standa að, og x tali manna á milli, má oft sjá og heyra þá fullyrðingu, að til- koma Þjóðvarnarflokks Is- lands verði til þess, að stuðla að auknu veldi Sjálfstæðisflokks- ins og jafnvel tryggja honum þingmeirihluta. Þessi fullyrð- ing hljómar reyndar nokkuð hjákátlega í blöðum flokka og af munni manna, sem árum saman og jafnvel áratug eftir áratug hafa notað það kjörfylgi, sem þeir hafa fengið í landinu til þess að stuðla að völdum Sjálfstæðisflokksins og gera honum kleift að ráða í öllum meginatriðum stefnunni í landsmálum. Samt má vel vera, að einhverjir þeir séu, er nokk- urn trúnað hafa lagt á þessa furðulegu fullyrðingu. Þessari fullyrðingu var meðal annars beitt til þess að reyna að níða fylgi af lista Þjóðvarn- arfélags stúdenta við stúdenta- ráðskosningarnar á laugardag- inn var. Um það var sýnilega hezta samkomulag meðal fylg- ismanna allra gömlu flokkanna. En kenningin var röng, og það sannaðist til hlítar þegar við þessar kosningar. í íslandsklukku Halldórs Kiljans er sagt frá manninum, sem missti glæpinn. Framsókn- arflokkurinn, Alþýðuflokkur- inn og Sósíalistaflokkurinn hafa misst glæpinn. Þeir hafa þegar við fyrsta tækifæri orðið að viðundri með há staðlausu fullyrðingu sína, að vöxtur Þjóðvarnarflokks íslands hlyti að leiða til bess, að Sjálfstæðis- flokkurinn héldi lengur velli. Stúdentaráðskosningin sannar, að bessi fullyrðing var öfug- mæli, sem þessir hrír stjórn- málaflokkar hafa notað til þess að reyna að hræða fólk frá þvi að fylgja þeim flokki, sem það treystir bezt og finnur, að það á samleið með. Að þessu liggja einföld rök. Að minnsta kosti Framsóknar- flokkurinn og Alþýðuflokkur- inn hafa nú um skeið verið allt annað en aðlaðandi stjórn- málaflokkar fyrir ungt fólk og raunar alla, sem ekki sætta sig við þann klíkuskap og það si- fellda undanhald, er þar hefur ríkt í hinum mikilvægustu mál- um. Allmörgu ungu fólki, sem í rauninni er andvígt öllum gömlu flokkunum og hátterni þeirra, hefur jafnvel þótt Sjálf- stæðisflokkurinn að skömminni til skárri. En hað, sem nú hefur gerzt, er einmitt það, að upp er risinn flokkur, sem unga fólk- inu er að skapi, og til hans sópast nú fylgið frá öllum gömlu flokkunum. Ekki sízt hnígur til fylgis við hann fjöldi af ungu fólki, sem alls ekki gat sætt sig við Framsóknarflokk- inn og Aþýðuflokkinn, en af misskilningi hafði um stund hneigzt til fylgis við Sjálfstæð- isflokkinn. Þess vegna er það líka fjarri lagi, að Þjóðvarnar- flokkur íslands verði til þess að styrkja aðstöðu Sjálfstæðis- flokksins í þjóðfélaginu. — Það mun einmitt verða hlutverk Þjóðvarnarflokksins að kné- setja Sjálfstæðisflokkinn og það spillta vald, sem drottnar innan hans. Það hlutverk hafa hinir flokkarnir ekki getað rækt af því, að heir hafa brugð- izt frumhugsjónum sínum, glatað þeim eldi sannfæringar og baráttuvilja, sem ■' öndverðu gerðu þá að sterkum stjórn- málaflokkum. í stað hess að bæta ráð sitt hafa forsvarsmenn þessara flokka fundið upp grýluna um það, að Þjóðvarnarflokkur fs- lands yrði Sjálfstæðisflokknum til gengisauka. En nú hafa þeir misst glæp sinn, eins og maður- inn í sögu Kiljans. Brunnar lífs- hamingjunnar Það er ekki á hverju degi, að skemmtilega vitlausar greinar birtast í dagblöðunum. En eina slíka forustugrein fengum við í Tímanum á sunnudaginn. Hún fjallaði um „brunna lífsham- ingjunnar“, sem sagt var, að Þjóðvarnarflokkurinn hefði í hyggju að „hella eitri“ í. En andinn að baki greinar- innar virðist vera þessi: Það er alveg óviðurkvæmilegt, að landslýðurinn sé ekki fyllilega ánægður með stjórnarvöldin og allar þeirra gerðir. Það jafnast á við þann höfuðglæp að eitra brunna. — „Ég vil ekki hafa neinar annarlegar spekúlering- ar á mínu heimili,“ sagði Ber- víkurhreppstjórinn við Ólaí Kárason Ljósvíking. Síðan er Þjóðvarnarflokknum meðal annars kennt um, að ekki tekst að fá fólkið til þess að sætta sig við stjórnarfarið. „Fyrir þessum og þvílíkum bölvöldum sálarlífsins verður þjóðin að gæta sín,“ segir þar. Þó að þessi forustugrein Tím- ans sé utan við allan veruleika, er rétt að benda á eina stað- reynd, sem forustumönnum Framsóknarflokksins virðist al- veg sjást yfir. Það „tómlæti“ í garð Framsóknarflokksins, sem greinarhöfundur kvartar yfir, er ekki skapað af Þjóðvarnar- flokknum. Það er heimatilbúið. Það er ávöxtur ráðsmennsku Framsóknarforingjanna, sem hafa glatað öllum fyrri hug- sjónum flokksins og ratað í þá ógæfu að fara illa með trúnað og völd. Þeir hafa sjálfir átt sinn ríka þátt í því að skapa jarðvég fyrir Þjóðvarnarflokk íslands og gera hann nauðsyn- legan. Þótt þeir, sem stofnuðu Þjóðvarnarflokkinn, hefðu ekkert aðhafzt, hefðu aðrir menn risið upp og myndað svipaðan flokk, því að sjólft stjórnmálaástandið 1 landinu krafðist hans. Hann var sögu- leg og óumflýjanleg nauðsyn og af sömu ástæðu veitist hon- um létt að afla sér fylgis, bæði í sveitum og kaupstöðum. Við því sporna blöð og málrófur gömlu flokkanna hvorki með öskrandi vonzku né torskildu fimbulfambi. u 'ori veröí Nýlendustjórnin brezka á Atburður, sem varpar þungum skugga á vestrænt lýðræði, hefur nýlega gerzt, og voru þó ærnir skuggarnir fyrir — fram- koma Bandaríkjamanna í mörgum löndum og meðal annars i heimalandi sínu, þar sem þeir hafa tekið upp skoðanakúgun og jafnvel lagt drög að pólitískum fangabúðum, nýlendustríðið i Indó-Kína, aðfarir Breta í Kenýu, harðstjórn Frakka í Norður- Afríku. Þessi síðasti athurður er valdbeiting sú, sem Bretar hafa framið í Brezku Guiana, þar sem löglegum stjórnarvöldum var steypt af stóli með hervaldi, stjórnarskráin afnumin og brezkum landstjóra fengið alræðisvald. Þessu athæfi til afsökunar hefur brezka stjórnin borið það fram og fréttastofur heimsins básúnað það um allar jarðir, að Framsóknarflokkur sá, sem með völd fór í nýlendunni, hafi verið hliðhollur kommúnistum og Rússum, og hefur því verið haldið á lofti þessu til sönnun- ar, að kona eins ráðherrans hafi haldið lofræðu um Stalin. For- svarsmenn flokksins hafa hins vegar mótmælt, og mörg frjálslynd blöð, einnig í sjálfu Bretlandi, hafa deilt fast á brezku stjórnina. En í sjálfu sér skiptir það engu máli, hvort stjórnarflokk- urinn í Brezku Guiana var „hliðhollur" kommúnistum eða ekki. Það hafa ekki verið born- ar brigður á, að hann var lög- lega kominn til valda, og ekki hefur komið fram, að hann hafi á neinn hátt rofið stjórnarlög lands síns. Þess vegna var það jafnt stjórnlagarof og ofbeldi af Breta hálfu að steypa stjórn- inni af stóli, hver svo sem stefna stjórnar þessa Fram- sóknarflokks var. Athæfi Breta var grófasta brot á öllum lýð- ræðisreglum og lýðræðisanda. Það er líftaug lýðræðisins, að það hafi sjálft undantekningar- laust í heiðri grundvallarreglui sínar. Ákvörðun brezku stjórn- arinnar er þess vegna hörmu- leg spjöll á helgum hugsjónum. Þetta ber okkur að skilja, þótt í hlut eigi nýlenduþjóð í fjar- lægu landi, sem við vitum harla lítið um. Byssustingir í stað réttlætis. rezki verkamannaþingmað- urinn Fenner Brockway hefur ritað í Reynolds News, aðalblað brezka samvinnu- manna, mjög skorinorða grein um þetta mál og stefnu ný- lendumálaráðherrans yfirleitt. Heitir grein þessi: Hvernig kastað er frá sér heimsveldi. í greininni segir meðal annars: Oliver Lyttelton nýlendu- málaráðherra ætti að kæra fyrir Sameinuðu þjóðunum fyrir að stofna friði og ör- yggi í heiminum í voða. Háttalag hans hefur haft í för með sér meiri grimmd og bjáningar í Kenýu en Mau-mau-menn eru sekir um. Hann hefur ofurselt sex milljónir Afríkumanna í Nýasalandi og Ródesíu fullkomnu miskunnarleysi. Og nú ögrar hann fólkinu í brezku Guiana, einu nýlendu Breta í Suður-Ameríku, til uppreisnar. Allir fréttaritarar í Guiana eru á einu máli um það, að þar hafi engin merki uppþota sézt, þegar brezka stjórnin á- Y iínt n ntlu r Jónssnn: Valtýr á grænni treyju — Höfundur þjóðsögunnar — Oagan af Valtý á grænni ^ treyju er með eftirminni- legustu þjóðsögum og svo sér- stæð, að fróðustu menn um þau efni hafa viljað synja henni um rétt til að heita þjóð- saga. Sögufróðir menn ætla, að atburðir þeir, sem sagan fjall- ar um, eigi við engin söguleg rök að styðjast. Niðurstaða þessara fræða er sú, að Valtýs- saga sé rituð í blekkingarskym sem þjóðsaga, og er metið til goðgár. Er þó torvelt að átta sig á rökum til þess, að miður sæmi að setja saman sögukorn, er blekkt getur sem þjóðsaga, en frásögu, er blekkt getur sem annar veruleiki, þegar þess er gætt, að allur skáldskapur er fyrst og fremst blekking og að jafnaði því betri skáldskapur, því fullkomnari sem blekk- ingin er. (Skýrgreiningu þess- ari á skáldskap er hnuplað frá Halldóri Kiljan í því trausti, að eignarréttur hans á henni sé ekki skilyrðislaust frið- helgur). Annað mál er það, sem varðar fræðimenn, að skipa með gát „uppdiktuðum" þjóð- sögum fyrirvaralaust í þjóð- sagnasöfn, að sínu leyti eins og sagnfræðingum er sæmst að varast að bera sagnaskáldskap á borð sem söguleg sannindi, en á hvoru tveggja vill mönr-- um verða hált. Ef nú rétt er, það sem helzt er ætlað, að Valtýssaga sé skáldskapur einn, hver er þá höfundur þessarar snjöllu sögu, sem svo vel sómir sér á sínum stað í bókmenntum íslendinga? 1%/I'agnús Bjarnason, örkumla maður á Hnappavöllum í Öræfum, síðar bóksali á Mountain í Norður-Dakota (f. 10/10 1839, d. 20/2 1928), hefur unnið sér það til ágætis að skrá söguna af snilld og prýði. En ekki verður hann vændur um að hafa „diktað“ hana upp, né heldur á hann heiðurinn af því að hafa sett hana saman, ef til heiðurs yrði metið. Hefur Magnús sjálfur tekið af öll tvímæli um þetta með því að skýra frá því, að hann hafi skrifað söguna upp eftir mjög fróðum manni, er ólst upp í Vallahreppi (á Fljótsdalshéraði), og móður hans; mæðginin nafngreinir hann ekki, en segir, að bæði hafi verið á lífi, er hann skráði söguna. Hér við lætur hann ekki sitja, heldur hefur hann ' látið eftir sig handrit að sög- óheillabraut kvað að senda þangað herskip og herlið. Gangur málsins '17'ið þingkosningarnar hafði ' Framsóknarflokkurinn fengið 18 þingsæti af 24, og stefnuskrá hans var slík, að sérhver jafnaðarmaður hlyti að styðja hana. Flokkurinn boðaði þjóðfélagslegar umbætur, þjóð- nýtingu sykurverksmiðjanna og sjálfstæði landsins innan sam- bands Vestur-Indía. í flokkn- um voru að vísu menn, sem stóðu kommúnistum nærn, en því fór fjarri, að allir ráðherr- arnir væru kommúnistar. Samvinnan við brezka land- stjórann og þá sex þingmenn af níu í efri deild, er hann skip- aði, var frá upphafi stirð. Og hún versnaði stórum, þegar til allsherjarverkfalls kom í sykuriðnaðinum sex vikum fyrir stjórnlagarof Breta. Laun verkamanna voru tvö sterlings- pund á viku, og hað nægði ekki fyrir brýnustu lífsþörfum. Að- búnaður á ekrum var fyrir neðan allar hellur. Stjórnin fór fram á sanngjarna mála- miðlun til að binda endi á verkfallið. Gegn þessu reis landstjórinn og embættismeim hans. Reynt var að tefja fram- gang tillögu um lausn málsins á þingi, og þá hóf Framsókn- arflokkurinn baráttu fyrir því, að takmörkunum á valdi þings- ins yrði hnekkt — neitunar- valdi landstjórans, afskiptum brezka ríkisráðsins og valdi þriggja valdskipaðra embættis- manna á þingi aflétt. Það var þessi krafa og sá stuðningur, er hún hlaut meðal almennings, er leiddi til þess, að landstjór- inn og Lyttelton nýlendumála- ráðherra og brezka stjórnin sendu herlið á vettvang, steyptu nýlendustjórninni og afnámu stjórnarskrána með valdboði. Stjórnfrelsi — svikamylla. "IVrýlendustjórnin reyndi að J ” andmæla á lýðræðislegan hátt. Forsætisráðherrann krafð- ist þingfundar, svo að þinginu gæfist færi á að mótmæla hertökunni. Valdskipaður for- seti þingsins hafnaði þeim til- mælum. Er þetta lýðræði? Og til hvers voru íbúar nýlend- unnar látnix kjósa þingmenn Framh. á 4. síðu. . 1 tifiH'untlitr Flugfélags íslands h.f. verður haldinn í Kaupþingssaln- umí Reykjavík, föstudaginn 11. desember 1953, og hefst hann klukkan 2 e.h. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Aðgöngu- og atkvæðamiðar fyrir fundinn verða afhentir í skrifstofu félagsins, Lækjargötu 4, dagana 9. og 10 desember. STJÓRNIN. unni, eins og hún var honum sögð, víst ritað af sögumanni sjálfum árið 1868. Við þetta bætist svo einn vitnisburður enn, sem er fyrir það enn órækari staðfesting á því, að Magnús skýri rétt frá heimild sinni að sögunni, að vitnis- burðurinn felst í lítils háttar misskilningi hans á heimildinni og honum því algerlega óvit- andi. í handriti sögumanns er talað kunnuglega um Gálgaás, eins og Vallamanni er eigin- legt, því að það er örnefni í Egilsstaðalandi, þar sem er forn aftökustaður, einmitt þar sem nú er Egilsstaðaþorp. Magnús, sem er með öllu ókunnugur staðháttum, mis- skilur heitið, er hann ritar upp söguna, og breytir í „gálgaás‘ (þ. e. gálgatré). Hver er þá þessi Múlsýslung- ur, kunnugur staðháttum á Völlum á Fljótsdalshéraði, sem sagt hefur Magnúsi á Hnappa- völlum Valtýssögu? Ekki mun Magnús hafa gert víðreist til þess tíma, er hann skráði sög- una; svo fatlaður sem hann var, mun hann tæplega hafa farið út úr sveitinni og alls ekki út úr sýslunni, nema hafi hann einu sinni eða svo hangið á hesti til Djúpavogs. Á þessum slóðum Magnúsar er því helzt að leita hins mjög fróða manns, er sagði honum Valtýssögu, og móður sögumannsins, en víst hafa mæðginin getað verið á ferð um sýsluna, þó að hitt sé líklegra, að þau hafi haft þar lengri viðdvöl og þá helzt á næstu grösum við Magnús á Hnappavöllum. á er ég leiddi hug að því fyrir tilmæli Jóhanns Gunnars Ólafssonar, er hann bjó þjóðsagnakver Magnúsar a Hnappavöllum til prentunar (1950), hver Múlsýslungur væri til þess líklegastur að hafa skemmt Skaftfellingum með Valtýssögu, varð mér fyrst fyr- ir að gizka á tvo menn, er ég hugði báða til þess líklega að geta farið frjálslega með sögu- efni, en það voru þeir Hjörleif- ur ,,læknir“ Jónsson á Lyngum í Meðallandi, áður á Freyshól- um í Skógum á Fljótsdalshér- aði, en hinn Jón Höskuldsson Landeyingur, faðir Eymundar í Dilksnesi. Að vísu var hinn síðarnefndi ekki Múlsýslungur, heldur Landeyingur, eins og kenningarnafn hans bendir til, en dvalizt hafði hann eystra og var þar þaulkunnugur. Ekki gat þó Hjörleifur (d. 1843, þá á Hvalnesi í Lóni) verið sögu- maður Magnúsar á Hnappa- völlum, en einhver sona Hjör- leifs gat e. t. v. komið til greina, þó að ekki yrði því eðlilega komið heim við vitn- isburð Magnúsar um sögu- manninn og móður hans. Það- an af miður gat það átt við Jón Landeying, en hins vegar var hann samtíða Magnúsi i Öræfum, einmitt um það leyti sem'hann skráði Valtýs- sögu (d. á Hnappavöllum 1877).

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.