Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 14.08.1954, Síða 4

Frjáls þjóð - 14.08.1954, Síða 4
4 FRJALS ÞJOÐ Laugardaginn 14. •'ágúst 1954. Sluppu gæðingarnir við gjaideyrisálagið? Andlegt frelsi Berkeley-háskóli í Káli- forníu œtlaöi aö efna til akademískrar „frelsisviku“, sem skyldi hefjast 17. maí. Einn rœöumanna átti aö vera Joseph Tassman, prófessor í heimspeki. En „vikunni“ varð aö fresta. Orsökin var sú, aö eitt af sorpblööum Hearsts í Kali- forníu veittist aö prófessorn- um fyrir þœr sakir, að hann haföi sagt í rœðu um aka- demískt frelsi, að kommún- istar œttu aö hafa skyldur og réttindi viö háskólana bandarísku eins og aörir menn. „Ástœðan til þess, að menn telja það ekki sjálf- sagðan hlut, hygg ég, að sé sú, hve margir af okkur hafa misst trúna á það, að lýörœð- ið sé heppilegt stjórnarform. Vegna þess, hve margir trúa því orðið, að það verði ekki varið, vilja þeir ekki leyfa, að það sé gagnrýnt. Fyrst ekki má leyfa gagnrýni, á svo að bœgja fólki, sem að því veitist, frá aðild að skóla- kerfinu." Þetta voru hin saknœmu orð Tassmans. — Blað stúdentanna komst svo aö orði um þetta mál: „Það œtti ékki að vera nein ný- lunda, þótt prófessor hafi skoðanir. Til þess höfum við prófessora. Hitt er fréttnœm- ara, að skoðanir Tassmans skuli valda slíkum œsingum. Og það er mjög slœm frétt." Þegar ríkisstjórnin haföd fastráðið það snjallræði, að verja togaragjaldeyrinum til kaupa á bifreiðum með 100% gjaldeyrisálagi, er ’síðan skal aftur notað til styrktar út- gerðinni, var farið að láta þá, er bifreiðaleyfi fengu, undirrita skuldbindingu um það, . að greiða þetta álag, er bráða- birgðalög kæmu til fram- kvæmda. Skæðar tungur herma þó, að þessi kvöð hafi ekki verið undantekningarlaust látin ganga yfir alla, sem bifreiða- leyfi fengu á þessu tímabili, og hafi það ekki verið hinir snauðustu og umkomuminnstu, sem við þá undirskrift sluppu. Er þar tilgreindur einn af grónari heildsölum höfuðborg- arinnar. Ætla má, að bifreiðar, sem þess háttar menn festa kaup á, séu ekki af hinum óvirðulegri gerðum, en nýja gjaldeyris- álagið á hinar skartmeiri gerð- ir nemur, samkvæmt útreikn- ingi Morgunblaðsins 6. ágúst, 30—40 þúsund krónum eftir verði. Sé það rétt, að mikils háttar einstaklingar hafi fengið und- ariþágu frá því að undirrita skuldbindingu um greiðslu gjaldeyrisálagsins eftir á, er því ekki um neina smáhugnun að ræða — frá sjónarmiði al- þýðumanna. Þetta nemur þeim styrk, sem greiða skal á 15—20 úthaldsdaga togara. Því að valt mun að treysta því, að gjaldið verði innheimt með harðri hendi, ef undirritun skuldbind- ingarinnar hefur verið sleppt. Brezkir togarar bátatniðum LITIÐ FRETTABLAÐ Laugardaginn í 17. viku sumars. UiMBMévli Edens Anthony Eden, ut- anríkisráðherra Breta, sagði í sambandi við Súezmálið: „ViÖ veröum aö venja okkur meir og meir viö þann skiln- ing, aö þjóöir, hvar sem er í heiminum, vilja ekki hafa erlend- an her í Idndi sínu ... HaUdór K. Laxness. Silfurtunglið 1. sept. verður byrj- aö að æfa í Þjóðleik- húsinu hinn nýja sjónleik Kiljans, Silf- urtunglið. Lárus Pálsson verður-'leik- stjóri, en með aðal- hlutverk fara Herdis Þorvaldsdóttir og Rúrik Haraldsson. Aðrir leikendur m. a.: Róbert Amfinnsson, Valur Gíslason, Gest- ur Pálsson og Valdi- mar Helgason. Leikurinn gerist i Reykjavík á okkar tímum og er sagður mjög vel gerður og eftirminnilega vegið að ýmsum veilum. Silfurtunglið verð- ur sýnt samtímis i Reykjavík og Moskvu, og sagt er, að Norð- menn hafi einnig keypt sýningarrétt. Viö veröum meir og meir aö treysta á UÖ okkar heima fyrir og getu okkar til aö fVytja þaö loftleiöis, hvert svo sem þörf gerist fyrir þaö.“ Nýr bankastjóri Jón Arnason, banka- stjóri Landsbankans, mun ætla vestur um haf og taka viö störf- um i alþjóöabankam- um. Er hann eini fjár- málamaöur Islend- inga, sem nýtur trausts erlendis. Al- þýðublaðið segir, að mikið makk sé um eftirmann hans i Landsbankanum, og nefnir þar til dr. Kristin Guðmunds- son, Eystein Jónsson og Skúla Guðmunds- son. Vilhjálmur Þór vill fá dr. Kristin í bankann, en Hermann Eystein. Hitt mun þó liklegra, að dr. Krist- inn verði sendiherra í Þýzkalandi, eins og fyrirhugað hefur ver- ið, og Eysteinn taki við embætti fjármála- ráðherra um næstu mánaðamót. Sennileg- ast er því, að Skúli verði bankastjóri. Einn þingmanna Framsóknarflokks- ins kom í af- greiöslu FRJALSR AR ÞJÖÐAR seint í síöusttu viku. ,Jfú mega atlir vera á- nœgöir“, sagöi hdnn, — „nóg af ódýrum bílum og rekstur togaranna tryggöur til fram- búöar." Og hló viö. Hvemig greiöir hann atkvæöi um bráöábirgöajpgin t Dr. Kristinn G<uð- mundsson utanríkis- ráöherra hefur selt í- búð sína á Akureyri. Af því þykir sýnt, að hann ætlar sér ekki framar búsetu nyrðra ★ Menningarútvarpið frá Keflavíkurflug- velli glymur iðulega linnulaust í mörgum áætlunarbifreiðum Steindórs og Land- leiða, nema farþegar fari þess sérstaklega á leit, að þeim sé gefin griðastund. ★ Yfirmenn á togur- unum hafa lagt niður lífeyrissjóð sinn. Þeir guldu í hann ákveð- inn hundraðshluta af kaupi sínu,og var það skattfrjálst þar til í ár. Verðgæzla og verzlun Ingólfur Guömunds son verögæzludtjóri rekur heildverzlun. Jóhann Fr. Guö- mundsson, starfsmaö- ur hjá verögæzlu- stjóra, er meöeigandi verzlunarfyrirtækis. Sveiwn Jónsson, starfsmaöur hjá verö- gæzlustjóra, er kaup- maöur. Tveir starfsmenn hjá verðgœzlustjóra haja hætt þar störf- um og tekiö iaö sér rekstur heúdverzJmv- ar. K a Útvíknamenn við sunnan- verðan Patreksfjörð kvarta mjög undan ágengni erlendra togara nú í sumar, aðallega brezkra. Þeir eru að staðaldri, jafnvel margir saman, innan landhelgislínunnar, en færa sig út fyrir, þegar íslenzku varð- skipin eru í námunda. En þegar þau eru farin hjá, koma þeir aftur inn fyrir. Gæta þessir er- lendu togarar að fara ekki í björtu veðri svo langt inn fyrir línuna, að þeir verði of seinir fyrir, en sé þoka, sem oft er á þessum slóðum, telja þeir sér óhætt að leita miklu nær landi. Á þessum slóðum eru mið trillubáta, sem sækja sjó frá útvíkunum, og hefur ágengni togaranna á friðlýstum miðum hamlað stórum veiði þeirra. Uppreisnin Brekku a Hörð deila er komin upp á milli lóðaskrárritara Reykjavíkurbæjar og bæjar- verkfræðings. Bæjarverk- fræðingur telur lóðaskrár- ritarann heyra undir sitt embætti, en lóðaskrárritari vill vera húsbóndi á sínu heimili og ber bæjarverk- fræðingi það á brýn, að hann komi í veg fyrir úthlutun lóða, er hægt væri að af- henda. ★ Lóðaskrárritarinn sneri sér' til borgarstjóra og krafðist þess, að hann fengi afhent plögg viðvíkjandi starfi sínu, er geymd voru í skrifstofu bæjarverkfræðings, og er borgarstjórinn sagður hafa lofað því, að þeirri ósk skyldi fullnægt. Fulltrúi var send- ur til þess að sækja plöggin, en afhendingu var harðlega neitað. Hringdi fulltrúinn til borgarstjórans og spurðist fyrir um það, hvort hann ætti að biðja lögregluna aðstoðar. En svo fór, að borgarstjórinn heyktist á andstöðunni. Lyktaði þessari togstreitu að því sinni á svipaðan hátt og uppreisninni á Brekku í sögu Gests Pálssonar. Orðabetgur Liðþjálfi látinn æfa flugvallarstarfsmenn Flugmálastjórnin íslenzka lætur nú þjálfa íslenzka flug- vallarstarfsmenn í ýmsum kúnstum, sem heyra til her- æfingum. Var maður að nafni Þorvarður Arinbjamarson sendur til Englands til náms í þessari grein, auðvitað á kostn- að ríkisins, og er hann kom heim úr þessari námsferð, tók hann að kveðja flugvallarstarfs- mennina til æfinga, er fara fram tvisvar og þrisvar í viku. Starfsmennirnir eru látnir ganga í fylkingu undir stjórn liðþjálfans, standa teinréttir, heilsa að hermannasið og leika ýmsa skoplega tilburði. Á Keflavíkurflugvelli eru allir ís- lenzkir flugvallarstarfsmenn kallaðir til þessara æfinga, sem fara fram í hálfgerðum felum úti á melum, þar sem fáir sjá til, því að ekki mun laust við, að upphafsmenn þessarar nýj- ungar séu dálítið spéhræddir. Á Reykjavíkurflugvelli er verið að færa sig upp á skaftið með þessar æfingar og láta þær ná til fleiri. Lítil rök eru færð þessari ráðabreytni til stuðnings, nema þá helzt, að þetta sé „nauð- synlegt vegna einkennisbún- inganna“ og flugvallarstarfs- menn verði að kunna „að heilsa yfirmönnum sínum.“ Fjölmarg- ir flugvallarstarfsmenn eru hins vegar lítið hrifnir af þess- um skrípaleik og telja sér ekki skylt að sinna þessum heræf- ingum, án þess að sérstök greiðsla komi fyrir, ef þær fara fram utan vinnutíma, enda hafi venjulegar kveðjur dugað ís- lendingum, jafnt yfirmönnum sem undirmönnum, fram á þennan dag. Helsprengjur — Framh. af 1. síðu. um brottför hersins af land- inu. fslendingar vilja ekki vera „sitjandi önd í dauða- færi“ — þeir vilja ekki brenna ■ kjarnorkueldi — beir vilja ekki kalla yfir sig það hlutskipti, sem Winston Churchill lýsti yfir, að brezku her- liði við Súez væri búið í kjarnorkustríði. FRJÁLS ÞJÓÐ krefstský- lausra upplýsinga stjórnar- innar um þetta mál. Bandarískir hags- munir alþjóðaréttui Hermann Phleger, lögfræði- legur ráðunautur bandaríska utanríkisráðuneytisins, hefur birt útdrátt úr fyrirlestri í tímaritinu Commercial Fisheries Review, er gef- ið er út af Bandaríkja- stjórn, þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni og banda- rísku stjórnarinnar, að ríki eigi aðeins rétt til hafsbotnsins á landgrunninu og jarðefna, er þar kunna finnast, en eigi til sjávarins og fiskveiða í hon- um.1 Nefnir hann sérstaklega stækkun fiskveiðalandhelgi við strendur íslands og fordæmir það í nafni Bandaríkjastjórn- ar, að fiskveiðar á rúmsjó skuli ekki jafnheimilar öllum þjóð- um. Þessi túlkun hins lögfræði- lega ráðunauts Bandaríkja- stjórnar, er beint tilræði við eitt mesta hagsmunamál ís- lendinga. Jafnframt því, sem hann ver þá stefnu Banda- ríkjastjórnar að helga sér jarð- efni á landgrunninu öllu, snýst hann gegn rétti þjóða til að takmarka fiskveiðar í hafinu við strendur landa sinna. Opinber veizluhöld Blað Verkamannaflokksins norska, Arbeiderbladet, fer nokkrúm vel völdum orðum um opinber veizluhöld. Það er vinur, sem til vamms segir, því að Verkamannaflokkurinn stjórnar bæði riki og höfuðborg og drjúg- um Iiluta annarra bæjar- og sveit- arfélaga landsins. Blaðinu farast orð á þessa leið: „Er ekki verið að fara með op- inber veizluhöld út í öfgar? Hér eiga ríki, bæjar- og sveitarfélög, félagsfyrirtæki og og einkafyrir- (æki óskilið mál. Stundum virðist svo sem hálfopinber félög taki sig upp, reisi landið á enda og geri ráð fyrir opinberri móttöku og veitingum á hverjum staðnum eftir annan. { þessu efni mæðir ekki lítið á bæjarfélagi eins og Osló. En forseti og varaforseti bæjarstórnarinnar hafa sannar- lega annað þarflegra að gera en að taka á móti gestum og halda ræður. (Athugavert er, að á sjálf- an borgarstjórann í Osló er ekki minnzt í þessu sambandi; hann virðist því hafa öðrum hnöppum að hneppa). Þeir, sem fyrir þess- um móttökum standa, mega ekki gleyma því eitt andartak, að það eru fjármunir annarra, sem þeir fara með“. Síðan snýr blaðið sér að fé- lagsfyrirtækjum og einkafyrir- tækjum og segir m. a.: „Það eru ekki smámunir, sem hér er um að ræða. Stjórnirnar fá háar upphæðir til umráða í þessu skyni. Og það eru hinir hæstlaun- uðu starfsmenn, sem njóta góðs af örlætinu. Fjárhæðir þessar eru teknar út úr rekstrinum, af sam- eiginlegri eign þeirra, sem að fyrirtækjunum standa. Og hvern- ig er um endurskoðun og að- hald ?“ í þessu sambandi ræðir blaðið sérstaklega áfengisveitingarnar, sem það telur fara fram úr öll- um öðrum kostnaði i sumum veizlum og fer liörðum orðum um ógegndina. Vill það láta draga stórlega úr þeirri eyðslu og helzt gefa golt fordæmi með því að fella áfengisveitingar með öllu niður í opinberum veizlum. Hvað mundi mega segja um þessi mál hér á landi, þar sem liver aðilinn yfirgengur annan í ógegnd og uppskafningshætti? Hér, þar sem það er að verða landstizka að velja menn i hinar ábyrgðarmestu stöður með sér- stöku tilliti til þess, hversu mikl- ir veizlukavalérar þeir eru, en minna máli þykir skipta, þótt þeir séu verklausir ráðleysingjar. Akureyri innan girðingar Morgunblaðið segir frá því, að 17Bandaríkjamenn af Keflavikur- flugvelli hafi nýlega komið til Akureyrar, heimabæjar utanrík- isráðlierra, og keppt við Golf- klúbb Akureyrar. „Með í förinni var yfirmaður flugliðsins á Kefla- vikurvelli, Col. Jc. Bailey, og var liann einn meðal keppenda“. Ekki fylgir sögunni, í hvoru golfliðinu dr. Kristinn var. WSÍVtfWWWVVVWVVWVVWJVVVWVVVlflftNVWtfVVVVWVWV 18-25 daga skemmtiferö um NORÐURLÖND Næsta hópferð til útlanda hefst 28. ágúst. — Siglt verður með M.s. HEKLU til Bergen; — nokk- urra daga viðstaða í OSLO, STOKKHÓLMI, GAUTABORG og KAUPMANNAHÖFN. — Iíeim- ferð frá Kaupmannahöfn með flugvél eða skipi. Norðurlandaferðirnar eru ódýrar, en skemmtilegar. Þátttaka tilkynnist fyrir 15. ágúst. Ferðaskrifstoía ríkisíns, sími 1540. fíafgeytnar sérstaklega ætlaðir fyrir dráttarvélar, jarðýtur, krana og aðrar þungavinnuvélar, stórar bifreiðar og mótorbáta._ Véla- ot/ rafteek/averslunin Tryggvagötu 23. — Sími 81279. Ég undirrit.... óska hér með að gerast áskrifandi að FRJÁLSRI ÞJÓÐ (Áskriftarverð blaðsins er kr. 5.00 á mánuði). (Nafn) (Heimilisfang) Til FRJÁLSRAR ÞJÓÐAR, Skólavörðustíg 17, Reykjavík.

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.