Frjáls þjóð - 18.04.1959, Side 3
fnjáls
Þjöð
cjLaLiýardaýinn
18.
apri
Í 1959
3
tJtgefandi:
Þjóövarnarflokkur Ialand*.
Ritstjóri:
76n Hélgason, sími 1-6169.
Framkv^emdarstjóri:
J6n A. QuSmundsson.
AFGREIÐSLA:
IN GÓLFSSTRÆTI 8
SÍMI 19985
, PÓSTHÓLF 1419
Afikriítargjald kr. 9.00 á mónuði.
órgjald 1959 kr. 108.00.
Verð 1 lausofiölu kr. 3.00.
FélagsprentsmiCjoa h.f.
StÖðvið bruðlið og óhóflð
T útvarpsumræðunum frá
alþingi á þriðjudags-
kvöldið vógust oddvitar
gömlu flokkanna á í svipuðu
bróðerni og Grímur Thomsen
Jýsti í kvæðinu um Goðmund
kóng á Glæsivöllum. Eins og
verða vill við slík tækifæri,
jyftist ofurlítið horn af því
forklæði, sem hylur annars
baktjaldamakk hinna æfðu
stjórnmálaforingja. Eysteinn
Jónsson bar Alþýðubandalag-
inu það á brýn, að það hefði
barizt fyrir allsherjar fóár-
festingarskatti veturinn 1958,
en Lúðvík Jósefsson svaraði
með því, að Eysteinn og
Framsókn hefðu þá viljað
skella á gengislækkun. Eins
og kunnugt er, varð niður-
staðan sú í fyrravor, að báðir
fengu í rauninni vilja sinn,
þar sem í senn var komið á
dulbúinni gengisfellingu og'
fjárfestingarskatti með 55%
yfirfærslugjaldi.
I öðru lagi bar Jón Pálma-
son fyrrverandi ríkisstjórn
það á brýn, að hún hefði skil-
ið við fjárhag ríkissjóðs og
fjármálaástand allt með þeim
hætti, að ógerningur væri að
komast hjá því að draga úr
ríkisframlögum til fram-
kvæmda. Eysteinn Jónsson
svaraði með því, að núver-
andi ríkisstjórn hefði í full-
komnu ábyrgðarleysi gengið
svo langt í auknum niður-
greiðslum, að sú viðbót ein
næmi á ári hærri fjárhæð en
öllum ríkisframlögum til
allra meiri háttar þátta
þeirra framkvæmda, sem rík-
ið hefur veitt fé til á undan-
förnum árum.
T*að voru býsna aðlaðandi
myndir, sem þessir
starfsbræður drógu upp af
háttalaginu, og eru þetta þó
aðeins mölar, sem hrutu í
hita umræðnanna, því að
enginn af forsvarsmönnum
gömlu flokkanna þorir að
seilast mjög djúpt í hauginn,
svo sánianfléttuð sem óheilia
tiltæki þeirra eru. Það verð-
ur að núa andstæðingunum
vömmunum um nasir með
mestu gát, þegar þannig er í
pottinn búið.
En sérhverjum venjuleg-
um hlustanda, sem eitthvað
leyfir sér að hugsa sjálfur,
hlaut að fljúga í hug loforð
Emils Jónssonar frá því um
áramótin, er hann sagði ber-
um orðum, að hægt væri að
lækka rekstrargcöld ríkisins
um marga tugi milljóna, án
þess að almenningur fyndi
nokkuð til þess. Á efndum á
þessu loforði bólar ekki, þó
að allir viti, að þetta er dag-
satt. Enginn héfur á undan-
förnúm árum haft viðleitni í
þessa átt. Og það, sem meira
ér: Eaginn býst við, aí' þetta
■ yrði éfnt.'
Jafnhliða því, sem hinir
æfðu stjórnmálamenn lýsa
því, hve bágt nú er komið,
er stöðugt haldið áfram að
auka rekstrarkostnað ríkis-
ins. Það er hrúgað upp nýj-
um embættum, skrifstofum
fjölgað og starfslið aukið á
öllum sviðum. Nýir bitlingaf
eru fundnir upp í hverjum
mánuði og hvarvetná raðað á
jöturnar af auknu kappi. Það
er kannske ekkert', sem vitn-
ar skýrar um það, hve fjarri
fér því, að í nokkrum hinna
gömlu flokka votti fyrir vilja
né getu til þess að fórða meiri
áföllum en þjóðin hefur þeg-
ar hlotið í fjárhagslegum
efnum.
★
T.etta blað hefur oftsinnis
iýst fullkominni and-
stöðu sinni við allt ráðleysi
og bruðl af þessu tagi og öðru
svipuðu, og það mun halda
áfram að ítreka þá kröfu, að
snúið verði af þessari braut.
Þegar kaup almennings er
lækkað með valdboði, þegar
ríkissjóður er svo aðþrengd-
ur, að fyrirsijáanlegur er stór-
felldur niðurskurður á fjár-
veitingum til nýtilegra fram-
kvæmda, þegar álögur eru
sífellt þyngdar og samt safn-
að stórfelldum skuldum, þá
er óðs manns æði að spyrna
ekki við fótum og leita allra
tiltækra ráða til þess að létta
af sérhverjum þeim kostnaði
við rekstur ríkis og ríkisfyr-
irtækja, sem hægt er að kom-
ast af án.
Um þetta hljóta allir viti-
bornir menn að vera sam-
mála, þó að gömlu flokkarnir
eða foringjar þeirra loki aug-
unum fyrir því. Þjóðvarnar-
flokkurinn skorar á fóik að
hafa vit fyrir gömlu flokk-
unum í þessu efni og þola
þeim ekki lengur ráðleysi
þeirra.
★
|'Zjördæmamálið er einnig
•*■*■ talandi tákn um þetta.
Allir þingflokkarnir eru á
einu máli um það, að nú beri
brýna nauðsyn til þess að
fjölga þingmönnum upp í
sextíu. Enginn virðist gefa
því nokkurn gaum, að hægt
er að leiðrétta ranglætið,
þótt þingmönnum væri ekki
fjölgað. Svo hlálega er að
þessu staðið, að þrátt fyrir
fjölgunina á aðeins að gera
nauðalitla leiðréttingu á mís-
réttinu. Reykvíkingur á eftir
sem áður aðeins að vera
hálfur íslendingur og þriðj-
ungi áhrifaminni við kjör-
borðið en nábúarnir í Kópa-
vogi og Hafnarfirði.
Þegar ráðgert er að fjölga
þingmönnum upp í sextíu,
verða menn að hafa í huga,
að það er pkki ^ðeins kaup
fleiri þingmanna, sem greiða
Tvöfalt einangruriargler
k
1
Bfvitiar í íslenzBiri voöreíiiu
Höfum fengið íakmarkað leyfi fyrir A-RÚÐUGLERI frá hinum
viSurkenndu vestur-þýzku DEFAG glerverksmiSjum.
Viðskiptavinum okkar er bent á, að gera pantamr sínar hiS fyrsta.
Það er CUDO sem hefur verið framleitt í 25 ár síðan 1934. eða
Iengur en nokkuS annað einangrunargler.
Það er á CUDO sem tekin er 5 ÁRA ÁBYRGÐ Á EINANGRUNAR-
HÆFNI.
— CUDOGLER H.F. veitir kaupendum aðstoð við að taka mál og
við ísetningu. —
— Leitið upplýsinga -— fuilvissið yður um gæði þess sem þér kaupið.
CIIDOGLER H.F.
Brautarholti 4. — Sími 12056.
HIN ÁRLEGA IÐNSÝNING OG KAUPSTEFNA
í Hannover verður haldin 26. apríl til 5. maí.
Upplýsingar og aðgönguskírteim hjá okkur.
dJer&aibr 'ifíótopa rílióinó
Sími 1-15-40.
Smurt brauð
og smttur.
Opið frá kl. 9—11,30.
Sendum heim.
KHAUÐMUttG
Frakkastíg 14. Sími 18680.
Áskriftarsími
FRJÁLSRAR ÞJÖDAR
er 1-99-85.
AÐALFUNDUR
Fasteignalánafélags samvinnumanna
verður haldinn í Sambandshúsinu í Reykjavík
laugardaginn 9. maí 1959 að loknum aðaifundi
Samvinnutrygginga og Andvöku.
Bifreiðasalan
BÍLLINN
V arðarhtí slnu
sinti
Þar sem flestir eru
bflarnir, þar er úrvalið
mest.
Oft góSir greiSslu-
skiimálar.
BBleyýt&gas
fyrirliggjandi.
Kr. Þorvaldsson & Contpany
Ingólfsstræti 12, sími 2 44 78.
þarf, heldur mun hljótast
miklu meiri kostnaður af
hinu, að fjölgun þingmanna
leiðir af sér enn lengri þing,
meira af gagnslausu ræðu-
masi og enn umfangsmeiri
bagga þingtíðinda, sem prent-
uð eru með ærnum kostnaði,
þó að vart finnist sá maður
í landinu, er nokkru sinni les
raeðunsar, sem þama íyila
þúsonáir dáÚta. .
SKARNI
hinn lífræni áburður frá Sorpeyðingarstöð Reykjavíkurbæjar
er afgreiddur alla virka daga (fyrst um sinn einnig laugar-
dage.) írá kl. 7,40 til 18,00.
Verð kr. 100,00 rúmmetrinn í bilhlössum.
Vérð kr. 120,00 í minna magni.
Ámokstur er innifalinn í verðinu.
20% afsláttur er gefinn, ef keypt er meira en 50 m3.
Þeir, sem óska, geta fengið áburðinn afgreiddan í poka á
staðnum.
Sorpeyðingarstöðin annast heimkeyrslu, ef óskað er.
Allar nánari upplýsingar á staðnum og i sima 13210 og
34072.
S»»*poröi«Jí»afsíi»ö Heýkjavikur-
l»æ|ai*. Ári únsliölða