Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 22.08.1959, Síða 4

Frjáls þjóð - 22.08.1959, Síða 4
A J!dúýáuLfinn 22. ágiut' /'959 — FRJALS ÞJ □-Ð l/ffii dhelgiswn úliö: Aukin kynning erlendis — þjóðfundur 1. september Við höfum verið samtaka, ís- lendingar, að harma ef ekki for- dæma framferði Breta hér við land, en heldur vanmáttugir að binda enda á það, enda ekki ávallt sammála um úrræði. Við erum vopnlaus þjóð, eig- um sjálfir engin tólin til að sökkva skipurn og drepa menn í hrönnum. Og það hefur ekki sannazt, að bandarískir her- menn séu hér til að verja ís- land. Þeirra vopn eru ekki okk- ar vopn. Hvorugt er að harma. Hvorki vildurn við né mættum setja mannhelgi skör lægra en land- helgi og verja svo hina síðari að gerast níðingar hinnar fyrri. Sú er og bót í máli, að þótt Bretar eigi morðtólin öll og við engin, þá hafa þau hvorki reynzt þeirn sigursæl né skeinuhætt okkur, og óséð, að þau fái nokkru sinni ráðið úrslitum í þessari deilu — enda ekki ólík- legra, að þau yrðu eigendum sínum til falls en heilla að lykt- um. í þeirra skjóli hefur brezk- um fiskimönnum að vísu tek- izt að stunda ólöglegar veiðar í íslenzkri fiskihelgi, en slíkir útgerðarhættir eru vafalaust miður arðsamir og fá auðsjáan- lega ekki stuðzt við venjuleg efnahagsleg rök. Þann fisk, sem Bretar afla innan 12 mílna markanna, gætu þeir eflaust veitt með minni fyrirgangi og tilkostnaði utan þeirra. Enda er hér ekki um að ræða fiskveið- ar í venjulegum skilningi, held- ur þátt í hernaðaraðgerðum, sem ætlað hefur verið að knýja íslendinga til undanhalds ■ í landhelgismálinu. Greinilega sést þetta á því, að brezku skip- stjórunum hefur verið fyrir- skipað að toga ákveðinn íág- markstíma fyrir innan 'tólf mílna mörkin, án tillits til afla. Víst er, að brezka ríkisstjórn- in hefur með hernaði sínum hér við land glatt suma þegnia; drottningar, þá sem eiga sér hvað úreltastar hugmyndir um sæmd og rétt, enda hlaut stjórn- in þegar í upphafi talsvert hrós fyrir skelegga framgöngu á ís- íandsmiðum-, er þótti minna á forna frægðardaga. Hitt er jafn- víst, að íslendingar eru yfirleitt ekki svo skapi farnir, að þeir láti hótanir og ofbeldi mýkja sig til samninga, nema sé hið gagnstæða. Hafa Bretar því, ef eitthvað er, fremur færst fjær en nær takmarki sínu með þessu atferli. Ránveiðar þeirra hér við land eru ekki ábatasamari sem hernaður en atvin'nugrein. Verður þá ekki séð, að annað standi eftir en „skemmtiatrið- ið“ eitt, handa þeim Bretum, sem hafa mætur á ofbeldinu of- beldisins vegna. Ekki hefur borið á því, að alþýða manna í Bretlandi láti sig deilu þessa miklu skipta. Um hana er naumast nokkurt „almenningsálit“ þar í landi, hvorki með né móti. Liklega hafa flestir Bretar litla hug- inynd um, hvað er að gerast hér við land, og æði rangsnúna það sem er. Enn síður er þeim ætlandi að þekkja aðdraganda deilunnar, og þau rök, er hnigu að stækkun veiðihelginnar. Um þetta hafa þeir fæstir haft að- gang að öðrum ,,upplýsingum“ en þeim,sem brezka ríkisstjórn- in og to.garaeigendur hafa til- reitt til réttlætingar sinni stefnu, og hafa þá ýmis atvik gerzt á aðra lund en við sáum þau íslendingar, en allt týnzt. er eflt gæti skilning á afstöðu okkar, en andúð á háttalagí brezkra yfirvalda. Þegar þessa er gætt, er ekki að undra, þótt brezka stjómin og togaramenn hafi til þessa getað rekið veiðistríð sitt við íslendinga óáreittir að mestu eða öllu af almenningi heima fyrir. En risi brezkt almenn- ingsálit öndvert gegn atferli Eftir Þorvarö Örnólfsson þeirra, þá hefðum við eignazt þann bandamann, sem við gæt- um hvað beztan átt í landhelgis- deilunni. Beztan — og ólíkleg- astan, ef til vill. í því sambandi má þó ekki gleyma, að það eru einungis fámennir og takmarkaðir hóp- ar brezkra manna, sem hags- muni eiga á íslandsmiðum. All- an fjöldann snerta þær ekki nema þá óbeinlínis. Fiskistríð- ið brezka er stríð fyrir fáa, en kostnaður greiðist vafalaust af ríkisfé. Það er einkastríð, en almenningur borgar brúsann. Þetta kann að vera smávægi- legt atriði, en gæti þó orkað á vinsældir þessa fyrirtækis, eink- allir málavextir. En betur má, ef duga skal. Við berum litla virðingu fyrir hernaðaraðgerð- um Breta hér við land, og er það vel. Samt gætum við sitt hvað af þeim lært. Aðgerðif Breta eru skipulagðar, sam- ræmdar, stanzlausar. Þær eru undir sérstakri yfirstjórn. Svo] skyldu og andsvör okkar. •— Þorvarður Örnólfsson. um ef almennt væri vitað, að það er byggt á sandi. Hitt er mikilvægara, að það er ekki til marks um alla Eng- lendinga og Skota, þótt sumir virðist þeir ekki greina milli valds og réttar (einkum ef vald- ið er þeirra). Mættu nú Bretar sem flestir fá að sjá landhelgis- málið frá íslenzkum sjónarhól, þá kynni sú skoðun að ná út- breiðslu, að þetta stríð gegn íslendingum bæri að stöðva. — Reynslan ein getur sýnt, hvort almenn þekking Breta á íslenzk- um málstað leiddi til slíks skiln- ings og velvildar, að tæki fyrir hernað þeirra á íslandsmiðum. Sú reynsla fæst ekki af sjálfu sér, og við megum einskis láta ófreistað að leiða þetta í ljós. Þegar hefur verið unnið nokkuð að því að kynnaBretum íslenzkan málstað. Eiga þar hlut að máli rikisstjórn okkar, ein- staklingar og samtök. Ber það framtak vitni hvoru tveggja: trú á réttmæti málstaðar okk- ar og von um réttdæmi brezku þjóðarinnar, væru henni kunnir Að öðru leyti förum við eigin ^ leiðir. Mun einna áhrifaríkast að bjóða í kynnisför hingað brezku fólki, sem flestu, blaða- mönnum, stjórnmálamönnum og fulltrúum ýmissa samtaka.' Fer vel á því, að hliðstæð sam- tök íslenzk, ef um er að ræða, hafi þar hönd í bagga. Mikil- vægt er að senda brezkum blöð- j um að staðaldri greinar og frétt- ir um landhelgismálið, og' má borga fyrir birtingu ef eigi vill betra til.Eins mætti freista aðfá túlkaðan málstað okkar í brezku ^ útvarpi og sjónvarpi. Stutt- bylgjusendingar héðan, ætlaðarl brezkum hlustendum, kæmu og e.t.v. til greina. Hiklaust ættum við að láta taka fræðslu- og fréttamyndir um fiskveiðideil- una og senda m. a. brezkum kvikmyndahúsum. Síðast en ekki sízt eigum við að gera út einstaka menn og sendinefndir tii Bretlands, til að tala máli okkar, hvar og hvenær sem færi gefst. Allt þetta — og annað, er við gerðum í sama skyni — getur orðið æði kostnaðarsamt. Þó myndi okkur dýrast að haf- ast ekki að. Hinn 1. september er rétt ár liðið frá þvi að við færðum út fiskveiðimörkin. Vert væri að minnast þeirra tímamóta svo, að eftir yrði tekið. Hefði verið vel til fundið, að efna til þjóð- fundar á Þingvöllum af því til- efni — og þótt síðar yrði en sjálfan „afmælisdaginn“. Þjóð- fundur, er sýndi óbifanlega ein- ingu og sigurvilja þessarar þjóðar, hlyti að vekja athygli útlendinga og auka sjálfum okkur bjartsýni og styrk. Erfið framboð — Frh. af 8. síðu. Barátta á Vesturlandi. Samkvæmt, úrslitum kosning- anna í sumar, á Sjálfstæðis- flokkurinn að hljóta þrjú þing- sæti á Vesturlandi nú í haust. Þar eru fyrir tveir þingmenn flokksins, Sigurður Ágústsson, þingmaður Snæfellinga, og Jón Árnason, þingmaður Borgfirð- inga. Friðjón Þórðarson náði ekki kosningu í Dölum og ekki Ásgeir Pétursson í Mýrasýslu. Nokkuð mun brydda á því, að hvorki Sigurður né Jón þyki sérstaklega álitlegur sem efsti maður listans. Hvorugur þeirra er neinn skörungur, og báðir lítt þekktir utan heimkynna sinna, einkum þó Jón. Sagt er, að Ásgeir Pétursson hugsi sér nú mjög til hreyfings og stefni að því að verða efstur á listanum. Úrslit munu enn engin á því máli, en sumir telja, að Ásgeir hafi talsverða mögu- leika á því að hreppa þetta eft- irsóknarverða sæti. Er þá útséð um það, að Friðjón Þórðarson hefur enga von um að verða kjörinn. Miklu víðar eru óráðnar gát- ur og torleyst vandamál í sam- bandi við þessar fyrstu kosn- ingar í nýju kjördæmunum, en hér skal látið staðar numið að sinni. Má vera, að síðar gefist tækifæri fil að segja fleiri frétt- ir af þessum vígstöðvum. Rósir og nellikur, mjög ódýrt. Gróðrarstöðin við Miklatorg. Simi 19775. Mell Jóhannesson læknir: Limlesting, krufning lifandi fólks og mannakjötsát,/ Gvo hljóðar yfirskrift 12. ^ kafla í bók Russells lávarð- ar af- Liverpool um óhæfuverk Japana á árunum 1931—1945, en þó er einkum fjallað um hin eiginlegu styrjaldarár 1941— 1945. Bók þessi kallast á enska tungu The Knights of Bushitlo (Cassell & Co, London, 1958). Áður hafði höfundur ritað um stríðsglæpi Þjóðverja: The Scourge of tlie Swastika (hér stuðzt við danska útgáfu, Schþn- berg, 1955) og milli þessara bóka birtist Though the Heav- ens Fall, sem hér ræðir ekki um. Russell lávarður er einn þess- ara vandræðamanna, er ekki vilja þegja eða láta múta sér með góðum embættum eða bitl- ingum. Á sínum tíma var hann viðriðinn réttarhöld yfir flest- um meiri háttar stríðsglæpa- mönnum þýzkum, enda um skeið lögfræðilegur ráðunaut- ur hernámssíjjóra Breta í Þýzka- fandi og því málum nákunnug- ur. Síðar kom Russell heim til Stóra-Bretlands og settist í embætti annars aðalherdómara, og af honum fór litlum sögum. Styrjöldinni var lokið, og sættir tókust með Þjóðverjum vestan Saxelfar og fjandmönn- um þeirra í vestri. Rás viðburða tók þá kúvendingu, að sigur- vegarar tóku undrafljótt að hlaða undir hinn sigraða á all- an hátt og efldu hann til hern- aðarátaka enn á ný. Komst því mjög úr tízku að minnast á fyrri væringar og hryðjuverk, og ný^ kynslóð, er óx úr grasi, þekkti til slíks eindngis í óljósri minn- ingu, af afspurn eða frásogn, og gleymska breiddist yfir ný- liðna atburði. Mörgum var þessi þróun þyrnir í augum, og einn þeirra var Russell lávarður. Bók Russells, er kalla mætti í ægiskugga hakakrossins, er eingöngu reist á staðreyndum, skjalfestum eða vottfestum, auk athugasemda og skýringa frá brjósti höfundár. Virðist höf- undur í fyllsta mæli gæta lög- fræðilegrar sanngirni og réttar- , kenndar í orðum sínum, svo og! í bók sinni um stríðsglæpi Jap-j ana, *og má þó geta nærri, að ^ víða er stórum erfitt að stilla í( hóf. í ægiskugga hakakrossins má því ætla verulegt sagn- ] fræðilegt gildi, og sama gegnir uin Bushjdo-riddarana. Engu j að síður gerði brezka stjórnin Russell það kostaboð, að annað-| hvort læsti hann handritið nið- I ur í skúffu eða léti af embætti herdómara. Russell lét því af embættisstörfum og gaf út bók sína, er óvænt seldist stórlega vel í Englandi. Hvers vegna rifja betta upp? .Margir munu eflaust spyrja,1 hví rifja allt þetta upp og hvort það sé nokkrum til gagns? Hér! er til andsvara, að fjöldi fanga-! búðavarða,. gestapómanna og' Kempei Tai-manna (japanska' gestapó) gengur laus. Sálufé- lagar þeirra Tojo og von Rund- stedts í herstétt eru í fullu fjöri, sé. vel að gáð, og samvizkulitlir iðjuhöldar á borð við Krupp von Bohlen und Balbach eru í bezta gengi. Síðastnefndir efldu Hitl- er svo drengilega til valda, að án þeirra hefði Hitler aldrei orðið annað en stundarfyrir- brigði í þýzkum stjórnmálum (les m. á. á. F. Thyssen: I paid Hitler, London 1941). Sök sér er, að fjölda þessara manna er unnt lífs, því að dauðadómar orka jafnan tvímælis. Kynlegra er, að þessum mönnum er hampað i háum embættum og í virtum stöðum, sumir stór- auðugir, aðrir á vænum eftir- launum af almannafé og fáein- ir jafnvel verðandi leiðtogar í hernaðarbandalögum í lýðræð- isnafni. Á því er hamrað, að verja beri lýðræðið með öllum ráðum gegn kommúnistiskri ásókn. Nauð- synlegt sé, að Þýzkaland sé „sterkt", Frakkland sömuleiðis. ,,Sterk“ stjórn þarf að vera í Persíu, í Kóreu, í Víet-Nam o. s. frv., ella gleypi kommúnistar þessi lönd. „Sterk“ stjórn þýðir ekki annað en stjórn, sem að meira eða minna leyti ríkir í krafti kúgunar með stoð í lög- reglú og herliði, nákvæmlega. eins og á sér stað víðast austan tjalds. Liður í þessari baráttu er linnulaus, einlitur pólitískur áróður. — Pólitískur áróður stefnir að einstrengingshætti í skoðunum og óbilgirni, er aftur leiðir til svívirðingar mannrétt- indum, Er þá jafnan skammt til einræðis. Áróður er gifurlegur í út- > f

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.