Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 22.08.1959, Blaðsíða 6

Frjáls þjóð - 22.08.1959, Blaðsíða 6
(^onie Íiuí l<?vfan: LENGSTI | Framhaldsfrásögn um | örlagaríkasta dag | | heimsstyrjaldarinnar | síöari, innrásardaginn 6. júní 1944 I 3. i Þar var komið jrásögn | írska rithöíundarins Corne- ( lius Ryans í síðasta blaði, j að Canaris, yfirmaður I njósnastarfsemi Þjóðverja, j hafði sagt frá því, að Banda- j menn mundu boða innrásar- i daginn með því að senda út i í tvennu lagi tvær Ijóðlínur i eftir franska skáldið Paul , Verlaine. Að kvöldi 1. júní i var fyrri Ijóðlínan lesin í , brezka útvarpið: „Les sang- ( lots longs des violons de i l’automne“ (Langdregin i ekkasog hörpu á hausti). ; Reichling, sem tilkynning- ; una heyrði, œddi með hana i til aðaIstöðva Meyers, yfir- i manns gagnnjósnarsveitar- innar á vesturvigstöðvunum. Tp»eii' fóru báðir til hlustun- ■ arstöðvarinnar, þar sem Meyer hlustaði á segulþráðar- tækið. JÞarna var þá tilkjmn- ingin, sem Canaris hafði sagt þeim að hlusta eftir. Það var fyrsta setningin í „Chanson d’- Automne“ (Haustljóði) franska skáldsins Pauls Verlaines. Sam- kvæmt upplýsingum Canaris átti að senda þessa ljóðlínu Verlaines „hinn fyrsta eða 15. einhvers Jnánaðar ... „og hún mun verða fyrri hluti tilkynn- ingar um innrás Breta og Bandaríkjamanna.“ Seinni hluti tilkynningarinn- ar átti að verða önnur ljóðlína úr kvæði Verlaines: „Blessent mon coeur d’une langueur monotone“ („Hjarta mitt angra með síbyljuhljóm“). Þegar þessu yrði útvarpað, sagði Can- aris, að það boðaði, að „innrás hæfist innan 48 klukkustunda ... talið frá miðnætti útsend- ingardagsins“. Jafnskjótt sem Meyer hafði heyrt fyrri ljóðlínu Verlaines, gerði hann fcringja herforingja- ráðs 15. hcíiins, TiTiihelm Hof- líiann hershöxðingja, viövart. „Fyrri tilkynningin er komin fpm,“ sagði hann við Hof- rrnann. „Nú fer eitthvað að ger- ast.“ Hofmann gaf þegar í stað út tilskipun til 15. hersins um að vera vel á verði. nÁ meðan sendi Meyer til- kynninguna til aðalstöðva Hitl- ers. Þar næst símaði hann til höfuðstöðva von Rundstedts og Rommels. I aðalstöðvum Hitlers var til- kynningin afhent Alf.red Jodl hershöfðingja. Þar var hún lát- in liggja á skrifborðinu. Jodl gaf ekki út skipun um viðbún- að. Hann gerði ráð fyrir, að von Eundstedt hefði gert það: en von Rundstedt hélt, að höfuð- stöðvar Rommels hefðu gefið út fyrirskipunina. (Rommel hlýtur að hafa verið kunnugt um tilkynninguna; en af mati hans sjálfs á fyrirætlunum Bandamanna er ljóst, að hann hefur ekkert lagt upp úr henni). Meðfram innrásarströndinni fékk aðeins einn her skipun um viðbúnað: 15. herinn. Sjöundi herinn, sem átti að verja Nor- mandíströnd, fékk engar fregn- ir af tilkynningunni og var ekki skipað að vera reiðubúinn. Að kvöldi 2. og 3. júní var fyrri hluta tilkynningarinnar útvarpað á ný. Tæpri klukku- stund eftir að tilkynningin var endurtekin að kvöldi hins 3. júní, heyrðist fregn Associated Press um innrás Bandamanna í Frakkland. Meyer vissi, að hefði viðvörun Canaris við rök að styðjast, hlyti AP-fregnin að vera röng. Síðar kom í ljós, að fregnin stafaði af hinum fur.ðulegustu mistökum örygg- isþjónustunnar. Þá um kvöldið hafði loftskeytamaður frá AP í Englandi verið áð æfa sig á vél, sem var ekki í sambandi, að „sgnda út“ tilkynningu um innrásina -— i því skyni að auka hraða sendingarinnar. Fyrir mistök hafði ræma með „inn- rásarfregninni“ verið send út á undan herstjórnartilkynningu Rússa. Fregnin var leiðrétt inn an 30 sekúndna, en þetta var þó nóg til þess, að fréttin komst á loft. Eítir að fyrsta ofboðið var hjá liðið, hafði Meyer veðjað á Canaris. Nú var hann þreytt- ur, en honum var þó hughægra. Friðurinn, sem enn ríkti morg- uninn eftir, sannfærði hann um, að hann hefði haft á réttu að standa. Nú var ekkert að gera annað en bíða eftir seinni hluta hinnar mikilvægu tilkynning- ar, sem gæti borizt á hverri stundu. e l\yTeðan á þessu stóð, bjóst foringi B-herjanna til að halda til Þýzkalands. Kl. 7 um morguninn settist Rommel við hlið bílstjóra síns, ók gegnum þorpið og beygði til vinstri inn á aðalþjóðveginn til Parísar. Rommel var sérstaklega á- nægður að geta farið frá La Roche-Guyon þennan þungbúna sunnudagsmorgun, 4. júní. Það var ekki unnt aðvelja betri tíma I til ferðarinnar. Við hlið hans (í sætinu var pappaaskja með gráum, handunnum leðurskóm, stærð 5y2, handa konunni haps. Það var sárstök og mjög mann- leg ástæða til þess, að hann vildi dveljast hjá henni þriðju- daginn 6. júní. Það var afmælis- dagurinn hennar.*) j Englandi var klukkan orðin 8 f. h. (einnar klukkustund- ar munur var á tvöföldum brezkum sumartíma og þýzkum meðaltíma). í hjólahúsi úti í rennblautum skógi skammt frá Portsmouth var Dwight D. Eisenhower, yfirhershöfðingi Bandamanna, í fastasvefni, eft- ir að hann hafði verið á fótum næstum alla nóttina. Þótt hann hefði getað látið fara betur um sig í aðalstöðv- um flotans í hinu mikla South- wick-húsi, 3 km þaðan, hafði Eisenhower hafnað að dveljast þar. Hann vildi vera eins ná- lægt höfnunum, þar sem verið var að skipa út herliði hans, og nokkur kostur var. í hjólahúsi Eisenhowers voru þrjú lítil herbergi: svefnher- bergi, dagstofa og skrifstofa. Frá þessum stað stjórnaði hann nær þremur milljónum her- manna Bandamanna. Meira en helmingur þessa tröllaukna liðsafla var bandarískur, um 1,7 milljónir. Lið Breta og Kanada- manna nam samanlagt um einni milljón manna, og þar að auki voru Frjálsir Frakkar, Pólverj- ar, Tékkar, Belgar, Norðmenn og Hollendingar. Aldrei fyrr hafði amerískur hershöfðingi um frá svo mörgum þjóðum, né tekið á sínar herðar svo þunga ábyrgð. Fyrirskipunin, sem Eisen- hower átti nú að framfylgja, hafði verið afhent honum fjór- um mánuðum áður af herfor- ingjaráðinu í Washington. Þar sagði: ,,Þér eigið að ráðast inn á meginland Evrópu, fram- kvæma þar ásamt bandamönn- um vorum aðgerðir, sem bein- ast gegn hjarta Þýzkalands og miði að tortímingu herstyrks þess ...“ Unnið hafði verið að víðtæk- um innrásaráætlunum í meira en eitt ár, en þó hafði verið farið að hugsa um árásina svo að segja frá því að Bretar flýðu frá Dunkerque. Löngu áður en nokkur vissi, að Eisenhower yrði yfirforingi Bandamanna, hafði lítill hópur brezkra og bandarískra liðsforingja undir stjórn brezka yfirliðsforingjans Sir Fredericks Morgans unnið að fyrsta undirbúningi innrás- arinnar. Áætlanir þeirra — sem síðar voru endurskoðaðar og gefið dulnefnið Overlord — kröfðust fjeiri hermanna, skipa, flugvéla óg hvers konar hern- aðartækja en nokkru sinni í sögu heimsins hafði verið safn- að saman til einstakrar atlögu. Jafnvel áður en gengið var frá áætlununum að fullu, byrj- aði slikur straumur hermanna og birgða að flæða inn í Eng- land, að þess voru engin dæmi áður. Brátt voru svo margir Bandaríkjamenn í þorpum og smábæjum Englands, að oft voru þeir fleiri en íbúarnir sjálfir, og í maí leit Suður- England út eins og risavaxið vopnabúr. í skógunum voru fa-ldir heljarmiklir staflar skot- færa. Á bersvæði stóðu skrið- drekar, herbílar, vörubílar og sjúkrabílar hlið við hlið — meira en 50 þúsund talsins. Á graslendi voru langar raðir af sprengjuvörpum og loftvarna- byssum, og feiknarlegar birgð- ir af efni í bragga og flugvelli Furðulegast var þó að sjá heila *) Eftir heimsstyrjöldina hafa márgir liðsforingjar Rommels verið samtaka um að reyna að afsaka, að hann var staddur fjarri vígstöðvunum dagana 4., 5. og mestan hluta 6. júní, inn- rásardagsins sjálfs. 1 bókum, blaðagreinum og viðtölum hafa þeir sagt, að hann hafi farið til Þýzkalands 5. júní. Það er ekki satt. Þeir halda þvl einnig fram, að Hitler hafi skipað hon- um að koma til Þýzkalands. Það er ekki satt. Eini maðurinn í að- alstöðvum Hitlers, sem vissi um fyrirhugaða íerð Rommels, var aðstoðarmaður Hitlers, Rudolf Schmundt. Walter Warlimont hershöfðingi, deildarforingi í her- foringjaráðinu á þessum tima, hefur sagt mér, að hvorki Jodl, Keitel né honum sjálfum hafi verið kunnugt um, að Rommel vferi í Þýzkalandi. Jafnvel inn- rásardaginn sjálfan hélt Warli- ment, að Rommel væri i höfuð- stöðvum sínum og stýrði orust- unni. Óræk sönnun þess, að Rom- mel fór til Þýzkalands 4. júní, er í dagbók B-herjanna, þar sem nákvæmlega er tekið fram, hve- nær hann fór þangað. dali fyllta af járnbrautarvögn- um. Þar voru nær 1000 nýjar eimreiðir og um 20 000 flutn- ingavagnar af öllum gerðum. Þessa vagna átti að nota á járn- brautum Frakklands í stað þeirra vagna, sem eyðilegðust. Þarna var líka að finna alls konar nýjan herbúnað og upp- finningar. Til dæmis voru þar skriðdrekar, sem gátu synt, og aðrir, sem höfðu stóreflis fálm- ara, sem sprengdu jarðsprengj- ur, áður en skriðdrekinn ók yf- ir þær. Ef til vill voru þó furðu- legastar af öllu tvær hafnir, sem átti að draga yfir Ermar- sund til Normandístrandar. — Fyrst átti að koma fljótandi brimbrjótur úr stáli. Þar næst komu geysistór steinker af ýmsum stærðum, /og átti að sökkva þeim og láta þau mynda innri brimbrjót. Stærstu stein- kerin höfðu íbúð handa áhöfn- inni og loftvarnarbyssur, og þegar þau voru dregin yfir sundið, litu þau út eins og finnn hæða íbúðarhús á hliðinni. í þessum höfnum var unnt að afferma skip á stærð við Lib- erty-skipin i pramma, sem fluttu farminn til strandar. — Smærri skip mátti afferma við bryggjur, en þar tóku flutn- ingabílar við farminum og fluttu hann eftir flotbrúm til lands. Til frekara öryggis átti að sökkva 60 steinsteyptum skipum utan við hafnirnar. Hvor þessara miklu innrásar- hafna í Normandí átti að verða á stærð við höfnina í Dover. Allan maímánuð voru menn og vistir fluttar niður til hafn- anna í Suður-Englandi. í brögg- um og tjöldum sváfu hermenn eins þétt og kostur var. Steypi- böð og salerni voru af svo skornum skammti, að langar biðraðir mynduðust framan við þau. Fjöldann má marka af því, að 54.000 manns þurfti til að þjóna liðinu, þar af voru 4500 nýútskrifaðir matsveinar. Síðustu vikuna i maí var byrj- að að flytja herlið og birgðir út í skipin. Stundin var loks runnin upp. UTSAIA Karlmannaföt Kvenkápur Frakkar Skyrtur Stuttjakkar og fleira mikid úrval

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.