Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 30.09.1961, Síða 8

Frjáls þjóð - 30.09.1961, Síða 8
Frarrvh aí 7. síðu. j væri hér oflangt að ræða. en i sérmenntaðir írar leita rnjög burt af landinu. Borgarbúa.r eru 41% lands- manna eða litlu meira, en við landbúnað eru önnur full 40% og leggja til mestan út- fiutningsgjaldeyri íra. Aí- gangur þjóðar er við ýmis i .störf í sveitaþorpurn og j sveitum. Höfuðborgin Dublin er á j stærð við Edinborg að Leith j meðtalinni og er hreinleg, j falleg borg með næga bað- staði, næga trjágarða — og má þannig lengi telja það, sem augað gleður og hressir , .menn á tómstundum. Þar eru framleiddar miklar iðnaðar- vörur til innanlahdsnota, en fyrir þess kyns útflutningi íra fer lítið enn á heims- markaði, einna mest þykir kveða að öli, súkkulaði og .tóbaksvörum. Utanríkis- verzlun íra er mjög bundin við England og er miklu minni á nef þvert en utanrík- isverzlun íslendinga, en greiðsluhalli beggja landa hefur lengi verið eins hár og við varð komið, sýnist manni af skýrslum. Ferðamanna- tekjur og framlög Vestur- heims-íra til gamla landsins hafa bætt þarna úr skák. En I dálítið furðar mann að koma frá annríki hafnanna í Leith j og Glasgow og sjá þá sveita- sælukyrrð, sem ríkt getur i langtímum saman í höfn svo l stórrar höfuðborgar, sem Dublin er. Jafnvel Reykja- j víkurhöfn hreyfist oft meira. Þá er varla tiltökumál, þótt Úr tveimur 50 þúsunda borg- um íra á vesturströnd: Gal- \vay og Hlymréki (Limerick), sjáist sjaldan fara skip hlað- in útflutningsvöru, nema þegar seldir eru nautgripir á fæti í erlend sláturhús. Kuldalega er komizt að orði, að merkasti útflutningur íra siðan 1846 hafi verið fólk á fæti og aldrei jafnar og þétt- ar en í góðu árferði, einmitt síðan þeir urðu óháð lýð- veldi. Þarna reynist ágæt höfuð- borg og fjöldi annarra hent- ugra hafnarstaða ekki nægja fyrir „flóttann úr sveitinni'1 að staðnæmast við, nema Dublin og Cork (80 þús. í- búa) geyma tugþúsundir kvenna umfram tölu karla (sveitir halda, eins og vant er, miklu fleiri körlum en konum). Það er ekki nóg, að ræktunarjörð á írlandi virð- ist óþrotleg og ekki miklu lakari en hún er t. d. á Jót-- landi upp og ofan. Menn sjá ekki von til þess að verða ríkir né frægir á búskap, enda ríkir íhaldssemi í jarð- rækt. Hvað ættum við, segja bændur, sem týndu börnum til útlanda, að gera með jarðýtur frá yfirvöldunum til að breyta grjótgirtu smá- túnunum okkar í samfelld ræktarlönd við hæfi stór- yrkju? — Óþarfi að gera það, fyrr en við erum dauðir, ó- þarfi að misþyrma náttúru- fegurðinni okkar með hel- vízkum skurðgröfum, sem búfræðingar berjast fyrir, „en aldrei skulu fá að koma í mina sveit.“ Og hversu margþættar sem orsakir kunna að vera, er ekki nema lítið brot af ræktuðu landi íra almennilega véltækt. Bú- stofn þeirra er mikill að tölu, en meðalafurðir ekk-i nógu miklar. Útigöngufé þrífs't vel á vetrum, ekki sízt: á túnum eyðibýla og hnign- andi býla. Synd væri að segja, að nútímatækni verði „banabiti sveitamenningar“ á írlandi; dauðinn mun vel ráða við hana án þess. Stóriðnaður til útflutnings jafnt og innanlandsnota hefst ekki á írlandi í bráð, og óvirkjuð vatnsorka er heldur lítil. Skilyrði til létt- iðnaðar, sem að hálfu geti treyst á útflutning, virðast góð og eru mikið rædd í tengsium við úrræði gegn landflótta. Örðugt er, þegar unga fólkið vantar trúna á viðreisnina. Frh. GERIZT ÁSKRIF- ENDUR TRÚLOFUNARHRINGAR HAIIEOR ' ÍK0Í AN i'Li'Lí- ' HANDRIÐALISTAR úr plasti fýrirliggjandi. stærð: 40X8 mm. Litur: grár, svartur, rauðbrúnn. Verðið mjög hagstætt. Vtflitiiheintiifð að Reykjahindi Aðalskrifstofur Reykjalundi: sími um Brúarland. Skrifstofan í Reykjavík, Bræðraborgarstíg 9, sími 22150. jnutMatviki yaaa F ornbókaverzlunin Laugavegi 28 (2. hæð) er ílutt á Klapparstíg 37, milli Skólavöiðustígs og Grettisgötu. Sími 10314. Kaupi bækur, þó ekki aí börnum innan 16 ára eða ölvuð- urn mönnum. Reyni að hafa á boðstólum íágætar bækur. FORNBÓKAVERZLUNIN, Klapparstíg 27. — Sírni 10314. Nr. 24/1961. 1 if My iiiiimg Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks- verð á steinolíu, og gildir veiðið hvar sem er á land- inu: Selt í tunnum, pr. líter .......... Kr. 2,33 Mælt í smáíiát, pr. líter ......... — 2,8D Söluskattúr er innifalinn í verðinu. Reykjavík, 22. september 1961. VERÐLAGSSTJÓRINN. Vinstrimen Frh. af 7. s. Verði ekki umsvifalaust brugðið hart við til varnar, mun afturlialdið ekki iáta staðar numið við þá skerðingu þingræðis og iýðræðis, sem orðin er, ekki láta sitja við afnám þeirra félagsréttinda fólksins sem það hefur þegar að engu gerl með lagarefjum. Þegar er farið að tæpa á lagasetningu til að slæva eggjar verkfallsvqpnsins og annarri, sem á að tryggja þjónuin yf- irstéttarinnar tök á stéttafélögum launþega. Háværar raddir eru uppi um að gera ísland að ófullveðja léni í stórriki evrópskra peningafursta með inngöngu í Efnahagsbandalag Evrópu. Og vel væri hinni nýríku óprúttnu peningastétt íslands til þess trúandi að fresta með bráðabirgðalögum kosn- ingum til Alþingis, ef henni byði svo við að horfa, afnema þær síðan með öllu einn góðan veðurdag, svo að hún ætti ekkert á hættu með áfellisdóm þess fólks, sem aðalmálgagn hennar kallar „samsafn fífla einna“. Hér er aðeins eilt til ráða: Andspænis þeim þjóðarvoða, sem vofir yfir vegna uppivöðslu peningavaldsins íslenzka, geta íhaldsandstæðingar ekki leyft sér að standa margtvístraðir, heldur verða þeir að snúast sem einn maður gegn liinum sameiginlega óvini. Þeir verða að gera sér ljóst livað i liúfi er og sameinast um stóru málin: að varðveita stjórnarfarslegt og efnaliagslegt sjálfstæði ísJands, að losa þjóðina úr helfjötrum hernáms og liernaðarbandalags,- að slá skjaldborg um islenzkt þingræði og Jýðræði, að standa trúan vörð um auðlindir landsins og landgrunnsins, að vernda félagsleg réttindi fólksins, að linekkja veldi Jiinnar ofmetiiaðarfullu afturhaldsstjórnar og liefja nýja sókn til síbatnandi Jífskjara, að láta rætast réttmæta von liins vinnandi manns, sem sækir á mið eða moldina erjar, um öryggi og farsæld að erfiðislaunum: lslenzkir vinstrimenn, þokið ykkur saman undir kjörorðunum: Island frjálst! j J Völdin í liendur vinnustéttunum! 6 tonna vömbifreið og tvö re.iðhjól með hjálparvél til sölu. Til sýnis við skrifstofur vorar að Borgartúni 7, þriðjudaginn 3. október kl. 10—19 og verður þar tekið á móti kaup- tilboðum. Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins. Frímerkin - Framh at I siðu. bæri . að sjá frímerkjakaup- mönnum í umdæmi sínu fyrir frímerkjum, en það væri ekki í verkahiúng írímerkjasölu póststjórnarinnar í Pósthúsinu í Reykjavík. Blaðið hefur ekki ennþá haft aðstöðu til þess að fá úr þessu skorið hjá yfirmönnum Póst- meistara, þar eð þeir hafa verið erlendis, en sér ekki ástæðu til þess að rengja fullyrðingar Póstmeistara, sein hlýtur að vita um þcssi niál. Samt mun álits yfirmanna hans leitað, og það birt hér í blaðinu. Samkvæmt frásögn Póst- meistarans í Rcykjavík er því öllum póstmeisturum, (þeir hljóta að vera jafn réttháir) heimilt að taka við ótakmörk- uðum fyrirframpöntunum ú nýjum frímerkjum, hverjum í sínu umdæmi. Samkvæmt því gætu því ÖLL frímerki verið LÖGLEGA uppseld, áður en aS I útgáfudegi kemur. Reglugerð- I in um sölu frímerkja virðist því vera í meira Iagi gloppótt og ekki vanþörf f. að hún sé tekin til endurskoðunar, cnda kvaðst Póstmeistari í viðtali við blað- ið hafa tekið það upp hjá sjálf- uin sér að skammta frímerkin til frímerkjakaupmanna í Rvík, þegar í óefni var komið. AugSýsið r I Frjálsri þjóð 8 Frjáls þjóð — Laugardaginn 30. sept, 1961

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.