Frjáls þjóð - 21.12.1961, Síða 1
eöueff
i!
/°
21. desember 1961
Fimmtudagur
47. tölublað
10. árgangur
Þingrof upp iír áramdtum?
Þær raddir gerast nú æ háværari innan stjórnar-
fiokkcinna, sem halda því fram, að þing verði rofið
upp úr áramótunum og að þingkosningar muni fara
fram samtímis bæjarstjórnarkosningunum í vor.
Ekki munu Alþýðuflokksfor-
ingjarnir þó neitt áfjáðir í slík-
ar kosningar nú í vor, telja sem
vonlegt er, að ekki sé björgu-
legt fyrir þá að leggja nú út í
kosningar með alla sína ihalds-
þjónkun og óreiðu á bakinu.
En auðvitað fá þeir ekki að
ráða þessu og Bjarni & Co.
telja að ekki verði hjá því kom-
izt aó láta álþingiskosningar
fara fram í vor.
Efnahagsbandalagið.
Ástæður íil þess, að talið er
nauðsynlegt að kjósa i vor eru
margar. Ein sú mikilvægasta
er, að ríkisstjómin þarf að fara
að vinda bráðan bug að þv£ að
flækja ísland inn í Efnaliags-
bandalag Evrópu. Þess er kraf-
izt erlendis frá, að íslendingar
fari að hugsa sér til hreyfings
í því máli, og einnig, að bak
við umsókn um upptöku í hið
nýja Evrópuríki sé traustari
þingmeirihluti en nú er fyrir
liendi. Munu ýmsir gera sér
vonir um, að auðveldara verði
að véla Framsóknarflokkinn til
fylgis við inngöngu í banda-
lagið.
Áætlun norsku
sérfræðinganna.
Fleira kemur og til. Nú fyr-
ir skömmu hafa norskir sér-
fræðingar lokið störfum sínum
hérlendis á vegum „viðreisn-
ar“stjórnarinnar við að búa til
áætlun um rekstur þjóðarbús-
ins næstu árin. Að sjálfsögðu
er þessi áætlun unnin eftir for-
§klift ríkisstjórnarinnar, þ. e,
a. s. áætlunin er gerð um það,
hvernig takast megi að ná þeim
markmiðum, sem ríkisstjórnin
telur æskilegt.
Ríkisstjórnin vlll . láta
kjósa um þessa áætlun, tel-
ur að með lienni megi kasta
ryki í augu kjósenda, því
hún sé unnin af „útlendum
sérfræðingum“. Ekki er
hins vegar talið heppilegt
að draga það í meira eu ár
að láta kjósa um áætlunina,
á þeim tíma gæti nefnilega
svo farið, að ýmsir væru
farnir að sjá í gegnum ýmis
atriði hennar, o g jafnvel
farnir að hlæja að henni, en
það er dálítið, sem forsætis-
ráðherra vorum er ekkert
um.
Viðreisnm
strönduð.
Þá kemur það enn til, að
„viðreisnin“ sæla er nú komin
í algert strand. Fjárlögin núna
eru afgreidd með miklum raun-
verulegum greiðsluhalla, þótt
reynt sé að dylja hann með
„snilldarleguni“ útreikningum,
sem Sölvi heitinn Helgason
hefði verið fullsæmdur af.
Því telja viðreisnarpostul-
arnir nauðsynlegt að láta kjósa
nú í vor, þangað til hægt sé að
fleyta viðreisninni fram hjá
verstu boðum, auk þess muni
verða svo mikið rætt um norsku
áætlunina og Efnahagiibanda-
lagið, að skipbrot „viðreisnar-
innar“ muni gleymast í ósköp-
unum.
Frh. á 8. s.
Náðun Bretanna
Það hefur vakið mikla at-
hyglí og gremju víða, að
brezku sjómennirnir, sem
dæmdir voru til fangelsis-
vistar vegna iíkamsárásar ó
íslenzkan lögregluþjón á
Dr. Bjarni
hjálpar kommiuii
Það kom áþreifanlega i
Ijós á Alþingi íslendinga nú
í vikunni, að kommúnistar
eiga hauk í horni, þar sem er
Bjarni Benediktsson forsæt-
isráðherra, þrátt fyrir öll
brigzlyrði hans um komma
og stuðning framsóknar-
Hrafnar og hræ
Þess sjást nú víSa glögg merki, að erlendir auS-
menn og auSKringar telja víst, aS Kinni ógæfusömu
„vi8reisnar“ ríkisstjórn muni takast aS flækja ísland
inn í Efnahagsbandalag Evrópu, svo erlendir menn geti
hagnýtt sér auSlindir landsins eftir geSþótta.
Undanfarið hafa margir er-
lendir menn dvalizt hérlendis,
til þess að kynna sér mögu-
leika til stóriðju hérlendis, þar
sem gnótt er ódýrrar orku, sem
íslendingar geta ekki notfært
: sér vegna sukks og óreiðu for-
ráðamanna þjóðarinnar. Hafa
hér verið á ferð þýzkir, sviss-
ineskir og norskir menn þess-
ara erinda, svo nokkrir séu til
nefndir, og bíða þess nú eins og
hrafnar yfir hræi að geta nýtt
auðlindir landsins.
Fyrir skömmu komu hingað
íveir fulltrúar frá Norsk-Hydro
í þessu skyni og ferðuðust á-
samt innbornum fylgdarsvein-
nm um nágrenni Reykjavíkur
að minnsta kosti. Mcðal fylgd-
arsveina voru: Jónas Haralz (að
sjálfsögðu), Jóhannes Nordal,
Jakob Gíslason og Eiríkur
Briem. Einnig munu fleiri hátt-
settir embættismenn og ráða-
tneun hafa leiðbeint þcim.
Þetta drasl!
Kona nokkur fór nýlega til
Vetrarlijálparinnar liér í Rvík
og ætláði að reyna að fá þar
kápu lianda frænku sinni, sem
er astma-sjúklingur og getur
ekki unnið. Svarið, sem hún
fékk, var: „Getur ekki helvítis
pakkið komið sjálft?“
Um sama leyti kom þar kona,
sem ætlaði að fá fatnað á barna-
börn sín. Hún fékk þetta svar
„Getur þetta drasl ekki kom-
ið sjálft?“
Já, — mannkærleikurinn,
hann lætur ekki að sér hæða!
ísafirði, voru náðaðir svo til
strax, eftir að þeir voru
komnir í fangelsið á Litla-
Hrauni.
Skömmu áður en náðunin
var tilkynnt ruku brezku
blöðin á . íslandi upp til
handa og fóta og upphófu
kvein vegna þess að hinir
brezku sjómenn yrðu að vent
fjarverandi heimilum sínum
um jólin.
Víst er það engum fagnað-
arefni að þurfa að vera fjarri
ættingjum og vinum á jóla-
hátíðinni, og skiljanlegt, að
brezlcu sjómennina hafi lang-
að heim.
En hins er líka að gæta,
að þeir sátu í fangelsi fyrir
það að hafa ráðizt á íslenzk-
an löggæzlumann við skyldu-
störf hans og misþyrmt hon-
um, algerlega að tilefnis-
lausu og haft í hótunum um
Framh. á 8. síðu.
Dr. Bjarni.
manna við þá. Það var, þeg-
ar Bjarni rauk upp til fóta
og fóta til þess að tryggja
kominúnistum fulltrúa í
Norðurlandaráð með því að
bera fram tillögu um, að
kosningu til ráðsins á Al-
þingi væri breytt.
Forsaga þessa máls er í stuttu
máli sú, að upphaflega voru
fulltrúar kosnir i sameinuðu
þingi, og fengu kommúnistar þá
fulltrúa kjörinn, Samkvæmt
tillögu íhaldsins var þessu
breytt á sínum tíma þannig, að
kosið var í deildum þingsins,
og fengu kommúnistar þá eng-
an mann kjörinn.
í tíð vinstri stjórnarina-
Framh k 8. síðu
Meðal fyrirtækja, sem Norð-
mennirnir heimsóttu, voru Á-
burðarverksmiðjan, . Sements-
verksmiðjan og Sogsvirkjunin
og einnig var komið í Hvera-
gerði. Munu veizluhöld hvergi
hafa verið spöruð í þessum
ferðum.
Mörgum kann að virðast, að
sízt þurfi að amast við frænd-
um vorum Norðmönnum, ef á
annað borð á að hleypa erlendu
fjármagni inn í landið. En þess
ber að gæta, að Norsk-Hydro
er alls ekki alnorskt fyrirtæki,
heldur það fyrirtæki í Noregi,
þar sem erlent fjármagn á
cinna sterkust ítök. Eftir skrif-
um sumra norskra blaða er
þetta fyrirtæki heldur illa
þokkað meðal norskrar verka-
lýðshreyfingar, og má vera, að
þar sé að finna nokkurn for-
^ smckk þess, sem íslenzkur
i verkalýður á í vændum.
Þessi mynd af Land-Rovcr bílnum var ekki tekin uppi a öræíum, heldur í iíeykjavík. Vegur-
inn er samt ekki glæsilegur, en hvað munar Land-Rover um það. (Sjá grein á baksíðn).