Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 15.12.1962, Page 14

Frjáls þjóð - 15.12.1962, Page 14
Blaðaútgáfa fyrr Framhald af bls. 6. THEOPIÍRASTE RENAUDOT. í Frakklandi liófst regluleg blaðaútgáfa árið 1631. Sá mað- ur, sem þar reið á vaðið, mun alla tíð vcrða talin einhver snjallasti garpur, sem saga blaðamennskunnar kann að greina frá. Hann hét Theo- phraste llenaudot og var lækn- ir og jafnframt kaupmangari. En árið 1631 hóf hann útgáfu blaðs, er hann nefndi „Gazette". Síðar lengdi hann nafnið og kallaði J)að „Gazette de France“. — Renaudot var mað- ur bráðgáfaður og með afburð- um ráðsnjall og hugmyndaauð- ugur. Hann sá þegar í hendi sér, að fólk hafði ekki einungis áhuga á ýmsum svokölluðum stórtíðindum, heldur myndi það sólgið í margvíslega aðra lcsn- ingu. Hann tók því upp í blað sitt alls konar fréttapistla og slúðursögur frá frönsku hirð- inni, cnda jók sá dálkur eigi lít- ið útbreiðslu blaðsins. Hann gerði sér ])að cinnig ljóst, að út- breitt blað gat vcrið hið sterk- asta áróðurstœki. Hann kom sér því í mjúkinn hjá Richelieu kardinála, sem þá stjórnaði Frakklandi nálega sem einvald- ur væri, og bauð honum þjón- ustu sína. Richelieu var ekki heldur neinn skynskiptingur, enda sá hann l)egar, að blaðið gat orðið þarft málgagn, haft íhrTTá almenningsálitið. Tókst brátt góð samvinna mcð honum og Renaudot, og skrifaði Richelieu sjálfur margar grein- ar í blaðið. Rcnaudot var fjöllærður mað- ur.hafði eins og J)á var títt, lagt stund á margar fræðigrein- ar, þar á meðal guðfræði, lög- fræði og læknisfræði. Hann tók upp þann hátt, að gefa lesend- um ýmis húsráð í blaði sínu, einkum viðskiptalegs og læknis- fræðilegs efnis. Þá kom hann og með þá nýjung, sem enn er vinsæl og þekkt í blaðaheimin- um, en ])að var bréjakassinn, þ. e„ hann birti bréf frá lesendum, t. d. fyrirspurnir, og svör við þcim. „Gazette“ kom út á hverjum laugardegi, fjórar síður hverju sinni. Blaðið náði töiuverðri útbreiðslu, einkum við hirðina og meðal aðalsins. — „Gazette de France“ kom út í nálega 300 ár. Var það lengi málgagn franska aðalsins. Það sálaðist 1914. BLÖÐUNUM FJÖLGAR Þegar á Ieið 17. öldina, risu upp blöð í nálega öllum lönd- um Mið- og Vestur-Evrópu. — Þetta voru fyrst og fremst fréttablöð, sögðu tíðindi. allt frá styrjaldarfréttnm og hala- stjörnufyrirburðum niður til þess að kýr hefði borið tví- höfða kálfi, eða að X hirðsnáp- ur væri tíður gestur í .sölum Z barónessu. Samgöngur fóru smám sam- an batnandi og póstmálin kom- □st i fullkomnara horf. Varð á tímum það vatn á myllu blaðanna, stuðlaði mjög að útbreiðslu þeirra og cflingu. Fyrsta blað- ið, sem hóf að koma út sex sinnum í viku, var „Leipziger Zeitung", sem stofnað var 1660. Hinn 29. apríl 1666 tók það að koma út á hverjum degi, og þar með var til orðið fyrsta dagblaðið, í bókstaflegri merk- ingu þess orðs. Leipziger Zeit- ung mun koma út enn í dag. — Bretar urðu nokkru seinni til um stofnun dagblaðs. Þar hóf fyrsta dagblaðið göngu sína 1702, en vikublöð voru þar þá orðin útbreidd. Blað þetta nefndist „The Daily Courant“ og kom út í London. Allmikið háði það þróun brezkra blaða um skeið, að þar var lagður á af stjórnarvöldunum sérstakur blaaðskattur. (Samkvæmt lögum frá 10. júní 1712). Skattur þcssi var hár, miðað við gildi pen- inga á þcim tíma, 4 pence á hvert prentað cintalc. Blaða- skatturinn í Englandi var ekki afnuminn fyrr en árið 1855. Annars einkenndi það snemma blöð í Bretlandi, hve frjálslynd þau voru og tiltölulega óháð stjórnarvöldunum. Gátu þau, fremur en blöð annarra þjóða, látið til sín taka um þjóðfélags- mál, fluttu jafnvel ádeilnr á stjórnarfarið, en slíkt var víð- ast hvar annars staðar harð- lega bannað. í nálega öllum löndum var þá óbundið einveldi, og undír þeiní stjornarhattúm þrifust ekki frjáls blöð. Stjórn- arvöldin þoldu ekki hina minnstu gagnrýni, gripu fram fyrir hendur blaðamannanna í hvert skipti sem bryddi á ein- hverju af því tæi. Var þá sjald- an tekið á þeim með neinum silkihönzkum, — útkoma blað- anna oftast bönnuð og ritstjór- ar eða útgefendur settir í tugt- húsið. — Sumir sluppu jafnvel ckki svo vel. Þess voru dæmi, einkum í Frakklandi, að útgef- endur „óþægra“ blaða voru j hreinlega líflátnir. Það var ckki fyrr en mcð stjórnarbyltingunni miklu í Frakklandi, scm blöð- in öðluðust frelsi, gátu rætt þjóðfélagsmál og gagnrýnt stjórnarfarið. Þá fyrst urðu þau túlkendur hins „frjálsa orðs“. En stjórnarbyltingin hafði líka óhemju áhrif á því sviði sem öðram. Á byltingarárunum steyptust blöð eins og flóð- bylgja yfir frönsku þjóðina. Hin sigrandi borgarastétt lagði undir sig prentsmiðjur aðals og klerka og tók að prenta þar blöð sín, jafnframt því sem nýj- ar prentsmiðjur tóku til starfa. Og í byltingarflóðinu drukknaði margur blaðamaðurinn, sem áð- ur hafði unnið fyrir aðalinn. Nokkrir þeirra voru hengdir í Ijósastaúrum Parísarborgar. Eitt hinna nýju blaða var „Þjóðvinurinn", sem Marat stjórnaði. Er sagt, að Marat hafi verið að lesa prófarkir nf „Þjóðvininum“, þá er Charlotta Corday myrti hann í baðinu. svo sem kunnugt er. í öðrum löndum varð stjórn- arbyltingin franska í fyrstu til ])ess, að yfirvöldin tóku upp aukið eftirlit með blöðunum, til að koma í veg fyrir það, að þau afvegaleiddu fólkið með bylt- ingarkenningum. Blöðiu skyldu efla „fornar dyggðir og góða siði" og þó einkum sýna ein- vcldinu fullan- trúnað og holl- ustu. Að öðrum kosti voru þau hiklaust bönnuð. Napóleon hafði einhverju siniii verið að því spurður, hvort hann vildi ekki lesa morgunblöðin, áður en hann gengi til starfa. Svaraði hann þá snúðugt: :„Ég þarf þess ekki, blöðin birta ckki annað en það, sem ég vil að þau birti“. ELZTU BLÖÐ Á NORÐURLÖNDUM. Að lokum þykir rétt að gera nokkra grein fyrir upphafi blaðaútgáfu á Norðurlöndum. Svíþjóð eignaðist fyrsta blað sitt árið 1645. Nefndist það „Post Tijdningar“ og var um langt skeið eina blað Svíþjóðar. Var það ekki fyrr en fullri öld síðar, eða um 1750, sem blaða- útgáfa hófst verulega hjá Sví- um. Fyrsta sænska dagblaðið, „Dagligt Allehanda“, byrjaði að koma út 1769. Elzta blað Danmerkur hóf göngu sína árið 1666. Það hét „Den Danske Mercurius“ og var að því leyti einkar merki- legt, að það var allt í ljóðum. Ritstjóri blaðs þessa og útgef- andi var skáldið Anders Bord- ing. Iíann gaf blað sitt út mán- aðarlcga í 11 ár, eða þar til haiih lézt 1677. Sfærfa og veiga- mcira var blað það, „Dansk Ád- vijs“, sem bóksalinn Daníel Paulli tók að gefa út 1675. Það var fréttablað með myndum og kom út vikulega. í byrjun 18. aldar fór blaðaútgáfa mjög vax- andi í Danmörku. — Þá kom fram á sjónarsviðið „blaðakóng- urinn“ J. Wielandt, sem gaf út livorki meira né minna en sex blöð samtímis, þar af tvö á frönsku. Ilann byrjaði á því fyrstur blaðaútgefanda í Dan- mörku að flytja auglýsingar í blöðum sínum. Árið 1749 hóf göngu sína blaðið „Kjöben- havnske Danske Post Tidend- er“, gcfið út af E. II. Berling. Það blað skipti síðar um nafn og nefndist „Berlingske Tid- ende“. Náði það brátt mikilli útbreiðslu, kemur út enn í dag og er stærsta blað Danmerkur. Blaðaútgáfa hófst eigi í Nor- egi fyrr en árið 1763. Hét það „Norske Intelligenssedlcr“. Blað þetta kom út fram yfir síðustu aldamót, en var þá sameinað dagblaðinu „V.erdens Gang“. f byrjun 19. aldar fjölgaði norsk um blöðum mjög. Árið 1819 hóf „Morgenbladet" göngu sína, en ])að var heila öld eða lengur stærsta og áhrifamesta blað Noregs. Rétt er að minnast aðcins á fsland í þessu sambandi. Þar hófst blaðaútágáfa tveim öldum síðar en í Svíþjóð og nálega öld síðar en í Noregi. Eins og flest- um mun kunnugt, er „Þjóðólf- ur“ fyrsta fréttablaðið hér á landi, en hann var stofnaður síðla árs 1848. Frjáls þjóð Frh. af bls. 9. Frjáls þjóS hefur eðlilega breytzt mikið, frá því blaðiS hóf göngu sína. Því veldur margt; breyttar aðstæður á þeim stöðum sem blacSiS er unnið, misjafn smekkui þeirra, er mótaS hafa blaSiS og breytt- ar kröfur blaSalesenda Upplag blaSsins hefur og veriS breyt- ingum háS. Þar hafa komiS öldudalii og einnig góSir tím- ar. Þeir menn, er stýrt hafa blaSinu, hafa sumir veriS lítt undir þaS búnir; þeim hafa vafalaust orSiS einhver mistök á, en allir hafa viljaS gera sitt bezta. Fjárskortur hefur einnig oft hamlaS því, aS þeir gætu komiS þeim breytingum til fulls í framkvæmd, sem þeir vildu gera. Brýnasta framtíSarverkefniS er nú aS treysta fjárhagslegan grundvöll blaSsins. Til þess er nú hafiS mikiS átak. BlaSiS hefur löngum átt tilveru sína undir skilvísi fastra áskrifenda sinna, og er svo enn. Skal þeim hér þökkuS tryggS þeirra viS blaSiS í þessi ár og vonaS, aS hún vari áfram. BlaSiS okkar á vonandi eftir aS vaxa og aukast aS fjölbreytni, en bezta afmælisóskin til þess er samt sú, aS þaS megi ávallt reynast trútt þeim hugsjónum, sem því í upphafi var ætlaS aS verja og stySja: AS á Islandi verSi ávallt FRJÁLS ÞJÓÐ í FRJÁLSU LANDI, Lfósboginn H uejtis^otu H). 'S,mi V'iðgetðii t\ híladlnamóum 08 uötiurum V/iridmg á rat mötorum Kigum tvrirligg) mdi dtnamónnkei t flestai gerðu hifreiða Vönduð viuria. lágt verð. Ljósboginn H vertiss.ötu 50. LETUR S/F Ollset-f jölritun LETUR S/F Hverfisgötu 50 Slmi 23857 Auglýsið A 1 Frjálsri þióð r Frjáls þjóð óskar lesendum sínum GLEÐILEGRA JÓLA v-. J 14 Frjáls þjóS — laugardaginn 15. desember 1962.

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.