Frjáls þjóð - 15.12.1966, Page 3
Vantar dóms-
málaráðherra
Mönnum verður nú æ tíð-
ræddara um það þjóðfélag
„vel skipulagðra bófaflokka“,
sem við lifum í einkum eftir
síðustu atburði á þeim vett-
vangi.
..411ir eru á einu máli um
það, að Pétur Benediktsson,
bankastjóri hafi hitt naglann
á höfuðið í útvarpserdindi
sínu, sem oft hefur verið vitn
að til.
Ljóst er að síðustu tvo ára
tugi hafa stjórnarvöld lands
ins ekki valdið því hlutverki
að stjórna landinu, og gildir
þar einu hvaða ríkisstjórn á
hlut að máli á þessu tímabili.
Engum dettur í hug að
ætla það, að allar þær ríkis-
stjórnir, sem hér um ræðir,
hafi beinlínis viljað, að jafn
hörmulega tækist til með
stjórn landsins og raun bar
vitni, eða verið í sjálfu sér
óhæfar til að stjórna land-
inu sökum þekkingarskorts og
viljaleysis.
Hitt sýnist mönnum al-
mennt að skýri þessa hörm-
ung, að umræddar ríkisstiórn
ir hafi hreinlega ekki getað
ráðið við neitt vegna þess,
að það séu hinir „vel skipu-
lögðu bófaflokkar", sem
stjórni í raun og veru öllu
efnahagskerfinu og þar með
þjóðfélaginu í heild.
Þeir stunda tollsvik og við
skiptasvik í svo óhemjulegum
mæli, að sífellt verður að
þyngja álögurnar á almenn-
ing vegna þess að, eðlilegar
tolltekjur og söluskattur af
innflutningnum kemur ekki í
ríkissjóð.
Hinar auknu álögur á al-
menning hafa svo í för með
sér síauknar kaupkröfur al-
mennings til að geta innt af
hendi álögur ríkisvaldsins. —
„Bófaflokkarnir“ stunda ck-
urlánastarfsemi og skattsvik,
þeir hrifsa til sín stóran hluta
af verði útflutningsafurða og
umboðslaun af innflutningi og
reka ofboðslegan fjárflótta úr
landi, svo að alltaf er halli á
verzlunarjöfnuði, þrátt fyrir
algjörlega óvenjulegan afla og
útflutning.
Afleiðingarnar eru kröfur
frá atvinnuvegunum um opin-
bera aðstoð til að sligast ekki
undan þessum ófögnuði, nýir
skattar og álögur á almenning,
nýjar kaupkröfur frá almenn-
ingi til að geta innt af hendi
álögurnar, auðvitað með al-
þekktum afleiðingum fyrir at-
vinnuvegina, og þarmig koll af
kolli út í hreina ófæru.
Sú staðreynd blasir því við
öllum hugsandi mönnum, að
það sem okkur vantar fyrst og
síðast er DÓMSMÁLARÁÐ-
HERRA, sem er eitthvað ann
að og meira en nafnið tómt og
leikprédikari í Háteigskirkju
að auk.
Út af fyrir sig þyrftum við
svo sem engan annan ráð-
herra. Ráðuneytisstjórarnir
gætu áreiðanlega annast hin
ráðuneytin betur en þessi
pólitísku himpigimpi, sem nú
skipa þau. En dómsmálaráð-
herra vantar. Mann sem hefði
dug og þor til að uppræta
hina „vel skipulögðu bófa-
fIokka“, sem nú tröllríða þjóð
félaginu og hreinsa aðstoðar-
menn þeirra úr embættiskerf
inu.
FRJÁLS ÞJÓÐ
Útgefandi: HUGINN H.F.
Ritstjóri: Ólafur Hannibalsson
Ritnefnd: Bergur Sigurbjörnsson (ábm.), Gils Guðmundsson,
Haraldur Henrýsson, Hermann Jónsson, Einar Hannesson,
Einar Sigurbjörnsson.
Framkvæmdastjóri: Alexander Guðmundsson.
Auglýsingar: Alexander Guðmundsson
Áskriftargjald kr. 200,00 fyrir hálft ár. í lausasölu kr. 10,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 8. Sími 19985. Pósthólf 1419.
Prentsmiðjan Edda h.f.
500 milljónir —
Framh. af bls. 1.
framhaldsaukafundar telji
stjórn SH þess þörf.“
VANTAR A. M. K.
500 MILLJÓNIR!
Nú er svo komið að útgerð
armenn, sem reka hvort-
tveggja frystihús og báta, og
mega því gerst um vita telja
að fiskverðið til bátanna
verði að hækka 35% til að
standa undir kostnaði við n.k.
vetrarvertíð. Það eitt mundi
gera 390 milljónir króna.
En auk þess er talið að
frystihúsin vanti 20% upp á,
að geta staðið undir NÚVER-
ANDI verði. M. ö. o. fiskterð-
ið verði að hækka um a. m.
k. 55% eða um rúmlega helm
ing, sem mundi þýða um 770
milljónirkróna.
Mun þá láta nærri að 500
milljónir króna þurfi til að-
stoðar bolfiskútveginum, bát
um og frystihúsum, bara til
að fleyta þeim yfir vetrar ver
tíðina.
VERÐFESTING ÞÝÐIR
GJALBÞROT — ÁN ANN-
ARRA ÚRRÆÐA —
En á meðan S.H. telur að
„óbreyííar ástæður muni leiða
til gjaldþrots fjölda fyrir-
tækj a, “ heldur ríkisstj ó- : n
fram lögfestingu núverandi
verðlags, sem allsherjar bjarg
ráði fyrir atvinnuvegina!
Þó varð dr. Bjarni að við-
urkenna í umræðum um verð
festinguna á Alþingi á mánu-
dag, að, „ef mál.ið með útveg-
inn verður þannig a. greiða
verði fjárframlög, þá verður
að skoða málið (verðfesting-
una) aftur, til þess að eyði-
leggja ekki þann árangur sem
ætlunin er að ná með þessu
frumvarpi.“
Og bæði Gylfi og Magnús
frá Mel hafa lýst því yfir ann
ars staðar, að ef greiðslur
hins opinbera til útvegsins
fari á næsta ári fram úr því
sem var í ár, þá verði að auka
álögurnar, hækka skattana.
K J JARASKERÐING
Það virðist liggja nokkuð
ljóst fyrir, þrátt fyrir nýlega
hækkun síldarafurðanna að
greiðslurnar muni óhjákvæmi
lega nær tvöfaldast, og skatta
hækkanir þá verða í hlutfalli
við það. Þar með eru trygg
ingar ríkisstjórnarinnar um
óbreyttan skattstiga fallnar
um sjálfar sig og verðfestmg-
in því einungis leiða til stór-
felldarar kjaraskerðingar.
Hvernig ríkisstjórnin getur
ætlast til stuðnings við verð-
festingu sína áður en úrræði
hennar í málum fiskiðnaðarins
og útvegsins hafa séð dagsins
ljós mun flestum ofraun að
skilja. Þetta tvennt er í órof-
samhengi. Hver vill kaupa
köttinn í seknum af þessari
ríkisstjórn?
Afbrot —
Framh. af bls. 1.
og heiðarlega yfirvalds, að
láta ekkert um komu sína og
erindi vita á íslandi fyrr en
þeir höfðu satt að segja sak-
sóknara ríkisins í höndum
sér, svo að hann átti engra
kosta völ, nema að fara að
vilja hinna dönsku í einu og
öllu. Fullvíst má telja'að Dan-
ir hefðu ekki beitt þessari
fruntalegu aðferð, þegar um
mál er að ræða, sem snertir
tvö ríki, ef þeir hefðu ekki
talið sig hafa mjög ríka á-
stæðu til og verður því mið-
ui að viðurkenna, að þar
hafa þeir á réttu að standa.
NAFNBIRTING SÖKU-
DÓLGA
En það vekur óneitanlega
grunsemdir almennings um að
ekki muni þessu dansk-ís-
lenzka afbrotamáli rösklega
fylgt eftir hér á landi, að
þagað skuli sem fastast um
nöfn jafnt þeirra sökudólga
sem viðurkennt hafa brot sitt
og hinna sem eru undir grun.
Er margt, sem styður þess-
ar grunsemdir. Fyrst það, að
skv. áreiðanlegum heimildum
er eitt hinna seku fyrirtækja,
Melhús hf. og maður með ætt-
arnafnið Thors þannig viðrið
inn málið. Ef þessar sögu-
sagnir væru rangar, er þá
ekki líklegt, að þær væru
kveðnar niður með því að
birta nöfn hinna seku og
hreinsa á þann hátt nafn hinn
ar göfugu ættar.
En einnig hitt, að nafn
Davíðs Sigurðssonar bílasala,
var hiklaust birt í Morgunblað
inu í sambandi við dóm í ok-
urmáli, sem hann hlaut «ý-
lega. Er slíkt óvenjulegt, bæði
að maður hljóti fyrir okurlána
starfsemi og dóm eins hitt, að
nafn hans sé birt í blöðunum.
Að vísu kann það rétt að
vera, sem einhver stakk upp
á, að Davíð Sigurðsson, bíla-
sali hafi hlotið þá aukarefs-
ingu að fá nafn sitt birt í blöð
um, vegna þess eins að leyfa
sér að stunda okur án þess
að vera löglærður, að stjórn-
völd og dómsvöld ætluðu
nokkrum lögfræðingum
EINKARÉTT á okurlánastarf
seminni.
Þá má á það benda, að
margir kaupsýslumenn kvarta
sáran undan því, að í raun
og veru liggi þeir allir undir
grun í augum almennings,
meðan engin nöfn eru birt.
Einnig benda þeir á að yfir-
völdin mundu varla þora að
varpa þannig beinlínis óorði
á heila stétt 1 þjóðfélaginu
með því að þegja um nöfn
hinna seku, ef ekki væri ætl-
unin að svæfa þessi mál alveg,
af einhverjum annarlegum á-
stæðum, og það enda þótt ís-
lenzkt réttarfar liggi undir
smásjá erlendrar þjóðar í
þessu máli og þar verði vand-
lega fylgzt með því, hvað hér
gerist.
M. a. af þeirri ástæðu á
þjóðin sem slík skýlausa kröfu
til þess að nöfn sökudólganna
verði birt án tafar.
NÝTT OKURMÁL
Þegar dómurinn yfir Davíð
Sigurðssyni var birtur í blöð-
um, var Frjálsri þjóð tjáð, að
þetta væri hvorki fyrsta né
eina okurlán Davíðs Sigurðs-
sonar.
Nýlega hafi komizt upp, að
hann hafi lánað fyrirtæki,
sem varð gjaldþrota eina millj
ón króna með 60% ársvöxt-
um. Slíkur drápsbaggi hafi að
sjálfsögðu rið^ð fyrirtækinu að
fullu á skömmum tíma og
það því orðið að gefa sig upp
til gjaldþrotaskipta.
Frjálsri þjóð hefur ekki tek
izt að afla sér sundurliðaðra
upplýsinga um þetta mál enn
þá, en mun reyna að fylgjast
með því, hvað saksóknari ger
ir í málinu.
Dómaradaris
sérstæðasta
jólagjöfin
ötölusett eintök fást í
bókabúðum og afgreiðslu
blaðsins í Ingólfsstræti 8.
Verð kr. 250,00.
03 '
Upplag er mjög lítið af
þessari sérstæðu bók, sem
43 listamenn hafa ritað til
að leggja áherzlu á sam-
stöðu sína meö starfsbróð-
ur sem dæmdur hefur verið
til fjárutláta fyrir að beita
penna sínum fyrir málstað
litilmagna — gegn hróp-
legum rangindum og botn-
lausri spillingu.
Má búast við að bókin
gangi fljótlega til þurrðar.
Tryggið yður þvi eintak
af góðri og sérstæðri bók i
tíma.
MálsvarnaisjóSm
Frjáls þjóð — Fimmtudagur 15. desember 1966.
3