Frjáls þjóð - 29.08.1968, Side 4
ALYKTANIR OG MOTMÆLI
Undanfarna viku hafa
fjölmörg félagssamtök sent
frá sér ályktanir og mót-
mæli út af innrásinni í
Tékkóslóvakíu. Þar sem
þetta hefur komið fram
dreift og borið lítið á sumu
þykir Frjálsri þjóð rétt að
safna hinu helzta saman á
einn stað.
Áskorun hundrað sósialista
Árdegis miðvikudaginn
31. júlí 1968 var sendiherra
> Sovétríkjanna á íslandi, hr.
Nikolai P. Vazhnov, afhent
áskorunarskjal undirritað
af eitt hundrað sósíalistum,
vegna þeirra deilna, sem
upp hafa komið milli Sovét-
ríkjanna. og Tékkóslóvakíu
og einna hæst hefur borið
i fréttum að undanförnu. Á
fund sendiherrans gengu
Guðmundur Ágústsson,
Gunnar Guttormsson, Hall-
dór Guðmundsson, Hjalti
Kristgeirsson og Ragnar
Arnalds. Áskorun hinna
eitt hundrað sósíalista fer
hér á eftir:
„íslénzkir sósíalistar hafa
áhyggjur af þeim viðsjám,
sem magnazt hafa milli
Tékkóslóvakíu og Sovétríkj
anna og óttast, að þær verði
málstað friðar og sósial-
isma í heiminum til tjóns.
Fullvissir þess, að for-
sendur sósíalismans 1
Tékkóslóvakíu séu óskorð-
að fullveldi landsins, skora
undirritaðir 100 íslenzkir
sósíalistar á Sovétríkin að
virða í hvívetna sjálfstæð-
an ákvörðunarrétt þjóða
Tékkóslóvakíu og styðja
þær til þeirrar fullkomnun-
ar á sósíalísku lýðræði, sem
þær hafa nú hafið.“
Ályktim ÆFR
Ályktun samþykkt af
framkvæmdanefnd Æsku-
lýðsfylkingarinnar í Reykja
vík að morgni hins 21.
ágúst.
„Æskulýðsfylkingin, sam
band ungra sósíalista, harm
ar það áfall sem baráttan
gegn heimsvaldastefnunni
hefur orðið fyrir með inn-
rásinni í Tékkóslóvakíu.
Æskulýðsfydkingin álít-
ur þessar aðfarir minna
meira á stórveldastefnu en
sósíaliska alþjóðahvggju.
Æskulýðsfylgingln for-
dæmir irmrás herja Varsjár
bandalagsins, undir íorystu
kommúnistaflokks Ráð-
stjórnarríkjanna, í Tékkó-
slóvakíu.
Ályktun framkvæmda-
nefndar Sósíalistaflokksins
Framkvæmdanefnd Sam-
einingarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins hefur á
fundi sínum í dag einróma
samþykkt eftirfarandi álykt
un vegna atburðanna í
Tékkóslóvakíu:
Hinir hörmulegustu at-
burðir hafa gerzt. Herir frá
fimm aðildarríkjum Var-
sjárbandalagsins hafa gert
innrás í Tékkóslóvakíu.
Með ofbeldi er löglegum
stjórnarvöldum srnárrar
þjóðar vikið til hliðár. í
þeirra stað skal erlendur
her skipa fyrir verkum.
Sósíalistaflokkurinn for-
dæmir ofbeldisárásina og
lýsir fyllsta stuðningi við
þær grundvallarreglur, að
sérhver þjóð eigi rétt til að
skipa eigin málum sjálf án
í'hlutunar erlendra aðila.
Sérstaklega áréttar Sós-
íalistaflokkurinn þá stefnu
sína, sem á undanförnum
dögum og oft áður hefur
verið túlkuð í Þjóðviljan-
um, að það sé réttur og
þjóðleg skylda hvers sósíal-
istísks flokks að móta og
berjast fyrir sósíalisma í
eigin landi í samræmi við
sögulegar aðstæður og hags
muni eigin þjóðar.
Flokkurinn telur að inn-
rásin í Tékkóslóvakíu sé hið
alvarlegasta brot á þessum
grundvallarreglum og lýs-
ir eindregnum stuðningi
sínum við þjóðir Tékkó-
slóvakíu og forystumenn
þeirra.
Það er skoðun okkar, að
stjórnarvöld Tékkóslóvakíu
hafi haft að baki sér yfir-
gnæfandi meirihluta lands-
manna og við efumst ekki
um hollustu þeirra við hug-
sjónir sósíalismans. ' Við
vísum á bug þeirri kenn-
ingu, að með innrás er-
lendra herja sé verið að
forða þjóðum Tékkó-
slóvakíu frá endurreisn auð
valdsþjóðfélags í landi
þeirra.
Við bendum á, að þessar
hernaðaraðgerðir brjóta
freklega í bág við yfirlýs-
ingu Bratislavafundarins
um virðingu fyrir fullveldi
þjóða og sjálfsákvörðunat-
rétti þeirra.
Sósíalistaflokkurinn er
þeirrar skoðunar, að fyrir
okkur íslendinga, vopn-
lausa smáþjóð, sé sjálfsá-
kvörðunarréttur þjóðanna
svo mikilvægur, að frá hon
um megi ekki víkja. En
þessi sjálfsákvörðunarrétt-
ur þjóðanna verður jafnan
í hættu meðan hernaðar-
bandalög stórvelda og er-
lendar herstöðvar þeirra í
öðrum löndum eru til. Þess
vegna áréttum við enn einu
sinni þá kröfu okkar, að við
íslendingar skipum okkur
í sveit þeirra fjölmörgu
þjoða, sem standa utan
hernaðarbandalaga og neita
um erlendar herstöðvar í
landi sínu. Með slíkri ut-
anríkisstefnu styrkjum við
bezt málstað allra þeirra,
sem nú búa við valdbeit-
ingu erlendra aðila.
Hugsjónir forystumanna
Tékka og Slóvaka um lýð-
ræði og sósíalisma verða
ekki bældar niður með
vopnum og ofbeldi í Prag.
Þær munu lifa og bera ríku
legan ávöxt í sögu sósíal-
ismans með nýjum kynslóð
um um allan heim.
Ályktun borgarafundar í
Gamla-Bíói.
„Almennur borgarafund-
ur haldinn í Gamla bíói mið
vikudaginn 21. ágúst for-
dæmir innrás Varsjárbanda
lagsríkja í Tékkóslóvakíu
um leið og hann lýsir
dýpstu samúð með baráttu
þjóða Tékkóslóvakíu fyrir
frelsi, fullveldi og lýðræð-
islegri stjórnarháttum."
Framkvæmdanefnd
Sósíalistaflokksins.
Samþykkt Framkv^pidá'
stjómar Alþýðubandalags-
ins.
Eftirfarandi samþykkt
var gerð einróma á fundi
framkvæmdastjórnar Al-
þýðubandalagsins á fundi
hennar þann 21. ágúst:
Tilefnislaus innrás Sovét
ríkjanna og bandingja
þeirra innan Varsjárbanda-
lagsins í Tékkóslóvakíu er
níðingsverk, sem hlýtur að
vekja fcryggð og reiði hjá
öllum sem unna þjóðfrelsi
og sósíalisma. Grið eru rof-
in á sjálfstæðu ríki í því
skyni að svipta það sósíal-
istískri forustu, sem sýnt
hefur að hún nýtur fádæma
hylli og stuðnings þjóðar-
innar. Með þessu athæfi eru.
helgustu hugsjónir þjóð-
frelsis, sósíalisma og. al-
þjóðahyggju troðnar í svað
ið.
Framkvæmdastjórn Al-
þýðubandalagsins fordæm
ir árásina á þjóðir Tékkó
slóvakíu, á kommúnista
flokk landsins, á málfrelsi
og skoðanafrelsi, á fullveldi
þjóðanna.
Framkvæmdastjórnin lýs
ir yfir dýpstu samúð með
Tékkóslóvökum í þrenging-
um þeirra, fullviss um að
þessi margreynda þjóð mun
standast þessa þungu raun
eins og svo margar aðrar
sem yfir hana hafa dunið.
Ályktun stjórnar Stúdenta-
félagsins.
Miðvikudaginn 21. ágúst
samþykkti stjórn Stúdenta-
félags Háskóla íslands svo-
fellda ályktun:
„íslenzkir stúdentar for-
dæma íhlutun erlendra
ríkja í innanríkismálum
Tékkóslóvakíu og lýsa yfir
einlægri samúð með þjóð-
um landsins.
Þessi atburður er ótví-
rætt brot á stofnskrá Sam-
einuðu þjóðanna, og er skor
að á ríkisstjórnina að stuðla
að upptöku málsins á Alls-
r Sameinuðu
þióðanna og lausn þess í
m iflTTT O rjT>Tq r
trmo msTq jTiLfé'^q
anda samtakanna.
Ályktun stjómar Sósíalista-
félags Reykjavíkur.
Á fundi stjómar Sósíal-
istaf éla gs Reyk j avíkur
föstudaginn 23. ágúst var
gerð svofelld ályktun:
„Stjórn Sósíalistafélags
Reykjavíkur harmar her-
nám Tékkóslóvakíu af hálfu
Varsjárbandalagsríkja og
telur það hin alvarlegustu
mistök, brot á grundvallar-
reglunni um sjálfsákvörð-
unarrétt þjóða og vatn á
myllu heimsvaldasinna.
Stjórnin skorar á viðkom
andi ríki að kveðja her-
námsliðin brott frá Tékkó-
slóvakíu og heitir um leið
á þjóðir Tékkóslóvakíu að
standa trúan vörð um hið
sósíalistíska þjóðfélag.“
Ályktun stjórnar Alþýðu
bandalagsins í Kópavogi
Stjórn Alþýðubandalags
ins í Kópavogi ályktaði eft
irfarandi á fundi sínum
laugardaginn 24. ágúst s.l.
Stjórn Alþýðubandalags
ins í Kópavogi lýsir ein
. lægri samúð sinni með bar
áttu Tékka og Slóvaka fyrir
auknu frelsi og lýðræði og
fordæmir innrás fimm
rfkja Varsjárbandalagsins
í Tékkóslóvakíu.
Stjórnin hvetur íslenzka
sósíalista til að veita Tékk-
um og Slóvökum allan þann
siðferðilegan stuðning sem
þeir megna, m. a. með því
að hafna félagslegum og
menningarlegum samskipt-
um við þjóðir innrásarherj-
anna meðan á hernámi
Tékkóslóvakíu stendur.
Ályktun og samþykkt
Tékknesk-íslenzka
félagsins.
Á almennum fundi í Sig-
túni 25. ágúst var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun:
Óréttlætanleg innrás 5
Varsjárbandalagsvelda í
Sósíaliska lýðveldið Tékkó-
slóvakíu er eitt hið níðings
legasta verk evrópskrar
sögu og hlýtur að vekja öll
um ærlegum mönnum harm
og reiði.
Innrásarveldin hafa gerzt
margfaldir griðrofar við
fullvalda ríki og fótumtroð-
ið helgustu hugsjónir
manna um þjóðfrelsi og al-
þjóðahyggju.
Við krefjumst þess:
að innrásarveldin kveðji
heri sína tafarlaust burt
úr landinu,
að allir, sem innrásarherinn
og þý hans hafa svipt
frelsi séu strax látnir
lausír,
að réttkjörin stjórnarvöld
fái óhindruð að gagn
störfum, >
að látið sé af öllum þvingun
um og ögrunum gegn
Tékkóslavíku og allt það
tjón, sem innrásarherirn-
ir hafa valdið, sé að fullu
bætt.
Á fundinum var einnig gerð
eftirfarandi samþykkt:
Við lýsum aðdáun okk-
ar á þeirri dirfsku, stað-
festu og stillingu, sem þjóð-
ir Tékkóslóvakíu hafa sýnt
gagnvart ofurefli innrásar-
herja Varsjárbandalagsins.
Jafnframt skorum við á
samtök almennings á ís-
landi að lýsa aðild að und-
anfarandi ályktun eða
stuðningi við málstað Tékka
og Slóvaka með eigin álykt
unum og koma þeirri af-
stöðu sinni á framfæri við
starfsbræður sína og stofn-
anir þeirra í innrásarríkjun
um.
Jafnframt skorum við á
fólk að láta ótvírætt í ljós
við fulltrúa innrásarríkj-
anna fyrirlitningu sína á at
hæfi ríkisstjórna þeirra,
hvenær sem færi gebst.
d
Frjáls þjóð — Fimmtudagur 29. ágúst 1963