Þjóðvakablaðið - 23.08.1995, Qupperneq 1

Þjóðvakablaðið - 23.08.1995, Qupperneq 1
r RODD FOLKSINS 1. ARG. 16. TBL. MIÐVIKUDAGUR 23. AGUST 1995 1400 flytja burt umfram aðflutta á 18 mánuðum - fleiri en á krepputímanum fyrir 1970 Á erfiðleikaánmum 1966 til 1970 var meðaltal brottfluttra umfram aðflutta til landsins 650 manns. Á árunum 1986 til 1993 var fjöldi aðfluttra og brottfluttra í jafnvægi, en nú bregður svo við, á síðasta einu og hálfu ári, þ.e. 1994 og fyrstu 6 mánuðum 1995, að fjöldi brottfluttra nmfram aðflutta er tæplega 1400 manns. Það er svipaður pdi eða heldur fleiri en árin 1966 tíl 1970, þegar mikil lægð var í íslensku efnahagslífi. Áfellisdómur I fyrra flutti 861 maður af landi brott umfram þá sem fluttu til landsins og fyrstu sex mánuði þessa árs fluttu 522 fleiri burt en þeir sem hingað komu. „Þessar tölur eru alvar- leg aðvörun fyrir íslensk stjórn- völd og áfellisdómur um lífs- kjörin í landinu,” segir Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóð- vaka. „Einhæfni atvinnulífsins kemur okkur í koll og að því kemur að fólk sem vinnur lang- an vinnudag án þess að ná end- um saman gefst upp og leitar til annarra landa, sem geta boðið mannsæmandi laun fyrir dag- vinnu.” Margir hafa flutt búferlum til Danmerkur að undanfömu, þar sem fólki bjóðast tvisvar til þrisvar sinnum hærri laun fyrir dagvinnu en hér á landi. Þor- bjöm Guðmundsson, starfs- maður Samiðnar, segist ekki muna eftir annarri eins fyrir- spurnahrinu iðnaðarmanna sem vilja komast til starfa er- lendis og verið hefði undan- farnar vikur. Hann segir að ekki sé um atvinnulaust fólk að ræða, heldur fólk sem hafi gef- ist upp á baslinu hér og sjái ekki fram á neinar breyingar til batn- aðar á næstunni. Sjá bls. 4 Hættuástand í heilbrigðis- þjónustunni Heilbrigðisnefnd Alþingis heimsótti geð- deildir Landspítalans í síðustu viku og kynnti sér ástandið af eigin raun. Starfs- menn kynntu þingmönnum starfsemi geðdeildanna og svöruðu fyrirspumum. Þar kom fram að aðsókn að geðdeildum hefur aukist um 20-30% á árunum 1991- 94, meðan dregið hefur verið úr kostn- aði og starfsmannahaldi. Tómas Helga- son segir ástæðuna vera m.a. fólksfjölg- un og ekki síst ástandið í þjóðfélaginu. Fólk sé undir meira álagi en áður vegna atvinnuleysis og efnahagsörðugleika. „Það er ekki boðlegt hvernig langvar- andi niðurskurður og sumarlokanir komu niður á sjúklingunum, aðstandendum, starfsfólki spítalans og allri þjónustunni,“ segir Ásta R. Jóhannesdóttir, fulltrúi Þjóð- vaka í nefndinni. Að sögn starfsmanna hafa lokanirnar haft þær afleiðingar að þurft hefur að vísa frá sjúklingum sem komið hafa að nætur- lagi. Vaktir eru undirmannaðar og starfs- fólk iðulega í slysahættu og undir ómann- legu álagi. Það er líka hættulegt fyrir um- hverfið þegar bráðveiku fólki er vísað á guð og gaddinn eða það tekið inn á deildir þar sem ekki er starfsfólk til að veita þvi viðunandi aðhlynningu. Á Qórða tug geðsjúkra barna bíður fyrsta viötaís Barna- og unglingageðdeild Landspítal- ans hefur ekki farið varhluta af niður- skurðinum undanfarin ár. Nú er svo kom- ið að milli 30 og 40 börn bíða fyrsta viðtals á barnageðdeildinni og getur biðin varað allt að 8 mánuðum. Mörg þessara barna búa við óviðunandi aðstæður og er sjúk- dómurinn oft kominn á alvarlegt stig þeg- ar röðin er loksins komin að þeim. Fram kom í máli Valgerðar Baldursdótt- ur, barna- og unglingageðlæknis, að oft verður að útskrifa börn sem varla eru hæf ug v.'tu , , au V til að útskrifast, vegna þess að um bráða- deild er að ræða og ekki er hægt að fylgja meðferðinni eftir vegna skorts á fagfólki. I heimsókn þingmanna á geðdeildirnar kom fram að sárlega vantar sérhæft starfs- fólk á göngudeild barna- og unglingageð- deildarinnar. Þar sem barna- og unglingageðdeildin getur aðeins sinnt takmörkuðum fjölda þeirra sem þarfnast þjónustu hennar, er foreldrum og aðstandendum vísað á önn- ur úrræði. Þau eru mjög kostnaðarsöm og ekki á færi nema þeirra efnameiri að nýta þau. Þau felast í að leita sálfræðiþjónustu eða sérfræðilæknisþjónustu á stofu. Tími hjá sálfræðingi kostar um 3000 krónur og sérfræðiþjónusta hjá geðlækn- um er einnig kostnaðarsöm. Ásta sagði að með þessu værum við komin út á þá var- hugaverðu braut að þeir sem hafi fjár- magn geti fengið Iæknisþjónustu, hinir verði að gjöra svo vel og bíða eða vera án þjónustunnar. „Þetta gengur ekki, því allir verða að hafa aðgang að læknisþjón- ustunni, óháð efnahag,11 sagði Ásta að lokum og benti á að enginn sparn- aður væri í því að skera niður þjónustu við geð- sjúk börn. Mörg þeirra sem ekki fá læknishjálp leiðast út í vímuefnaneyslu og af- brot. Það á sérstaklega við um ofvirk börn. Þessir einstaklingar geta því orðið mjög dýr- ir samfélaginu síðar, að ógleymdri óhamingju og vanlíðan sem þeir valda sjálfum sér og öðrum. Þingmenn á fundi með starfsfólki geðdeildar Landspítalans, fremstt.v. Össur Skarphéðins- son, Asta R. Jóhannesdóttir og Ögmundur Jónasson. í löndum sem viljum bera okkur saman við, s.s. Bandaríkjunum og Norðurlönd- um, er miðað við að heilbrigðisyfirvöld nái að veita 1-2% barna þessa þjónustu, en hér á landi náum við til um 0,01% barna. Vestnorrænir þingmenn styðja kröfii um aðild að Thule-málinu Grœnlendingar fái allar upplýsingar um vígbúnað í landinu Vestnorræna þingmannaráð- ið, sem er samstarfsvettvangur þjóðþinga Færeyja, Græn- lands og íslands, samþykkti einróma stuðning við kröfu Grænlendinga um aðild að Thule-málinu svokallaða og að þeir fái allar upplýsingar um vígbúnað í landinu. Vestnorræna þingmannaráð- ið ræddi þróuna í Thulemálinu á fundi sínum í Qaqortoq á Grænlandi 11. og 12. ágúst sl. „Það er móðgun við Græn- lendinga að fá ekki aðild að rannsókn á vígbúnaði og kjarn- orkuvorpnabúnaði í landi sínu“, sagði Ásta R. Jóhannes- dóttir alþingismaður, sem sat fundinn á Grænlandi. Danska ríkisstjórnin hefur vísað á bug kröfu grænlensku landsstjórn- arinnar og utanríkis- og öryggis- nefndarinnar um umfang og beina aðild að rannsókn Thule- málsins. Sú skoðun kom mjög ákveðið fram hjá þingmönnum á fundin- um að þjóðþing vestnorrænu landanna, Færeyja, íslands og Grænlands, og ríkisstjórnir þeirra eigi að fá aðgang að öll- um upplýsingum um hernaðar- lega notkun landanna, bæði fyrr og síðar.

x

Þjóðvakablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.