Þjóðvakablaðið - 23.08.1995, Page 2

Þjóðvakablaðið - 23.08.1995, Page 2
 2 ÞJÓÐVAKI rödd fólksins 1. árgangur «16. tölublað • 23. ágúst 1995 Sími ritstjórnar 552 81 00 • Aðalstræti 9 • Fax 562 7060 Útgáfustj.: Marías Sveinsson, Jónas Ástráðsson Umsjón: Einar Örn Stefánsson • Ábm.: Katrín Theódórsdóttir Hönnun og umbrot: Leturval • Prentun: ísafoldarprentsmiöja. Rcaðherrann og blaðlaukurinn Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra fór mik- inn í sjónvarpi þegar loksins náðist í hann vegna stöðugra frétta af klúðri, hækkunum og hæpinni lög- fræði kringum framkvæmd GATT-samninganna. Hann sagði að einstakir hnökrar væru vissulega á frctmkvæmdinni en að öðru leyti væru þetta allt meira og minna smámál. Auðvitað væri það löglegt að skil- yrða tollfrían ostainnflutning við hráefni til ostagerðar og tegundir sem ekki væru hér framleiddar, annars hefði hann aldrei sett þá reglugerð. Athugasemdum frá m.a. þingmönnum Þjóðvaka og forráðamönnum Hag- kaups um lögmæti þeirrar reglugerðar svétrar hann þannig að á það verði bara að reyna. Um heildarstefnu landbúnaðarráðuneytisins sagði Guðmundur Bjarnason það eitt að sér virtist allt vera að verða vitlaust af því blaðlaukur hefði hækkað í verði. Það mætti halda að þjóðin lifði á blaðlauk, sagði ráð- herrann. Guðmundur Bjarnason hefur hingað til notið virðing- ar fyrir hófstillta framkomu og áreiðanleik í stjórnmála- samskiptum. Það sýnir best vondan málstað ráðherr- ans að hann skuli telja sig þurfa að verja hendur sínar og ríkisstjórnarinnar með þeim valdhroka sem raun ber vitni. „Vi alene vide“ sagði íhaldskóngur í Danmörku eitt sinn um landsins gagn og nauðsynjar. Blaðlauksráð- herrann telur ljóslega að það sama gildi um Framsókn- arflokkinn í landbúnaðar- og neytendamálum eftir ára- tuga forustu við að gera bændur að undirmálsmönnum um leið og íslenskir neytendur þurfa að borga eitthvert hæsta verð í heimi fyrir lífsnauðsynjar sínar, - þar sem blaðlaukurinn hefur líka sína vigt þótt Guðmundur Bjarnason telji að grænmetisverð skipti heimilin í land- inu ekki nokkru máli. Flótti fró vonleysinu Nýlegar fréttir um síaukinn brottflutning fólks af land- inu eru einhver alvarlegustu tíðindi síðustu mánaða. Það er auðvitað ekki nýtt að fólk reyni fyrir sér erlend- is þegar erfiðleikar steðja að íslensku efnahagslífi. Þetta gerðist til dæmis í lok sjöunda áratugarins og um miðj- an áttunda áratuginn, svo ekki sé farið lengra aftur í tím- ann. Sumir segja rauncir að það sé einn cif kostum sam- eiginlegs vinnumarkaðcir á Norðurlöndum og nú á EES- svæðinu að fólk skuli eiga völ þessa kosts þegar þröngt er í búi hér heima. Nú um stundir er hinsvegar engin skyndileg efnahag- skreppa á ferð, aflabrestur eða hallæri. Efnahagssér- fræðingar segja í gangi hæga uppsveiflu, og forsætis- ráðherrann lýsti því yfir á blaðamannafundi í fyrra að kreppunni væri lokið. Fólkið sem nú er á förum frá landinu er því ekki að flýja óvænt áföll. Fólkið er að fara vegna þess að það hefur misst trúna á að nokkuð batni í atvinnumálum og aðbúnaði að fjölskyldunum í landinu. Það hefur gefist upp á samfélagsvandamálum þar sem engin lausn er sjáanleg, sem landstjórnin hefur engan áhuga á að leysa. Það hefur brostið vonirnar um bætta tíma. í þessu vonleysi felst áfellisdómur um pólitíska for- ystu í landinu. Það segir allt sem segja þarf um þá trú sem menn hafa á úrræðum þeirra sem nú eru sestir við stjórnvölinn. Þ J 6 Ð V A K I_ Hverjum er verið að refsa? Á vorþinginu var flutt tillaga til þingsálykunar þar sem ríkis- stjóminni var falið að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að við- skiptabannið á írak yrði tafar- laust tekið til endurskoðunar og að mótuð yrði sú stefna að við- skiptahindrunum verði aldrei beitt við þær aðstæður eða þannig að almenningur, ekki síst böm, líði beinan skort af þeim sökum. Ásta R. Jóhannesdóttir var meðflutningsmaður að tillög- unni. Frá upphafi S.Þ. hefur viðskipta- hindrunum verið beitt í u.þ.b. 10 skipti til þess að knýja ríki til að- gerða eða aðgerðarleysis. Við- skiptabönnin hafa verið misvíð- tæk, þannig náði viðskiptabann gegn fyrrum Júgósalvíu aðeins til vopnasölu og viðskiptabann gegn S-Áfríku tók aldrei til nauðsynja- vara, ferða- eða samgöngumála. Viðskiptabann gegn írak er hins vegar mjög almennt, nær bæði til inn- og útflutnings og til almenn- ingssamgangna, þannig að í írak er nú heil þjóð sem situr í fangelsi. Nauðsynlegt er í alþjóðaviðskipt- um að leitast við að beita friðsam- legum aðgerðum, öðrum en vopnavéildi, við lausn deilumála. En þegar þess er gætt að bann S.Þ. á viðskipti við þjóð er svo öflugt vopn, að beiting þess getur ráðið úrslitum um afdrif þjóðarinnar, er Ijóst að gæta verður hófsemis við beitingu þess, þannig að aldrei verið gripið til þess nema til þess að binda endi á refsivert athæfi. Því verði m.ö.o. aflétt um leið og því lýkur og beiting þess verði ávallt í samræmi við viðurkennd mannúðar sj óneirmið. Innrásin í Kúvæt Þegar írakar réðust inn fyrir landamæri Kúvæt árið 1990 var það skýlaust brot á þjóðarétti sem og alþjóðalögum. Með innrásinni, hernáminu og innlimun Kúvæts var hrint af stað atburðarás sem vesturveldin sáu sig tilneydd til að stöðva. Öryggisráð S.Þ. greip til þess ráðs að samþykkja algjört viðskiptabann á írak, sem náði til allra viðskipta þ.á.m. með matvæli og lyf. Árásinni var hrundið eins og alþjóð veit, enda var stríðið háð í beinni útsendingu stærstu sjón- varpsstöðva heims. Síðan eru liðin tæplega 5 ár og enn er verið að skipuleggja í kyrrþey hægfara hel- för heillar þjóðar undir merki þjóðaréttar. Frá því í ágúst 1990 hefur öryggisráðið samþykkt um 30 ályktanir um alls kyns við- skiptahindranir gagnvart írak. Með auglýsingu nr. 160 frá 1992 skuldbinda íslendingar sig til þess að framfylgja ályktun öryggisráðs- ins. í ályktuninni, sem inniheldur vítækt viðskiptabann, er gerð und- anþága þegar kemur að sjúkra- gögnum og'matvælum sem notuð eru í mannúðarskyni. Staðreyndin er hins vegar sú að með aðgerðum S.Þ. hefur írak verið gert ókleift að flytja út framleiðslu sína, þ.m.t. olí- una, nema með slíkum afarkostum að þjóðin hefur ekki haft bolmagn til þess að kaupa þær vörur sem undanþágan nær til. Á meðan sveltur þjóðin heilu hungri. Hungursneyð og púkinn á fjóshaugnum Nú er svo komið að í landinu er orðinn tilfinnanlegur skortur á Katrín Theódórsdótdr skrifar matvælum, lyfjum og öðrum nauð- synjavörum. Börn og fullorðnir deyja úr hungri eða hörgulsjúk- dómum og sjúkrahúsin geta ekki sinnt hlutverki sínu vegna skorts á Iyfjum og öðrum aðbúnaði. Hinar efnahagslegu þrengingar hafa ýtt þjóðinni aftur til svartra miðalda, framfarir og bjartsýni sem ein- kenndu þjóðina fyrir örfáum árum eru orðin fjarlæg endurminning. Almenn menntun, sem komin var á hátt stig, hefur þurft að víkja fyr- ir baráttunni við hungurvofuna, en þjóðarleiðtoginn Saddam Hussein hefur fitnað eins og púkinn á fjós- haugnum. Þvingunarúrræði - refsing - hemd í ljósi þróunar sem átt hefur sér stað í Irak frá innrásinni í Kúvæt vakna vissulega efasemdir um gagnsemi og réttlætingu viðskipta- banns yfrleitt. Ef markmiðið með viðskiptabanni var að knýja stjórn- völd til að hörfa frá Kúvæt, þá má segja að aðgerðirnar hafi skilað til- ætluðum árangri fyrir löngu og ekkert réttlæti viðhald ástandsins af hálfu S.Þ. Hafi tilgangurinn hins vegar verið sá að refsa stjórnvöld- um fyrir innrásina í Kúvæt bitnaði refsingin á röngum aðila, þ.e. fólk- inu í landinu, hópi fólks sem ekki kom nálægt hinu refsiverða at- hæfi. Samkvæmt íslenskum refsirétti er það meginregla að mönnum verði ekki refsað nema þeir hafi brotið af sér og að aðeins þeim brotlega verði refsað. Þáverður að vera samræmi á milli refsingar og hins refsiverða verknaðar. Við- skiptabannið gegn írak hefur leitt til þess að fjölskyldum, ættbálkum og íbúum heilla bæjarfélaga hefur verið refsað fyrir brot eins af þegn- um samfélagisns. Þetta er í and- stöðu við réttarvitund og réttar- venju siðaðara þjóða og er í hróp- andi andstöðu við þau mannúðar- sjónarmið sem Genfarsáttmálinn og niðurstöður Núrnberg-réttar- haldanna byggðust á. Aðgerðir Sameinuðu þjóðanna gegn írösku þjóðinni eru brot á mannréttindasáttmála S.Þ. enda er beint samband milli viðskipta- bannsins og brota á grundvallar- mcinnréttindum þegnanna í írak, s.s. réttinum til lífsins, frelsis, reisnar og skoðana. Vegna þeirra grunnsjónarmiða sem nútímaréttarríki byggir á, á al- mennt viðskiptabcinn gegn fátæk- um þjóðum aldrei rétt á sér. Hafi öryggisráðið hins vegar ekki önn- ur þvingunarúrræði ber því að hlíta þeirri meginreglu að beita ekki refsiaðgerðum lengur en þörf krefur og þá aðeins í þeim tilgangi að binda endi á refsivert athæfi. Þegar búið var að hrekja herlið íraka frá Kúvæt og landið búið að endurheimta fullveldi og sjálf- stæði, var ekki lengur um refsivert framferði að ræða og því átti að aflétta refsiaðgerðunum tafar- laust. Það var ekki gert, heldur setti öryggisráðið fram ný skilyrði. Skilyrði um stríðsskaðabætur og kröfur um eyðingu allra tortíming- arvopna i írak. Eðlilega deila menn úti um allan heim um þessi viðbót- arskilyrði. íslendingar beiti sér á alþjóðavettvangi Island er auðvitað aðili að S.Þ. og samþykkti á sínum tíma við- skiptabannið, auk þess sem við höfum gert ráðstafanir til þess að framfylgja ályktun öryggisráðs S.Þ. um viðskiptabann með birtingu auglýsingar nr. 160 frá 1992 um fullgildingu þess. Með hliðsjón af þróun í Irak og almennum mann- úðarsjónarmiðum eru brostnar forsendur fyrir svo víðtæku við- skiptabanni og er nú mál að Iinni. íslendingar hafa með starfi sínu hjá S.Þ. sýnt að tekið er mark á þeim. Þannig átti ísland drjúgan þátt í því að samstaða tókst um á- lyktun allsherjarþingsins, sem síð- ar leiddi til stofnunar Ísraelsríkis, auk þess sem íslendingar hafa lát- ið til sín taka á sviði hafréttarmála. Nú ættu íslendingar að ganga á undan og berjast gegn viðskipta- banninu og stuðla þannig að því að harmleiknum í írak ljúki. Rétti vettvangurinn til að hafa áhrif er auðvitað öryggisráðið sjálft, en ef sú barátta strandar á annarlegum sjónarmiðum einstakra ríkja í ör- yggisráðinu eins og Bandaríkja- manna, þá tel ég að ísland eigi að aflétta einhliða viðskiptabanni gegn írak án nokkurra skilyrða og láta reyna á afleiðingar þess að þjóðarétti. Líkur eru til þess að Bill Clinton muni beita sér fyrir því að enn verði hert tökin á Irak vegna þess að hann hafi séð tækifæri til að koma forsetanum frá og nota þannig ástandið í írak sér til fram- dráttar í komandi kosningum. Hann leggur nú hart að Jórdaníu- mönnum að draga úr viðskiptum við þjóðina, m.a. með því að kaupa olíuna frekar af Saudi-Aröbum. Það er niðurlægjandi fyrir íslend- inga að taka þátt í þessum hildar- leik. Við erum í mjög sterkri stöðu til þess að brjóta ísinn, þar sem þjóðin hefur engra efnahagslega hagsmuna að gæta, eins og þær þjóðir sem hafa lýst vanþókun á viðskiptabanninu, en hafa sjálfar hagsmuni af því að banninu verði aflétt. Það er kominn tími til að íraskur almúgi fái uppreisn æru. Höfundur er framkvæmda- stjóri þingflokks Þjóðvaka

x

Þjóðvakablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.