Vikublaðið


Vikublaðið - 22.07.1994, Blaðsíða 4

Vikublaðið - 22.07.1994, Blaðsíða 4
Mynd: Sæmundur. Formenn stjórnmálaflokkanna eru óneitanlega áberandi í fjöl- miðlum. En ætli þeir hafi raun- verulega áhrif á tilveru okkar og hver skyldi staða þeirra vera innan flokk- anna? Margrét Sæmundsdóttir stjórn- málafræðingur athugaði stöðu flokks- formanna á Islandi í lokaverkefni sínu í stjórnmálafræði við Iláskóla íslands nú í vor. Margrét skoðar tímabilið frá 1980-1991 en á þeim tíma urðu for- mannaskipti í Alþýðuhandalagi, Al- þýðuflokki og Sjálfstæðisflokki og nýr formaður tók við Framsóknarflokkn- um haustið 1979. ,dVIér fannst áhugavert að kanna hvort stjórnmálaforingjar skipta kjós- endur raunverulegu máli og hver staða þeirra sé innan flokkanna," segir Margrét. Hún segir það hafa spilað inn í að hún var að taka ákvörðun um efnið þegar borgastjórnarkosningarn- ar nálguðust og það hafi verið hvetj- ^ndi. „Eg geng úr frá þreinur tilgátum og skoða allar skoðanankannanir frá 1980-1991, þá fyrstu frá því í febrúar 1980.“ Tilgáturnar eru hvort flokks- foringjar skipti verulegu máli fýrir það hvaða flokk fólk kýs að styðja, hvort flokksforingjar skipti máli, ekki vegna persónulegra vinsælda, heldur þeirrar forystu sem þeir veita flokknum og hvort vinsældamælingar á stjórn- málaforingjum séu marklausar. Flokkshollusta skiptir höfuðmáli Niðurstaðan varð sú að tilgáturnar standast ekki. Það virðist ekki skipta kjósendur máli hver er formaður flokksins sem viðkomandi kýs heldur kemur hollusta við flokkinn ofar. Kjósendur eru ekki tilbúnir að „svíkja sinn flokk“ þó sterkur og hæfur leið- togi komi ffarn. Ef litið er á skoðana- kannanir þá breytist fylgi flokkanna lítið við forinannaskipti þrátt fyrir að sumir þeirra haldi því fram að fylgið vaxi með nýjum formanni. Eina und- antekningin frá þessu er fyrst eftir að Jón Baldvin Hannibalsson tók við for- mennsku í Alþýðuflokknum en Mar- grét segir hugsanlega skýringu á fylg- isaukningunni vera að flokkurinn hafi verið að endurheimta fylgi Bandalags jafnaðarmanna eftir að hafa verið á niðurleið um nokkurt skeið. Einnig hafi Jón Baldvin haft allt aðrar áherslur en fyrri formaður hafði. „Kvennalistinn hefur algjöra sérstöðu þar sem að Kvennalistakonur velja sér ekki forinann. Ég lít svo á að þær konur sem hafa farið á þing fyrir flokkinn eða þær sem eru aðaltals- menn hans í fjölmiðlum séu meira ráðandi en aðrar í flokknum og þess vegna lít ég á þær sem ígildi formanna í rannsókninni. Það væri reyndar at- hyglisvert að skoða Kvennalistann eingöngu og hugleiða hvers vegna Kvennalistinn hefur náð þessum góða árangri sem raun ber vitni án þess að velja formann og þá hvort það bendi til að flokksformaður hafi ekkert vægi.“ Formenn hafa lítil vöíd við stjórnarmyndun Ef staða flokksformanna innan flokkanna er skoðuð í samhengi við ríkisstjórnarmyndanir er hún almennt veik og þeir hafa ekki mikil áhrif á gang mála. „Ákvörðun um ríkisstjórnannynd- un er mikilvægasta ákvörðun flokks og á tfrnabilinu sem ég skoða hafa for- mennirnir raunverulega mjög lítil völd við stjórnarmyndun. Þegar Sjálf- stæðisflokkurinn og Framsóknar- flokkurinn mynduðu ríldsstjórn árið 1983, svo dæmi sé tekið, hafði Geir Efstaða flokks- formanna innan flokkanna er skoðuð í samhen- gi við ríkisstjórn- armyndanir þá er hún almennt veik og þeir hafa ekki mikil áhrif á gang mála, segir Margrét Sœm- undsdóttir m.a. vera eina helstu niðurstöðu könn- unar sinnar á stöðu flokksfor- manna. VIKUBLAÐIÐ 22. JÚLI 1994 Hallgrímsson nær engin áhrif á gang mála. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kýs ráðherra úr hópi þingmanna, Geir hafði dottið út af þingi og þingflokk- urinn vildi frekar fleiri ráðherrastóla en gera formanninn að forsætisráð- herra. I raun var það þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sem ákvað að gefa eftir forsætisráðherrastól sem aftur olli þvf að Steingrímur varð forsætis- ráðherra. Steingrímur skipti að vísu um ráðherra frá fyrri ríkisstjórn og má segja að hann hafi haft áhrif á val á ráðherrum. Skýringin á ráðherra- skiptunum er þó líklega sú að ráðherr- ar Framsóknarflokksins voru orðnir aldraðir." Þingflokkarnir valdamesta stofnun stjórnmálaflokk- anna Margrét segir að við stjórnarmynd- un 1987 og 1988 hafi formenn ekki valið ráðherra heldur þingflokkarnir. Hún segir þingflokkinn vera valda- mestu stofnun stjórnmálaflokkanna og það hafi verið þannig allt frá því að tímabili sjálfstæðisstjórnmála hafi lok- ið og tímabil stéttastjórnmála hafi tekið við en þá var flokkakerfið í mót- un. Stjórnmálaflokkar á íslandi vísa meira til kjarnaflokka en fjöldaflokka, þar sem að fjöldinn hefur mikil áhrif á ákvarðanatöku líkt og er algengara í Evrópu. Margrét telur stjórnmálaleiðtogana sem voru áberandi á fyrri hluta aldar- innar ekki hafa haft mikið sterkari stöðu en leiðtogar nútímans. „Fólk man eftir Bjarna Benediktssyni, Ein- ari Olgeirssyni, Hermanni Jónassyni og fleirum og finnst eins og að þeir hafi verið miklu meiri leiðtogar en nú eru á vettvangi stjórnmálanna. Þeir fengu tækifæri til þess að hafa meiri á- hrif þar sem að flokkakerfið var í mót- un á þessum tíma, en að öðru leyti var staða þeirra svipuð og stjórnmálaleið- toga nútímans." Ekkert samræmi milli vinsælda stjórnmála- manna og fylgis flokkanna Þótt kjósendur séu tilbúnir að velja vinsælasta stjórnmálamanninn í könn- un eru þeir ekki tilbúnir að skipta um flokk og kjósa þann sem þeir velja. „Fólk segir „já, ég skal taka þátt í vin- sældakönnun“ og velur kannski Stein- grím Hermannsson en er ekki tilbúið til að kjósa Framsóknarflokkinn. Steingrímur var oft vinsælasti stjórnmálamaðurinn og fékk t.d. 40 prósent fylgi í könnun 1991 en Fram- sóknarflokkurinn fékk þá 2 5 prósent í skoðanakönnun. Davíð Oddsson fékk 30 prósent í könnun rétt fyrir þing- kosningarnar 1991 en flokkurinn fékk þá 43-47 prósent fylgi í könnunum. Það er ekkert samræmi milli vinsælda stjórnmálamanna og fylgis flokka þeirra.“ Eru niðurstöðurnar marktækar? ,Já, ég tel það. Eg nota kannanir bæði frá Félagsvísindastofnun Há- skólans og Dagblaðinu Vísi. Ég legg ekki mat á hvort þessar kannanir eru marktækar en ég tel svo vera. Al- menningur og stjórnmálaleiðtogarnir sjálfir virðast taka mark á þeim og það gefur þeim gildi í sjálfu sér. Það er lít- ill munur á könnunum DV og Félags- vísindastofnunar en ég nota þær alltaf sitt í hvoru lagi og blanda þeim aldrei saman sem er mjög mikilvægt. Gaman væri að kanna hvort al- menningur telji stöðu leiðtoganna vera sterka eða hvort almenningur geri sér grein fyrir veikri stöðu þeirra. Það væri þá hugsanleg skýring á því að vinsældir stjórnmálaforingja og fylgi flokka þeirra fer ekki saman. Auðvitað mætti segja að hægt væri að skoða aðra þætti og fylgi og komast að annarri niðurstöðu. A tímabilinu sem ég skoða, 1980-1991, eru ekki sjáan- legar neinar breytingar á stöðu for- mannanna." Bergþór Bjamason Utboð F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í gerð bílastæða við Holtaveg í Reykjavík og frágang umhverf- is þau. Verkið skal vinnast í sumar og vera lokið 1 Helstu magntölur eru: Jarðvegsskipti 1.400 m2 Malbikslag 1.100 m2 Kantsteinn 230 m Steypt gangstétt 300 m2 Grasþökur 860 m2 Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja- vík, frá og með þriðjudeginum 19. júlf n.k., gegn kr. 10.000 - skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 27. júlí 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.