Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Side 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. september 2005 ! Undir Fremri-Kárahnjúk, fal- legu fjalli fyrir austan, ískra þungir trukkar, gröfur, efn- isflutningabílar, kranar og aðr- ar vinnuvélar í hlíðunum þar sem stór stífla hefur verið merkt inn á kort Landsvirkj- unar 2006. Þessar drunur rjúfa öræfakyrrðina. Þegar við bætist dagleg sprenging sem rænir slagi úr hjart- slætti ferðalanga undir Sauðárfellsöldu tala margir hiklaust um tjón. Þó er það lítið miðað við það sem til stendur. Fyrirhugað Hálslón verður ámóta viðfeðmt og Hvalfjörður, a.m.k. fimm ár verða stíflaðar, slökkt verður á 15 kröft- ugum fossum Jökulsár í Fljótsdal, friðland Kring- ilsárrana hefur verið minnkað um fjórðung, áhrifasvæði virkjunar- innar mun vera allt að 3.000 ferkíló- metrum og þannig má áfram telja. Allt til að halda gangandi einni verksmiðju í firði. Á vettvangi lítur þetta út fyrir að vera ein af þessum fyrirsjáanlegu bíó- myndum þar sem vinnuvélar stórfyr- irtækis ógna náttúruverðmætum (regn- skógi, sögustað, leiksvæði) fyrir stórframkvæmd (verksmiðju, háhýsi, verslunarmiðstöð). Augljóst er hver er vondi karlinn en hetjurnar (oft börn) koma á síðustu stundu í veg fyrir verkið og allir enda sælir og glaðir. Hin dæmi- gerða fjölskyldumynd, gjarnan frá Disney. En fyrir austan er ekkert Disn- eyland. Þar halda vélarnar áfram, líka um helgar, svo hleypa megi vatni á Hálslón í september 2006. Engin fjöl- skyldumynd, nema í því tilfelli að fólk fari þangað með börnin sín og kynni þau fyrir svæðinu. Ekki seinna vænna, því síðar munu þau ekki geta séð það. En það er pínulítið erfitt að útskýra fyrir börnum hvað er á seyði eftir að þau hafa sungið með fossum, stiklað við ósa Sauðár, teiknað í sanda og sethjalla, hitt hreindýr inni á Rana og borðað merarosta úr mýri. Ég endurtek, það er afar erfitt að átta sig á umfangi framkvæmdanna eystra nema vera þar. Og þá er ekki nóg að skjótast inn í sjoppuna við vinnubúðir Kárahjúkavirkjunar og horfa yfir. Áhrifasvæðið nær nefnilega frá jökli að sjó; auk lands sem fer undir vatn hljóðna gljúfur, aðrennslisgöng teygjast um dali, gróðurþekjur rofna, kjörbýli dýra skaðast o.s.frv. Þetta hafa sagt mér og sýnt náttúrusinnar sem berjast gegn virkjunarframkvæmdum og ég trúi þeim. Fólk sem af alúð og innlifun kennir öðrum að virða landið, styrk þess og fágæti. Þeirra barátta fer fram með hugarfari og rökum (en ekki úðabrúsum, vilji lesendur halda því að- greindu). Málið er stórt og það snýst um sam- visku hvers og eins. Samvisku þeirra ráðamanna sem sjá ekkert athugavert við að virkja svæði í umhverfisflokki E, þegar aðrir kostir bjóðast (minnst rask er af virkjunum á svæðum A, meira á svæði B, o.s.frv.). Samvisku þeirra sem lofa hagnaði af svo fordæmislausu lang- tímafyrirtæki. Samvisku þeirra sem eiga þetta Ísland saman og virðist alveg sama. Og samvisku hinna sem er ekki sama en hafa aldrei látið í sér heyra. Ég hef lengi átt erfitt með að skilja hvernig mönnum datt í hug þetta ógn- arrask, þorði samt aldrei að andmæla því ég vissi ekki nógu mikið, þekkti fáa fyrir austan og heldur ekki heimsmark- aðsverð á áli. En í krafti Jöklu og Jöklu segi ég og skrifa: Þessi litla og snjalla þjóð hlýtur að komast ágætlega af, þótt hér sé einu álverinu færra. Hún á sér síður viðreisnar von ef hún eirir engu í ætluðu gróðabraski, storkar skap- styggri náttúru, snýr öllum hlutföllum á hvolf og fórnar svona miklu fyrir svona lítið. Á þessu stóra máli má læra margt og nota strax, eða þegar næsta stóra álita- mál kemur upp. Þangað til má fólk eins og ég sjá eftir að hafa ekki spurt meira, hlustað betur, efast og rétt upp hönd. Orkan innan- brjósts Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is Shabana Rehman er þekktur uppi-standari í Noregi og hefur oft vakiðhneykslun en líka aðdáun fyrir aðögra og opna augu fólks fyrir mann- réttindabrotum. Nú síðast kyssti hún menn- ingarmálaráðherra Noregs, Valgerd Svarstad Haugland, fyrir fullu húsi og var þeim um- svifalaust líkt við Madonnu og Britney forðum. Shabana sýndi svo á sér rassinn. Þetta þarf kannski að útskýra aðeins betur. Í Noregi voru blöðin full af fréttum af þessari uppákomu í síðustu viku. Aftenposten birti m.a.s. mynd af rassi Shabönu og ekki kemur á óvart að hann náði forsíðu á VG og Dagbladet. Atvikið átti sér stað á opnunarhátíð kvik- myndahátíðarinnar í Haugasundi þar sem Shabana flutti opnunarræðuna. Shabana er pakistönsk að uppruna en uppalin í Noregi. Hún hefur vakið athygli fyrir að gera grín að samskiptum innfæddra og innflytjenda, fyrir að þora og fyrir að beita óvenjulegum aðferð- um til að fá fólk til að hlusta. Opnunarmynd hátíðarinnar var norska kvikmyndin Import – Export sem fjallar m.a. um stelpu af pakistönskum uppruna og norsk- an strák sem verða hrifin hvort af öðru og menningarárekstrana sem af því hljótast. Það fylgdi sögunni að heilt ár tók að finna leikkonu í hlutverkið, norskumælandi stúlku af pakist- önskum uppruna sem tilbúin var að brjóta það tabú sem slíkt ástarsamband er í menningu Pakistana. En Shabana var sjálfkjörin í hlutverk kynn- is á hátíðinni í ljósi pakistansks uppruna. „Menningarárekstra er hægt að leysa með kossi og ef það er hægt í bíómyndunum, af hverju þá ekki í raunveruleikanum. Ég vil biðja menningarmálaráðherrann að koma upp á svið og gefa mér almennilegan koss. Ég ábyrgist að þú færð fullt af atkvæðum út á það. Kannski missir þú einhver líka,“ sagði Shab- ana og Valgerd tók áskoruninni. Í ljósi umfjöllunarefnis opnunarmynd- arinnar lagði Shabana áherslu á menningar- árekstra í opnunarræðu sinni. Húmorinn var alltaf til staðar þótt háalvarleg mál bæru á góma; barnahjónabönd og ofbeldi. Kossinn var lítið mál „en það sem virkilega ögrar Pak- istönum er þetta“: Sagði Shabana og múnaði. Leikstjóri opnunarmyndarinnar, Khalid Hussain var reyndar ekki ánægður með uppá- tæki Shabönu og þótti það ódýr leið til að vekja athygli og bera vott um sýniþörf. En þetta er hennar háttur, hún talar ekki bara heldur sýnir og gerir og sagði rassasýn- inguna hafa verið til að sýna fram á mikilvægi tjáningarfrelsisins. Á opnum fundi með öfga- manninum múllah Krekar í fyrravor kom Shabana með spurningu sem áhorfandi og fékk múllah Krekar til að ganga til sín. Hún beið ekki boðanna og beygði sig niður og lyfti honum upp. Þetta gerði hún til að sýna fram á að hann væri nú ekki hættulegur. Hún komst að þeirri niðurstöðu að norska ríkinu stafaði engin ógn af honum og ef allar konur lyftu körlum 30 cm upp í loftið yrði ekkert stríð. Hún uppskar reiði og hneykslun fyrir að hafa móðgað manninn á þennan hátt, og margra mánaða rökræður í fjölmiðlum um virðingu eða virðingarleysi fyrir mismunandi menningu og skoðunum, tjáningarfrelsi og mannréttindi. Shabana gefur sjálf lítið fyrir að tipla á tán- um í kringum þá sem hún telur traðka á tján- ingarfrelsinu en hefur líka verið hótað og var nú síðast undir lögregluvernd eftir að skotið var á veitingastað systur hennar í Ósló, að því er talið var í kjölfar uppákomunnar á kvik- myndahátíðinni. Nú þegar kosningabaráttan er í hámarki í Noregi sýnist sitt hverjum um hvort kossinn auki kjörfylgi hinnar kristilegu Valgerd eða ekki. Hún hefur látið málefni innflytjenda til sín taka og tjáði sig nú síðast um að Pakistanar í Noregi ættu að leyfa börnum sínum að aðlag- ast betur norsku samfélagi en ekki einangrast og að stjórnvöld yrðu að beita sér fyrir betri samskiptum við innflytjendahópa til að koma í veg fyrir einangrun og menningarárekstra. Valgerd átti reyndar sjálf frumkvæðið að öðrum kvennakossi á annarri kvikmyndahátíð viku síðar og dró það ekki úr fjölmiðlaathygl- inni. Flokksfélagar hennar hjá Kristilega þjóð- arflokknum hafa sumir hneykslast og sagt henni að hætta þessari vitleysu en flokksfélagi hennar og líklega fráfarandi forsætisráðherra, Kjell Magne Bondevik, sagði í viðtali við TV2 að hún væri bara töff. Koss og rass Fjölmiðlar Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur @mbl.is ’Kossinn var lítið mál „en það sem virkilega ögrar Pak-istönum er þetta“: sagði Shabana og múnaði. ‘ I Lesbók sóttist eftir að fá að birta erindi eftirÞorstein Gylfason um tákn fyrr á þessu ári. Þorsteinn sagði að það ætti að birtast í afmæl- isriti um Pál Skúlason heimspeking (Hugsað með Páli sem nú er komið út hjá Háskóla- útgáfunni) og því ekki hægt að prenta það annars stað- ar. Skömmu síðar kom hann á blaðið og þakk- aði áhugann með því að færa umsjónarmanni Lesbókar erindið útprentað. Það var fallega gert. II Í erindinu fjallar Þorsteinn um tákn út frásjónarmiði Ferdinands de Saussures sem setti fram kenningu um þetta fyrirbæri í byrj- un síðustu aldar sem hefur orðið áhrifamikil, einkum meðal málfræðinga, mannfræðinga og bókmenntafræðinga. Eins og Þorsteinn rekur var það draumur Saussures að setja saman allsherjarkenningu um tákn. Saussure taldi að tákn væru hendingar, merking þeirra réðist af hendingu. Það er til dæmis tilviljun að hundur skuli heita hundur og kýr kýr. Þetta taldi hann vera þýðingarmeira einkenni á mennsku máli en fólk hefði almennt gert sér grein fyrir eða allt þar til hann benti á það. III Saussure vissi að hugmyndin um alls-herjarkenningu væri líklega bara draum- ur og færir Þorsteinn rök fyrir því í erindi sínu. Hann segir að tákn séu of sundurleit til þess að hægt sé að smíða allsherjarkenningu um þau og líklega sé heldur engin ástæða til þess að glíma við slíkt verkefni: „Kraftaverk Krists eru tákn í allt öðrum skilningi en kross- inn er tákn kristindómsins. Og ör púls táknar sótthita í enn öðrum skilningi. Eða könguló sem táknar systur manns samkvæmt draumr- áðningabók. Eða pottbrot í jörðu sem eru tákn þess að þar hafi búið fólk. Um svona dæmi er nærtækast að spyrja: hvers vegna í ósköp- unum skyldum við vilja kenningu sem fjallar á einu bretti um sjúkdómseinkenni, dýr í draumum og kraftaverk? Eða umferðarljós, spor í sandi og þjóðfána? Þurfum við slíka kenningu til að varpa ljósi á mælingar á sjúkrahúsum, umferðarreglur, fornleifar, þjóðerni og drauma? Svari þeir sem vita.“ IV Þorsteinn bendir enn fremur á að hend-ingarkenning Saussures sé alls ekki vel til þess fallin að varpa ljósi á fjölmörg tákn sem við erum vön að líta á sem slík. Það er til dæmis ekki tilviljun að vogarskálar tákna rétt- vísi og það er heldur ekki tilviljun að hönnun Þjóðleikhússins, það er að segja bygging- arinnar sjálfrar, minnir á álfhamar. Þessi tákn eru greinilega af öðrum meiði en þau sem Saussure talaði um en eru engu að síður venju- leg tákn samkvæmt íslenskri málvenju. Neðanmáls Sjálfstæðismenn sem voru á móti flugvellinum en þorðu ekki að gefa sig fram, hvísluðuáður um andstöðu sína í hálfum hljóðum, tala nú opinskátt gegn honum við hvern semþeir hitta. Merkilegastur er þó viðsnúningur Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sem hefur al- gjörlega snúist hugur eins og Sál forðum á veginum til Damaskus. Vilhjálmur hefur alla tíð séð mikil tormerki á að flugvöllurinn fari, en vill nú helst losna við mannvirkið strax á næsta kjörtímabili. Hann hefur tekið forystu í málinu, er orðinn róttækari en allir aðrir. […] Það er auðvelt að gera grín að ístöðuleysi og tækifærismennsku pólitíkusa – líklega hefur aldrei verið meira í tísku en nú að líta niður á stjórnmálamenn – en mig langar samt meira til að hrósa Vilhjálmi, Gísla Marteini og öllum hinum sem hafa verið að læra af reynslunni og taka nú afstöðu sem kannski er forystu flokksins ekki þóknanleg. Þeir verða samt að gera sér grein fyrir því að R-listinn er ekki vandamálið í borginni, heldur vanahugsunin sem hefur ráðið ríkjum í borgarstjórninni, hjá öllum flokkum. Það er kominn tími til að borgarfulltrúar fari að skilja að þeir búa í borg – að það séu ekki byltingarkenndar hugmyndir að hverfa frá úthverfastefnunni og stöðva útþenslu byggðarinnar. Þvert á móti er það nauðsyn ef á að vera lífvænlegt í borginni. Við verðum að hætta að láta verkfræðinga, vinnuvélaeigendur og landsbyggðarþingmenn ráða ferðinni. Reykvíkingum mun fjölga um tugi þúsunda næstu áratugi: viljum við setja þetta fólk niður uppi í Úlfarsfelli eða viljum við hafa það inni í borginni? Egill Helgason Silfur Egils www.visir.is Kýlið arkitektana Breski rithöfundurinn Auberon Waugh ráðlagði mönnum eitt sinn að í hvert sinn sem þeir hittu arkitekt í veislu ætti að kýla hann á nefið. Þannig mætti ef til koma einhverjum arkitekt- um í skilning um að þeir ættu að hanna falleg hús. Þessi uppgjöf Waughs gagnvart því að koma vitinu fyrir arkitekta með hefðbundnum aðferðum er rifjuð upp hér af því tilefni að um þessar mundir fer fram miðbæjarmeistaramót ’68-kynslóðarinnar í Reykjavík í greininni hver kom fyrstur fram með þá hugmynd að færa Reykjavíkurflugvöll út á Löngusker svo byggja mætti í Vatnsmýrinni. Í gærkvöldi gaf maður sig fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins og gerði tilkall til titilsins með því að lýsa því yfir að hann hefði gert tillögu um flugvöll á Lönguskerjum fyrir 30 árum. Ætli einhver mundi vilja sitja uppi með byggingar frá þeim tíma í Vatnsmýr- inni? Það var ekki nóg með að húsin frá sjöunda og áttunda, já og níunda og tíunda, áratug síð- ustu aldar séu sum hver herfilega ljót heldur er ljótleikinn oft laðaður fram með sérlega ógeð- felldu skipulagi. Í framhaldi er nauðsynlegt að fá svör við því hvort menn telji að íslenskir arkitektar hafi fengið nægilega oft á baukinn fyrir misgjörðir sínar á seinni helmingi síðustu aldar til að menn treysti þeim til setja eitthvað annað en hrylling niður í Vatnsmýrinni. Andriki.is Flugvöllinn eða arkitektana Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðsnúningur í Vatnsmýrinni! Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.