Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Síða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. september 2005 | 3 Þ að heyrir alltaf til tíðinda þegar nýjar yfirlitssýningar líta dags- ins ljós í Listasafni Íslands. Þá eru tekin fram verk úr safneign- inni sem tilheyra ákveðnu tíma- bili íslenskrar myndlistarsögu og leitast við að skýra það á sem skilvirkastan og fjölbreyttastan hátt. Þrjár slíkar sýningar hafa verið haldnar í safninu á undanförnum misserum, í röð sýninga sem miða að því að gefa yfirlit yfir þróun íslenskrar myndlist- arsögu frá aldamótunum 1900. Í dag verður fjórða sýningin í þessari röð opnuð. Að þessu sinni er viðfangstímabilið árin 1945–1960 og ber sýningin yfirskriftina Frá abstrakt til raunsæis. Nýtt hlutverk listarinnar Þetta tímabil í íslenskri myndlistarsögu er jafnan talið einkennast af umbrotum sem og grósku. Á tímabilinu kom fram ný skilgreining á myndlist; hvað hún væri, um hvað hún ætti að fjalla og hvert hlutverk hennar væri. „Í þeirri hugsun sem þá kom fram fólst að mynd- listin ætti ekki að túlka og fjalla um veru- leikann, heldur búa til nýjan veruleika sem lyti sínum eigin lögmálum. Á þessu tímabili, frá 1945 og fram til 1960, var þessi hugsun að þróast og öll umræða hér heima snerist að miklu leyti um þessa nýstárlegu grundvall- arskoðun. Þess vegna má segja að þetta hafi verið umbrotatími,“ segir Ólafur Kvaran, for- stöðumaður Listasafnsins, um sýninguna. Á fyrri hluta 20. aldar var sú skoðun ríkjandi í íslenskri myndlist að list bæri fyrst og fremst að draga upp mynd af raunveruleik- anum. En árið 1945 hélt Svavar Guðnason sýn- ingu hér í Reykjavík þar sem hann sýndi ein- göngu abstraktmálverk. Með þessari tímamótasýningu hans hófst saga íslenskrar abstraktlistar og í kjölfarið fylgdi September- hópurinn með sýningar sínar á árunum 1947– 1952. „Þær sýningar, rétt eins og sýning Svav- ars, voru gífurlega mikilvægar fyrir þessa orð- ræðu um hlutverk listarinnar. Hópurinn setti fram texta, þar sem þeirri skoðun var varpað fram að áhorfandinn ætti í upplifun sinni fyrst og fremst að einbeita sér að form- og litrænum tengslum, því þar væri að finna raunverulegt gildi verkanna,“ segir Ólafur. Hann segir listamenn hafa nánast litið á myndlistina út frá sjónarhóli þróunarkenn- ingar, þar sem abstrakt væri hápunkturinn í þróun myndlistar undanfarinna tíma. „Þetta var stíft, heimspekilegt kerfi sem þessir lista- menn settu fram og unnu samkvæmt, og það var mikið tekist á um gildi þess á þessum tíma.“ Alþjóðavæðing í fyrsta sinn Allan 6. áratuginn var geómetrísk abstraktlist öðru fremur stíll þeirrar kynslóðar sem þá haslaði sér völl í íslenskri myndlist. Þessi þró- un var samstíga því sem var að gerast í nor- rænni og evrópskri myndlist og má segja að þá hafi í fyrsta sinn komið fram stór hópur ís- lenskra listamanna, sem var samstíga rót- tækri list samtímans í Evrópu. „Svavar hafði verið virkur þátttakandi í hin- um evrópska listheimi úti í Danmörku, og list- rænt gildi verka hans á 5. áratugnum hefur mikla sérstöðu í íslenskri myndlist,“ segir Ólafur. „Síðan kemur fram ný kynslóð á 6. ára- tugnum, að hluta til með eldri listamönnum eins og Nínu Tryggvadóttur, Þorvaldi Skúla- syni og Sigurjóni Ólafssyni, en líka yngri lista- mönnum eins og Hjörleifi Sigurðssyni, Herði Ágústssyni, Guðmundu Andrésdóttur, Karli Kvaran, Eiríki Smith, Sverri Haraldssyni, Benedikt Gunnarssyni, Valtý Péturssyni, Jó- hannesi Jóhannessyni og Kristjáni Davíðssyni. Það sem þau voru að fást við var í takt við það sem gerðist í Evrópu á sama tíma og það var eiginlega í fyrsta sinn sem íslensk myndlist tók þátt í alþjóðlegri umræðu um myndlist.“ Heildstæð mynd af tímabilinu Tímabilið sem tekið er fyrir á sýningunni nú markast í upphafi af sýningu Svavars árið 1945, en lýkur með nýjum viðhorfum sem komu fram í kringum 1960 með Erró í broddi fylkingar, sem krafðist raunsærra skírskotana af ýmsum toga. „Það er ákveðin krafa sem kemur fram hér á landi í tengslum við hinn al- þjóðlega myndlistarheim; popplistina, Flúxus og fleira, að listin eigi að fjalla um umhverfið og raunveruleikann. Tímabilið frá 1945–1960 er því mjög afmarkað í íslenskri myndlist- arsögu,“ segir Ólafur. Hann bendir á að hlutverk sýningarinnar sem opnuð verður í dag sé ekki eingöngu að fjalla um það sem óx nýtt fram á tímabilinu – abstraktlistina – heldur einnig það sem eldri og hefðbundnari listamenn voru þá að fást við. „Við erum að sýna hvaða breytingar urðu til dæmis í verkum Kjarvals, Jóns Stefánssonar og Ásgríms, en þær voru miklar. Síðan tökum við líka listamenn sem koma inn á þessum ár- um, en tengja sig meira við hefðina, eins og Veturliða Gunnarsson, Jóhannes Geir, Hrólf Sigurðsson og Sigurð Sigurðsson. Sýningin á að bregða upp heildstæðri mynd af því hvað hæst bar í íslenskri myndlist á þessum árum.“ Ólafur segir þó ómögulegt að halda því fram að svipuð sýning hefði getað verið haldin í Reykjavík á því tímabili sem verkin voru unn- in. „Við skrifum söguna út frá okkar for- sendum og á sýningunni leggjum við áherslu á að með abstraktlistinni voru íslenskir lista- menn í fyrsta sinn að gera svipaða hluti og kollegar þeirra í Evrópu á sama tíma. Íslensk list varð þá hluti af samtímanum. Þess vegna gefum við verkum þeirra aukið vægi í þessari sögulegu sviðsetningu til að undirstrika hina nýju sýn á listina og tengslin við hið alþjóðlega listsamfélag. Til grundvallar sýningu okkar liggur faglegt, listrænt mat á því hvað við í safninu teljum að hafi verið áhugaverðast á þessum tíma, meðal annars út frá hinu nýja hlutverki listarinnar og samhengi, og hún var sett upp með hliðsjón af því.“ Upphaf hins ís- lenska abstrakts Listasafn Íslands hefur á undanförnum miss- erum boðið upp á röð sýninga, sem miða að því að gefa yfirsýn yfir þróun íslenskrar myndlistarsögu frá aldamótunum 1900. Fjórða sýningin í þeirri röð verður opnuð í dag og fjallar hún um tímabilið 1945–1960 undir yfirskriftinni Frá abstrakt til raunsæis. Þorvaldur Skúlason Komposition, 1954, olía, Listasafn Íslands. Svavar Guðnason Stuðlaberg, 1949, olía, Listasafn Íslands. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria @mbl.is Hjörleifur Sigurðsson Málverk, olía, 1956, Listasafn Íslands.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.