Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Qupperneq 7
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. september 2005 | 7 fjallar hún um lífið á Kúbu og alls konar tilvist- arspurningar. Hún teflir fram samlíkingu við hafið sem flóttamenn leggja út á í bátkænum í leit að betra heimi með táraflóði Lísu í Undra- landi. Hún segir að bókin um Lísu í Undra- landi hafi heillað hana allt frá barnæsku og að þar finni hún enn hugmyndir að táknum eða samlíkingum. Ramos nær mjög mögnuðu andrúmslofti í verk sín þar sem oft er persóna eins og frá öðr- um tíma stödd í framandi heimi. Í finnska hluta Graphica Creativa var mikil fjölbreytni. Þar var yngri kynslóð listamanna áberandi sem sýndi verk unnin af mikilli tæknilegri færni og oft mjög persónuleg og áhrifarík. Það viðfangsefni sem var yfirgnæf- andi var mannlífið og ýmiss konar tilvistar- spurningar. Í verki Markus Lampinens af barnsandliti blasti t.d. við spurningin um ör- yggi og framtíð heimsins í dag. Við getum skoðað þann heim frá okkar sjónarhorni en ýmsa heima og ýmis ný sjónar- horn og speglanir á heiminn í dag var að finna inni í miðju Finnlandi. Höfundur er myndlistarkona. Ljósmynd/Jóhanna Bogadóttir Berenica Boberska Við hið flæðandi grafíkverk sitt. 20. öldin Æting eftir Jiri Anderle. (Mt. 19. 4-15, 1.Kor.13. Jh. 14. 6-11) Lag: Ó, höfuð dreyra drifið. Það rétt sé gáfan ráðin, það ráðgjöf og til bjó. Svö mörg kom mannlífs dáðin, og mikið vangert þó. Um sifjar Guðs lög gilda þau gefa lífi sið, er ögun skýr þar skylda, sem skilji’ ei mannkyn við. Oft vald er vá, – því miður, og veldur böli á jörð. Um fjármagn ei er friður því fylgja stríðin hörð. Ei örbirgð og auðs hópa það ógnar myndar gjá. Nú hryðjuverkin hrópa og heiminn allan þjá. Hið góða vel því virkjum, það verði aflið mest. Í kærleiks krafti’ oss styrkjum það knýr menn áfram best. Ef lífsins Guð þér leynist þá leita’ að honum fyrst. Hann næst með náð oss reynist, er nefnum Jesú Krist. Pétur Sigurgeirsson Á ferð með áttavita Höfundur er biskup. Ég lá á litlu skýi. Ég bað það segja mér eitthvað um þig. Vertu glöð sagði skýið og flögraði með mig fram og aftur. Þú mátt ekki gráta. Þú mátt ekki gráta þá leysist ég sundur. sagði skýið og flögraði með mig fram og aftur. Síðan kom bróðir minn vindurinn og veitti mér atlot sem minna á þig. Nína Björk Árnadóttir Morgunn Lesbók Morgunblaðsins – 29. janúar 1967 80 ára 1925 2005

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.