Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Síða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. september 2005 Fyrrum Bond-stúlkan MichelleYeoh leikur í væntanlegri vís- indaskáldsögumynd leikstýrðri af Danny Boyle en hann gat sér frægð fyrir Trainspotting. Handrtið skrif- ar Alex Garland, sem er jafnframt höfundur skáldsögunnar The Beach, sem seinna varð mynd með Leon- ardo DiCaprio í aðalhlutverki. „Það er frábært fólk sem vinnur við myndina. Mig hefur lengi langað að vinna með því,“ sagði Yeoh í við- tali við blað í Hong Kong. Hún verður í hlutverki garð- yrkjufræðings í nýju Boyle- myndinni. Tökur hefjast seint í ágúst í myndveri í London. Yeoh, sem er af kínverskum ætt- um en er frá Malasíu, segir að þátt- taka sín í Memoirs of a Geisha, hafi látið hana langa í fleiri í kvenlegri hlutverk. „Tökur á mynd eins og Memoirs voru góðar að því leyti að ég hugsaði að kannski þyrfti ég að verða kven- legri. En eftir um tvo tíma hugsaði ég – allt í lagi, nú er ég búin að þessu,“ sagði hún. Yeoh er þekkt fyrir hlutverk sín í Bond-myndinni Tomorrow Never Dies og bardagasmellinum Krjúp- andi tígur, dreki í leynum.    Bandaríski leikstjórinn Spike Leehefur gagnrýnt Hollywood harðlega fyrir skort á nýstárlegum hugmyndum. „Ég ætla ekki að nefna ákveðnar myndir en ástandið hefur aldrei verið eins slæmt. Þetta eru ekkert nema framhaldsmyndir og myndir gerðar eftir sjónvarps- þáttum. Það er engin frumleg hugsun í gangi en þetta hefur ekki alltaf verið svona slæmt,“ sagði hann á kvikmyndahátíðinni í Fen- eyjum. Lee er einn af átta leikstjórum sem taka þátt í All the Invisible Children, sem verður sýnd utan keppni á fimmtudaginn. Hinir eru m.a. Ridley Scott, John Woo og Emir Kusturica. Lee er sem stendur að taka upp spennumyndin Inside Man með Denzel Washington og Clive Owen. Hann er svekktur með framlag Hollywood um þessar mundir en segist vera „bjartsýn manneskja og vonast til að hlutirnir breytist“. Nýlegar endurgerðir af sjón- varpsþáttum eru The Dukes of Hazzard og Bewitched en báðar myndirnar fengu volgar viðtökur frá gagnrýnendum. Endurgerðir þetta sumarið eru líka War of the Worlds og Kalli og sælgætisgerðin. All the Invisible Children var tek- in upp í sjö löndum og tók fjögur ár að gera hana. Myndin fjallar um uppvöxt ungs fólks í mismunandi heimshlutum. Hluti Lee heitir „Jes- us Children of America“ og segir frá táningi frá Brooklyn með eiturlyfja- neytendur fyrir foreldra, sem fréttir að hann sé HIV-jákvæður. „Mig langaði að vekja athygli á þessum vanda, sérstaklega hvað börn varðar,“ sagði leikstjórinn við þetta tilefni. Erlendar kvikmyndir Michelle Yeoh og Chow Yun Fat. Spike Lee Denzel Washington Kvikmyndir hafa sannað að fólk er tilbúiðtil að horfa á hvað sem er til að losnavið að horfa hvert á annað,“ er útúr-snúningur úr gömlum ummælum um sjónvarpið. Versta bíósumar í manna minnum er nú von- andi fyrir bí og snýr aldrei aftur. Þvílíkt samsafn af grautarhausagríni, ef grín skyldi kalla, og vita sálarlausum harðhausahasar, ef hasar skyldi kalla. Ánægjulegt var að finna um síðustu helgi að uppsöfnuð þörf fyrir eitthvað bitastæðara á hvíta tjaldinu birtist í góðri aðsókn á hina launfyndnu, en þó brokkgengu, nýju mynd Jims Jarmush, Broken Flowers, með Bill Murray í hnitmiðuðu freð- ýsuformi. Ekki var síður ánægjulegt að forráðamenn Regnbogans og Smárabíós treystu sér til að setja þessa mynd á almennar sýningar í stað þess að hola henni niður á ein- hverja sérdagskrá eða beint á myndband. Von- andi boðar þetta allt betri tíð. Á þessum stað í síðustu Lesbók fjallaði félagi Sæbjörn Valdimarsson um gildi vel heppnaðrar kynningar á kvikmyndum í formi auglýsinga, plakata og sýnishorna eða „trailera“ og verð- launaveitingar í því sambandi. Það er að sönnu mikil kúnst að stilla hinum ýmsu þáttum kynn- ingar fyrir frumsýningu nýrrar kvikmyndar sam- an í eina aflmikla heild. Íslenskir kvikmynda- framleiðendur hafa sjaldan hitt ótvírætt í markaðsmarkið að þessu leyti. Enn telja menn að gamla, góða orðsporið skipti mestu hérlendis hvað varðar gengi kvikmynda. Einkum er sjald- gæft að sýnishornin séu það lokkandi að áhorf- andi segi við sjálfan sig og næsta mann: Þessa mynd verð ég að sjá. Eins og í öllu er lýtur að kvikmyndagerð og markaðssetningu hafa Bandaríkjamenn lengsta og mesta reynsluna af gerð sýnishorna. En það er dálítið einkennilegt að svo virðist sem Holly- woodmaskínan hafi komið sér upp stöðluðum formúlum í gerð sýnishorna, ekki síður en í gerð myndanna sem sýnishornið er úr. Einkum sýnist manni tvenns konar aðferðir notaðar og fer eftir tegund bíómyndanna hvor er notuð hverju sinni. Sem fyrr segir samanstendur Hollywoodfram- leiðslan einkum af tveimur tegundum mynda, annars vegar grautarhausagríni og hins vegar harðhausahasar. Sýnishorn úr mynd af graut- arhausagrínætt gæti verið einhvern veginn á þessa leið: „Jack Johnson á við vanda að stríða,“ segir þul- urinn með rödd sem á að lýsa ísmeygilegri kátínu. „Konan hans er farin frá honum, börnin tala ekki við hann, yfirmaðurinn rekur hann, viðhaldið seg- ir að hann lykti ógeðslega og eini vinur hans er í meðferð. Öll sund eru lokuð fyrir Jack Johnson þar til hann hittir John Jackson sem eins er komið fyrir. Saman láta þeir drauma sína rætast, ræna banka og opna hamborgarastað.“ Undir þessum texta eru viðeigandi myndbrot með skrensi í bíl- um, sírenum og gömlum slagara á hljóðrásinni. Og áhorfandi segir við sjálfan sig og næsta mann: Þessa mynd verð ég ekki að sjá. Sýnishorn úr mynd af harðhausahasarætt gæti verið einhvern veginn á þessa leið: „Í heimi þar sem allt er horfið af yfirborði jarð- ar nema átök góðs og ills,“ segir þulurinn með rödd sem á að lýsa ískyggilegu drama, „eru örfáir karlar og konur sem ekki hafa gefist upp and- spænis þeirri yfirgengilegu ógn sem steðjar að framtíð mannkyns. Aðeins eitt getur komið í veg fyrir endanlegan ósigur: Leiðtoginn mikli.“ Undir þessum texta eru viðeigandi myndbrot með eld- glæringum, sprengingum, slefandi og slímugum ófreskjum og drynjandi effektatónlist á hljóðrás- inni. Og áhorfandi segir við sjálfan sig og næsta mann: Þessa mynd verð ég ekki að sjá. Lykillinn að vel heppnuðu sýnishorni er að það segi nógu lítið en samt nógu mikið til að áhorf- anda langi á myndina, að það veki spurningar en svari þeim ekki. Ella segir áhorfandinn við sjálfan sig og næsta mann: Þessa mynd er ég búinn að sjá og ætla aldrei á hana aftur. Horfðu frekar á mig, fjandinn hafi það. Sýnishorn úr næsta haus ’Og áhorfandi segir viðsjálfan sig og næsta mann: Þessa mynd verð ég ekki að sjá …‘ Sjónarhorn Árni Þórarinsson ath@mbl.is G eorge A. Romero vakti heims- athygli árið 1968 með Night of the Living Dead, ódýrri smámynd sem talin er með merkustu hroll- vekjum af ættbálki uppvakninga- mynda. Hann bætti öðrum þætti við áratug síðar, sem var Dawn of the Dead og lokaði þrennunni með Day of the Dead (’85). Um helgina verður Land of the Dead, fjórða myndin í bálknum, frumsýnd hérlendis. Hennar hefur ver- ið beðið með mikilli eftirvæntingu og almenningur jafnt sem gagnrýnendur ausið lofi á nýjasta verk frumkvöðulsins og költhetjunnar Romeros. Myndir um uppvakninga (zombies), eru gamlar í hett- unni og hafa verið viðloðandi frá fyrri hluta síðustu aldar. Við Íslendingar þekkjum slíkt dáindis fólk mæta vel úr þjóðsögunum, en þeir kviku náir sem kenndir eru við sombíur og eru yrkisefni Romer- os eru sóttir á suðlægari slóðir. Lifandi dauðir eru vel þekkt fyrirbrigði í þjóðtrú fjölmargra Afríku- landa og fluttist með þrælum til Suðurríkjanna og eyjanna í Karíbahafinu, þar sem úr varð nýr trúarbragðabræðingur (woodoo, hoodoo). Romero lyfti uppvakningamyndinni í nýjar hæðir með Night of the Living Dead, þar sem formið er notað eftirminnilega til að spauga á kaldhæðinn hátt með vestræna siðmenningu, ekki síst auðteymda neysluþjóðfélagsþegna sem til- biðja markaðsöflin og eiga sínar sælustu stundir í útbreiddum faðmi verslanaklasanna. Það er því engin tilviljun að þeir eru bakgrunnur þrenn- unnar hans Romeros. Romero hefur gengið upp og ofan að fást við önnur verkefni en uppvakningana og hefur hann verið hvattur til þess lengi að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið fyrir réttum tuttugu árum. Á meðan hafa ótaldir sporgöngumenn gert urmul lélegra eftirlíkinga með nokkrum heiðarlegum undantekningum, líkt og 28 Days (Danny Boyle), Shaun of the Dead (Edgar Wright), að ógleymdri ágætri endurgerð Dawn of the Dead (Zack Snyd- er), sem kom á markaðinn á síðasta ári. Þá þótti uppvakningameistaranum loks kominn tími til að taka sjálfur til hendinni í draugabælinu. Land of the Dead heldur áfram þar sem bálk- inum lauk, árið 1985. Veröldin er nú undirlögð af sombíum sem vafra um í leit að æti. Þær örfáu manneskjur sem komust undan á lífi hafa hreiðr- að um sig í vígbúnum borgarhluta sem er afgirtur á aðra hönd með rafmagnsgirðingu, á hina er haf- ið. Frá því að þessar lifandi sálir komust undan hefur uppvakningunum farið fram, bæði vits- muna- og tilfinningalega. Þeir eru orðnir færir um að tjá reiði, samúð, sorg og sút, Romero hefur haft gott næði til að móta þessa framþróun, er jafnvel búinn að kenna þeim að handleika skot- vopn. Sú kunnátta er þáttur í þjóðfélagsgagnrýni höf- undarins/leikstjórans Romeros, sem var búinn að skrifa mun beinskeyttara handrit myndarinnar fyrir nokkrum árum. Það var skömmu fyrir 11. september, eftir hryðjuverkaárásirnar vildi eng- inn snerta við hugmyndinni, iðnaðurinn lagði ofurkapp á mýkri myndir og Romero dró sig í hlé. Útgáfan sem er að koma fyrir sjónir bíógesta er talsvert breytt og í henni má finna, mitt í öllum ófögnuðinum, ádeilu á ástandið í heimsmálunum í dag, eftirhreytur 11.9., skír- skotun í innrásina og stríðsreksturinn í Írak. Líkt og fyrri myndirnar þrjár, endurspeglar Land of the Dead á sinn yfirdrifna hátt, viðvarandi þjóðfélags- ástand, ekki síst siðferði- legu hliðina. Líkt og fyrri daginn er nýja myndin ólýsanlegur óhugnaður. Yfirgengilegt ofbeldi er eitt vörumerkja uppvakningamynda leik- stjórans, en Land of the Dead er að því leyti tíma- mótamynd í hópnum að hún er sú fyrsta þeirra sem er dreift af einum risanna í Hollywood (Universal). Kvikmyndaverið fjármagn- aði einnig myndina sem kostaði um 20 milljónir dala. Slíkt fjárhagslegt svigrúm er einnig nýjung í hroll- vekjusmiðju Romeros, þær hafa til þessa verið gerðar fyrir smáaura. Night of the Living Dead kostaði t.d. innan við 100.000 dali. Þessi umdeildi frum- kvöðull hrollvekja með boð- skap hefur tekið það afar rólega síðustu tuttugu árin, þó ekki alveg lagt árarnar í bát, „Ég er eins og sombíurn- ar mínar,“ segir hann, „ég tolli ekki í gröfinni“. Rom- ero hefur sent frá sér þrjár myndir frá því að Day of the Dead kom á markaðinn, af þeim er Monkey Shines (’88), eftirtektarverðust, segir af tilraunum lam- aðs manns að þjálfa apa sem heimilishjálp. Sem endar að sjálfsögðu með ósköpum. Þá leikstýrði hann kvikmyndagerð bókarinnar The Dark Half (’93), eftir Stephen King, sagan var ekki ýkja merkileg og sama má segja um myndina. Þeir hrollvekjumeistararnir, Romero og King, eru miklir mátar og til stendur að næsta leik- stjórnarverkefni Romeros verði The Girl Who Loved Tom Gordon, ein geðþekkasta skáldsaga rithöfundarins. Gaman væri að sjá hvernig Rom- ero tækist að skila þeim lágstemmda hrolli á tjaldið. Endurkoma uppvakningameistarans Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Land of the Dead er fjórða myndin í Zombíbálki George Romeros og heldur áfram þaðan sem frá var horfið árið 1985. Fyrri myndirnar voru Night of the Living Dead, Day of the Dead, og Dawn of the Dead. Land hinna dauðu markar langþráða endur- komu mannsins sem endurreisti uppvakn- ingamyndina og lyfti á hærra stig.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.