Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Blaðsíða 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. september 2005 | 13 Gömlu mennirnir í New Orderhafa tilkynnt að væntanlegur sé tvöfaldur mynddiskur, með 23 myndböndum sveitarinnar og tveggja klukkustunda langri heim- ildarmynd um hana. Ráðgert er að diskurinn, sem ber heitið New Order: Item, komi í búðir 20. sept- ember, en útgáfufyrirtækið Rhino sér um að koma honum þangað. Á fyrri diskinum eru mynd- böndin, við lög á borð við „Bizarre Love Triangle“, „Blue Monday“ og „True Faith“. Þá verða breyttar og nýjar útgáfur af einhverjum mynd- böndum, til að mynda við lögin „Temptation“ og „Ceremony“. Á þeim seinni verður fyrrnefnd heimildamynd og viðtöl við sveitarmenn. Einnig verður á honum viðtal við sjálfan Bono, söngvara U2, sem útskýrir hvaða áhrif þessi mæta sveit hefur haft á tónlistarheiminn, ef ekki heiminn allan.    Usher, Green Day, Ludacris ogAlicia Keys eru á meðal lista- manna og hljómsveita sem hafa samþykkt að taka þátt í tón- leikum til styrkt- ar fórnarlömbum fellibyljarins Katrínar, sem rústaði New Or- leans og nálæg svæði á dög- unum. Tónleik- arnir eru miklir í sniðum; haldnir í fjórum borgum, sýndir á þremur stöðvum í Bandaríkjunum og á þeim koma fram listamenn úr mörgum geirum tónlistarinnar. Á meðal annarra sem koma fram á tónleikunum má nefna Dave Matthews Band, Rob Thomas, Chester Bennington úr Linkin Park, David Banner, Gretchen Wil- son og John Mellencamp. Tónleik- arnir verða haldnir í New York, Los Angeles, Atlanta og Nashville 10. september og verða sýndir í beinni útsendingu á tónlistarstöðv- unum MTV, VH1 og CMT. Fleiri listamönnum og hljómsveitum verður bætt við lista yfir flytjendur á næstu dögum, en allur ágóði rennur til Rauða krossins í Banda- ríkjunum. „Þegar harmleikur verður af þessari stærðargráðu verðum við einfaldlega að gera allt sem í okkar valdi stendur til að styðja, hug- hreysta og veita von öllum þeim sem fellibylurinn skaðaði,“ segir Judy McGrath, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri MTV- sjónvarpskeðjunnar. „Markmið okkar er að sameina krafta allra miðla fyrirtækisins, til að bjóða fram krafta okkar á hvaða hátt sem auðið er.“    Þá hafa rappararnir Sean„Diddy“ Combs og Shawn „Jay-Z“ Carter ákveðið að ánafna Rauða kross- inum heila millj- ón dollara til hjálparstarfs vegna fellibylj- arins. Þeir segja vonast til að gjöfin fái aðra, sérstaklega blökkumenn, til að fylgja í kjöl- farið. „Þetta er samfélagið okkar,“ sagði Jay-Z í viðtali við AP. „Þegar ég kveiki á CNN sé ég marga svertingja á götunum. Ég veit að þar er annað fólk líka, en þessi hverfi hafa lent illa í því.“ Erlend tónlist New Order Jay-Z Usher Hafiði heyrt Juliu Roberts syngja? EnAlan Alda? Það hef ég og það er skoskemmtileg tónlist.Lög með þeim skötuhjúum og fleiri þekktum leikurum má finna á plötu sem inniheld- ur tónlistina úr stórkostlegri kvikmynd Woody Allen frá árinu 1996, Everyone Says I Love You. Kvikmyndin er í einskonar nútímasöngleikja- formi, þar sem leikararnir bresta í söng með reglulegu millibili í myndinni þó söguþráðurinn sé ekkert söngleikjalegur – þvert á móti fjallar hann um hversdagslíf efnaðrar fjöl- skyldu á efri-austurhluta Manhattan. Og það sem gerir þessa kvikmyndatónlist svo sérstaka liggur einmitt í því að það eru leikararnir sjálfir sem leika í myndinni sem flytja okkur tónlistina. Það gera þeir, þó All- en hafi víst ekki látið þá vita að um söngleik væri að ræða fyrr en þeir höfðu skrifað undir samning- inn um að vera með í myndinni! Eins og svo margar Woody Allen-kvikmyndir skartar þessi stórstjörnum úr kvikmyndaheim- inum. Þarna eru Goldie Hawn og Alan Alda, sem leika hjón, þarna er Allen að sjálfsögðu sjálfur, sem fyrrverandi eiginmaður Hawn, líka Julia Ro- berts, Tim Roth og Drew Barrymore svo dæmi séu tekin, að ógleymdum Edward Norton sem syngur einmitt upphafslagið í myndinni, Just you, just me. Enginn af þessum leikurum hefur sérhæft sig eða er þekkt fyrir söng meðfram leiklistinni, en þó syngja þau öll í myndinni og eiga sitt lag á plöt- unni, jafnvel tvö – að undanskilinni Drew Barry- more, sem „syngur“ í myndinni, en gat víst með engu móti komið laginu frá sér með sóma- samlegum hætti og fékk því að mæma við söng staðgengils með svipaða rödd. Og það er sko gam- an að heyra Juliu Roberts syngja gamla standard- inn All my life á fremur fálmkenndan hátt, og Woody Allen nánast hvísla sig í gegn um I’m through with love. Þau lög sem flutt eru í myndinni eru einmitt að mestu gamlir djass- og dansstandardar, í nýjum útsetningum. Umfjöllunarefni textanna – sem flestir snúast um ást – passar nokkurn veginn inn í söguþráð kvikmyndarinnar á hverjum stað. Í ljósi þess hve hún er fyndin verða lögin oft mjög hjákátleg áheyrnar þegar maður hlustar á tónlist- ina og hugsar um leið til kvikmyndarinnar. En þó kvikmyndin sé órjúfanlegur hluti af kvik- myndatónlistinni, er alls ekki nauðsynlegt að hafa Everyone Says I Love You í huga allan tímann meðan hlustað er á geislaplötuna. Því fyrst og fremst er hún skemmtileg og vel valin standarda- plata, flutt af óvenjulegum og sjaldheyrðum söngvurum. Julia Roberts syngur djassstandarda Poppklassík Inga María Leifsdóttir T ímarnir eru breyttir. Þú þarft ekki lengur að dæla út plötu á árs fresti til að halda í aðdáendur eða til að þóknast útgáfufyrirtækinu. Plata á tveggja ára fresti telst meira að segja harla mikið í dag. Átta ár eru þó í það lengsta og á fárra færi að halda dampi í all- an þann tíma. Nema þú sért hljómsveitin Rolling Stones. Á mánudaginn kemur loksins út ný hljóð- versplata með sveitinni, sem er í hugum margra Rokksveitin. Biðin hefur verið talsverð, það tók t.a.m. Bítlana styttri tíma að hefja sitt frægð- arskeið og ljúka því en það hef- ur tekið Stones að koma út þessari blessuðu plötu. Það viðurkennist fúslega að greinarhöfundur hefur beðið nokkuð spenntur eftir gripnum og er alveg örugglega ekki einn um það. Þrátt fyrir að Stones séu í dag stofnun sem stundum virðist hálf- lífvana hefur verið erfitt að kyngja því að andinn sé algerlega á brott. Maður hefur ekki viljað trúa því. Komonn, þetta eru Stones! Að eilífu kúl, með Jagg- erinn fremstan og svalasta gítarleikara rokksög- unnar, Keith Richards, innanborðs. Auðvitað eiga þeir að geta þetta. Og við fyrstu hlustanir á gripinn nýja virðast Jagger og félagar, merkilegt nokk, hafa náð að landa verki sem stendur undir nafni þeirrar sveitar sem þeir skipa. A Bigger Bang hljómar ekki sem þreytt, lúin og hallærisleg plata heldur þvert á móti er hún spriklandi hress, vitn- isburður um menn sem eiga vel að geta gefið út al- mennilega plötu og barið saman alvöru rokkara. Mikið var! Þörf Efasemdir um að Stones væru „enn með þetta“ eru að sjálfsögðu að fullu réttlætanlegar. Undanfarin ár hefur sveitin verið meira eins og sirkus sem hef- ur snúist um það að vera „Rolling Stones“ frekar en að tónlistin sjálf hafi eitthvað að segja. Þörfin fyrir að semja og nostra við skáldagyðjuna hefur fram að þessu virst engin hjá Stones sem hafa verið sáttir með það að túra gamla efnið aftur og aft- ur … og aftur. Enda þurfa þeir ekkert að gera nýja plötu, þannig séð. Ef einhver hljómsveit hefur kunnað þá list að lifa á fornri frægð þá er það Roll- ing Stones. Það var því einkar hressandi að heyra loksins staðfestingu á því að það væri ný plata á leiðinni. Og það ný hljóðversplata ekki enn ein tón- leikaplatan en af þeim hefur verið ógrynni und- anfarið. Það finnst manni a.m.k. Steininn tók líka algerlega úr með þeirri síðustu, Live Licks, sem út kom í fyrra og var einstaklega óinnblásin afurð. Kannski urðu Stones að gefa út plötu með nýju efni eftir allt saman, þó ekki væri nema fyrir stoltið. Hljóðversplötur Stones hafa verið fáar und- anfarna tvo áratugi og tímabil meistara- og tíma- mótaverka er að baki. Dirty Works kom út 1986 og 1989 var það Steel Wheels. Fimm árum síðar kom Voodoo Lounge, sæmilegasta plata en sama verður ekki sagt um síðustu plötu, Bridges to Babylon, sem kom út árið 1997. Sú plata er grunn hrákasmíð sem var pakkað í eitt skelfilegasta umslag sem greinarhöfundur hefur séð. Og eftir það … ekkert. Þar til að safnplatan Forty Licks kom út fyrir þremur árum. Á henni voru fjögur ný lög sem gáfu vísbendingar og von um að Rollingarnir hefðu í hyggju að slíta sig frá vítahring hinna endalausu tónleikaferðalaga og væru tilbúnir að hrista eilítið upp í lagaskránni. „Don’t Stop“, „Keys to Your Love“, „Stealing My Heart“ og „Losing My Touch“ eru allt saman fín lög, einkum er það síðasta skemmtilegt, sungið af rámum Richards. Gítarleikarinn ódrepandi syngur svo tvö lög sjálfur á nýju plötunni sem er sextán laga, lengsta plata Stones síðan að meistaraverkið Exile on Main St. kom út árið 1972. Þessi tala gefur strax til kynna að það hafi ekki beint þurft að kreista plöt- una út. Jagger og Richards stýrðu upptökum, að vanda sem Glimmer Twins, og fengu Don Was í lið með sér en hann vann með sveitinni að Voodoo Lounge og Bridges To Babylon og einnig lögunum fjórum sem eru á Forty Licks. Was þessi hefur gert það að sérsviði sínu að vinna með rokkurum í eldri deildinni og hefur meðal annars unnið með Iggy Pop, Willy Nelson, Bob Dylan, Elton John og nýorðnum Íslandsvini, Joe Cocker. Tveir saman Glimmerbræðurnir hófu að vinna plötuna síðasta haust og segir Richards í nýlegu viðtali að stuttu eftir að vinna hófst hafi Charlie Watts þurft að gangast undir meðferð vegna krabbameins í hálsi, sem hann hefur nú blessunarlega sigrast á. Ronnie Wood var þá ekki liðtækur lengi vel, en fyrsta kon- an hans framdi sjálfsmorð snemma á þessu ári. Richards lýsir því að hann og Jagger hafi því unnið plötuna náið saman og stokkið í ýmis hlutverk vegna manneklu. Þannig leikur Jagger á gítar í nærfellt öllum lögunum og spilar m.a. annars á fetilgítar í einu laginu. Bassar, hljómborð og píanó voru þá í höndum blóðbræðranna og lýsir Richards því yfir að samvinna þeirra tveggja hafi ekki verið jafnnáin síðan að Exile... kom út. En það er ekkert grín að platan er bara ansi tilkomumikil að heyra. Maður bjóst hálft í hvoru við hinu versta, að platan yrði jafnmáttlaus og sumar þessar tónleikaplötur þeirra og undangengnar hljóðversskífur voru ekki til að styrkja mann neitt sérstaklega í trúnni. Það er hins vegar eins og Stónsararnir hafi loksins ákveðið að einbeita sér að því að koma út almenni- legri plötu. Opnunarlagið, „Rough Justice“, er þannig sveittur rokkari – alvöru Stoneslag með þessum líka óborganlegu upphafslínum: „One time you were my baby chicken/Now you’ve grown into a fox/Once upon a time I was your little rooster/But now I’m just one of your cocks.“ Svo virðist sem setningin „myndir þú vilja að dóttir þín færi á stefnumót með Rollingi“ sé jafn gild í dag og þá. Lagið rokkar feitt, borið uppi af ósviknu Keith „riffi“ sem hljómsveitir eins og Black Crowes, Pearl Jam og þúsundir fleiri hafa apað upp með misgóðum árangri á áratugi. En svo er farið um víðan völl og platan er fjölbreytt að stíl og upp- byggingu. „Streets of Love“ er hörkuballaða, frá- bærlega sungin af Jagger sem er vel einbeittur út alla plötuna og syngur allan tímann af auðheyr- anlegri innlifun. „Rain Fall Down“ er vel fönkað og „Back of My Hand“ er hrátt og vel blússkotið. „Laugh, I Nearly Died“ er í þessum sígilda, los- aralega „mér er skítsama“ gír sem Stones eru meistarar í. „Oh No Not You Again“ fylgir svipaðri línu og upphafslagið, skotheldur rokkari sem svín- virkar alla leið. Fljótt álitið er ekkert laganna hér það sem mætti kalla uppfylling. Já, það er gaman að geta greint frá þessu og það verður athyglisvert að fylgjast með dómum erlendra blaða næstu daga. Tónleikaferðalag um gervallan heim hófst svo í þessum mánuði í Bandaríkjunum og sveitin ætlar að ljúka ferðalaginu í Evrópu næsta sumar. Með þessa plötu í farteskinu og alla slagarana líka er orðið ansi álitlegt að skella sér loksins á tón- leika með Stones. Ég hef að minnsta kosti aldrei velt þessu almennilega fyrir mér fyrr en nú. Svo virðist sem Stones séu snúnir aftur sem rokk- lagasmiðir í fremstu röð og það með sprengikrafti miklum. Svei mér þá… A Bigger Bang kemur í íslenskar verslanir á mánudaginn og þess má geta að platan verður plata vikunnar á Rás 2 í þeirri viku. Búmm!!! Seint á sjöunda áratugnum gerðu Rolling Stones tilkall til nafnbótarinnar „Stærsta rokksveit heims“ og hefur sá titill loðað við sveitina síðan. Á mánudaginn gerist sá merki atburður að ný hljóðversplata kemur út með sveitinni, en slíkt hefur ekki gerst í ein átta ár. Segja má að titill- inn hæfi bæði tilefni og hljómsveit en platan kall- ast því stóra nafni A Bigger Bang. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert @gmail.com Mark Seliger A Bigger Bang „En það er ekkert grín að platan er bara ansi tilkomumikil að heyra,“ segir í greininni um nýjustu plötu Rolling Stones.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.