Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.05.1951, Page 3

Mánudagsblaðið - 07.05.1951, Page 3
Mánudagur 7. maí 1951 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 3 Leikféiag Reykjavíkur: NÍNUM effsr Jchn Pafrsck — Leiksfjóri: öunnar Hansen / • / m i Síðasta leikrit L. R. á þess um vetri var frumsýnt í Iðnó s.l. fimmtudagskvöld. Lýkur þar með starfsemi félagsins í bráð, en vel má stjórn fé- lagsins, leikendur og áhoi’f- endur við una starf þeirra, sem hefur verið prýðilegt og farið fram úr öllum vonum. Leikritið „Hasty heart“ eða „Segðu steininum —“ er eftir ibandaríska höfundinn John Patrick, og hlaut það þegar vinsældir í Bretlandi og Bandaríkjunum. „Segou steininum —“ er raunverulega tragi-comedia, kýmni blönduð dálitlum harmi, léttilega og lipurlega skrifuð, sem, þrátt fyrir sýni- lega og virðingarverða við- leitni þýðandans, Bjarna Guð mundssonar, nýtur sín ekki fullkomlega á íslenzku máli en þar bætir leikmeð.ferð og leikstjórn sæmilega upp í skörðin. Höfundurinn hefur sennilega brúkað brezkt, bandarískt og jafnvel ást- ralskt „slang“, ’ en að koma slíku á íslenzku, svo að í nokkru lagi sé, er nær ómögu legt, ef ekki alveg vonlaust, nema góðum þýðanda. Hér er þýðandi í vandræð- um með þéringarnar og ýmis orðatiltæki, eins og oft vill verða, og málið verður hjá honum oft óþjált og stundum klaufalegt — skreytt um of barnalegum og ómögulegum setningum t. d. „ef þú ekki heldur saman á þér munnin- um . í stað hins kjarnyrta og fáorða „ef þú eklci heldur kjafti . . “ og „elsku sauþrái vinur ....“, sem óneitanlega hálfu, en yfir því hvílir sann- ur og réttur blær úr sjúkra- húsum hermanna, sem höf- undi eru kunn. Efnið er um dauðvona hermann, sem fluttur er í sjúkraskýli, þar sem fimm kátir félagar eru fyrir, auk hjúkrunarkonu og læknis. Rúrik Haraldsson (Kani) hefui' hér með höndum stórt og veigamikið hlutverk — léttlyndan Ameríkana, fullan sjálftrausts, tilfinningaríkan, ■hæðinn og orðheppinn. Túlk- Margaret (Guðbjörg Þorbjarnard.) Ljósm.: Vignir Eplablóm og I.aolvlen (Gísll Ilall- dórsson og Gunnar Eyjólfsson). Ljósm.: Vignir er vandræðalegt þó að ekki sé sagt meira. Þó er rnargt vel um þýðingu Bjarna, og oft fá samtölin athyglisverðan og skemmtilegan blæ. Ekki getur leikritið talizt andlegt feitmeti af höfundar un Rúriks er prýðileg, nema hvað hann stundum virðist ofgera dálítið. Rúrik er mjög hressilegur á sviði í þessu hlutverki, glæsilegur og fynd- inn með ágæt svipbrigði og hreyfingar. Hann leikur allt- af, hvort sem hann er í sam- tölum eða aðeins á sviðinu, og lætur ekkert tækifæri ónotað til þess að byggja upp heil steypta persónu. Sum atriði leiks hans eru frábær, t. d. í skiptunum við Lachlen og Margrétu, að ógleymdu sam- talinu milli hans og yfirlækn- isins. Guruiar Eyjólfsson (Lac- hlen) leikur hlutverk sitt vel, en þó leggur hann of alvöru- | þrunginn skilning í persón- | una á köflum og starir of oft þungiyndislega framan í á- horfendur. Af ókunnum á- stæðum hefur Gunnar lagt sumsstaðar annan skilning í Lachlen, en ástæða er til. Heildarsvipur er góður á leik Gunnars, en víða kennir sams konar leiks og við sáum í Galdra-Lofti fyrir þrem ár- um. Nú er kominn sá tími, að Gunn'ar verður að témja sérí réttar áherzlur í setningum,- ög þess er- vænzt, að hannj vinni skjótan bug á misfell-i um. Guðbjörg Þorbjarnardóttir (Margrét) hefur oftast gert betur á sviði en í þessu hlut- verki. Má telja, að hlutverkið sé henni ekki við hæfi. I nokkr um atriðum fyrra þáttar þok- ast leikur hennar yfir meðal- lag, eiL þegar á reynir í 2. þætti,. missir hún mjög tök af leikritinu. Deyfð er yfir leik hennar að öllu jöfnu, og rögg- semi og tilfinningar sjást ekki, þegar á reynir. Er miklu fremur um að ræða línulestur í 2, þætti, en leikur og hreyf- ingárnar minna fremur á roskna, þreytta konu en unga hjúkrunarkonu og offísera í hernum. Talsmáti hennar er blælaus að mestu, og mjög er hún öll ólík því, sem hún áður hefur verið. Hlutverk Mar- grétar teljum við, að hafi átt að vera í höndum frú Ernu Sigurleifsdóttur sem of sjald- an sést í hlutverkum sambæri legum við hæfileika hennar. Gunnar Bjamason (Tommi) stelur mörgum hlátrinum og mörgu klappinu með afbragðs leik í hlutverki þessa lata og sællega'hermanns, sem þjáist af mikilli matarást og löngun til vellíðanar. Gunnar leikur jafnt í gegnum allt leikritið og skapar mjög heilsteypta per- sónu. Er gott að sjá Gunnar í svona hæfilegu hlutverki. Sérstaklega skal minnast með ánægju á leik Gísla Hall- dórssonar í hlutverki Epla- blómsins. Gísli nær þessum einmana blökkumanni á nær aðdáunarverðan hátt. Ein- stæðingsskapurinn og heim- þráin ásamt hinu frumstæða „naívete“ skýn svo átakan- lega út úr fasi hans, að elcki Kani ofí Lachlen (Kúrik Ilaraldsson og Gunnar Eyjólfsson), Ljósm.: Vignir verður á betra kohið. Trygg- lyndið og samúðin ásamt lotn- ingunni fyrir hinum hvítu vopnabræðrum sínum er vel túlkuð í meðferð þessa nýliða, og livergi ofgerir hann hlut- verkinu. Gísli á sérstakar «. þakkir skilið fyrir leik sinn hér og í Önnu Pétursdóttur. Guðjón Einarsson (Yfir- Iæknirinn) fer hér fyrirvara- lítið í hlutverk sitt og gætti þess nokkuð á frumsýningu. Meðferð Guðjóns var yfirleitt góð, en hann skortir tilfinnan- lega meiri raddbrigði og svip til þess að gera þessu hlut- verki fyUiIegri -skil. Ilank vantar inniieik í röddina, þeg- ar hann sltýrir Lachlin frá því, að dauðinn bíðí hans, en í 1. þætti er leikur hans m.kiu betri. Árni Tryggvaso í (Diggcr) leikur ágætlega hlutverk sitt, en er of óskýr í máli, og Þor- grímur Einarsson (Kiwi) verður að temja sér hreyfing- ar á sviði og losna, við þennan óeðlilega merkissvip, sem háir honum mjög. Limaburðui Þor gríms minnir ekki á nokkurn hátt á heræfðan mann, heldur miklu meira á hreppstjóra, sem þjáist af sjálfsáliti. Karl Sigurðsson (Varðmað- urinn) leikur rösldega hlut- verk sitt, en mætti þó vel vera dálítið hranalegri í fram- komu. Leikstjórn Gunnars Han- sens er mjög sæmileg, en þó ber leikstjóra að hafa í huga, að hér er um að ræða her- menn — ekk'i fágaða skrif- stofumenn. Þettá eru hressi- legir menn, hvassir í orði, reyndir menn, sem staðið hafa í bardögum og liarðir menn, sem ekki kalla allt ömmu sína. Yfir liópnum á að hvíla sá bragur í tali og at- höfnum, sem minnir fremur á hóp gallharðra togarakarla, kjarnyrtra og berorðra. Leiktjöld eru prýðilega gerð af Magnúsi Pálssyni, b;;ði gæ’tir þar vandvirkni og smekkvísi. Ljós Gissurar Páls sonar og gervi eru prýðileg og búningar allir góðir. Yfir leiknum í heild hvílir samt mjög skemmtilegur blær, og viðerum vissir urn, að allir ættu að lcoma og sjá hann. Hér eru á ferð nýir og ungir hæfileikamenn, sem á- nægjuleg tilbreyting er að sjá, og eftir hlátrasköllum frumsýningarinnar má ætla, að einmitt þetta leikrit falli vel í geð reykvískum leikhús- gestiun. A. B. V í5* { Opnoðimi í gær r kiaverzlo og a Vesiíir‘gí$ÍM' (áður Verzl.' Rafall h.f.) uhdir nafninu &: RAFORKH Framkvæmum: Nýlagnir og breytingar í verksmiðjur, hús og skip. öimumst: Seljrnn: Rafteikningar í hús. - og öðrum raftækjum. Viðgerðir á Rafha eldavélum tTVTA.T AQTT\/rai?- Fluoreseentlampa 1 peru. — Ljósakrónur, Vegglampa, :8.664,”"SL—«•: i7a* úm ,óh' ?urðsson’ Lítið í ghiggana um Virðingarfyllst, GÍSLI JÓH. SIGURÐSSON, Iögg. rafvirkjam. mi a. Símii 80944

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.