Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.05.1951, Blaðsíða 7

Mánudagsblaðið - 07.05.1951, Blaðsíða 7
Mánudagur 7. maí 1951 MÁNUD AG SBL AÐIÐ AUGLYSING um skoðuu bifreiða í Keflavíkurkaupstað. Samkvæmt bifreiðalögum er hér með tilkynnt, að aðalskoðun bifreiða fer fram í Keflavík frá mánudeg inum 7. maí til fimmtudagsins 10. maí næstkomandi að báðum dögum meðtöldum. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar að Vörubílastöð Keflavíkur og fer skoðuliin þar fram ofangreinda daga kl. 9—12 og 13—16,30. Þeir, sem eiga tengivagna eða farþegabyrgi á vörubifreið, skulu koma með þau um leið og bifreiðin er færð til skoðunar, enda falla þau undir skoðun jafnt og sjálf bifreiðin. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskírteini. Ógreiddur bifreiðaskattur, skoðunargjald og vá- tryggingariðgjöld ökumanna fyrir alít árið 1950 verða innheimt um leið og skoðun fer fram. Séu gjald- in eigi greidd við skoðun eða áður, verður skoðunin ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd. Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki beif- reiða skulu ávalt vera vel læsileg. Er því hér með Jagt fyrir þá bifreiðaeigendur, sem þuría að endurnýja eða lagfæra númeraspjöld á bifreiðum sínum, að gera það tafarlaust nú, áður en beifreiðaskoðunin hefst. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðun- ar á ofangreindum dögum, verður hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum og bifreið hans tekin út umferð, hvar sem til hennar næst. Ef beif- reiðaeigandi (eða umráðamaður) getur ekki af óvið- ráðanlegum ástæðum komið með bifreið sína til skoð- unar á réttum tíma, ber þeim að koma á Vörubíla- stöðina og tilkynna skoðunarmönnum það. Slíkar til- kynningar í síma nægja ekki. Þetta er hér með tilkynnt öllum, sem hlut eiga að ználi til eftirbreytni. Bæjarfógetinn í Keflavík, 2. maí 1951. Alfred Gíslason. S alla virka daga nema laugardaga kl. 10.00 til 13.00 kl. 16.30 til 17.30 og laugardaga kl. 10.00 til 13.00 Augiýsing frá Landssímanum Frá og með mánudeginum 30. apríl 1951 verður tal- Ij sambandið við Bretland opið fyrst um sinn sem hér '•[ segir: í A^VWWWiWWWWWUV^^VWwwyVWVWrtftWVWWr" > P0TTABLÓM Hawaii-rós Schindapsus Burkni Pelargonia Bússneskur vínviður BLÓMAVfRZIJUM Kónga vínviður Stjörnu-efeu Manstera og ýmsar aðrar tegumlir. / Sími 5509 Bankastræti 7 Afmælissöngur Karlakórs Reykjavíkur Afmælissöngur K.K.R. í Garnla Bíó næst s.l. þriðjudag tókst afbragðs vel. Söng KKR hvert lagið öðru betur, og er ekki liægt að gera þar neitt upp á milli. Sigurður Þórðar- son er einn af íslands ágæt- ustu hljómlistarmönnum, og hefur Sigurður í 25 ár unnið með framúrskarandi dugnaði og listræni að söngmálum kórsins. Sigurður hefur farið með karlakórinn fjölda ferða til útlanda, og allstaðar hlotið hinar beztu viðtökur, og gagn rýni sem einn af beztu karla- kórum Norðurlanda. Eg vil þakka Sigurði fyrir hans snilldarlega samda lag „Skín frelsisröðull fagur“, sem kórinn söng kannski bezt. Og ég tek af alhug undir það sem hr. H. Sigtryggsson skrif ar um kórmennina, sem hafa fundið þá gleði í samstai’fi síns ágæta stjórnanda, að flogið á vængjuni söngsins Iangt burtu frá drunga hins daglega lífs til æðri Iieima.“ Sig. Skagfield. Píanófónleikar Árna Krisfjánssonar ,,Það er skemmst að segja að þessir tónleikar voru þeir allra glæsilegustu sem ég hef heyrt Árna halda, — og er þá langt jafnað. Þeir færðu mönnum á ný heim sannin um það hvílíkur óskaplegur lista maður Árni er. Með andagift sinni og innsýn tókst honum að leiða í Ijós það allra duld- asta sem í verkunum býr, á sannan og göfugan hátt. Allt yfirborðslegt er Árna fjarri skapi, hann er kafari í list- inni, og nær perlunum upp á yfirborðið, túlkarinn verður hér sem einn stórkostlegur Aladinslampi. En lengra verð ur ekki komizt í endursköpun- inni. Hið stórbrotna og djúp- auðga í list Árna verður að ægifegurð. Allt naut sín á hinn fullkomnasta hátt. ,,Ó- viðjafnanlegir töfrar fylltu salinn“. Þessi yndislega kvöld stund mun seint — ég vil segja — aldrei gleymast þeim sem hennar nutu.“ Mikill skaði að þessi mikli listakafari ekki skyldi spila hin listauðga verk eftir hin þrjú íslenzku tónskáld Pál ís- ólfsson, Björgvin Guðmunds- son. og Jón Þórarinsson. Sig. Skagfield. Auglýsið í MANUDAGSBLAÐINU Auglýsing um skoðun bifreiða og bifhjóla í Gulibringu- og Kjósarsýslu og Hafnarf jarðarkaupstað 1951. Samkvæmt bifreiðalögum tilkynnist hér með, að liin árlega skoðun bifreiða og bifhjóla fer á þessu ári fram sem hér segir: GRINDAVÍK: Föstudaginn 11. maí við Barnaskólann. Skulu þá allar bifreiðar úr Grindavíkurhreppi færðar til skoðunar. SANDGERÐI: Þriðjud. og miðvikudag 15. og 16. maí. Skulu þá allar bifreiðar og bifhjól úr Miðness- og Gerðahreppi færðar til skoðunar á Vörubíla- stöðina í Sandgerði. YOGAE: Fimmtudaginn 17. maí. Skulu þá allar bif- reiðar og bifhjól úr Vatnsleysustrandarhreppi - færðar til skoðunar við hraðfrystihúsið í Vogum. IvEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR: Mánudag, þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag 21.—25. maí skulu allar bifreiðar og bifhjól úr Njarðvík- um og Hafnarhreppum og af Keflavíkurflugvelli færðar til skoðunar að lögreglustöðinni á flug- vellinum. BRÚARLAND: Mánudag, þriðjudag og miðviku- dag 28.—30. maí skulu allar bifreiðar úr Mos- fells-, Kjósar- og Kjalarneshreppum færðar til skoðunar að Brúarlandi. HAFNARFJÖRÐUR: Fimmtudaginn 31. maí, föstu- daginn 1. júní, mánudag, þfiðjudag, miðviku- dag, fimmtudag og föstudag 4.—8. júní og mánu- dag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag 11.— 14. júní. Skulu þá allar bifreiðar úr Hafnarfirði og Bessastaða-, Garða-, Kópavogs- og Seltjarn- arneshreppum færðar til skoðunar á Vörubíla- stöð Hafnarfjarðar. Ennfremur fer þá fram skoðun á öllum bifreiðum, sem eru í notkuil á áður tilgreindum stöðum, en skrásettar utan umdæmisins. Við skoðun skulu þeir, sem eiga tengivagna eða farþegabyrgi koma með það um leið og bifreiðin er færð til skoðunar. Þá skulu ökumenn bifreiða leggja fram fullgild ökuskírteini við skoðun. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögum og bif- reiðin tekin úr umferð af lögreglunni, hvar sem til hennar næst. Ef bifreiðareigandi (umráðamaður)' getur ekki af óviðráðanlegum ástæðum fært bifreið sína til skoðunar á réttum tíma, ber honum að koma á skoðunarstað og tilkynna það. Tilkynningar í síma nægja ekki. Bifr’eiðaskattur, fyrir árið 1950 (1. jan- úar 1950—31. des. 1950), skoðunargjald og iðgjöld fyrir vátryggingu ökumanns, verða innheimt um leið og skoðun fer fram. Séu gjöld þessi ekki greidd við skoðun eða áður, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eni greidd. Sýna ber skilriki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í lagi. Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bif- reiða skulu ávalt vera vel læsileg, og er því hér með lagt fyrir þá bifreiðaeigendur (umráðamenn), sem þurfa að endurnýja númeraspjöld á bifreiðum sínum, að gera það tafarlaust nú, áður en bifreiðaskoðunin hefst. Skoðunin fer fram kl. 9—12 og 13—16.30 daglega. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli til eftirbreytni. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, sýslumaðurinn í Gull- bringu og Kjósarsýslu, 28. apríl 1951. Guðmundur I Guðmxmdsson.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.