Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 24.09.1951, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 24.09.1951, Blaðsíða 1
SlaSfyrir alla 4. árgángur. Mánudagur 24. sept. 1951 33. Tölublað. r r Það, hefur löngum verið talið að almenningsálitið væri lítt þroskað hér á voru landi. Sannleikurinn mun þó sá, að allur þorri manna, sem á- huga hefur á að fylgjast með opinbenim málum, hangir sjálfur fastur í snöru eigin hagsmuna fyrir kunnings- skap, klíkuhátt og allskonar hreppapólitík, svo að enginn getur látið heiibrigóá skoðun í ljós nema höggva nærri sjálf um sér um leið. Pólitisk embætti og bitling- ar eru fyrir löngu qrðin'svo sjálfsögð verzlunarvara að enginn nennir lengur að hreyfa hönd eða fót til að setja út á það svartamarkaðs- brask. Flokkarrnr lyfta gæð- ingum sínuni upp í vandasöm og virðingarmikil embætti, enda, þótt hinn útvaldi sé sak- laus af að hafa stigið fæti inn í slíka og þvíiíka stofnun, sem hann á allt í einu að veita for- stöðu. Ástandið er litlu betra í menningarmálunum, þar sem búast mætti við, að •stöður væru veittar eftir fastari r egl- um um hæfni manna og ménntun. Það er dýrt að vera kotungur, en þó er kannske enn þá dýrara að vera með kotungshjarta. Lítið og fá- tækt þjóðfélag hefur oft þá afsökun, að það á ekki eins vel menntuðum rnönnum á að skipa í hvert rúm og stærri þjóðfélög. En engin afsökun er til fyrir þeirri kotmennsku að nota ékki rétta menn á réttum stöðum, þegar slíkra manna er völ. Ef gerð væri at- hugun á því, hve margir em bættismenn á Islándi á því herrans ár i 1951 hefðu fengið nægilega undirbúningsmennt- un í sinni embættisgrein — ef frá eru taldir læknar, logfræð ihgar og prestar — þá mætti álíta, að íslendingar hefðu átt lítinn kost háskólámenntun ar, að sérmenntun í ýmsurn greinum væri enn þá lít't þekkt fýrirbrigði í heiminum. Ef menn halda, að þessi kotungsháttur stafi af illri- isins í íslenzku nauðsyn sökum fátæktar og doktorar ekki menningarleysis, þá skýtur þar illa skökku við, því að um áratugi hefur offram- leiðsla stúdenta verið mönn- um mikið áhyggjuefni. Ekki íslendingurinn Þoivaldur Friðriksson, sem barizt hefur í her SÞ í Kóreu fær heiðursmerki fyrir vasklega framgöngu. hefur því verið hörgull á menntamönnum, heldur hið gagnstæða. Þegar pólitík, sérhagsmunir og önnur kot- ungssjónarmið eru látin sitja í fyrirúmi, þá minnkar. að sama skápi virðing fyrir menntun og hæfni. I stað skipulags ríkir glundroði. Reglur eru ekki til eða menn laga þær í hendi sér eftir því sem við á. Mánudagsblaðið hefur áður gert embættisveitingar við Háskólann að umræðuefni, þar sem ósamræmið var öllum ljóst. Við embættisveitinguna i handlækningum átti í fyrstu að dæma einn af viðurkennd- ustu læknum landsins óhæf- an. Hann hafði ekki haft tíma til að skrifa bækur, vegna þess að hann var alltaf að bjarga mannslífum. Þá var haldið svo fast í bókstafinn. Við veitingu dósentsembætt- voru tveir jafngildir magister. I öðrum löndum mun þess þó yfirleitt vera krafizt, að þeir einir komi til greina sem dósentar i heim- spekideild, sem hafa unnið til doktorsnafnbótar í sinni vís- indagrein. Það væri því fróð- legt að vita, hvaða skilning Háskóli íslands leggur í dokt- orsnafnbót. Oss skilst að hún sé ekki fengín fyriihafnar- laust, og mætti ætla, að svo hálærðir menn nytu einhvers álíts og trausts í sínu þjóðfé- lagí. En ef athugaðar eru nán- ar stöðuveitingar í niennta- málunum, þá sést brátt, aó þetta er ekkert eins dæmi og eindæmin eru ekki alltaf verst. I því sambandi má minna á að enn hefur ekki verið skipaður fastur ensku- kennaii við Menntaskólann í Reykjavík og virðist ótrúlegt, að ekki finnst í landinu mað- ur með embættispróf í enskri tungu. í staðinn fyrir að slá embættinu lausu til umsókn- ar, er rektor menntaskólans Iátinn skipa í það aukakenn- ara eftir eigin höfði. Hér skal látið ósagt, hversu vandlega hann hefur prófað ensku kunnáttu hvers óg eins í stað Halldórs Halldórs sonar menntaskólakennara : Framhald á 8. síðu. Fáheyrð lögbrot lagsstjénns Siglfirðingar eru réttilega reiðir framkomu kaupfélagsstjórans á staðnum, enda hefur piltur sá framið óheyrileg brögð gagnvart út- lendum sem innlendum, sem verzla við fyrir- tækið . Mannvera þessi er annað hvort í miklum gjaldreyrisvandræðum eða vmnur samkvæmt skipunum þeirra sem meiru ráða í kaupfé- lögunum, og má ráða það af eftirfarandi: ,,Gjaldeyrisbraskið hér (Siglufirði) er ekk- ert nýtt fyrirbrigði, síðan þessi herra kaup- í'élagsstjóri kom hingað. Eg vil þó bæta við frásögn blaðsins, að það er sannanlegt, að þessi herra hefur þrásinnis neitað að selja okkur Siglfirðingum íslenzk gæruskinn görf- uð, nema við greiddum þau í útlendum gjald- eyri. Utlendingar spyrja undrandi hvort ekki sé hægt að greiða fyrir vörur hér með íslenzk- um gjaldreyri, en þeim er svarað neitandi. Þá er og annað, sem vert væri að athuga. Utlendingar hafa í sumar keypt sykur, kaffi, rís og aðra matvöru í stórum stíl og haft heim með sér. Þið munið undrast gjald- þol þessara manna. En því er að svara, að þeir greiða fyrir vörur þessar með sígarettum og öðrum tóbaksvörum, sem seldar eru svo — án stimpils tcbakssölunnar —- okkur með uppskrúfuðu verði. Margt fleira væri hægt að rita hér um, og ég mun senda yður meira bráðlega“. Oss hafa borizt mörg bréf um þessi mál, og verður á næstunni birt efni þeirra. Flestum bréfunum ber saman um, að kaupfélagsstjór- inn sé einna harðastur í braskinu, enda mun han haía meiri reynslu en hinir. Hins vegar verður að telja það vítaverða yfirsjón hins opinbera á Siglufirði, að líta ekki betur eftir , að lög séu ekki freklega brot- in á innlendum sem erlendum mönnum, sem flykkjast þarna um síldartímann. Ff dóms- málaráðherra verður einhvern tíma biíinn að leysa deilur stórþjóðanna, þá væri óskandi, að hann snéri sér að innlendum málefnum, þó ekki væri nema á milli lota við Acheson, Schumann et al. Bezti feorgarstjóri í heimi - fé ,,Það birtust við mig sex viðtöl í tyrkneskum blöðum," sagði borgarstjóri við blaða- menn í s.l. viku, er hann bauð þeim til fundar í Alþingishiis- inu. „Það voru líka teknar af mér myndir, og allir klöppuðu, þegar þeir sáu mig,“ bætti hann við og brosti. Síðan sneri hann sér að Jón skrif- stofustjóra.Siguvðssyni, ferða naut sínum, og sagði: „Viltu ekki segja eitthvað, Jón?“ Framhald á 8. síðu.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.