Mánudagsblaðið - 24.09.1951, Page 3
Mánudagur 24. sept. 1951
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
3
Náftúrulækningar
wwwu
Námsflokkar Reyjavíkur
Innritun er þegar hafin í Miðbæjarskólanum, 1.
stofu. Gengið inn frá Lækjargötu. Innritað verður
kl. 5—7 og 8—9 síödegis.
NÁMSGREINAR: ísl. bókmenntir, íslenzka
enska, danska, sænska, þýzka, franska, latína, vél-
ritun (vélar eru til afnota), bandavinna stúlkna
(vélar eru til afnota), bókfærsla, reikningur og
uppleistur.
Byrjendaflokkar og framhaldsflokkar.
Sérflokkar fyrir þá, sem lesa utanskóla undir
stúdentspróf.
Allar nánarí upplýsir.gar við innritun.
Inm-itunargjald, sem greiöist við innritun, er kr.
30,00 fyrir hvern flokk, nema kr. 60.00 fyrir handa-
vinnu og sérflokka. Afnotagjald greiðist fyrir lán á
ritvélum.
Ekkert kennslugjald.
Bezt að auglýsa í
Frá Hollywood-fréttaritara Mánudagsblaðsins.
I byrjun ársins 1939 var
stofnað náttúrulækningafé-
lag hér í bænum. Aðalstofn-
andi þess var hr. læknir Jónas
Kristjánsson, ásamt nokkr-
um ágætis mönnum, sem á-
huga höfðu um slíkar fram-
kvæmdir. Félag þetta hefur
nú starfað í nær 13 ár. Ár-
angurinn af starfi þess hefur
orðið sorglega miklu minni
en æskilegt hefði verið. Aðal-
viðfangsefnið, sem félagið
tók í upphafi á stefnuskrá
sína, var bygging og rekst-
ur náttúrulækningahælis.
Síðan eru liðin 13 blóma ár,
en ekkert náttúrulækninga-
hæli byggt. Hr. Sigurjón Pét-
ursson, Álafossi, sem er einn
af stofnendum félagsins, hef-
ur frá upphafi verið aðal
hvatamaður þess, innan fé-
lagsins, að komið yrði á fót
vísi að náttúrulækningahæli.
Hann er maður framkvæmda-
samur með ágætum, bjart-
sýnn, framsýnn og langsýnn.
Hann sá ávallt ótal leiðir til
þessa hælisreksturs, en ein-
hvern veginn.var það þó svo,
að stjóm félagsins dauf-
heyrðist jafnan við fortöl-
um hans í þessu efni. Kom
þar loks að, að langlundar-
geð Sigurjóns þraut í þessum
efnum. Hann ákvað sjálfur
að stofna á eigin kostnað vísi
að þessu hæli, vorið 1950, og
það gerði hann.
Stofnaði hann Grænu mat-
stofuna í Hveragerði og hefur
rekið hana tvö s. 1. sumur.
Eftir því, sem ég bezt veit,
bauð hann eða réttara sagt
bað hann stjórn Náttúru-
lækningafélagsins að vera
með um stofnun og rekstur
þessa hælis, en félagsstjórn-
in vildi ekki þekkjast það. Að
vísu hefur stjórn Náttúru-
lækningafélagsins unnið
nokkuð að undirbúningi að
þessari hælis stofnun. Jörð-
in Gröf í Hrunamannahreppi
hefur verið keypt undir þetta
fyrirhugaða hæli. Ekki kann
ég við, að Náttúrulækninga-
félagið, sem ætlar að bæta
heilsu manna, lengja líf
þeirra að miklum mun, auka
vinnuþrek og vinnuafköst
fólks að verulegu leyti og
halda kvenfólki í barneign
þar til það er sextíu ára o. fl.,
leiði menn til grafar. Gröf
Náttúrulækningafélagsins er
100 kílómetra frá Reykjavík
eða því sem næst. Hún mun
nú kosta félagið ca. 200 þús.
krónur. Þó hefur enn ekki
verið lagður hornsteinn að
hæli þessu þar. Gerð hefur
verið teikning að hælinu, sem
mun hafa kostað mikið fé.
Lengra hefur enn ekki kom-
izt um framkvæmd þessa
máls. Þegar hr. Sigurjón Pét-
ursson hafði stofnsett og rek-
ið sína Grænu matstofu eitt
sumar, þá var eins og aði
stjórn Náttýrulækningafé-
lagsins vaknaði til lífsins um
þessi mál. Hófst hún nú
handa s. I. vor. Tók á leigu
Kvennaskólann í Hveragerði
og rak þar hæli undanfama
mánuði.
Er þetta nokkuð táknrænt
og merkilegt af félagsstjórn-
inni, að fara að hefjast nú
handa um þetta þjóðþrifa-
mál, við lilið þess manns, sem
þegar hafði hrint þessu nauð-
synlega hælismáli í fram-
kvæmd. Er það skiljanlegt að
ekki er heppilegt, að tvö slík
hæli séu rekin samtímis, og
hvort við hlið annars. Má
merkilegt heita, að félags-
stjórnin, sem búin var að vef j
ast með þessa hælishugmynd
í höfðinu um nær 12 ára
skeið, skyldi nú fyrst hefj-
ast handa um framkvæmdina,
og stofna til samkeppni við
þann mann, sem þessari nyt-
sömu hugmynd hafði hrundið
í framkvæmd og er vitanlega
ágætlega hæfur til reksturs
slíks fyrirtækis.
Mála sannast er það, að
stjórn Náttúrulækningafé-
lagsins liggur lengur á eggj-
um sínum en krían og virð-
ist óhæfari til útungunar en
fuglinn.
Mér er tjáð, að klofning-
ur muni innan stjórnar Nátt-
úrulækningafélagsins um
staðsetningu Náttúrulækn-
ingahælisins. Nokkur hluti
stjórnarinnar vilji byggja í
Gröf félagsins, en aðrir vilji,
að stjórnin fái sér land í
Hveragerði undir hælið. Um
sönnur á þessu veit ég ekki,
og hvað ofan á verður, veit
ég ekki. Eitt er víst, að verði
hælið ekki byggt í Gröf, þá
hefur félagið ekkert að gera
með hana. Verður því að selja
jörðina, en að hún seljist
fyrir fé, sem í hana hefur
verið lagt, tel ég hæpið. Þá
er teikningin af hælinu, sem
keypt mun hafa verið fyrir
mikið verð, og sem helzt er
eftirlíking af musteri Saló-
mons, að líkindum ónýt. Allt
væri þetta fjötur um fót fé-
lagsins, ef rétt væri.
Náttúrulækningafélagið rak
hæli sitt um þriggja mánaða
skeið í sumar. Var aðsóknin
víst fremur góð, og aðbúðin
öll mjög sómasamleg, að því
er mér er tjáð. Um heilsu-
bót fólks af veru sinni þar
er mér ekki kunnugt. Raunar
er óvíst, hvort hægt er með
réttu að kalla þetta Náttúru-
lækningahæli.
Mundi réttara að segja, að
Náttúrulækningafélagið hafi
rekið greiðasölu og gistihús,
sem seldi náttúrulækninga-
fæði. Mér er tjáð, að þangað
hafi fólk komið og þaðan
farið líkt og á öðrum gréiða-
söluhúsum í landinu.
Sérhver réð því, hve lengi
hann vildi dveljast þar, að
því sem mér er tjáð. Það er
ekki möguleiki fyrir hendi,
þó um heilsubótarfæði sé að
ræða að nokkur árangur hafi
fengizt á viku eða þó um
nokkra daga lengri tíma væri
að ræða, hvað þá styttri tíma.
Ef um rekstur hælis væri
að ræða, sem ætti að sýna og
sanna árangur en slíkt er
nauðsynlegt, fólksins vegna
og stofnunarinnar vegna, þá
má ekki taka fólkið á hælið
skemmri tíma en þrjá mánuði
til að byrja með .
Á hæli félagsins í sumar
var framleitt hið svonefnda
Kristine Nolfi fæði. Er það
án efa gott og heilsubætandi.
Annað veldur mér þó nokkr-
ar umhugsunar. Frá stofnun
Náttúrulækningafélagsins og
allt fram undir þessa daga
hafa stjórnendur félagsins
aðallega rómað, kynnt sér og
iðkað hið svonefnda Ara
Wearlands fæði, sem hið eina
heilsusamlega, æðsta og full-
komnasta heilsubótar fæði,
sem heimurinn þekkti, og
sem gengi næst fæði því, sem
guðirnir í Olympsf jalli neyttu
sér til langlífis, eða eplum
Iðunnar, sem Æsir neyttu til
þess að verjast elli og gráum
hárum. Virðist mér þetta
benda til þess, að stjómend-
ur Náttúrulækningafélags-
ins telji sig ekki standa ör-
uggum fótum um sanna þekk-
ingu heilsubótarfæðis, því
talsvert mun þeim bera á
milli í þessum efnum, frú
Nolfi og hr. Wearland.
Þ^áttúrulækningafélagið
hefur s. 1. sjö ár rekið mat-
sölu hér í bænum. Selur það
heilsubótarfæði. Sá ljóður er
þó þar á ráði, að ekki mun
heilsa fæðiskaupenda vera
rannsökuð, þegar þeir koma,
Clark Gable er mjög niður-
dreginn þessa dagana, enda
ekki að furða. Síðasta mynd
hans „Across the wide Mis-
souri er svo léleg, að kvik-
myndafélagið vill að öllum
líkindum ekki senda hana í
kvikmyndahúsin til sýningar.
Allar myndir hans eftir stríð
hafa verið meira og minna
misheppnaðar .... Barbara
Stanwyck og Nancy Sinatra,
nýskilin frá söngvaranum
Frank, (Barbara var gift R.
Taylor), eru nú beztu vinkon-
ur og fara saman í öll party
— og einar heim saman á eft-
ir. Ava Gardner og Frankie
boy Sinatra sitja nú heirna
hvert kvöld með nokkium
vina sinna. Ava er svo þreytt
eftir senur með Clark Gable
í myndinni Lone Stare, að hún.
drekkur ekki annað en mjólk
á kvöldin og etur kaffibaunir
með. „Þær gefa manni svo
mikinn þrótt,“ segir Ava litla
.... Errol Flynn lenti í því
skemmtilegu um daginn, þeg-
ar hann var gestgjafi konu
sinnar núverandi, Pat
Wymore, og beggja fyrrver-
andi eiginkvenda sinna, Lily
Damita og Noru Eddington.
Flynn Haymes (núver. konu
Dick Haymes). Þau skemmtu
sér öll vel eftir að börnini
þeirra fóru að sofa . .. .,
Hvað fá statistar í kvikmynd-
um í laun? Jú, lágmarkslaun
statista á dag eru $ 15,56.
Statist'i í öðrum myndum cn
nútímamyndum fær $22,23 á
dag. Ef statistinn segir einaj
línu eða orð, þó ekki sé ncma,
„Já, herra,“ þá eru daglaun-
hans $ 55.....Dýr myndi
| Hafliði allur ..... Dick
[ Powell reynir nú að fá að láni
| konu sína Jime Allyson fra
! Metro Goldwin Mayer, til
! þess að leika í mynd, scmi
» hann ætlar sjálfur að fram-
* leia. Hér í borg er ekki mikið»
? um, að menn ráði konum sin-
um. Van Johnson er nú á leiði
til Rómaborgar til að leika í
myndinni „While in Rome“«
Framh. á 7. síðv
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
fæst á eftirtöidula stöðum úti á landi:
Akureyri: Verzlun Axels Kristjánssonar. Bókaverzl-
,un Pálma H. Jónssonar.
Akranes: Bókaverzlun Andrésar Nielssonar.
Keflavík: Verzlun Helga S. Jónssonar.
Hafnarfirði: Bókaverzlun Böðvars.
Hveragerði: Verzlunin Reykjafoss, Hveragerði.
Selfossi: S. Ó. Ólafsson & Co.
Siglufirði: Bókaverzlun Lárusar Blöndal. Bókaverzl-
un Hannesar Jónssonar.
Isafirði: Bókaverzlun Jónasar Tómassonar.
Vestmannaeyjum: Verzlun Björns Guðmundssonar.
Blönduós: Verzlun Þuríðar Sæmundssen.
Hvalfirði: Olíustöðin. Gunnar Jónsson.
Bolungavík: Kristinn G. Árnason.
Borgarnes: Ingólfur Pétursson.
Neskaupstaður: Ólafur Jónsson.
Þeir, ^em beðið hafa um árgang Mánudags-
blaðsins 1949 og 1950 eru vinsamlega beðnir að
hringja í síma 3975.