Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 21.01.1952, Page 1

Mánudagsblaðið - 21.01.1952, Page 1
n ■r,i LA VID STIORNARSLITUM RÁUHERRAR framsóknar HÓTUÐU AH SEGJA AF SÉR SÍF og SÍS slógust um fiskút- flutninginn I»að var ekki fyrr en í fyrrakvöld. að kunnngt varð um það, að liótun Framsóknarflokksins um að ganga úr stjórninni varð að engu. Ástæðan fyrir þessari hótun var engin önnur en VILHJÁLMUB ÞÓK. Forsaga þessa einstæða atburðar skal nú hér að nokkru ralcin. Samband íslenzkra samvinnufélaga, sem teygt hefur ágirndaranga sína inn á nær livert svið verzlunar — og útvegsmála, hefur lengi litið öfundar- augum á SÍF og réttindi þess til saltfisksútfiutnings. Vilhjálm (ég met æruna á 50 þús.) Þór hefur dreymt stóra drauma uin að fá réttindi til fiskútflutnings, en verið heldur óhægt um vik til þessa. Þó kom hann því svo fyrir að agent Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga á Alþingi, Skúli Guðmundsson, bar fram tiilögu um að SÍS fengi þessi réttindi. SÍF skaut á fundi og ræddu málið óttaslegnir. Ólaf- ur Thors lýsti því yfir á fundi um líkt leyti að ekki kæmi til mála að málið næði fram að ganga á þingi. Kvaðst hann, cf svo ólíklega færi, myndu sjá til þess, að allir fengju heldur frjálsan útflutning, en að SlS myndi fá jöfn réttindi við SÍF. En á meðan vann Vilhjálmur dyggilega að undir- húningi málsins, en að mestu í kyrrþey. Gekk m. a. sú saga að Sambandið lánaði fátækari útgerðarmönnum olíu, sem er dýrasti liður útgerðarinnar, og gerði þá þannig ánauðuga sér. En jafnframt var unnið að því á þingi að fá fylgis- menn við tillögu Skúla. Samband fiskframleiðenda uggði ekki að sér og leið nú nokkur stund. Nýlega fengu ráðherrar Framsóknarflokksins skip- un um að Imýja fast að kollegum sínum í Sjálfstæðis- flokknum. Var jafnframt bent á, að ef að venju léti, þámyndi Sjálfstæðisflokkurinn gugna, þegar í hart færi. Framsókn gekk nú fast að Sjálfstæðismönnum og kvaðst nú hyggja að tillaga Skúla næði öruggu sam- þykki, því að tryggt væri, að kommúnistar og pínu litli flokkurinn myndu ljá henni atkvæði sín. Lótu ráðherrar Framsólmar mjög skína í það, að ef ekki tækjust samningar þeim í vil, þá yrðu stjórnar- slit. Þótti ekki ólíldegt að Eysteinn sæti ekki við orðin tóm, en lieldur þótti nieð ódæmum ef að Hermann gengi sjálfviljugur úr ráðherrastól sínum, sem hann hef- ur fórnað samifæringu sinni til að komast í. Nú þótti sjálfstæðismönnnm illa horfa og greip uggur inikill allt lið þeirra. Framsólm hafði til þessa verið nær einráð í stjórninni, en ef gugnað yrði enn einu sinni, þá mætti búast við að allir meiri menn innan flokksins misstu trú á forustunni. Stjórn SÍF skaut nú á skyndifundi og urðu deilur liarðar. Kom í ljós að ef Vilhjálmi tækist að ná fisksölu í sínar hendur, myndi SÍF, innan skamms, bíða smánar- dauði. Þó fór hér eins og oft vill fara, þegar í nauðir rekur og óvænt efni, að einn mað- ur, mikilsvirtur og dugandi starfsmaður SÍF, stóð upp og lýsti því yfir, að ekki kæmi til mála, að láta að óskum félagsins. Kvaðst .hann ekki sjá fram á að sín yrði lengur þörf innan stofnunarinnar, ef Sam- bandið fengi sínu fram- gengt. Kom svo að lokum, að hann fékk stálinu stapp- að í stjórnina, að hún leit- aði að samkomulagsgrund- velli, en að skilyrði var gert, að SÍF liéldi áfram fisksöluréttindum sínum á erlendum markaði. Þegar Framsóknarliðíð sá, að alvara var fyrir dyr- um og Hermann sárbað menn að sættast, svo hann missti ekld „stólinn,“ var skotið á fundum, en al- menningi meinað að hlusta á. Eftir nokkuð þref og þjark komust á sættir. Ekki kunnum við gjörla að skýra frá niðurstöðum, en eftir þvl, sem bezt verð- ur séð, þá mun Samband íslenzkra samvinnufélaga fá ein þrjú fisksöluumboð úti í heimi, en SÍF heldur sínum fiskútflutningsrétt- indum óskertum. Tilaga agents SfS er enn I þinginu, en hvað verður um hana? Sjálfsagt verður liún svæfð, eða dregin til baka, sett í nefnd eða slíkt. En hitt er viíað með vissu: Hún deyr. Þessari lotu Vilhjálms Þór er lokið að sinni. ' Hann hefur barizt, en sigurinn er takmarkaður. En fyrir enda brölts Vil- hjálms Þór er ekki séð enn- þá. Hann kann að vera vankaður, en þar með er ekki sagt, að liann stein- liggi, ef svo má að orði komast. Eflaust liefur hann eitt bragð eða tvö í pokahorninu, og hann fremur þau ekki, fyrr en tækifæri býðst. Hvað verður næsta bragð fyrirsvarsmanns Sam- bandsins? Er það satt að hæsta tilboðið í Alþýðublaðið hafi komið frá — Sambandinii? Islenzkir verkamenn til Bretlands?: Þess var getið hér nýlega, að í Bretlandi væri ; skortur á verkamönnum til vinnu í iðnaöi. Var þess < getið, að svo mikil brögð væru að þessu, að taka j þyrfti menn úr landbúnaðarvinnu til þess að fylla ; skörðin í iðnaðinum. ; Hér aftur á móti horfir óvænlega vegna vaxandi ; atvinnuleysis. Maður kom að máli við oss og bar fram tillögu um þetta. Tillagan var þess efnis, að leita hófanna um það hjá sendiráði Breta á íslandi, hvort ekki mætti fá vinnu fyrir atvinnulausa hér, þar í landi. Slík ráð hafa oft reynzt vel mcðal erlendra þjóða og mætti vel blessast í okkar tilfelli. Myndu þá þeir verkamenn, sem flytjast vildu, semja við fulltrúa Breta hér bæði um dvalartímann o. s. frv. .... Tillaga þessi er vel athugunarverð og gæti sjálf- sagt haft margt gott í för með sér, m. a. mundu þeir kynnast verkháttum erlendis, menntast og sjá sig um. . . . . Ef menn vilja ræða þetta, þá er orðið laust. newspaper"el diario ilustrado'santiago. chile Stalín, friðarvinur, stendur í skugga Hitlers, en fremst á myndinni er fallbyssa dulbúin sem friðardúfa.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.