Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.12.1952, Side 6

Mánudagsblaðið - 22.12.1952, Side 6
MÁNUÐAGSBLAÐIÐ Mánu<2agur 22. des. 1952 ................................................................................. " ¥ Kerr: Fraxnhaldssaga Eins o§ þér sáið (Stay out oí my liíe.) 19. KAFLI Þau öluðu, sagði María Jackson, allan tímann, en virtust aldrei þreytt. Ef Amy var í eldhúsinu, var Howard þar líka, í næsta stól og horf ði á hana, ef hann fékk ekki að hjálpa, en það kom ekki oft fyrir. Hann var engin hús- verka-eiginmaður, klaufi í öllu, sem að þvi lét, handar- höldin duttu af bollunum á einhvem óskiljanlegan hátt, þegar hann snerti á þeim, ef hann hreyfði olboga sína þá féll næsti diskur af eldhús- borðinu, og ef hann opnaði ofnhurðina þá var hann um að brenna sig. „Ekki veit ég, hversvegna þér er treyst fyr- ir flugvél“ sagði Amy, „mér hefur alltaf skilizt að þær séu brothættar. Þú ert eins og járnsmiður, sem reynir að gera við lítið úr, þegar þú kemur í eldhúsið.“ „Það er vantraust þitt á hæfileikum mínum, sem haml- ár gjörðum mínum. Im heldur að ég muni brjóta eitthyað, svo auðvitað geri g það. Það er afl hugsunarinnar“. „Já rétt--------— miklar gáfur stjórna smáum“. „Nei, alls ekki------— það re bara hugsunariaust afl sem verkar á næmar tilfinnlngar“. Hann fylgdi henni éftir, hlæjandi, um allt húsið, segj- andi að afþurrkanir mættu bíða, að bækur þyrfti ekki að setja aftur í skápana, að hirðusemi væri löstur,.. sem hefði hryllilegar afleiðingar. Mary Jackson, sem líka var önnum kafin, hlustaði á bros- andi og tók stundum þátt í orðaskiptunum, alltaf, kvart- aði Howard, sammála Amy. „Þetta hús er fullt af sam- vizliusömum konum“, sagði hann, „hvað getur einn vesa- tings maður gert gagnvart þeim. Jafnvel Nancy raðar (eikföngunum sínum þegar hún er búin að leika sér með þau“. Nany leit á hann vonaraug- um. „Eg skal ekki raða neinu sf þú vilt það ekki“, sagði hún. Þess konar samtal átti sér stað meðan einhver heyrði til. Þegar þau voru ein, voru þau alvarleg og þögul, héldust i hendur eins og til þess að verjast komandi skilnaði. Þegar þau ræddust við þá var það oftast um bamið, sem var á leiðinni, framtíð þess og þeirra, en aldrei minnust þau ,í þá einu setningu, sem öllu réði um f ramtíð þeirra: „Hvenær verður stríðið búið“. Þau höfðu ekiú mikinn tíma cin út af fyrir sig, því ið eftir þetta fyrsta kvöid /irtist sem allar sálir í Mar- burg þyrftu að heimsækja Howard, sérstaklega stúdent- ar og yngri mennirnir. Allt kennaraliðið vildi fá að bjóða honum kvöldverð og hádegis- verð. Hann var eini flugliðs- foringinn, sem borgin átti og það eitt hafði mikil áhrif á ímyndunaraflið. Eitt af blöð- unum sárbað hann „að segja þeim eitthvað um flugherinn“, klúbbar og nefndir báðu liann að halda ræður, smádrengir sátu um húsið til þess að sjá hann, liann var borinn á hönd um og dáður, miklu meira en hann Iiafði gaman að. En hann afþakkaði öll þau boð, sem hann gat mögulega afþakkað, og þegar hann varð að þiggja þau, þá kom hann æðandi til Amy yfir spilltum tíma. Þau höfðu aðeins . einn ákveðinn klukkutíma á dag saman, og ekkert kom þeim til að missa þann tíma, hvaðj nauðsynlegt sem það var að vera annarsstaðar, klukku-’ tímann, sem hún var vön að! fara í gönguferðimar um skólagrundimar í ljósaskipt-j unum. Nú gekk hann með henni hægt. Þau héldust í hendur og einangruðu sig frá umheiminum. Stundum gleymdu þau jafnvel að á- varpa fólk, sem þau þekktu! og hittu 4 göngu sinni, en enginn móðgaðist, þau voru afsökuð. Þegar leið að því að orlof Howards var á enda, hættu þau að tala um það^ sem ætti að ske eftir að styrj- öldinni lyki. Amy lofaði að hætta að kenna á píanó, hvíla sig meira, og passa sjálfa sig ,,heimskulega“ mikið eins og hún orðaði það.“ „Og vertu ekki að reyna að spara og spara á allan hátt“ sagði Howard. „Það er nóg til, þótt við séum ekki millj- ónamæringar. Og það er — ---------“ hann hætti. „Það er hvað“. „Það er þarflaust fyrir þig að spara eyrinn. Það veldur mér áhyggjum“, sagði hann vandræðalega. Hann hafði ætlað að segja: „Það er líka líftiyggingin mín“, en hann þagnaði í tíma. „Og þú lofar að hugsa vel um sjálfan þig--------------- að kenna öllum þessum ung- lingum að fljúga, þeir geta sett þig i stórhættu. Eg hefi það alltaf í huga“. „Það er óþarfi. Trúðu mér fyrir þvi að gæta þeirra. Ef ég aðeins gæti verið hjá þér núna. En ég er búinn að á- kveða dálítið Amy. Eg ætla að koma heim, þegar það skeð ur, þótt ekki sé nema i.einn dag. Konan gengur í gegn um svo mikið----;--------“. Hún minntist þegar Nancy fæddist. „Það er ekki svo mik- ið. Þetta er eðlilegur atburð- ur, eins og þú veizt, við kom- um öll sömu leiðina. Og á eft- ir er það svo yndislegt“. „En þú vilt að ég komi, er það ekki?“ „Auðvitað vil ég það, meii-a en allt í heiminum. Það flýtir fyiir tímanum þegar ég sé þig, bara þangað til í marz“. „Mér finnst ég hafi verið hér aðeins augnablik, Amy, Amy, ég er ekki reglulegur hermaður. Reglulegur her- maður hugsar hvorki né finn- ur til. Sumum þykir þetta voða gaman, þeir gleypa í sig æfingamar og heragann, það er góður flótti fyrir þá frá borgarlífinu, þeir tala tun að ganga í fasta herinn, þeg- ar stríðinu lýkur, og ég hlusta á þá, en skil þá ekki. Ef til vill skipta þeir um skoðun þegar þeir komast í bardag- ann, en þó veit ég það ekki“; Hún þrýsti honum að sér. Hún vildi ekki tala um. aðra menn. „E!g elska þig svo mik- ið, Howard“, sagði hún. „Þér leiðist ekki að við eigum þetta bam núna, er það?“ „Nei alls ekki. Það gerir mig hamingjusamari, en mig hefði nokkumtima grunað. Ef ég gæti aðeins verið með þér, og hugsað um þig. Þú verður að hugsa vel um þig, elskan mín. Náðu í alla lækn- ■ ’u •• ana og hjúkrunarkonumar og allt sem tilheyrir. Mér finnst ég vera svo hjálparvana, þeg- ar ég er svona langt í burtu. Eg hefi svo miklar áhyggjur út af þér“. „Eg hefi lika áhyggjur af þér----------en við því er ekkert að gera. En það er eitt, sem veldur mér áhyggj- um, Howard —--------það er hún Nancy. Eg veit ekki--- það virðist ólíklegt, en hvað skeður, ef Jonna vill fá hana, þegar hún veit að við eigum sjálfbam?“ „Hversvegna datt þér þetta í hug? Hversvegna mundi hún vilja Nancy frekar en áður?“ „Jonna hefur skrýtnar hug mjmdir--------— hún er ekki lík nokkrum manni". „Eg held ekki, að Jonna sé svo skrýtin, að hún vilji taka á sig þá ábyrgð, sem fylgir bami á aldri Nancyar. Og ekki gæti hún gert það, án þess að gefa ástæðu, hún myndi vita, að fólk myndi gruna að hún væri sú rétta móðir Nanvyar, og það vill hún varast hvað, sem það kostar. Hún hefur vissulega ekki sýnt neina umhyggju fyrir Nancy, tíé heklur áhugá fyrir henni, alít frá fyrstu tíð. Kvernig datt þér þetta í hug?“. „Eg veit það ekki, það er engin sérstök ástæða fyrir því. Eg hefi vonað að hún kæmi að heimsækja ungfrú Rósu, áður en þú færir, og þá gætum við komizt að því saman, ef henni dettur i hug að gera eitthvað. Hún ætlaði að koma einhvem tíma um hátíðina en hún hefur ekki korrtið ennþá, aimars hcfði Mary sagt mér frá því. Ilún er næstum daglega á fundi og svoleiðis og þær eru vinkon« ur“. „Jæja þá, hafðu ekki meiri áhyggjur af því, elskan, við skulum spyrja mömmu, hvort Jonna ætli að koma, og ef svo er, þá skulum við tala við hana og vita um fyrirætl- anir hennar. Eg skal afgreiða ungfrú Jonnu, ef hún tekur upp á einhverjum tiktúrum". Allar ferðir hefjast í Orlof Hvort 8em þér eetlið tii Seyðisfjarðar eða Hong Kong þá talið fyrst við o&s I. 1 f 1ÍL® í Hafnarstrœti 21 w % J f Sími 5965 Rejkjavík — Prestwick — Kaupmannahöfn — Stavanger á þriðjudag, 23, desember. Væntanlegir faxþegar- hafí samband við skrifstofu vora sem fyrst. Simi 81449. Lækjargötu %. iJsíam tmnu&kái emu m hefur forusfimð í þvi ú læka dýrtíðina

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.