Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 02.02.1953, Side 6

Mánudagsblaðið - 02.02.1953, Side 6
■iiKfÁJáaajviiuKiU*: 6 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 8Ö6I ifsindð® .£ 'ílí^Touís&M. Mánudagur 2. febrúar 1953 »U' að bamið ætti að skíra um leið og það fæddist, en Amy vildi það ekki nema að How- ard væri viðstaddur. Annars ekki fyrr en hann kæmi. Þau voru líka að ræða það, hvort læknirinn ætti að koma dag- lega að líta á Amy. Howard taldi það nauðsynlegt. Amy fannst það ónauðsynlegt. Þau skrifuðu daglega fleiri blaðsíður hvort til annars um hitt og annað varðandi komu nýja barnsins í heiminn, erfðakenninguna o. fl. Það var svo að sjá að einu sinni hefði verið voðalega mikið nef í Lowe-f jölskyldunni og finna mátti missmíði í ætt How- ards ef vel var að gáð. Von andi myndi barnið ekki erfa þessi missmíði, enda þóttist læknirinn viss um að svo yrði ekki. Þau skrifuðu þetta meira vegna þarfarinnar til að deila hugsunum sínum milli sín, fremur en að efni bréfanna væri einhvers virði. Þetta var allt hluti af biðinni, biðinni eftir baminu, biðinni eftir að styrjöldinni lyki og eðlilegt líf skapaðist á ný. Amy haf ði alltaf vænzt þess að Howard myndi ekki koma fyrr en fæðing barnsins væri um garð gengin, því ef hún myndi kveljast, þá vildi hún hvorki láta Howard sjá það né heyra. En hann hafði látið hana lofa sér að láta sig vita um leið og útlit benti til þess að fæðingin væri í vændum og þegar sá tími kom sendi Mary honum skeyti, en hann svar aði og kvaðst mundu vera þar næsta morgun. En þegar hann kom æðandi heim að húsinu, fölur og tekinn eftir andvöku nótt, þá var læknirinn farinn, sonur hans þveginn, viktaður og klæddur i fyrstu flíkur sín- ar og steinsofandi. Amy svaf líka, en frú Lowe, Mary Jack- son, hjúkrunarkonan og frú Pierce voru að drekka heitt kaffi og steikt brauð, kátar og ánægðar. Það var ekkert fyrir hann að gera annað en að fá sér kaffi og brauð, en hann meðtók það hvergi nema í svefnherberginu, þar sem hann gat haft auga með Amy. Hjúkrunarkonan — rauðhærð og ákveðin, að nafni ungfrú Tyler — sagði honum að hann mætti ekki vera þar, en hún gat ekki haldið honum frá her berginu. Hann var að klára kaffið, þegar Amy vaknaði. „Hvenær komst þú hingað/ sagði hún veikum rómi. „Sástu Howard yngra ? Það er strákur, er ekki svo, mig dreymdi það ekki?“ Þau fóru bæði að hlæja þegar hann féll á kné við rúm hennar og sagði henni að það væri eflaust strákur og að hann væri T1/^ pund og væri fremur skrítinn að sjá. „Þú hljómar ekki eins og hinn stolti faðir." „Gefðu mér dálítinn tíma.“ Hánn hélt í hendur hennar og ss8SSSSSSSSSSSSSSSSSSS*sssssssssssssss8sssss8S8SSs*sssssjissS«ássss?sssBSSSSSSSS8S8S8SSssss»ss88S88S8SSS8S8SSS8Sssss8S*s8S8SSSS?ss888S8?8ssRi?s hann kom í 'herbúðirnar um Kerr: Framhaldssaga IþaS’ ?s k,ef,h“s T" hftra S8 og að hann hefði afskaplega í* ss mikið að gera og að ekki væri 35. Fr amhaldssa ga o@ þér sáið— (Stay out of my life.) SSSSSSSSSSSSSoSoSoSSSSSoSoSSSSSSSSSSSoSSSSSSSSSSSSSSSSaSSSSSSSrSSSSSaSSSSSSSSSSSSSSScSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSI — þér líður prýðilega sögðu þeir mér, en ég vil heyra þig segja það.“ „Mig — sannarlega. Mér líður prýðilega. Þetta var ekki svo erfitt —“ en augu hennar lukust og hún sofnaði hægt. Þegar hjúkrunarkonan kom inn nokkrum augnablikum ar sá hún Iloward líka sof- andi á knjánum með höfuðið við hlið Amy. Með dálitlum erfiðleikum tókst henni að vekja hann nóg til þess að flytja sig á dívaninn, en þar steinsofnaði hann. Hvorugt þeirra vaknaði fyrr en um eftirmiðdaginn sama dag. Hann vildi ekki hræræa sig frá herberginu. Þau töluðust dálítið við einstaka sinnum og þegar kraftur fór að fær- ast í hana, þá byrjaði hún að spyrja. „Hvað lengi færðu að vera hér?“ „Heila viku, elskan." „Það er yndislegt. Hvernig fórstu að því?“ „Eg sagði, að ég yrði að fara, auk þess —“ Hún var að horfa á einkenn- isbúning hans. „Hvað er þetta Howard — hvað er að sjá? Merkið hefur breytzt. Þú ert — þú ert orðinn kapteinn“. „Vissulega, það er ég — gamli Jackson kapteinn. Finnst þér það ekki ágætt?“ „En þeir hafa ekki skipað þér að fara til Evrópu“? „Nei, þeim virðist standa á sama, hver vinnur þetta stríð.“ „En það er eitthvað á seyði —þeir hafa sent þig til Long Islands“. Það var árangurslaust að Ijúga, þótt hann hefði gert það hiklaust. „Já elskan, ég fer þangað héðan. Eg fer ekki aftur til Texas.“ Hún greip um hann, reyndi að stíga á fætur. „En þá — ó, Howard, hvað hyggurðu —“ „Eg veit ekki, get ekki um það sagt. Það virðist eins og ég verði þar sem kennari. Hafðu ekki áhyggjur og æstu þig ekki upp elskan. Eg er hér hjá þér og við eigum langa viku framundan. Ekkert hefur skeð nema ég hefi hækkað í tigninni og fæ auð- vitað meira kaup.“ Hann reyndi að kasta áhyggjum hennar á dreif. „Þú veizt það ekki, en ég hefi keypt þér gjöf. Eg ætla að sína þér hana“. Hann náði í Indíána hálsmen, ákaflega skraut- legt. „Þetta þarna í miðjunni er heillagripur, sem færir þér góða heilsu, gott veður, auð- æfi ver þig gegn tannpínu, krullar á þér hárið og gerir kyssti þær. „Amy, elskan mín yfirleitt allt. Settu það á þig“. Fyrir barnið hafði hann keypt hringlu, sem var of þung fyrir svona ungt barn. Amy var hrifin af því, og mint ist ekki á það að Howard færi ekki aftur til Texas-herbúð- anna. „Fyrst þú getur verið hér svona lengi, þá látum við skíra,“ sagði hún, „daginn áður en þú ferð. Þá get g setzt upp. Mary og mamma hugsa um allt saman. Eg vil ekki, að þú gerir neitt nema að vera hér hjá mér.“ „Eg hafði nú ekki hugsað mér að gera neitt annað.“ En auðvitað gat hann ekki hagað sér alveg svoleiðis. Ell- ert prófessor krafðist að fá að hitta hann og hann varð að heimsækja forseta skólans og skólastjórann. En yfirleitt var fólk ágætt og ónáðaði hann ekki. Hann gat eytt mestum hluta dagsins í stóra svefnherberginu hjá Amy og syni þeirra. Það var mikið verk að líta eftir barninu. Hann er vart meira en fóst- ur,“ sagði Howard. „Skrýtinn kjáni,- Hann gerir ekkert nema að éta og sofa, og hann tilheyrir þér. Þetta kalla ég hið fullkomna líf.“ Síðasta dag vikunnar var skírnin og Howard Jackson 2., rak upp skerandi óp þegar vatnið kom á höfuð hans. Ell- ert prófessor var guðfaðir hans, og eini gesturinn utan f jölskyldunnar að Alice More- land undanskilinni. Það voru fáir gestir en mikið af gjöfum — þrír silfurbollar, silfurdisk- ur, silfurskeiðar, gullpinnar og hnappar. Ungfrú Rósa sendi fallegt leikfang, söng- kassa, sem lék „Hail to the ehief“, „Keemo kimo“, „The blue bird polka“ og „Home sweet“, „Þetta barn er auð- ugt,“ sagði ungfrú Tyler hjúkrunarkona. Ellert prófessor varð eftir til þess að tala inn hitt og þetta. Hann braut jafnvel upp á nýju málefni þar sem hann hlt um hurðarhúninn. Til þess að verja því að hinir köldu marzvindar kældu ekki húsið þá lokaði Howard dyrunum og stóð úti á tröppum, þar til forvitni gamla mannsins var fullnægt. Þegar Howard kom loksins inn, þá byrjaði hann að hnerra og klukkan 10 voru kvefeinkenni komin fram í augum og nefi. Ungfrú Tyler nuddaði höfuð hans og sendi hann í rúmið með heitann drykk. „Þetta svitabað ætti að Iækna hann,“ sagði hún, „en ég vildi að þú þyrftir ekki að fara í lestina á morgun Svona, ekki kyssa konuna þíiia, kvef er smitandi". „Eg kyssi hann í fyrra- málið —“ sagði Amy, „hvað sem þú segir.“ Hann var betri um morgun- inn, en hann hnerraði og hon- um var kalt. „Hvílíkur asna- skapur hjá mér — ég athugaði ekki hvað það var kalt úti í gær. Eg kaupi mér tólf auka vasaklúta áður en ég fer í lestina og hendi þeim öllum.“ „Og hugsaðu nú vel um sjálfan þig, Howard", sagði Amy. „Þegar þú kemur í þess- ar nýju herbúðir, þá reyndu ekki um of á þig, fyrr en þetta líklegt að hann yrði sendur til Evrópu bráðlega, en síðan bætti hann við: „Eg þarfnast ennþá auka vasaklúta, en er venjulega of upptekinn til þess að muna eftir þeim.“ Hvað sem annað snerti, þá reit hann um það að hann kynni vel við sig í herbúðun- um og að ofurstinn væri gam- all vinur hans, og síðan fyllti hann síðurnar með hjali um Amy og barnið. „Segðu mér allt,“ sagði hann. Allt sem skeður, hvað smávægilegt sem það er. Og taku nokkrar mynd ir handa mér eins fljótt og hægt er“. Ungfrú Tyler var búin að pakka saman og farin, Amy var næstum jafngóð, Nancy var aftur komin heim. How- er um garð gengið. Vertu kyrr ard 2. var hálfu öðru pundi í herbergjum þínum og haltu á þér hita, ungfrú Tyler segir það bezta meðalið. Og ekki skrifa mér og segja þig al- bata, nema það sé satt“. Þetta verður búið, eins og skot, einn dagur í lestinni er það, sem ég þarf. Og ekki skaltu halda að ég passi mig ekki, jafnvel þó ekki sé um annað að ræða en kvef. Það er of mikið í hættu hjá mér, þó ég fari ekki að verða kæru- laus.“ Hann sendi skeyti þegar þyngri og apríl sólin var f yrsti vorboðinn í Marburg. Jonna Terry sat á skrifstofu sinni í New York og gretti sig yfir reikningunum sem komnir voru út af endurbótum á bygg ingu sem hún hafði með hönd- um, þegar frú Andrews kom inn æst á svip og sagði að það væri flugliðsforingi úti sem „virtist veikur eða eitthvað slíkt — því hann væri svo und arlegur.“ Á eftir henni kom Howard, náfölur, starandi, reikandi og féll næstum um koll. gSSSSSSSgSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSgSSSSSasasssssssgjasasgsa;^ H. F. EIMSKIPAFELAG ÍSLANDS Aðalfundur Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags ís- lands, verður haldinn í fundarsalnum í húsi fé- lagsins í Reykjavík, laugardaginn 6. júní 1953 og hefst kl. 1.30 e. h. I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári og ástæðum fyrir henni;, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstrari'eikn- inga til 31. desember 1952 og efnahags- reikning meö athugasemdum endui'skoð- enda, svörum stjórnarinnar og tillögxim til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvöröun um tillögur stjórnax'inn- ar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögm-i-a manna í stjóm félags- ins, í stað þeirra sem úr ganga sam- kvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda. í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum veröa afhentir hlut- höfum og umboösmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 2.-4. júní næstk. Menn geta fengið eyöublöð fyrir umboð til þess aö sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir aö ný umboö.og aftur- kallanir eldri umboöa séu komin skrifstofu fé- lagsins í hendur til skrásetningar, ef urrnt er 10 dögum fyrir fundirm, þ. e. eigi síöar en 26. maí 1953. Reykjavík, 28. janúar 1953. STJÓRNIN

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.