Mánudagsblaðið - 01.06.1953, Qupperneq 1
6. árgangur Mánudagur 1. júní 1953. 19. tölubiað.
t .
Hrossðkaup Framsékndrsiianna og krata
Ajax skrifar um:
XIþingis-
kosniognr
SNÆFELJLSNESSÝSLA
Sjálfstæðisflokkurinn
Það eru allar horfur á því að Sigurður Ágústsson
verði endurkjörinn, þó ef til vill ekki með eins glæsi-
legum meirihluta og síðast. Sigurður hefur reynzt
mjög þokkalegur þingmaður, sléttur og feiídur í allan
máta og prúðmenni i framgöngu. Sigurður er þó eng-
an veginn skaplaus og er einn af fáum þingmönnum,
sem hefur ekki látið flokksstjórnina handjárna sig í
hverju máli. Hann hefur líka þann kost að vera bú-
settur 1 kjördæminu, vera þar fæddur og uppalinn og
þekkja öll málefni héraðsins til hlítar.
Maður saknar þess bara, að Sigurður skuli ekki
vera eins skemmtilega sérkennileg persóna og faðir
hans og föðurbræður. Það væri ekki ónýtt að eiga
menn eins og þá Þórarinssyni, Ágúst, Árna og Bjarna
til að hrista upp í lognmollunni á Alþingi og gnæfa
yfir jafnsléttuna og risleysið þar.
Framsókn
Framsóknarflokkurinn býður fram Bjarna á Laug-
i arvatni. Bjarni hefur áður komið við sögu á Snæ-
fellsnesi. Við sumarkosninguna 1942 felldi hann
Gunnar Thoroddsen þar, en féll svo fyrir Gunnari í
haustkosningunum sama ár. Sigur Bjaraa i sumar-
kosningunum vakti mikla athygli, því að það er í
eina skiptið, sem Framsókn hefur tekizt að vinna
þetta kjördæmi frá Sjálfstæðisflokknum. Var til þess
tekið hve ötull Bjarni hefði verið i kosningabarátt-
unni, hann fór heim á hvern bæ og talaði við fólkið.
Einkum hafði kvenfólkinu þótt gaman að tala við
Bjama, og var það stundum á eftir miður sin af að-
j dáun á þessu glæsimenni.
Karlþjóðin hjá „vonda fólkinu" hafði tæplega verið
eins hrifin af Bjarna, og var kannske afbrýðissemi um
að kenna, því að snæfellsku konunum þótti lítið til
karla sinna koma, eftir heimsóknir Bjarna.-------
Það eru líkur á því að Bjarni auki fylgi Framsóknar
eitthvað, þó ekki nægi það honum til sigurs. Fylgi
Framsóknar á Snæfellsnesi er sterkt í sveitunum
sunnan fjaíla. I þorpunum fjórum norðan fjalla er
Sjálfstæðisflokkurinn aftur á móti sterkastur, þó að
Framsókn eigi einnig þar dálítið fylgi, einkum í Ól-
afsvik, en þar eiga Framsóknarmenn ötulan forvígis-
mann, þar sem er Alexander Stefánsson, sem sumir
töldu líklegan frambjóðanda flokksins.
Bjarni á Laugai-vatni virðist nú vera kominn í fulla
sátt við Framsóknarflokkinn á ný. Síðastliðin áratug
hefur hann oft verið í andstöðu við flokkinn. Hann
er náinn vinur Jónasar Jónssonar og komst ásamt
honum á kant við flokksstjórnina. Bauð hann sig
fram á sprengilista í Árnessýslu 1946, en náði ekki
kosningu. Stundum hefur það flogið fyrir, að Bjarni
væri í þann veginn að ganga yfir í Sjálfstæðisflokk-
inn eða Alþýðuflokkinn. í vetur heyrðist, að hann
mundi verða einn af stofnendum Lýðveldisflokksins.
Allt hefur þetta reynzt rangt, og Bjarni er aftur
kominn heim til föðurhúsa Framsóknar. Margt er vel
. um Bjarna á Laugarvatni. Hann er höfðingi í sjón og
raun, eins og hann á kyn til, harðskeyttur og ötull.
Því er ekki að neita, að hann hefur ýmsa skapbresti,
svo sem talsverða stirfni og þrjózku, ef því er að
skipta. I skólastjórastarfi sínu hefur hann notið vin-
sælda af mörgum, en einnig sætt harðri gagnrýni á
stundum. Sumar árásirnar á Bjarna virðast þó hafa
í við lítil rök að styðjast og vera aðallega sprottnar af
l illkvittni eða pólitiskri andúð. Það er engin sanngirni
$ í því að ámæla skólastjóra fyrir það, þótt hann víki
úr heimavistarskóla einhverjum pörupiltum, sem eng-
mn aga vilja. lúta og eitra allan skólabraginn.
Alþýðuflokkuriim
Ólafur Ólafsson læknir fer fram fyrir Alþýðuflokk-
inn. Ólafur var ura langt skeið héraðslæknir í Stykkis-
hólmi, en er farinn þaðan fyrir nokkrum árum. Ólafur
er hæglætismaður, bókamaður og grúskari, en líklega
lítill baráttumaður. Flestum er vel við Ólaf, sem hafa
kynnzt honum. Fylgi hans er þar allt í þorpmmm,
sennilega mn 250 atkvæði.
Kommúnistar
Fyrir kommúnista fer fram Guðmundur Guðmunds-
son, sem hefur verið framarlega í æskulýðssamtökum
flokksins. Ekki veit ég til, að hann hafi nein sérstök
tengzl við Snæfellsnes. Eftir myndum að dæma er
þetta snoppufriður piltur; annars veit ég ekki haus
né sporð á honum.
VESTUR-HÚNAVATNSSÝSLA
Framsókn
Þar verður SIcúli kosinn með yfirburðum eins og
áður. Hann er orðinn svo rótgróinn þar, að við hon-
um verður ekki haggað. Skúli er gáfaður maður og
vel starfshæfur, en hann er sennilega afturhaldssam-
asti maður, sem nú situr á Alþingi. Hann er sann-
færður um að allir opinberir starfsmenn séu snýkju-
dýr í þjóðfélaginu, sem réttast sé að halda alltaf hálf-
soltmun, og viðhorf hans til annarra launþega er víst
eitthvað svipað. Það getur vel verið satt, að embættis-
mannakerfið sé orðið of viðamikið fyrir okkar litla
þjóðfélag, en það er fáránlegt að heyra þær raddir á
miðri 20. öld, að opinbera starfsmenn beri að með-
höndla eins og hálfgildings þræla. Það er enginn vafi
á því, að þessi pólitík Skúla hefur spillt fyrir Fi'am-
sóknarflokknum í Reykjavík, á Akureyri og víðar í
kaupstöðum.
Sjálfstæðismenn
Framboð Sjálfstæðismanna gegn Skúla er ekki
sterkt, vonleysið skín út úr því. Þeir senda fram Jón
Framhald á 4. síðu.
Björnsson sé látinn fai-a
fram í Gullbringu- og
Kjósarsýslu til þess að
hann liggi ekki með
Rannveigu í Reykjavík?
Hneykslið að Keldum
— kallarjjvollur bygg-
ingarnefndarinnar
Athugasemd við athuga-
semdir —
1. Byg^inganefndin á Keldutra
auglýsti í Ríkisútvarpinu 23. sépt-
ember 1948, að þar sem allur
byggingarkostnaður við Keldna-
byggingarnar hefði farið langt
fram úr áætlun, þá hefði bygg-
ingarnefndin farið fram á að Já.
50 000 dollara viðbótarframlagr
frá Rockefellerstofnuninni á inóti!
jöfnu framlagi frá ríkissjóði —
og fengið hvort tveggja.
Nokkrum dögum seinna liitti éff
Björn á Kcldum, og sagði ég þá.
við hann, að nú færi þetta að lagr-
ast. Þcir hefðu tekið út á minra
part verksins, því að ekkert var
dregið undan, en hann svaraði
því til, að mig varðaði ekkert um
það; SÉR VÆRI SAMA, ÞÓTT
EG TAPAÐI ÖLLU MÍNU, SÉR
GERÐI ÞAÐ EKKERT TIL._
Þetta virðist vera góð sjálfs-
lýsing, hvað innræiti mannsins
snertir.
Björn á Keldum talar um það,
að bókhaldið hjá mér liafi víst
ekki verið í lagi. Það er nú svo.
Víst er um það, að mitt bóklmld
var endurskoðað, og þar var eng-
inn bókfærður fyrir fleiri liundr-
uð þúsund krónum, sem aldrei
höfðu verið greiddar, en ég varð
að selja eign mína til að geta stað'-
ið við skuldbindingar rnínar
vegna Keldnabygginganna.
2. Hannes Davíðsson upplýsti
mig um, að byggingarnefndin
hefði orðið að skrifa mig fyrir
þessum viðbótargreiðslum, því ég
Iiefði verið eini verktakinn, og
sýndi hann mér þá amerísku
skýrslurnar því til sönnunar.
Rektor Háskólans sagði mér í
óspurðum fréttum, að Björn ,i
Keldum hefði sagt sér, að HANN
VÆRI BÚINN AÐ GREIÐA MÉR
KR. 600 000 í DÝRTÍÐARUPP-
Framhald á S síðu. ,