Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 01.06.1953, Blaðsíða 7

Mánudagsblaðið - 01.06.1953, Blaðsíða 7
Máíhudagur 1. jiini 1953. MÁNUDAGSBLABIÐ íj .Ift | # Al þingiskosningarnar Framhald af 4. síðu. fyrir forsetakosningamar. Ýmsir Sjálfstæðismenn á ísafirði studdu Ásgeir og komust á kant við flokks- stjórnina og um leið einnig við Kjartan Jóhannsson. í þeirra hópi var frú ein, sem hefur verið mjög fram- arlega í flokki Sjálfstæðismanna á ísafirði. Vegna þessarar óeiningar í Sjálfstæðisflokknum beitti sumt af þessu fólki sér lítið fyrir Kjartan í kosningunni í fyrra, og jafnvel leikur grunur á því, að eitthvað af því hafi kosið Hannibal í gremju sinni við flokks- stjórnina þó að sjálfsagt hafi það verið 1 smáum stíl. Að líkindum er nú þessi sundrung Sjálfstæðis- manna nú úr sögunni. Hins vegar hefur Hannibal nú það tromp á hendinni, að hann fær Framsóknarat- kvæðin eða eitthvað af þeim. Það er því alveg ógern- ingur að spá neitt um úrslitin á ísafirði öðru en því að atkvæðamunur þeirra Hannibals og Kjartans verður sáralitill, sennilega svipaður og í fyrra, á hvorn veg- inn sem hann nú verður. Eitt sem gerir enn erfiðara að spá er það, að Isafjörður er nú að verða eins og hótel, þar sem tjaldað ep til einnar nætur. 1 kaupstað- inn hefur legið sífelldur straumur fólks úr sveitum af norðanverðum Vestf jörðum, en hinsvegar hefur legið straumur af ísafirði til Suðurlands. Engir nema ná- kunnugir geta vitað, hver áhrif þetta hefur í kosning- unum. Haukur Helgason fer fram fyrir kommúnista. Eins og ég gat um áðan hefur hann að sumu leyti betri vígstöðu en í fyrra, en hætt er við, að harkan í kosn ingunum og hin spennandi barátta milli Kjartans og Hannibals verði honum f jötur um fót. Hann fær ekki atkvæði annarra en harðra komúnista. AUSTI IMIÚNAI ATNSSÝSLA Hún er ekki spennandi frekar en fyrri daginn. Jón Pálmason er öruggur um kosningu og verður það sjálfsagt, svo lengi sem hann býður sig fram. Sú sundrung, sem kom upp meðal Sjálfstæðismanna í sýslunni út af forsetakosningunum í fyrra er nú sjálf- sagt úr sögunni, en þá snerust ýmsir aðalmenn flokks- ins, m. a. Ágúst í Hofi gegn fiokksstjórninni, og kom það ýmsum á óvart að Ágúst skyldi nokkurntíma fara út af flokkkslínunni. En þetta getur skeð á beztu heimilum. Sjálfur Brynjólfur Bjamason lenti einu sinni út af línunni hjá kommúnistum, og hvað blinda flokkshyggju snertir hefur Ágúst á Hvoli verið ósköp líkur'-honum. .Annars er Ágúst allra skemmtilegasti karl, hreyfur og hagmæltur hestamaður eins og Vatnsdælir fleiri og alveg laus við þann ísmeygilega hroka, sem leynist hjá Jóni Pálmasyni og hefur farið vaxandi síðustu árin. Jón er farinn að tala ósköp ,,nedlade-nde“ og eins og sá, sem valdið hefur við gamla kunningja sína, og að sumu leyti fer þessi valdsmannssvipur Jóni bara vel. Jón á að vera svona og ekki öðruvísi. Hannes Pálsson frá Undirfelli fer nú fram fyrir Framsókn í stað Guðmundar Grímssonar síðast. Hann- es er harðari baráttumaður en Guðmundur, en hins vegar líka óvinsælli. Annars hef ég aldrei fyllilega getað skilið það, hve mörgum liggur illa orð til Hann- esar Pálssonar, bæði Reykvíkingum og Húnvetning- um. Hannes er prýðilega greindur maður, en skap- bresti hefur'hann ýmsa oger heiptrækinn óvinum sín- um. Sum skammaskrif hans hafa verið með öllu ó- sæmileg, t. d. um afbragðsmanninn Pál Kolka, en þau vöktu almenna gremju, hvar sem menn stóðu í pólitík. En þrátt fyrir þesskonar ósjálfræði held ég, að Hannes sé bezti drengur inn við beinið. Flestum, sem þekkja hann vel, er hlýtt til hans, þó þeir séu andstæð- ingar hans í pólitík; það eru þeir, sem þekkja hann aðeins lauslega, sem er illa við hann. Það verða sjálf- sagt skemmtilegar skammir milli hans og Jóns Pálma sonar á kosningafundumun. Fyrir Alþýðuflokkinn fer fram Pétur Pétursson fyrrverandi verðlagsstjóri, en Sigurður Guðgeirsson fyrir kommúnista. Þeir eiga dálítið fylgi á Blönduósi og í Höfðakaupstað, og þeir eiga betri vígstöðu vegna þess, hve mikill atkvæðamunur er á Sjálfstæðisfl. og Framsóknarfl. í kjördæminu. Sennilega nær þó hvor- ugur þein-a 100 atkvæðum. Kosningaspjall Framhald af 2. síðu. Leið svo tíminn þar til and- inn sagði Sigurði hvort hann skyldi halda. Hann skyldi halda til Reykjavíkur. Þar bíður heill hans öll. Sigurður hlýddi kalli andans og flutti til borgarinnar. Það voru borg arbúar, sem kunnu að meta hann. Gerðu hann að þing- manni fyrir borgina og hafa haft gott af. Sigurður hefur sett svip á borgina og er borg- inni til sóma. Þetta viður- kenna allir. En Árnesingar eru einum manni f átækari fyr ir heimsku sína. Þeir viður- kenna þétta; vildú nú fegnir fá hann heim aftur og gera hann að goða sínum, en Sig- urður þarf þeirra ekki við. Hann hefur nóg að bíta og brenna í borginni; hefur ,,akt, respekt“ og virðingu og verð- ur enn kosinn á þing. Jón Pálmason, óðalsbóndi á Akri, var kosinn á þing 1934. Var hann þá nær fimmtugur að aldri. Hann var þá kunnur fyrir snyrtimennsku í búskap-. Hann var talinn góður skepnu hirðir og vita um búpeninginn allt, sem menn annars þurfa um hann að vita. Með öðrum orðum. Gripahúsamennt hans var talin með ágætum, enda prýði hvers bónda. Þegar Jón kom á þing, var hann þegar talinn hlutgengur þar í bezta lagi. Bendir þetta til, að þar hafi ekki verið fyrir mikil andleg skartmenni, og prúðmenni þau, sem þar gistu bekki, hafi ekki haiít sjón langt f ram úr almennings sjón armiðum. Hvað um það. Jón er kyn- borinn til beggja handa. Hann ber aðals- og ættarmark feðra sinna og mæðra og er ætt sinni og stétt (bændastéttinni) til sóma. Hann hefur verið heppinn um virðingarstöður þingsins. Honum hefur verið troðið í stöðurnar, því maðurinn er hlédrægur og ekki mikið fyrir að trana sér fram. Hann var þegar eftir að hann kom í þingið kosinn endurskoðandi rikisreikninganna. Er talið, að hann hafi leyst það verk af hendi með alúð og sam- vizkusemi. Ekki er oss þó kunnugt um, livar hann hefur lært bókhald. Höllumst helzt að þri að guð hafi gefið honum þekkinguna með em- bættinu. Þegar Ölafur Thors réðst í það dirfskverk að mynda stjórn með kommunum, studdi Jón þá stjórn af lífi og sál. Hann vissi af nokkrum kommum á Blönduósi og Skagaströnd, sem mundu kjósa hann fyrir bragðið og mundu þau atkvæði vega upp móti atkvæðatapi frá bænd- um, svo kjörfylgið stæði í stað. Þetta var rétt reiknað. Hann studdi stjórnina og hafði gott af. Hann varð for- seti sameinaðs þings, en Gísla Sveinssvni ýtt til hliðar, en hann vildi ekki styðja stjórn- ina, því hann var úr hreinu bændakjördæmi. Fyrir þetta féll Gísli í ónáð hjá Ólafi Thors og kolféll í forsetakjör- inu, af því hann skorti með- mæli Ólafs og fylgi hans. Hefði hann stutt Ólaf, þá væri hann forsetinn. Mikill varð hans skaði fyrir skammsýn- ina. Svona er tilveran kald- hæðin. Hún veltir sumum úr þessi og setur aðra upp í hann. Tilveran er reisn og hrun, upphefð og niðurlæging. Nú er Jón Pálmason að tala við kjósendur í Húnaþingi. Hann á nú erfitt uppdráttar, þvi hroki húnverzkra bænda er talinn standa föstum fót- um. Hann ætlaði að gera Austur-Húnavatnssýslu að tveim læknishéruðum og meinti gott mð því. En þá reiddist Páll Kolka læknir. Jón missti móðinn, þvi Kolka er rismikill í héraði, gáfaður og mælskur, og kom ekki frumvarpinu fram í þinginu. Þess vegn verða Skagstrend- ingar nú að fóðra sinn lækni úr eigin vösum og eru Jóni reiðir. Nú flaðrar Hannes upp um hverja kerlingu austan Blöndu og býður upp á að koma á fót hinu fyrirhdgaða læknishéraði, ef hann verði kosinn á þing. Hvor þeirra hefur meiri kerlingahylli í hér aðinu er oss elcki kunnugt, en kosningarnar skera úr um þetta sem annað. Sagt er að Hannes sæki fast þingkjör sitt, en þó með allri háttvísi og prúðmennsku, sem honum er 1 blóð borin. Hallur á Hrauni. La Travíafa Framhald af 4. síðu. unni, að herrarnir hefðu tek- af sér annan hanzkann til þess að klóra sér. Hópatriði í heild bæði hjá Violettu og Flóru voru ósköp Framsóknarleg. Óperuflutningi í Þjóðleik- húsinu ber sannarlega að fagna og þakka þeim, sem for- göngu hafa um slík mál. Hitt er jafn augljóst, að það er ó- þarfi að falla á kné og hrópa Allah, þó að þokkalega takist. Það verður leitt fyrir kom- andi kynslóðir að lesa í blöð- um okkar, að einmitt um það bil, sem Þjóðleikhúsið hóf óperuflutning, þá hafi hvert sæti verið skipað slíku úrvals- fóllii, að listamenn framtíðar- innar hafi ekki von til þess að komast nærri þeim í listgrein- um sínum. Við skulum hiklaust játa það sem miður fer — allt stendur til bóta. A. B. Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu varðándi Lána- deild smáíbúðarhúsa. Þeir, sem kynnu að ætla sér að sækja um lán úr Lánadeild smáíbúðarhúsa á árinu 1953, skuju senda umsó'knir sínar til félagsmálaráðuneytisins, Túngötu 18, Reykjavík, fyrir lok næstkomandi ágústrr.ánaðar. Umsóknum um lán úr Lánadeildinni þurfa að fylgja .eftirfarapdi skilríki: 1. Afrit af lóðarsamningi eða yfirlýsing þess, er lóð- ina hefur látið á leigu, að urr.sækjandi hafi fengið útmælda lóð, samkvæmt skipulagsuppdrætti, ef slíkt er fyrir hendi. Sé ium eignarlóð að ræða þarf sönnun fyrir eignarrétti. 2. Uppdrátt af fyrirhugaðri byggingu, eða húsi því er sótt er um lán til. 3. Vottorð bygingarfulltrúa eða oddvita, hvað bygg- ing sé komiin langt, ef unr.sækjandi hefur þegar hafið hyggingu. 4. Vottorð oddvita eða bæjarstjóra viðkomandi sveit- arfélags um f jölskyldustærð. 5. Upplýsingar um húsnæðisástæður umsækjanda, s. s. stærð íbúðar í fermetrum. Ef urn heilsuspill- andi húsnæði er að ræða, þá þarf vottorð héraðs- læknis (í Reykjavík toorgarlæknis). 6. Veðbókarvottorð, ef bygging er eitthva.ð komin áleiðis. 7. Greinargerð umsækjanda varðandi fjárhagslega möguleika til að gera fyrirhugaða íbúð fokhelda. Þeir sem sendu umsóknir um. lán til lánadeildar- innar á árinu 1952, og eigi var hægt að sinna, þurfa að endurnýja umsóknir sínar, en vísað geta þeir til áðursendra upplýsinga. EyðublÖð undir umsólknir fást í Veðdeild Lands- bankans í Reykjavík og útibúum hans, en hjá odd- vitum og bæjarstjórum þar sem ekki er starfandi útibú frá Landsbankanum. Félagsmálaráðunéytið, 22. maí 1953.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.