Mánudagsblaðið - 08.06.1953, Síða 1
6. árgangur
Mámidag-urmn 8. júní 1953.
20. íölublað.
Amerískir hermenn segja álit sitt:
.MINNIMÁTTARKENND EINKENNI ISLENDINGA’
’ Ai*.’' -i
Gagnkvæmur skilningur ineð lifálp skrail abruggsins
Oft hefur verið rætt um herinn á Keflavíkur flugvelli og þótt ýmsar skoðanir séu á
lofti um nauðsyn hersins, þá eru víst flestir sanmiála um það, að herseta sé landsmönn-
um mjög hvimleið, og áfellast núverandi ríkisstjórn fjrir framkomu hennar. gagnvart
hernum.
En ekkert íslenzkt blað hefur birt álit hermanna á fsiendingmn og hvemig þeir h'ta á
karlmennina, kvenþjóðina, siðu vora og háttu. Mánudagsblaðið birtir nú í fyrsta sinn viðtal
við hermann —eða réttar sagt tvo hermenn — en þeir tjáðu blaðinu álit sitt gegn ófrá-
víkjanlegu loforði ritstjómarinnar um að nöfn þeirra yrðu aldrei birt né kunngerð. —
Blaðið fór þess á leit, að þeir segðu álit sitt hispurslaust og slepptu öllum setningum við-
víkjandi „fornri menningu“ — „áhuga á landinu síðan í æsku“ — „fegurstu stúlkum heims
miðað við mannf jölda“ •— og öðrum standard ferðamannasetningum, sem allir eru Iöngu
tiundleiðirá.
Um sögn þeirra var jafnóðum rituð upp á ensku og
síðan þýdd orðrétt-;
,,Þú spyrð mig um hvemig mér liki. Sannast að segja,
þá líkar mér bölvanlega. Mér finnst landið fremur snoturt,
en hrjóstrugt, illt yfirferðar og loftslagið yfirleitt hræði-
legt. Þó gleður mig að það er lítið af skorkvikindum hér.“
Og hvemig finnst þér fólkið?
„Fólkið á íslandi er eflaust gott — hvort í annars
garð. En við höfum minnst af sjálfri þjóðinni að segja.
Eina viðkynning okkar er við unglinga, stelpur og stráka,
sem aðallega hafa áhuga á að skemmta sér. Það skal játað,
að okkur er alveg ókunnugt um heimilislíf fólks hér, en
— og hér greip annar fram í — okkur finnst mjög skrítið,
að unglingar hika ekki við að vera úti heilar nætur, eða
fram til 4—5 að morgni að skemmta sér með okkur í
J)
Ajax skrifar mi.
Alþingis-
bosningnc
HAFNARFJÖKÐUR
Alþýðuf Iokkurinn.
Þar verður kosningabaráttan
hörð, en sennilega nær Emil Jóns-
son kosningu, þó að mejri hluti
hans verði að líkindum ekki mik-
ill. Emil er greindur maður og
vel vinnandi, en ráðríkur og
þrjózkur, ef því er að skipta. —
Sumir Hafnfirðingar trúa á Emil
og sitja og standa eins og hann
vill, en þó eru jafnvel í Alþýðufl.
í Hafnarfirði menn, sem ekki eru
miklir vinir hans, svo sem
Þorvaldur Árnason skattstjóri og
ýmsir fleiri. En þrátt fyrir nokk-
um urg ýmissa Hafnfirðinga í
garð Emils hefur fylgi hans oft-
ast nær reynzt traust á kjördegi.
Sumir Hafnfirðingar hafa sagt
mér, að deilan út af slökkviliðs-
málum í Hafnarfirði á siðasta ári
muni valda Emil nokkrum at-
kvæða missi. Einn þeirra sagði,
að Emil mundi missa 300 atkvæði
til Flygenrings vegna þessa máls,
en flestir telja þá tölu alltof háa.
Sjálf stæðisf lokkurinu.
Ingólfur Flygenríng fer aftur
fram fyrir Sjálfstæðismenn, og er
þetta sennilega sterkasta framboð
sem völ er á, úr því að Bjarni Snæ
björnsson vill ekki gefa kost á
sér, en hann er maður, sem aldrei
hefur beðið ósigur við alþingis-
kosningar og hefur m. a. lagt að
velli Emil Jónsson, Kjartan Ólafs-
son og Stefán Jóh. Stefánsson. —
Flygenring er mjög vinsæll mað-
ur og sjaldan eða aldi-ei hefur
staðið neinn styrr um hann í líf-
inu, en hann skortir hörku og
hai-ðfylgi Emils Jónssonar, og
sennilega gerir það gæfumuninn,
þó að kosningin i Hafnarfirði geti
orðið talsvert spennandi.
Kommúnistar.
Magnús Kjartansson fer fram
fyrir kommúnista. A siðasta kjör-
tímabili var hann fyrsti varamað-
ur landkjörinna þingmanna
flokksins og mætti alloft á Al-
þingi. Nokkuð var um það rætt
í vor, að Magnús yrði ekki í kjöri
að þessu sinni, heldur ýrði Her-
mann Guðmundsson sendur fram
á ný. Hermann var. þingmaður
kommúnista 1946—1949, en í lok
kjörtímabilsins varð hann ósáttur
við Brynjólf Bjarnason út af
verkalýðsmálum og sagði sig úr
flokknum. Síðan hefur Hermann
verið utanflokka, en upp á síð-
kastið talinn hafa nálgazt komm-
únista á ný. Það :er almenn skoð-
un f Hafnarfirði, að Hermann
mundi fá nokkuð fleiri atkvæði
en Magnús. Hermann á mikið
persónufylgi og á jafnvel ítök
Framhald á 3. síðu.
hernum. Okkur skilzt að þessir unglingar búi í heima-
húsum. En ég vil benda á, að mér finnst æskufólk hér á
íslandi vera ákaflega myndarlegt fólk að sjá. Bæði kynin.
eru yfirleitt fallegt fólk“.
Og hvernig er að skemmta sér með því?
„Ef það væri ekki þessi helvítis minnimáttarkennd í
þeim, þar til þeir f á þetta Black poision. (Hér mun að lik-
indum átt við Brennivín). Þá vakna allir illir árar í þeim
og þeir verða allir aðrir. Kvenfólkið verður hávaðg-gjamt
og afbrýðisamt, en karlmenn heldur miklir fyrir sér.
Raunverulega er þetta í góðu, en misskilningur er mjög;
tíður hjá karlmönnunum."
Drykkjuskapur nokkuð tíður?
Já, það er einna mest hugsað um vin. Við hermenn-
irnir viljum skemmta okkur við vín, þegar við fáum orlof
og sjaldnast er hörgull á að fá íslendinga til þess að hjálpa.
sér um flösku og alltaf vilja þeir drekka hana með okkur..
Það er eins og skrattabniggið (hellbrew) sé nauðsynlegt
til þess að hrekja stoltið úr sumum konunmn. Og straxi
þegar þær missa stoltið, þá er eins og gestrisni þeirrai
kunni sér engin takmörk.
Þið ei’uð ekki í einkennisbúningi ?
„Nei, við erum oft einkennisbúningslausir þegar við»
dveljxmist hér í Reykjavík. Þegar þú spyrð um ástæðuna„
get ég ekki öðru svarað, en að mér þykir líklegt að ein-
kennisföt vekji meiri andúð á okkur en nauðsyn er á. Mér
er sagt, að einn af foi’ustumönnum þjóðar ykkar hafl
fundið upp þetta snjallræði af hugviti sínu. Sannarlega
hugmynd aldarinnar, ef þú spyrð mig.“
Eruð þið oft um helgar hér í Reykjavík ?
„Já, þegar orlof fæst. Við fáum að leigja herbergi
hér — þau eru dýr, en mjög hreinleg og fólkið alúðlegt.
Við fáum að hafa kunningja um nætursakir, éf við höfum
ekki hátt.“
Og hvernig f innst ykkur skemmtanalíf Reykjavíkur ?
„Amerískar kvikmyndir hér eru gamlar, en aðallega
föi’um við á dansleiki í Tivoli. Þar ber oft vel í veiðar og
þangað er auðvelt að hafa pela með séri Þangað fer líka.
mikið af vinum okkar á Islandi. Eg hef aldrei séð eint*
mikið líf á nokkrum stað, sem eltki er yfirlýstur aðset-
setursstaður nautnakvenna. En mér virðast bæði stúlkur
og strákar di’ekka sig alltof drukkið.“
Byggist öll skemmtun hei’liðsmanna á dansleikjum
etc?
„Að mestu leyti, þegar við er-um í Reykjavík. I her-
búðunum skemmtum við okkur eins og heima. Við æfum
BOWLING, sjáum nýjar myndir, dönsmn i skemmtistöð-
um okkar, sem eru undir eftirliti. Það er orðið talsvert
eftirlit með íslendingum á Keflavík, en þó eru ei brögð
til þess að sneiða hjá eftirlitinu.“ ,
Vei’ðið þið varnir við andúð íslendinga?
„Nei, það er ekki svo mikið. Eg held að við séum.
yfirleitt vel liðnir hér. Það er ekki okkur að kenna, þó við
séum hér. Einhverjir herséi’frséðingar í Washington og
Framhald á 2. síðu.