Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 08.06.1953, Síða 5

Mánudagsblaðið - 08.06.1953, Síða 5
Mánudágurinn 8. júní 1953. MÁNUÐÁQSBLAÐIÐ Áhugamál kvenna Frá hvirfli fil ilja... Ef þú vilt halda líkama þín- um unglegum, þá skaltu fara eftir þessum ráðum: Hárið Áður en þú þværð hárið, skaltu nudda hársvörðinn vel með olíu og kemba þér svo. Augun Til þess að hvíla augun, skaltu depla þeim mikið. Það eykur blóðrásina. Vinnirðu að nærsýnisverki, skaltu öðru hverju loka augunum augna- blik til að hvíla þau. Líttu á ímyndaða klukku, þegar hún er 10 mínútur yfir 10. Renndu augunum til hægri og upp, til vinstri og upp 20 sinnum. Lokaðu augunum á milli þess, sem þú horfir á. Húðin Húðin verður að fá ýmsar aðgerðir. Gufa hjálpar til að opna svitaholumar, svo hæg- ara sé að hreina hana. Berðu feitt krem á andlitið og hálsinn. Láttu svo sjóða vatn í potti eða katli og beygðu þig yfir svo gufan leiki um andlit þitt og háls. Á eftir skaltu svo hreinsa húð- ina með bómull vættri í köldu vatni. Varirnar Ef varirnar á þér eru dregn- ar niður um munnvikin, eru vinkonur þínar fljótar að sjá það, og hugsa:-----Almátt- ugur! Hvað hún er súr, skyldi eitthvað ganga henni á móti? Láttu þær ekki hugsa þetta. Málaðu munnvikin svolítið upp, svo þú lítir út eins og þú ætlir að brosa. Henduraar Hendurnar þarfnast mikill- ar umhirðu. Nuddaðu þær á ihverjum degi úr kremi, sér- staklega skaltu nudda liðina og hnúana. Notaðu vettlinga við alla grófa vinnu og gúmmívett- linga, ef þú þværð þvott. Barmurinn Reyndu æfingar á rúminu, eins og þú værir að synda skriðsund. Reistu þig upp frá mitti eins og þú ætlir að taka sundtök; hreyfðu handlegg- ina, eins og þú værir að synda í vatni. Lyftu öðrum hand- leggnum upp hægt, óg réttu fingurna hægt fram, og ýttu þeim svo snöggt aftur. Snúðu þér svo á hliðina og byrjaðu sömu æfinguna með hinum handleggnum. Haltu þessum hreyfingum áfram reglulega. Teldu hund- að sundtök, og andaðu djúpt að þér við hver tvö, og frá þér við næstu tvö. I % i Mittið Stattu á hnjánum, með hanleggina saman og beint upp. Teygðu þig upp frá mitti. Settu svo hægri mjöðmina eins langt út og þú getur. Teygðu þig svo upp með spenntar greipar yfir höfði þér. Láttu svo líkamann lúta fram og niður á við, þvínæst til hægri og svo afturábak. Láttu magavöðvana togna til að halda jafnvægi, og hafðu bakið beint. Veltu þér svo til vinstri handar, þvínæst fram og upp aftur með hægri mjöðmina út. Vertu svo bein og léttu af áreynslu hnjánna. Endurtaktu svo allt þetta á vinstri hlið, og veltu þér svo á hina. • Reyndu þetta við músík og endurtaktu það sex sinnum til hvorrar hliðar. Mjaðmirnar Liggðu á grúfu og lyftu hægt hægra fæti upp frá mjöðminni. Haltu fætinum beinum og hælnum þrýst út. Notaðu vöðvana á mjó- hryggnum og strengdu lenda- vöðvana. Láttu hægra fótlegg inn síga og lyftu vinstra fót- leggnum. Hvíldu þig svo. Gerðu svo þessa æfingu með báðum fótum í senn. Hvíldu Þig- Hnén Ef hnén eru feit, þá liggðu á bakið með lærin saman og hendurnar undir hálsinum. Lyftu svo upp/hægra fætinum, réttu úr tánum, gerðu hnéð stíft og þegar þú hefur beygt það svo, að það nemi 45-gráðu horni þá dragðu hringa á loft inu með tánni. Gerðu þetta 6 sinnum með hvorum fótlegg og hvíldu þig á milli. Tærnar Þvoðu þér á hverjum degi á milli tánna með naglaburta. Svo og neglurnar og í kring um þær. Hér byrja smásmitanir þar sem sveppir vaxa. Hreinsaðu um neglurnar með smáspýtu til þess gjörðri og vefðu bóm- ull um endann vættri í olíu. Þurrkaðu svo þetta mjög vel'og sáldraðu talkum á á sumrin. Krossgáta Mánudagsblaðsins Nr. 54 Reykjavík — Ogló Fljúgum um Osló alla laugardaga á leið til Kaupmannahafnar. Viðkoma er einnig höfð- í Osló á sunnudögum á leið til Reykjavíkur frá Kaupmannahöfn. FLUGfÉLAG ÍSLÁNDS H.F. Ef þia dreymir.... Járnbrautarlest Að dreyma, að maður sé að ferðast í jánibrautarlest, þýð- ir það, að þú munt fram- kvæma meira bæði fyrir vinnu veitanda þinn og sjáifan þig, ef þú hugsar betur um starf þitt. Hundur Að dreyma, að þú heyrir hund gelta, þýðir það, að þú gerir þér vini af óvinum. Ef hundur bítur þig, þýðir það, að þú rífst við elskhuga þinn. Að vera hræddur við grimman hund, þýðir ástaræfintýri, Að dreyma gull merkir, að þú ert ágjarn og að vegna þessara nánasarlegu tilhneig- ingar þinnar, missir þú marga vini. Að dreyma að vera að grafa eftir gulli, merkir óá- nægju við umhverfi þitt heima. Stofustúlka Ef mann drejnnir um félag við fallega stofustúlku, þýðir það, að líklega, að honum verður boðið á skólasamkomu. Ef hann dreymir, að hann sé að kyssa hana, þá þýðir það það, að hann verður rukkaður af þeim, sem hann skuldar peninga. Öxi Það þýðir ófrið bæði heima og í viðskiptaheiminum, að dreyma að vera að höggva tré með öxi. Að kljúfa eldivið með öxi þýir það, að þú munir sættast á misklíð á milli þín og f jölskyldunnar. Gólfljós Varaðu þig á argi við þá, sem eru í opinberu lífi, þegar þig hefur dreymt að þú sjáir röð af gólfljósum, annaðhvort frá baksviðinu eða frá áheyr- endasviðinu. Að dreyma að þau slokkni, þýðir óhapp eða •slys. Boð Að dreyma að vera að fara í boð, þýðir annaðhvort skemmtun éða óhapþ, eftir því hvernig boðið er eða gestirnir. SKÁKINGAR: n J Lárétt: 1. Ofanáleggið — 5. Skordýr — 8. Vonda —* 9. I f jósi — 10. Höfuðborg — 11. Öskra — 12. Eyja 14. Flýti — 15. Samhaldssama —-18. Forsetning — 20. Drykk- ur — 21. Hvíldist — 22. Nægilegt — 24. Tveir — Fjallgarð- ur í Evrópu — 27. Láta vel af — 29. Drykk — 30. Skemmd. Lóðrétt: 1. Samkomuhúsunum — 2. Gubbir — 3. Skor- dýrið — 4. Tveir eins — 5. Væra — 6. Ull — 7. Gruna — 9. Ráfar um — 13. Kvendýr — 16. Hnöttur — 17. Aumar —• 19. Drauga — 21. Festa saman — 23. Gól — 25. Auð — 27. Samhljóðar. Ráðning á krossgátu nr. 53. Lárétt: 1. Rabba — 5. Frá — 8. Álar — 9. Slór —10. Níu — 11. Skó — 12. Anna — 14. Ann J 15. Aðili — 18. Gá — 20. All — 21. Ra — 22. Asa — 24. Lasin — 26. Taum — 28. Rota — 29. Armar — 30. Sar. Lóðrétt: 1. Ránargata — 2. — 5. Flón — 6. Ró — 7. Ári — i 6. 111 —17. Manar —19. Ásar — S.O.S. 27. M.A. Alin 3. Bauna — 4. B.R. 9. Skallar — 13. Aða — 21. Rita — 23. Aum — 25. Prýðið garðinn ykkar Bókin Garðagróður veitir ykkur alla þá aðstoð, sem þið þurfið á að halda. Hún er nauðsynleg handbók á hverju heimili. Bókayerzlun ísafoldar V örutrvggingar Að gefnu tilefni viljum vér taka fram, vér berum ekki ábyrgð á vörum þeim, sem teknar eru til flutnings með flugvél- um voium. Hins vegar viljum vér benda á, að heiðr- aðir viðskiptavinir vorir geta fengið keyptar fullkomnar vötutryggingar á afgreiðslum vorum. FLÖGFELAG ISLANDS H.F.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.