Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.06.1953, Blaðsíða 4

Mánudagsblaðið - 22.06.1953, Blaðsíða 4
4 MANUDAGSBLAÐIÐ Mánudagurinn 22. júní 1953. MÁNUDAGSBLAÐIÐ BLAÐ FYRIR ALLA Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð 2 kr. í lausasölu. Afgreiðsla: Tjarnarg. 39. — Símar ritstj.: 3496 og 3975. Prentsmiðja Þjóðviljans b.f. Alþingnskosniiigariiar Framh. af 1. síðu. þeir haldi nokkurn veginn í horf- inu. Að vísu dregur Þjóðvarnar- flokkurinn frá þeim eitthvað af atkvæðum miðstéttarfólks og menntamanna, en inn i verka- mannafylgi kommúnista heggur hann sennilega ekki mikið. Kommúnistar fá að öllum lík- indum tvo menn kjörna og einn uppbótarmann, það er að segja sömu þingmenn og síðast. ö-lisfinn Þar eru í efstu sætunúm allir hinir sömu og síðast. Bjarni Bene- diktsson er efstur, enda má það teljast eðlilegt. Bjarni er nú hinn raunverulegi leiðtogi Sjálfstæðis- flokksins, miklu fremur en Ólaf- ur Thors. Mkill styr hefur staðið um Bjarna á síðasta kjörtímabili. Eg held að enginn maður á ís- landi hafi verið skammaður eins síðan Jónas frá Hriflu var upp á sítt bezta. En skammir andstæð- inganna um Bjarna eru oft og tíðum svo grófar, að þær missa marks og verká jafnvel öfugt. Það má gagnrýna ýmsar fram. kvæmdir Bjarna, en frá þvi er langur vegur til að mála hann á vegginn eins og Satan sjálfan með klaufir og horn. Líkt og Rannveig Þorsteinsdóttir held ég að Bjarni græði stundum á skömmunum frekar en hitt. Það er allt í lagi að deila á aðgerðir stjórnmála- manna, en þegar einkalíf þeirra fær ekki- að vera í friði, þá er of langt gengið. Björn Ólafsson er í öðru sæti, og mun sú ráðstöfun hafa komið í veg fyrir það, að obbinn af Vísis- mönnum færi yfir í Lýðveldis- flokkinn. En Bjöi-n á alltaf marga andstæðinga innan Sjálfstæðis- flokksins, hvað sem veldur. Jó- hann Hafstein er nú í þriðja sæt- inu, og Gunnar Thoroddsen í fjórða. Menn Gunnars i flokknum ætluðu honum annað sætið, og eru margir óánægðir. Sumir telja, að miklar breytingar verði gerðar á 2., 3. og 4 sæti D-listans, bæði útstrikanir og uppfærslur. Senni- lega vega breytingarnar hver gegn annarri, svo að þær fá enga þýðingu. Annars er fátt um ný andlit á D-listanum, flestallt er þetta gamalkunnugt flokksfólk. Um fyigi D-Iistans er afar erfitt að spá. Mestu máli skiptir það, hve mikið fylgi Lýðveldismenn draga frá Sjálfstæðisflo^knum. Það verður' talsvert, en fjöldi manna virðist enn óráðlnn hvorn flokkinn þeir eigi að kjósa. Svo getur farið að Sjálfstæðisflokkur- inn missi þingmann í Reykjavík, en vel má líka vera að hann fái fjóra kosna. Ef hann missir fjórða sætið, gæti svo farið, að bæði Gunnar Thoroddsen og Kristín Sigurðardóttir hyrfu af þingi. — Gunnar fær þó uppbótarsæti, nema því aðeins að Sjálfstæðis- flokkurinn vinni þingsæti úti á landi. Þá gæti svo farið, að flokk- urinn fái ekki uppbótarsæti. En skrýtið ástand er það, ef Gunn- ar verður að óska þeim Jóni Gísla syni, Ásgeiri Bjarnasyni og Hannibali Valdimarssyni sigurs; því að sigur þeirra yrði kannski einnig sigur hans. E-lisfinn Listi Lýðveldisflokksins er skip- aður líkt og spáð hafði verið. Efstur pr Óskar Norðmann. Það getur vel verið, að þar sé heppi- lega valið. Óskar á enga pólitíska fortíð. sem hægt er að fetta fing- ur út í, hann á marga vini, en fáa eða enga óvini. Slíkur maður er kannski heppilegri til að laða að sér fylgi, en harðvítugur bar- áttumaður. Jónas Guðniundsson er í öðru sæti. Hann er af allt aðru sauðahúsi en Óskar, undar- legur idealisti, sem allmargt fólk trúir á í blindni, en fleiri botna þó ekkert í. Kaupsýslumaður í 1. sæti, okkúlisti og spámaður í 2. sæti, það er skrýtin kombination, en vel má vera að hún blessist. Jónasi er ætlað að gefa listanum svip andlegheitanna. Svo kernur Gunnar í ísafold og í fjórða sæt- inu Ásgeir frá Fróðá. Hann var trúaður nazisti í tíð Hitlers og hefur verið pólitískt heimilislaus síðan hann missti hann. Líklega fara margir gömlu nazistarnir yf- ir á Ásgeir, þó að þeir séú annars orðnir dreifðir í alla flokka. Flest hitt fólkið á listanum er lítið þekkt. Þarna eru tveir pípulagn- ingameistarar, svo að hag þeirrar stéttar ætti að vera borgið hjá Lýðveldisflokknum. Lestina rek- ur Halldór Jónasson, sem um langt skeið hefur haft hug á því að stofna nýjan flokk eftir sínum kokkabókum. Eg er á því, að Lýðveldisflokk- urinn fái talsvert fylgi. Að vísu held ég ekki, að takandi sé mark i þeim glæsilegu sigrum, sem hann segist alltaf vefa að vinna t prófkosningum. Víða eru próf- kosningar hafðar bara upp á grín ag litið að marka þær. En ég hef hitt margt fólk, sem er ráðið í að kjósa E-listann, og þó kannslci fleira, sem reikar á mörkum Sjálí stæðisflokksins og Lýðveldis- flokksins. Það er þetta, sem gerir spárnar um fylgi listanna svo óvissar. En bezt gæti ég trúað bví, að Lýðveldismenn kærhu að imanni, þó að ekki muni kannski miklu. Mest draga þeir frá Sjálf- stæðisflokknum, þar á meðal margt af því fólki, sem studdi Ás- geir í fyrra. En þeir fá auk þess eitthvað af atkvæðum óánægðs fólks úr hinum flokkunum. Klíka Jónasar frá Hriflu styður þá með ráðum og' dáð, og hún ræður yfir dálitlu atkvæðamagni. En fyrst og fremst er það leiðinn á gömlu flokkunum, sem verður vatn á myllu hins nýja flokks. F-listinn Þar er efstur Gils Guðmunds- son, og sennilega hefur flokkur- inn ekki heppilegri manni á að skipa. Gijs' er greindur maður og fjölfróður og kunnur almenningi af útvarpserindum sínum, sem hafa notið vinsælda. Hversu Gils reynist í pólitíkinni er náttúrlega óvíst enn, en liklega yrði hann dugandi þingmaðui), seigur og sólid, en ekki brilliant. Miklu veikari punktur á listanum er annað sætið, Bergur Sigurbjörns- son. Það er einhvern veginn svona með Berg, hann vekur ekki tiltrú í pólitíkinni. Þriðji maðurinn, Þórliallur Vilmundarson land- læknis, er sagður efnismaður, en hann er lítt kunnur almenningi. Neðar á listanum eru ýmsir kunn- ir menn. Þarna er Arnór Sigur- jónsson, en hvers vegna var hann ekki sendur fram í Suður-Þing- eyjarsýslu? Arnór á að öllu skap- ferli betur við Þingeyinga en Reykvíkinga. Neðstur á listanum er Friðrik Brekkan rithöfundur. Hann var í gamla daga Fram- sóknarmaður, en færðist svo til vinstri og var um eitt skeið talinn standa nærri kommúnistum. Vera má, að Friðrik veiði eitthvað af atkvæðum templara. Fulltrúar kvenþjóðarinnar eru Kristín Jónsdóttir, kona Björns Sigfús- sonar, og frú Laufey Villijálms- dóttir. Frú Laufey var áður í Sjálfstæðisflokknum, en komst á kant við hann út af forsetakosn- ingunum í fyrra. Hún er mikil- hæf kona og listanum er styrlcur að henni. Þjóðvarnarmenn eiga án efa nokkurt fylgi í Reykjavík, en hitt er vafamál, hvort það nægir til þess að koma manni að. Meðal menntamanna og opinberra starfs manna eru þeir allsterkir. Þetta fylgi draga þeir úr öllum gömlu flokkunum, kannski þó mest frá kommúnistum. En eins og ég sagði áðan, held ég, að erfiðara verði fyrir þá að ná verkamönn- um frá kommúnistum, þó að þeir veiði dálítið af atkvæðum verka- manna, sem kosið hafa kommana með hangandi hendi undanfarið. Annars er. enginn vafi á því, að kommúnistar óttast Þjóðvarnar- menn og beina nú mjög skeytum sínum að þeim, enda er allmargt fól kehn í vafa um, hvorn flokk- inn það kýs. Eitt aðaltromp Þjóð- varnasrmanna er það sama og Lýð- veldismanna: leiðinn á gömlu flokkunum og löngun fólks til þess að breyta til og prófa eitt- hvað nýtt. Þessir nýju flokkar hafa annars lítt leitt saman hesta sína og virðast hafa samið eins- konar vopnahlé, enda veiða þeir að miklu leyti á ólíkum miðum. Eg gæti trúað, að fylgi F-listans yrði dálítið minna en fylgi E- listans. Þó tel ég ekki alveg ó- hugsandi, að flokkurinn geti kom ið manni að í Reykjavík, en frek- ar þykir mér það óliklegt. En hin pólitíska upplausn í Reykjavík er slík nú í dag, að í kosningunum geta ýmsir óvæntir og ævintýra- legir hlutir gerzt. N'OKÐt K-Ml LASÝSLA Sjálfstæðismenn Þar eru aðeins þrír listar í kjori, Framsóknarmenn, Sjálf- stæðismenn og kommúnistar. — Kosningin getur orðið talsvert spennandi. Síðast fékk Framsókn báða mennina kosna, en Sjálf- stæðisflokkinn vantaði tvö at- kvæði tii að vinna annað sætið. Þá var Árni G. Eylands efstur á Sjálstæðislistanum. Nú er í efsta sæti Sjálfstæðislistans Helgi Gisla son frá Skógargerði. Hann hefur fram til þessa verið lítt þekktur utan héraðsins, en faðir hans, Gísli Helgason, er þjóðkunnur maður. Líklega á Helgi eitthvert ' persónufylgi í sunnanverðu kjör- dæminu, en Árni Eylands var að- komumaður og átti ekkert nema flokksfylgið. Búast má við því að kosningabaráttan verði hörð og úrslitin tvísýn. Aðrir menn á Sjálfstæðislistanum eru ekki mik- ið þekktir nema Sveinn á Egils- stöðum, sem er í neðsta sæti. Framsókn Á Framsókna'rlistanum eru þeir Páll Zóphóníasson og Halldór Ás- grímsson efstir eins og áður. Páll hefur reynzt allra þingmanna snúningaliprastur fyrir kjósendur sína og er sífellt á þönum fyrir þá um allskonar útréttingar í Reykjavík, hvort sem þeir þui'fa að fá traktor eða hring í skil- vindu. Það ér ekki ónýtt að eiga slíkan þingmahn, enda er fylgi Páls í sýslunni. orðið traust. Þótt Halldór Ásgrímsson sé upprunn- inn í héraðinu, nýtur hann ekki jafn almennra vinsælda og Páll, enda sagður svifaseinni til snún- inga. Annars eru þessir floklcs- bræður ekki sagðir neitt sam- rýmdir, og Páll er yzt á vinstra armi Framsóknar, en Halldór er lengst til hægri. í kosningahríð- inni er Páll miklu harðskeyttari en Halldór, og ef Halldór fer inn, á hann það mest Páli að þakka. Það er sagt, að Páll viti næstum því upp á hár, hvernig hver kjós- andi í kjördæminu greiðir at- kvæði og geti því sagt úrslitin ná- kvæmlega fyrir. Árið 1942 fékk Framsóknarlistinn einu atkvæði færra en Páll hafði spáð, og hefur hann síðan lagt mikla vinnu í að finna svikarann. Sagt er, að hann hafi fjósamann á Jökuldal grun- aðan um svikih. Baráttan milli Halldórs og HelgsÞverður spenn- andi, eins og ég sagði áðan. — Sennilega græða þó Framsóknar- menn á því að Alþýðuflolckurinn býður ekki fram nú, en hann fékk þrjátíu atkvæði síðast. Menn úr kjördæminu, sem ég hef talað við, eru flestir á því, að Halldór haldi sætinu, með örlitlum meirihluia. Kommúnistar Á lista kommúnista er efstur Jóhannes Stefánsson frá Neskaup- stað. Hann á aðallega fylgi í Borgarfirði og Vopnafirði, en einnig fáeiri atkvæði í sveitunUm. Annar maður listans, Þórður Þórð arson, er bóndi á Jökuldal. Fylgi kommúnista verður þó innan við 100 atkvæði. SUÐUK-MÚLASÝSLA Einnig þar getur kosningift orð- ið spennáridi. Síðast felldu Fram- sóknarmenn Lúðvík Jósefsson og 'fengu bæði sætin. Nú leggja kommúnistar mikið kapp á að fá Lúðvík kjörinn á ný. Að sumu leyti er vígstaða Framsóknar- manna erfiðari en síðast. Það var opinbert leyndarmál, að fjöldi Sjálfstæðismanna í Suður-Múla- sýslu kaus Framsóknarlistann síð ast til þess að fella Lúðvík. Þá var í efsta sæti Sjálfstæðislistans síra Pétur í Vallanesi, og fylgi hans var ekki mikið. Nú er aftur Árni G. Eylands, og er það stérkara framboð en sr. Pétur. Það er því líklegt, að ýmsir Sjálfstæðismenn, sem síðast kusu með Framsókn, hverfi nú aftur til föðurhúsanna og fylgi Sjálfstæðisflokksins auk- ist eitthvað, og getur það orðið til þess að fella Vilhjálm Hjálmars- son. Annars á Árni G. Eylands að ýmsu leyti erfiða aðstöðu. Óhugs- andi er að fylgi flokksins aukist svo mikið að hann nái kosningu, og slík vissa verkar heldur illa á kjósendur. Árni er þjóðkunnur maður fyrir störf sín í þágu land- búnaðarins, en við Suður-Múla- sýslu hefur hann engin sérstök tengsl, og fær varla annað en flokksfylgið. Sennilega fær Sjálf- stæðisflokkurinn um 500 atkvæði. Framsóbn Á Framsóknarlistanum eru þeir aftur efstir Eysteinn Jónsson og Vilhjálmur Iijálmarsson. Vil- hjálmur er skikkanlegur hæglæt- ismaður, en skörungur lítill. Bar- áttan fyrir þingsæti hans mun mest mæða á Eysteini Jónssyni, sem er harðvítugur fundarmaður, eins og kunnugt er. Ekki ætla ég að spá neinu um úrslitin í bar- áttu þeirra Vilhjálms og Lúðvíks um annað sætið, en líklega verð- ur munurinn lítill. Kommúnistar Höfuðvígi Lúðviks Jósefssonar er Neskaupstaður, og þar á hann meirihluta atkvæða. Meira en hélmingur fylgis kommúnista í kjördæminu er þar. Lúðvik er harðduglegur og mikill hluti Norð firðinga trúir á hann. Auk þess á flokkurinn talsvert fylgi á Eskifirði og í fleiri þorpum þar eystra. ' Framhald á 7. síðu. 'rf

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.