Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.06.1953, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 22.06.1953, Blaðsíða 8
OR EINU I ANNAD Jens Guðbjörnsson og Ungmennafélagið — Rósin- kranz græðir — Géður fyrirlesiur — Endurminn- ingar Rannveigar miklu — Frægur ieikari látinn — Skilnaður í Hollywood — íþróttavinnr skýrjr svo frá, að Jens Guðbjörnsson, áhugamaður um íþróttamál, hafi látið þau orð falla í hópi íþróttavina, að hann óskaði einskis fremur en að Ungmenna- félag Reykjavikur dræpist. Heimildannaður lét í ljós þá ósk, hvort ekki mætti sæma Jens medalíu fyrir hugulsemina — um leið og hann. fær medalíuna fyrir frammistöðuna á Ólympíuleikunum í fyrra. Því ekki? f- I.. V ' r % ít' Þjóðleikhústjóri státar af því við Vísi, að f járhagur leikhússins hef ði aldrei verið eins góður og á þessu ári. Þetta er ekki alveg nýtt. Rósinkranz hefur oft látið orð falla um fyrirmyndarstjórn sína á leikhúsinu. Því má þá^ekki taka þau 45 prósent af skemmtana- skattinum,. sem renna til leikhússins og láta smá-leik- félögin úti á lahdi fá þau til að koma yfir sig húsi? ★ I síðastliðinni viku las Ævar Kvaran leikari upp kafla úr ferðasögu eftir Kjartan Ólafsson, hagfræðing. Kjartan mun vera með víðförulustu Islendingum og hefur mjög skemmtilega frásagnargáfu. Fyrirlestur hans var mjög áheyrilegur og lifandi og skemmtilega fluttur af Ævari. Bók Kjartans mun koma út bráðlega. ★ Nýlega er látinn á Manhattan, N. Y., Roland Young, 65 ára, hinn frægi og spaugilegi leikari, sem Reykvík- ingar þekkja úr m. a. Topper-kvikmyndunum. Young var fæddur í Englandi, en hefur verið einn vinsælasti gamanleikari Bandaríkjanna í meir en 20 ár. ★ Það er talið, að ein vinsælasta bók, sem gefin verður út í París á þessu ári, sé Endurminningar, eftir hvorki meira né minna en sjálfa Katrínu miklu Rússadrottningu. Oss finnst tilvalið að Rannveig hin mikla Þorsteinsdóttir fari nú að skrifa Endurminningar af Al- þingi, og hafi þær til í bókabúðum fyrir jólamarkaðinn. Paulette Goddard, kvikmyndadís, er nú í málaferl- um við fyrrverandi mann sinn, leikarann Burgess Meredith. Krefst hann 200 þúsund dollara af þvi, sem einu sinni var „sameign“ þeirra. Hún hefur nú leitac^ álits yfirréttar New York, hvort skilnaður hennar við Burgess sé ekki ógildur (það var mexikanskur skiln- aður) og hvort hún geti ekki farið í mál við Burgess fyrir það að hann búi með fjórðu konu sinni, Kaju Sundsten, í synd. P.S. Þegar hún skildi við Charlie Chaplin, líka mexi- kanskur skilnaður, þá var hann að hennar áliti alveg löglegur, enda fékk hún þá riflegan skerf af eignum hans. Hrtið á að gera í hvöld Gamla Bíó: Dans og dægurlög. Kl. 5, 7 og 9. Nýja Bíó: • Kona í vígamóð. KL 5, 7 og 9. Tjamarbíó: Jói stökkull. Kl. 5, 7 og 9. Austurbæjarbíó: Samhljómar stjarnanna. KI. 5, 7 og 9. Hafnarbió: Hættulegt leyndarmál. Kl. 5, 7 og 9. % Stjömubíó: Vcurizt glæframennina. KL 5, 7 og 9. Trípólíbíó: Bardagamaðurinn. Kl. 5, 7 og 9. Frá aðalMi Árnesinga- félagsins í Reykjavík Nýlega var haldinn aðal- fundur Ámesingafélagsins í Reykjavík, og var hann allvel sóttur. Formaður félagsins, Hró- bjartur Bjarnason, stórkaup- maður, flutti skýrslu um störf félagsins á síðastliðnu ári. Starfsemi félagsins stóð með miklum blóma. Meðal annars efndi féiagið til skemmtiferð- ar með Esju til Vestmanna- eyja í samvinnuvið önnur átt- hagafélög Árnesinga í Reykja vík. Tókst ferð þessi ágæta- vel, og tóku þátt í henni á þriðja hundrað manns, en Ár- samþykkt frá 1496, hefur fé- nesingafélagið í Vestmanma- eyjum annaðist þar móttökur af mikilli rausn. Auk hins árlega Árnesinga- móts, sem er orðinn fastur liður í starfsemi félagsins og nýtur jafnan mikilla vinsælda, stóð félagið fyrir nokkrum skemmtisamkomum, er voru ávallt mjög f jölsóttar. I landi félagsins að Áshild- armýri á Skeiðum, þar sem fél. lét reisa veglegan varða árið 1946 til minningar um hina merku Áshildarmýrar- lagið haldið áfram að gróður- setja plöntur. Gjaldkeri félagsins, Guðjón Vigfússon, skýrði fi-á hag þess á árinu og las upp endur- skoðaða reikninga félagsins. Hefur hagur félagsins batnað til muna á árinu. Árnesingafélagið hef ur ým- is verkefni með höndum, svo sem útgáfu héraðssögn, vernd un sögustaða í héraðinu og að stuðla að nánari kynnum milli Ámesinga austanfjalls og vestan. Eitt af núverandi á- hugamálum félagsins er að hlynna sem bezt að hinum forna þingstað Árnesinga, m. a. með því að vemda búðar- rústirnar í iandi Minna-Hofs í Gnúpverjahreppi og friða Árnesið. Var eigandi jarðar- innar Minna-Hofs og fyrrver- andi ábúandi þar Jón Andrés- son staddur á aðalfundinum, og gaf hann félaginu fullt leyfi til þess að gera þar þær framkvæmdir, sem það teldi nauðsynlegar til verndar þess- um foraminjum. Annað áhugamál félagsins er að sýna hinum fomfræga Skálholtsstað einhvern sóma, en eins og alþjóð er kunnugt hefur hann sætt langvarandi niðumíðslu, svo að þjóðar- skömm má heita. Það er að vísu ekki á valdi félagsins að leggja þar mikið af mörkum í fémunum, miðað við þau verkefni, sem þar biða og hljóta að verða unnin fyrr eða síðar. Eitt hinna sögulegu tákna staðarins er skólavarð- an, sem nú er í rústum. Hefur félagið ákveðið að endurreisa hana og hefur falið hinum MÁNUDAGSBLAUIÐ Hljómleikar Grísk söngkona, frú Díana Eu- strati, söng í Austurbæjarbíói — Þessi söngkona er mezzo-sópran og er uödd hennar vel þjálfuð, en þó ekki að sama skapi fögur. FrúT in söng 16. aldar meistara, einnig Schumann, Brahms o. fl. Hljóm- sveitarstjóri Hildebrandt aðstoð- aði. LEIKHUS: ÞjóSIeikhúsið: La Traviata. t— KJ. 20. Óperuhljómsveitin, með aðstoð, — þess sem eftir er af „sinfóníu- hljómsveitinni“ — lék í Þjóðleik- húsinu undir stjórn hr. Hilde- brandts, einnig aðstoðaði hin griska söngkona. Hljómsveitin lék úr ballettinum „Töfrar ástarinnar“ eftir de Falla. Þessa þætti lék sveitin ágætlega og söngur frúarinnar naut sín mjög vel. Þá söng frúin þrjár arí- ur úr óp. Carmen, sem voru mjög zígeunarlega sungnar — en þar af leiðandi í hinum hreina Zígeun arstíl, því sjálf Carmen var og er Zígeunertelpa. Síðast. á efnisskránni var hin fagra Tschaikovskys 5. sinf. Hr. Hildebrandt er gáfaður og ágætur listamaður, ekki síður en okkar eigin dr. Urbancic. Þessir tveir hljómsveitarstjórar leggja ekki á okkar fámennu sveit þann þunga, sem hinar stóru og þaulæfðu hljómsveitir geta borið. — Hr. Hildebrandt „improvísíerte“ Tschaikovskys fimmtu sinf. með húmör og fjöri hins fædda og lærða listamanns. Það er ánægju- leg staðreynd, að undir stjórn þessara tveggja ágætu listamanna, dr. Urbancic og hr. Hildebrandts ieikur hljómsveit vor BEZT. Sig. Skagfield. snjalla og þjóðlega listamanni Guðmundi Einarssyni frá Miðdal að gera uppdrátt og líkan af vörðunni, er byggt sé á sögulegum upplýsingum. Minningarsjóður Ámesinga er stofnaður var í tilefni af fráfalli síra Áma Sigurðsson ar, fríkirkjuprests, hefur feng ið staðfestingu stjórnarvalda á árinu. Starfsemi hans er því eigi enn komin á fullan rek- spöl, enda er stjórn hans ekki fullskipuð samkvæmt reglu- gerð. Árnesingafél. var stofnað 28. maí 1934 og er því elzta átthagafélag landsins. Ákveð- ið hefur verið að minnast tví- tugsafmælisins á næsta Ár- nesingamóti og vanda til þess eftir föngum. Stjórn félagsins var öll end- urkosin, en hana skipa þessir menn: Hróbjartur Bjamason foi-maður, Guðni Jónsson rit ari, Guðjón Vigfússon gjald- keri, Jón Guðlaugsson og Þor lákur Jónsson meðstjórnend- ur. iVlisheppnuð gamanmyndi í Gamla bbíó Það er oft, að menn, sem eitthvað gera vel einu sinni, fyllast ofmetnaði-og fá þessa leiðinlegu — ég-er-svo-f jándi- góður afstöðu til verks síns. Þessu ber ekki hvað sjaldn- ast á í listamannastéttinni, enda ber myndin Jói stökkull þess glöggt vitni. Piltarnir tveir, Dean Martin og Jerry Lewis, sem eiga að bera mynd- ina uppi og hafa borið uppi tvær myndir, sem ég hef séð þá í áður, virðast ekki þurfa lengur að vanda vinnu sína. Tvær fyrri myndir voru ný- stárlegar, frumlegar í sína einföldu vísu og nokkuð spaugilegar. Framh. á 3. síðu. Áhugamál kvenna Framhald af 5. síðu ekki við að tína upp hvern spotta, sem verður á vegi hans og vefur hann nákvæmlega upp til f rekari nota síðar meir. Martha Raye hefur límband til að líma með hæla og tær á sokkunum til að þeir endist lengur. Margaret Lindsay segir, að það sé miklu ódýrara til lengd- ar að kaupa þrenna sokka af sömu gerð í einu, og þegar hún kaupir hanzka, þá kaupir hún tvenna eins. Þetta kemur sér vel, ef annar hanzkinn tapast. Loretta Young notar sína kviltuðu inniskó þangað til þeir era svo slitnir, að þeir hanga varla saman. Basil Rathbone. — Ef þú spyrðir hann hversvegna. hann fengi sér ekki nýtt prjóna- vesti í staðinn fyrir þetta 15 ára gamla, sem hann alltaf notar, þá mundir þú særa til- finningar hans hræðilega. — Hann neitar bókstaflega að kaupa sér nýtt vesti og þetta hans gamla er margstoppað og slitið. Virginia Bruce heldur fast við ákveðin skammt af mat. Þessvegna var það, að einn dag, þegar hún settist við morgunverðarborðið, að hún saknaði smjörsins, svo hún kallaði í ráðskonuna og spurði hana um ástæðuna. Ráðskonan svaraði, að það hafi verið óvenju gestkvæmt í vikunni, svo að smjör- skammturinn væri búinn, og að þær hefðu ekki ráð á að hafa smjör fyrr en í næstu viku. Lausl. þýtt.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.