Mánudagsblaðið - 22.06.1953, Side 7
■Il
Mánudagurinn 22. júní 1953,
ATþingiskosningarnar
Framhald af 4. tsíðu.
Alþýðuflokkurinn
Á lista Alþýðuflokksins er Jón
P. Emils lögfræðingur efstur, en
hann mun ættaður þarna að aust-
an. Sterkasta vígi Alþýðuflokks-
ins er Fáskrúðsfjörður, þar sem
Eiður Albertsson ræður lögum og
lofum. Dálítið fylgi á flokkurinn
einnig í hinum þorpunum. í Nes-
kaupstað, sem var aðalvígi Al-
þýðuflokksins í tíð Jónasar Guð-
mundssonar, hefur fylgi flokksins
hrakað mjög. Alþýðuflokkurinn
fær sennilega um 300 atkvæði í
sýslunni.
KANGÁ KVALLASÝSL A
Hún er ekki spennandi. Fram-
sóknarmenn og Sjálfstæðisflokk-
urinn fá sinn manninn hvort, og
fylgi þeirra verður rnjög svipað.
Síðast var Framsókn tveimur at-
kvæðum hærri.
Framsókn
Af Framsóknarlistanum verður
kjörinn Helgi Jónasson læknir.
Helgi er vinsæll í sýslunni, ljúf-
menni hið mesta, en bardaga-
maður enginn. Næstur honum á
listanum er Bjöm Björnsson sýslu
maður, sem sjálfsagt á að verða
eftirmaður Helga með tíð og tíma.
Sjálfstæðismenn
Af Sjálfstæðislistanum verður
kosinn Ingólfur Jónsson. Ingólfur
er hárðari maður en Helgi, og um
hann héfur staðið meiri styrr.
Hann á um sig harðsnúinn flokk
í sýslunni, en einnig hatramma
andstæðinga. En allir verða þó
að viðurkenna, að Ingólfur er
harðduglegur maður. Varamaður
Ingólfs, Sigurjón í Raftholti, er
vinsæll bóndi, en ekki hefur
flokksstjórninni gengið vel að
handjárna hann.
Alþýðuflokkuriim
Óskar Saemundsson í Garðsauka
er efstur hjá Alþýðuflokknum.
Aðalbaráttumenn flokksins á
fundum verða þó sjálfsagt þeir
sr. Sigurður Einarsson og Helgi
Sæmúndsson.
Kommúnistar
Hjá kommúnistum er efstur
Magnús Magnússón kennari. —
Miklu kunnari maður er annar
maður listans, Ragnar Ólafsson
lögfræðingur, náfrændi Bjarna
Éenediktssonár ráðherra. Ragnar
var í fyrstu Framsóknarmaður,
en varð seirina gallharður línu-
kommúnisti, og er einn helzti
sérfræðingur kommúnista um lög
fræðileg efni. Hvorki Alþýðu-
flokksmenn né kommúnistar
munu ná 100 atkvæðum í sýsl-
unrií.
ÁRNESSÝSLA
Þar eru úrslitin einnig augljós,
Framcóknarmenn og Sjálfstæðis-
menn fá sinn hvor. Á'róður Fram-
sóknarmanna um það, að þeir
hafi möguleika á að vinna bæði
sætin, nær auðvitað ekki neinni
átt.
Framsókn
Jörundur Brynjólfsson verður
kjörinn af Framsóknarlistanum.
Jörundur er nú aldursforseti
á Alþingi, en er ekki aldeilis á
því að hætta þingmennsku, enda
má segja, að pólitíkin hafi nú um
áratuga skeið verið aðalatvinna
Jörundar. Eftir mikið brambolt
var Hilmar Stefánsson settur í
annað sæti listans í stað Þorsteins
á Vatnsleysu. Hilmar er vinsæll
í Árnessýslu síðan hann var
bankastjóri á Selfossi, en auðvitað
dugar það honum ekki til þess að
komast að. Hinsvegar hefur hann
kannske tryggt sér það, að verða
eftirmaður Jörundar. Annars má
vel vera, að Framsóknarmenn í
Árnessýslu auki atkvæðamagn
sitt eitthvað nú. Klíka þeirra Eg-
ils Xhorarensens og Bjarna á
Laugarvatni, sem ræður yfir 200
—300 atkvæðum, styður nú Fram
sókn eindregið, en var í fýlu við
flokkinn siðast.
Sjáífstæðismeim
Sigurður Óli Ólafsson Verður
kosinn af Sjálfstæðislistanum. —
Sigurður er mjög vinsæll á Sel-
fossi, en er minna þekktur í upp-
sveitum. Nokkur urgur hefur ver-
ið í Sjálfstæðisbændum í Árnes-
sýslu út af því að fá ekki mann
úr sínum hópi í efsta sætið. —
Nokkrir Sjálfstæðismenn í sýsl-
unni vildu fá Árna G. Eylands
efstan, en samkomulag náðist
ekki um hann. í öðru sæti listans
er Steinþór Gestsson á Hæli, bróð-
ursonur Eiríks heitins Einarsson-
ar. Steinþór er vinsæll i Hreppúm
og Biskupstungum, en er minna
þekktur niðri í sýslúnni. Hann er
hinn efnilegasti af yngri rriönn-
um flokks’ins.
Alþýðiulokkuriim
Hjá Alþýðuflokknum er efstur
Vigfús Jónsson frá Eyrarbakka.
Aðalfylgi hans er á Bakkanum,
en flokkurinn í einnig nokkurt
fylgi í hinum þorpunum í sýsl-
unni og eitt og eitt atkvæði í
sveitunum. í öðru sæti er Knútur
Kristinsson Laugarási. Ingimar
Jónsson, sem um langt skeið hef-
ur alltaf verið efstur á listanum,
er nú í neðsta sæti.
Kommúnistar
Hjá kommúnistum er Gúðmimd-
ur Vigfússon aftur efstur, en Ing-
ólfur Þorsteinsson á Selfossi í
öðru sæti. Það má nú heita furðu-
lég ráðstöfun, að hafa ekki held-
ur Ingólf efstan, innanhéraðs-
mann, sem er þaulkunnugur í
kjördæminu, og auk þess per-
sónulega vinsæll. Guðmundur ei’
.Vestfirðingur, sem engin tengsl
hefur við Árnessýslu, en er harð-
ur flokksmaður, og hefur þess
vegna órðið fyrir valinu. Fylgi
kommúnista er mest á Selfossi og
í Hveragerði. Nokkurt fylgi eiga
þeir einnig á Stokkseyri, en Eyr
arbakki hefur alltaf verið þeim
erfiður.
MÁNUDAGSB'LAÐIÐ
Erfið hjónabönd
nú situr eftir með. Þar sem
bæði hún og Vigier eru trúað
kaþólskt fólk, þá benda litlar
líkur til þess, að hjónaband
þeirra verði nokkum tíma
leyst upp, löglega. Það er lag-
leg framtíð fyrir sextán ára
stúlku.
Þreytt —
hatar potta og pönnur.
Þá komum við loksins að
þeirri tegund eiginkvenna, er
falla undir titilinn: „Eigin-
konur, sem leiðist“. Holly-
wood-dæmi: Arlene Dahl, sem
giftist Lex Barker (Tarzan-
kvikmyndanna) rétt áður en
samningar hennar við MGM-
félagið runnu út. Hún var at-
vinnulaus og var þess vegria
heima, hugsaði um matartil-
búning, saumaði o. s. fiw. —
„Það voru ydnislegustu dag-
arair,“ sagði Lex við blaða-
menn. Hún vann í fatabúð
bara í tómstundum, til þess
að vera ekki of lengi frá heim-
ilinu. En þar var tekið eftir
henni og hún komst aftur inn
í kvikmyndastörfin. Svo er að
sjá sem Arlene væri það ó-
mögulegt að_ sitja heima. Hún
krafðist skilnaðar, og Lex var
svo undrun lostinn yfir gjörð-
um hennar, að hún samþykkti
að „reyna á ný“. Hann fór
með kvikmyndafélaginu úr
HolljBvood til þess að vinna,
en þegar hann kom aftur, var
hún þegar komin fyrir rétt
með skilnaðinn. Þetta getur
maður kallað „að reyna aft-
ur“, sagði Lex, þegar hann
komst að því, að Arlene hefði
sagt dómaranum, að hann
hefði kallað hana „sveitapíu".
Vandamálið snerist raunveru-
lega ekki um uppnefni. Frúin
var bara þreytt á pönnum og
pottum.
Þrcjif — rík —
saknar eldhússins.
En svo höfum við annað
klassískt dæmi úr liíi ríka
fólksins. Lois Radizville prins-
essa kom aldrei nálægt pott-
um eða pönnum — hún salcn-
aði þeirra. Hún var þreytt á
því að vera hefðardama. —
Hvernig? Lois Lorraine Ev-
BÆTUR A SPARIFE
Sam kvæmt lögum um geng
isskráningu, stóreignaskatt o.
fl., nr. 22/1950, 13. gr., svo
og bráðabirgðalögum 20. apríl
1953, á að verja 10 milljónum
króna af skatti þeim, sem inn-
heimtist samkvæmt lögunum
til þess að bæta verðfall, sem
orðið hefur á sparifé einstakl-
inga.
Landsbanka Islands er með
fyrrgreindum lögum falin
framkvæmd þessa máls. Sam-
kvæmt auglýsingu bankans í
Lögbirtingablaðinu og öðrum
blöðum landsins, verður byrj-
að að taka á móti umsóknum
hinn 25. júni næstkomandi.—
Hér á eftir er gerð stutt grein
fyrir reglum þeim, er gilda um
greiðslu á sparifé.
Skilyrði bótaréttar.
1) Bótarétt hafa aðeins ein-
staklingar, sem áttu sparifé í
sparifjárreikningum innláns-
stofhana eða í verzlunarreikn-
ingum fyrirtækja á tímabilinu
31. desemher 1941 til 30. júní
1946. Innstæður á sparisjóðs-
ávísanabókum eru bótaslcyld-
ar, en hins vegar greiðast ekki
bætur á innstæður í hlaupa-
ans Olson, 23 ára gömul,
kynntist Radizville prins, 70
ára, í veizlu í Cannes. Hún var
amerísk og hafði komið til
Parísar til að læra. Prinsinn,
póleraður heimsmaður, fræg-
ur veiðimaður, heillaði hana.
Og þau giftu sig. Prinsmn
kynnti hana fyrir vini sínum
sem Radizville prinsessu. —
Vinurinn hneigði sig kurteis-
lega, tók hönd hennar og
kyssti á f ranska vísu og, segir
Lois: „Guð minn almáttugur,
í gær var ég bara Lois Olsen,
og nú er ég orðin prinsessa.
Þegar fólk hélt áf ram að kalla
mig prinsessu, þá trúði ég því
varla, því mér fannst ég alltaf
vera — bara amerísk stúlka.“
Loksins kom að því, að hugur
Loisu litlu gerði uppreisn
gegn þvi, sem hún kallaði
„Fiðrildislíf“, og hún skildi
við prinsinn sinn. Ef til vill
hefði verið heppilégra að Ar-
lene og Lois hefðu skipzt á
mökum.
reikningum og hliðstæðum.
reikningum.
2) Bætur greiðastá heildax-
sparif járeign hvers aðila í árs-
lok 1941, svo framarlega sem:
heildarsparifjáreign hans 30.
júní 1946 er að minnsta kosti
jafnhá heildarupphæðinni á
fyrri tímamörkunum. En sé
heildarspariféð lægra 30. júni
1946 en hún var í árslok 1941,
þá eru bæturnar miðaðar við
lægri upphæðina.
3) . Ekki eru greiddar bætur
á heildarsparif járeign, sem
var lægri en kr. 200,00 á öðru
hvoru tímamarkinu eða þeim
báðum.
4) Skilyrði bóta er, að spárí
féð hafi verið talið fram til
skatts á tímabilinu, sem hér
um ræðir. Þetta skilyrði nær
þó ekki til sparifjáreiganda,
sem vora yngri en 16 ára í.
lok júnímánaðar 1946.
5) Bótarétt hefur aðeins;
sparif járeigapdi sjálfur á hinw
umrædda tímabili eða, ef hann
er látinn, lögerfingi hans.
6) Bótakröfu skal lýst fyrir
25. október 1953, að viðlögð-
um kröfumissi, til þeirrar inn-
lánsstofnunar (verzlunarfyrir
tækis), þar sem innstæða var
á tímamörkunum, 31. desem-
ber 1941 og (eða) 30. júní
1946.
Umsóknareyðublöð fást i
öllum sparisjóðsdeildum bank.
anna, sparisjóðum og innláns-
deildum samvinnufélaga eftir
25. júní n. k. Sérstök athygli
skal vakin á því, að hver um-
sækjandi skal útfylla eitt um-
sóknareyðublað fyrir hverja.
inniánsstofnun (verzlunarfyr-
irtæki), þar sem hann átti inn-
stæðu eða innstæður, sem
hann óskar eftir að komi til
greina við úthlutun bóta.
. Að öðru leyti vísast til leið-
beininganna á umsóknareyðu-
blaðinu.
Heimilt er að greiða bætur
þessar í ríkisskuldabréfum.
Eftir lok kröfulýsingar-
frestsins verður tilkynnt, hve-
nær bótagreiðslur hefjast og
hvar þær verða inntar af
hendi.
í
FréttatHkymmig
frá Landsbanka Islands um
- -