Mánudagsblaðið - 26.10.1953, Qupperneq 8
DR EINU I ANNAÐ
j ' Orðheppni Ólafs — Gagnrýnandi fær áminningu —
Kanlca og leigan — Til rannsókuarlögreglunnar —
Templara-drykkja — Þingmenn á skemmtumim —
Ölafur Thors, forsætisráðherra, er frægastur m.a.
fyrir það, að koma vel fyrir sig orði og vinda sér skjótt
j úr vandræðum.
I kosningaleiðangri bar svo við er bifreið Ölafs
ók heim að einum fundarstaðanna að nokkrir ungir
menn höfðu safnazt saman með háreisti og höfðu á
orði að grýta bifreið Ólafs.
Óíafur hafði veður af áformi pilta, skipaði bif-
reiðarstjóra sínum að nema staðar, stökk út úr bílnum
til þeirra og sagði:
„Hvar get ég pissað, strákar?
! • Piltum varð svo orðfall, að ekkert varð úr óspekt-
um.
1
\\ *
t»jóð\iijinn upplýsir, að þjóðleikhússtjóra hafi
] ' runnið mjög í skap, vegna gagnrýni Tímans á Sumri
hallar.
Vildi hann ekki láta Tímann fá blaðamiða á næstu
sýningar, nema músikk-gagnrýnandinn skrifaði um
sýninguna. Þórarinn Tímaritstjóri brást hart við og
f kvað Þjóðleikhúsið ekki skyldu ráða gagnrýni blaðs
síns, enda, lúffaði þjóðleikhússtjóri er hann sá alvöruna.
Gott er að vita til þess að pressan hefur enn bein
j í nefinu, þegar smámenni reyna að skerða rétt hennar.
i; *
! : Orðrómur er um það, að Rahnveig Þorsteinsdótt-
] ir, fyrrv. þingmaður, sem þóttist berjast gegn okur-
leigu, geri ekki alveg éins og hún prédikaði.
Spurningin er; hversu dýr er 1 herbergi og eldhús,
sem ungfrúin leigir út í Tjarnargötu og hvað mikil
var fyrirframgreiðslan ? Hvað stór er íbúðin, sem ung-
frúin býr í, væntanlega ein?
Til runnsóknarlögreglunnar: Getur rannsóknar-
lögreglan slegið niður þann orðróm að bílstjóri, sem
fannst í höfninni, :hafi verið svo skaddaður, að efast
megi um, að hann hafi dáið af slysförum?
j Þessi orðrómur er of þrálátur til þess að viðkom-
andi aðilar geti þagað endalaust.
1 *
Templara-drykkjan heldur áfram. 1 Sjálfstæðis-
húsinu voru, um síðustu helgi, teknar um 80 smáar og
stórar vínflöskur, enda drykkjuskapur óhemjulegur.
Þjónar segja að fleiri flöskur finnist eftir dans-
leiki í danshúsum, en danshúsin seldu, meðan áfengis-
j sala var leyfð.
Vetrargarðurinn og önnur danshús höfuðstaðarins
finna enn fleiri flöskur eftir dansskemmtanir sínar.
j ★
Það er blátt áfram raunalegt, að vita til þess, að
liáæruverðugir þingmenn og forstjórar í Reykjavík,
skuli þurfa að skjótast fram á klósett, til þess að
„stinga út“ úr vasapelum sinum á skemmtunum bæj-
{■
arins.
ivað á að gera í kvöldi
KVIKMYNDAHÍIS:
Gamla bíó: Konunlegt
brúðkaup. Jane Powell. Kl. 5,
7 og 9.
Nýja bíó: Bílþjófurinn.
Anna Magnani. Kl. 5, 7 og 9.
Tjamarbíó: Vouarlandið.
Raf Vallari. KI. 5, 7 og 9.
Austurbæ jarbíó: Eftirlits-
maðurinn. Danny Kaye. Kl. 9.
Hafnarbíó: Ósýnilegi hnefa
leikarinn. Abot og Costello.
Kl. 5, 7 og 9.
Stjörnubió: Lorna Doone.
Barbara Hale. Kl. 5, 7 og 9.
Tripolibíó. Ungar stúlkur á
glapstigum.
LEIKHÚS:
Þjóðleikluisiö: Sumri hallar.
Katrín Thors, Baldvin Hall-
dórsson. Kl. 20.
Austurbæjarbíó: Sjómanna
dagsráðskabarettinn. Kl. 5. 7
og 11.
Sjálfstæðishúsið. Kabarett
Pegrunarfélagsins. Kl. 8,30.
Fyrirspurn
Er J>aS satt, aS skattsljóri
Reykjavíkur leyfi sér eftir geð
þótta aff breyta skattaframtöl-
um g jaldcnda, án þess að hafa
fyrir því að kalla viðkomend-
ur til viðtals eins og skatta-
lögin kveða skýrt á um?
Að þessu er spurt vegna
þess, að ég hefi þá sögu að
segja, að sjálfur hefi ég orðið
fyrir þessu. Mér fannst skattur
sá, sem mér er gert að grciða,
óeðlilega hár, og hef fengið
þá skýringu, að framtali mínu
hafi vcrið breytt, án þess að
ég væri til kvaddur.
B o r g a r i .
mánudagsbladið
Eftirtektarverð kiikmynd í
TJARNÁR6ÍÓ
Italir senda nú frá ser
hverja afbragðsmyndina á
fætur annarri. Myndin Von-
arlandið, sem Tjarnarbíó sýn-
ir um þessar mundir, er sann-
arlega með betri framleiðslum
þeirra, sennileg, átakanleg og
Bæjarbíó í Ifafnarfirði sýnir um þessar mundir ítölsku stórmyndina
„Lokaðir gluggar“ sem fjallar um líf vændiskonunnar, á djarfan og
raunsæan hátt. Myndin er af Elenora Rossi er leikur aðalhlutverkið.
á köflum hrífandi vel gerð.
Efnið er um þoi’psbúa, at-
vinnulausa námumenn, sem
flytja úr heimahögum í at-
vinnuleit til Frakklands. —
Strax í byrjun lenda þeir í
liöndum svikara og síðan
steðja að þeim hörmungar
ýmislegar, hörmungar, sem
vel geta hent fákæna þorps-
búa, sem skyndilega eru
dregnir út í hringiðu heims-
ins, svik hans og pretti, kulda
og samúðarleysi. Margir taka
með sér f jölskyldúr sínar, aðr
ir eiginkonur einar, enn aðrir
unnustur, elskhuga o. s. frv.
Yfir myndinni hvílir þung-
lyndisblær, mörg hugnæm at-
riði og raunveruleg, glys og
skærir litir eru blessunarlega
fá.
Eins og í fleiri itölskum
myndum nær leikstjórinn sér-
staklega raunverulegum blæ
í myndina. Hinn gullni meðal-
vegur er oft erfiðari en þegar
langt er gengið í aðra hvora
áttina og, ef vel tekst, öllu
sennilegri og áhrifaríkari en
ella yrði. Leikur aðalleikenda
jafnt og aukaleikenda, er
prýðilega hóflegur yfirleitt,
týpurnar teknar úr hvers-
dagslífinu, án alls óþarfa
skrums.
Sannarlega, eins og auglýs-
ingin segir: mynd hinna vand-
1 látu. A. B.
SPÁNNÝTT FRÁ HOLLYWOOD
Hrollvekju-framlelðsla
- i ðigleymiiigl
Góð hrollvekja er gulls ígildi, eins og allir kvikmyndafram-
leiðendur í Plollywood vita. Aðaltilgangur þeirra er að hræða
peninga út úr áhorfendum og jafnframt þá sjálfa; Um
þessar mundir eiu framleiðendur í Hollywood að undirbúa
hrollvekjuframleiðslu á sama hátt og kringum 1930 þegar
Frankenstein-myndirnar voru í mestum blóma.
THEM (Warner Bros) er um
Iröllaukna niaura, sein eru mann-
ætur. Einri fulltrúi Warner seg-
ir: „Þessir inaurar eru morðingja-
kvikindi. Þegar þeir verða átta
íet á hæð, vcrða þeir að éta, og
hvað er betra en mannakjöt?“
BRJÁLAÐI TÖFRAMAÐUR-
INN (Columbia) er einskonar
eftirleikur Vaxmyndasafnsins,
en Vincent Price leikur aðalhlut-
verkið (þrívíddarmynd). FuILtrúi
Columbia segir: „Allt og allir
hoppa fram í sýningarsaliim í
þessari mynd. Pricc sést saga höf-
uðið af ungri stúlku og er síðan
brenndur til bana i stálskáp, sem
hefur glerrúðu."
MAÐURINN FRÁ MARS (Col-
umbia, þrívíddarmynd) sem
„Jungle Sam“ Katzman íramieið-
ir, eru um nýja x-bombu. „Ef
þcssi x-bomba springur", segir
Katzman, „þá raskast þungainiðja
alheimsins". Þá koma innrásar-
menn utan úr geimnum, en Katz-
man liefur ekki ákveðið hvernig
þeir eiga að líta út: „E£ til vill
verður hausinn á þeim eggmynd-
aður eða þeir hafa bara hjálma“.
KATTARKONA TUNGLSINS,
(Independent, þrívíddarmynd),
fjallar um könnunarmenn frá
jörðinni á tunglinu. Þar, segir
A1 Zimbalist framleiðandiun,
finna þeir „viðbjóðslega gripi
eins og köngvlær með fjögnr
augu, sem spú eitraðri gutu‘‘.
HINN MIKLI OG (Independ-
ent þrvíddarmynd) segir Albert
Zugsmith er „vísindaleg skáld-
saga, sem slteður á hinni ímynd-
uðu stjörnu Aphrodite. OG er eitt
livað, sem cr ekki alveg mannlegt
eins og t. d- Hollywood áróðurs-
maffur eða kvikmyndagagnrýn-
ábidi. Iiánn er tveim sinnum
stærri en maðúPiAn, hann hef-
ur grænt blóð“.
. SVARTA VATNIÐ (Universal-
International, þriggjavíddar-
mynd) er um „tálkna-manninn"
þ. e. a. s. liálf-mann og hálf-fisk,
sem lítur út eins og froskur.
( Úr Time magazine 19. október
1953.)
Eins og sjá má af undan-
farandi er talsvert í undirbún-
ingi í Hollywood. Framleið-
endur kvikmynda virðast fulí
vissir um það, aðrar myndir
en svona ,,goil“ borgi sigekki.
En þeir ættu að hugsa sig
tvisvar um áður en þeir senda
þetta á markaðinn, þótt það
kunni að ganga vel heima fyr-
ir.