Morgunblaðið - 24.02.2005, Side 1

Morgunblaðið - 24.02.2005, Side 1
2005  FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR BLAÐ D B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A SKABEIKIS ÁTTI STÓRLEIK MEÐ ÞÓR Í EYJUM / D2 Jose Mourinho, knattspyrnustjóriChelsea, kom öllum á óvart skömmu fyrir leik og breytti byrj- unarliðinu sem hann hafði gefið út daginn áður. Í stað Eiðs Smára Guð- johnsen setti hann Damien Duff í byrjunarliðið og hann átti eftir að koma við sögu. Eiður Smári kom inn á 75. mínútu. Börsungar tóku öll völd á vellinum um leið og Anders Frisk, sænskur dómari leiksins, flautaði til leiks. Mourinho mætti með sína menn til leiks með það fyrir augum að verjast af krafti og reyna að lauma inn einu eða fleiri mörkum úr skyndisóknum. Þegar Chelsea náði að stilla vörninni upp komust leikmenn Barsa hvorki lönd né strönd. Reyndar fengu þeir fín færi í upphafi leiks þegar þeir nýttu kantana nægilega vel og bolt- inn var sendur fyrir markið. Það gerðu þeir ekki lengi heldur sneru sér að því að sækja inn á miðjuna og það kunni varnarmúr Chelsea við. Drogba fékk gult spjald á 16. mín- útu og var það rangur dómur hjá Sví- anum snjalla. Hann átti þó eftir að gera verri mistök því á 56. mínútu sýndi hann Drogba aftur gult og rautt í kjölfarið. Þetta spjald kom þegar framlínumaðurinn var í bar- áttu um boltann við markvörð Barce- lona og reyndi eins og hann gat að losna við snertingu. Leikaðferð Chelsea breyttist í raun ekki mikið við þetta, fór úr 4- 5-1 í 4-5-0 en óneitanlega tók meira á að vera einum færri og þolinmæði Börsunga skilaði þeim tveimur mörkum seint og um síðir. Þeir gerðu öll þrjú mörkin, fyrst Belletti eftir fyrirgjöf frá Duff frá hægri. Hann reyndi að koma í veg fyrir að boltinn færi til Cole sem var aleinn fyrir aftan hann, en setti bolt- ann í netið. Í síðari hálfleik jafnaði Maxi Lop- ez með fínu marki á 66. mínútu og hafði hann aðeins verið inn á í þrjár mínútur. Síðara markið gerði Eto’o eftir sendingu frá Lopez. Raunar virtist hann ætla að skjóta þar sem hann var hægra megin í vítateignum, hitti boltann illa og Eto’o stakk sér á milli varnarmanna og skoraði. Tæpt á Nývangi LITLU munaði að Chelsea tæk- ist að krækja sér í jafntefli þeg- ar liðið lék á Nou Camp gegn Barcelona í fyrri leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í knatt- spyrnu í gærkvöldi. Chelsea komst yfir í fyrri hálfleik en Börsungar skoruðu tvívegis í þeim síðari og sigruðu 2:1. Ágæt úrslit í sjálfu sér fyrir Chelsea sem á heimaleikinn til góða og dugar 1:0-sigur þar. EFTIR leik Barcelona og Chelsea í gær mættu hvorki framkvæmda- stjóri né leikmenn Chelsea á blaða- mannafund eftir leikinn. Þess í stað mætti Simon Greenberg, talsmaður Chelsea, á fundinn og baðst velvirð- ingar á að enginn úr liðinu skyldi mæta. „Við munum leggja fram kvörtun til UEFA vegna atviks sem varð í leikhléi. Fleira segjum við ekki í kvöld,“ sagði hann. Eftir því sem næst verður komist er atvik þetta orðaskipti sænska dómarans Anders Frisk og Frank Rijkaards, stjóra Barcelona. Hol- lendingurinn segir viðbrögð Chelsea ýkt og segist aðeins hafa kastað kveðju á Frisk. Fréttamað- ur Sky segir að eftir að Rijkaard hafi sagt „halló“ við dómarann hafi Mourinho elt Frisk að búningsher- bergi sínu og sagt: „Þú getur ekki gert þetta, þú getur ekki gert þetta. Ég ber fram formlega kvört- un.“ „Fannst ykkur þetta ekki góður leikur?“ spurði Eto’o blaðamenn þegar flautað var til leiksloka, en hann gerði sigurmarkið fyrir Barcelona. „Við áttum von á svona leik og þetta gekk upp hjá okkur. Við erum með forystuna og hver veit nema við gerum betur í síðari leiknum í Englandi og þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur,“ sagði markaskorarinn. Chelsea kvartar við UEFA JÓHANN Ólafsson, leikmaður Njarðvíkinga í körfuknattleik, var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann vegna atviks í leik KR og Njarðvíkur í drengjaflokki. Þar henti Jóhann knettinum í annan dómara leiksins. Jóhann verður því í banni í næstu þremur leikjum þar sem hann er gjaldgengur sem leik- maður. Jóhann í þriggja leikja bann DANSKA handknattleiksliðið Skjern, sem Aron Kristjánsson þjálfar, gerði sér lítið fyrir og skellti efsta liði dönsku úrvals- deildarinnar, Århus GF, 28:23, á heimavelli í gærkvöldi eftir að hafa verið með yfirburðastöðu all- an leikinn, m.a. 15:9, í hálfleik. Jón Þorbjörn Jóhannsson skoraði 5 mörk fyrir Skjern og Ragnar Óskarsson fjögur en með sigr- inum komst liðið í þriðja sæti deildarinnar, hefur 23 stig að loknum 18 leikjum. Róbert Gunn- arsson komst lítt áleiðis í leiknum, varð að láta sér nægja 3 mörk, þar af eitt úr vítakasti. Sturla Ás- geirsson skoraði ekki fyrir Ár- ósarliðið. Århus GF er eftir sem áður í efsta sæti deildarinnar, hefur 26 stig úr 17 leikjum en Kolding, sem lék ekki gærkvöldi vegna ófærðar í Danmörku, er í öðru sæti með 25 í 16 leikjum. GOG er í fjórða sæti með 22 stig úr 16 leikjum. Skjern skellti toppliði Århus GF HEIÐAR Helguson, landsliðs- maður í knattspyrnu, verður nær örugglega ekki með Wat- ford á laugardaginn þegar liðið tekur á móti Úlfunum í ensku 1. deildinni. Heiðar, sem er markahæsti leik- maður liðsins á tímabilinu með 16 mörk, fékk högg á hnéð í leik gegn Sunderland þann 12. febrúar og gat ekki leikið með liði sínu sem vann góðan útisigur á Ipswich í fyrrakvöld. „Þetta eru engin alvarleg meiðsli. Hnéð er bara ennþá talsvert bólgið og ég hef því ekkert getað æft frá því þetta gerðist í leiknum við Sunderland. Ég býst ekki við að spila á móti Wolves um helgina en ég verð örugglega tilbúinn um aðra helgi,“ sagði Heiðar í samtali við Morg- unblaðið í gær. Brynjar Björn Gunnarsson, félagi Heiðars hjá Wat- ford, er einnig meiddur í hné og hefur verið frá í síðustu þremur leikjum. Reiknað er með að hann verði klár í slaginn um aðra helgi, líkt og Heiðar, en þá mætir Wat- ford liði Coventry á heimavelli. Heiðar og Brynjar verða ekki með á móti Úlfunum Heiðar AP Kamerúninn Samuel Eto’o gerði sigurmark Barcelona, 2:1, gegn Chelsea, eftir að Chelsea hafði komist yfir. Hér er hann í baráttunni við Tiago, portúgalska leikmanninn í liði Chelsea.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.