Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 4
4 B FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
- . /0
!"
"
#1&02$%!&
!"'(
) "* #31 41
53'
1
/3(
2
# (
+
67 7
8 (7
92
:
1& &
;**<
=&
>283
/38
8?+
!!
!!!
@ @ @ A
@ @!
@
@!
@ ,
"
*%
"
*%
!"1&02
BC 1
*
B&
*
9 && 1+
97
/
*
/>
*
, 0 &
)90 &
)+
> 0 &
-
D
83 &*
# (3
# (8380
E
6F$G H. I
/J#$
D-G
&&
K I&
%82
SÍF hf. hefur selt 55% hlut í dótturfélagi sínu,
Iceland Seafood International ehf., sem stofnað
var í nóvember í fyrra um hefðbundið sölu- og
markaðsstarf félagsins með sjávarafurðir.
Kaupandi hlutarins er fjárfestingafélagið Feldir
ehf. Þá hefur SÍF jafnframt selt allan eignarhlut
sinn í Trosi ehf. í Sandgerði sem hefur sérhæft
sig í útflutningi á ferskum sjávarafurðum. Tros
verður dótturfélag Iceland Seafood Internation-
al. Feldir ehf., er í eigu Mundils ehf. (í eigu Sam-
skipa), Benedikts Sveinssonar, Kristjáns Þ.
Davíðssonar, Bjarna Benediktssonar og Hjör-
leifs Jakobssonar.
Sameining við B. Benediktsson
Samhliða þessum kaupum hafa tekist samning-
ar milli nýrra eigenda og eigenda fiskútflutn-
ingsfyrirtækisins B. Benediktsson ehf. um sam-
einingu félaganna undir nafni Iceland Seafood
International. Mun Bjarni Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri B. Benediktsson, og annar aðal-
eigandi, leiða saltfisksölu hins sameinaða fyr-
irtækis. Eftir þessar breytingar verður Iceland
Seafood International með veltu upp á rúmlega
30 milljarða króna, rúmlega einn milljarð króna
í eigið fé og um 250 starfsmenn. Félagið stundar
umfangsmikið markaðs- og sölustarf með fersk-
ar, frystar og saltaðar sjávarafurðir víðs vegar
um heim og er með starfsstöðvar á Íslandi, í
Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Litháen,
Póllandi, Grikklandi, Kanada, á Ítalíu og Spáni.
Að loknum fyrirhuguðum eignarhaldsbreyt-
ingum er gert ráð fyrir að eignarhald Iceland
Seafood International (ICI) verði í stórum
dráttum þannig að Fjárfestingafélagið Feldir
ehf. eigi 55%, SÍF hf. 25% og starfsmenn 20%.
Við þessi kaup hættir Örn Viðar Skúlason,
framkvæmdastjóri ICI, störfum hjá félaginu en
hann tók í byrjun árs 2003 að sér tímabundið
rekstur, umbreytingu og aðskilnað á markaðs-
og sölustarfsemi félagsins fyrir sjávarafurðir en
með sölunni lýkur því verkefni. Örn segir að
með sölunni sé rekið ákveðið smiðshögg á þá
umbreytingu sem menn hafi unnið að. „Ákvörð-
un um viðskilnað minn við SÍF og Iceland Sea-
food hefur verið í farvatninu um nokkurn tíma,
en við sölu SÍF á Iceland Seafood International
verða ákveðin vatnaskil í þeim verkefnum sem
ég hef sinnt fyrir félagið að undanförnu og því
tel ég þetta hentugan tímapunkt til að gera
breytingar á mínum högum og snúa mér að
öðru. Ég ætla að byrja á að taka mér gott frí og
svo kemur í ljós hvað maður fer að sýsla.“
Nýr forstjóri Iceland Seafood International
verður Kristján Þ. Davíðsson, áður forstjóri
Granda hf. og aðstoðarforstjóri HB Granda ehf.
Benedikt Sveinsson, áður forstjóri Iceland Sea-
food Corporation í Bandaríkjunum, verður
stjórnarformaður félagsins. Kristján segir að fé-
lagið eigi að vera alhliða fiskútflutningsfyrir-
tæki. „Eins og ég lít á það er okkar framtíð haf-
sjór tækifæra og við erum sjálfstætt fyrirtæki
sem getur boðið íslenskum framleiðendum upp
á heildarlausn í þeirra sölumálum. Hér inni er
gríðarleg reynsla og þekking sem við byggjum
á.“ Kristján segir mál fyrrum starfsmanna ICI,
sem hafi ráðið sig í í þjónustu Seafood Union,
vera í lögformlegum farvegi og ICI sé aðili að
því máli. „En okkar aðkoma breytir engu um
gang þess máls.“
Aðspurður segir hann að hugsunin með sam-
einingu við B. Benediktsson sé að geta boðið
framleiðendum upp á sem bestan markaðsað-
gang. „ Eins og ég orðaði það við starfsfólkið þá
erum við mörg sem þekkjum Bjarna [Bene-
diktsson] og vitum að það er betra að hafa hann
með sér í liði en móti.“
Jakob Sigurðsson, forstjóri SÍF, segir söluna
í takt við þá stefnu félagsins að skilja að full-
vinnslu og hefðbundið markaðs- og sölustarf
með sjávarafurðir og skerpa þar með áherslur í
starfseminni. „Það á ekkert að þurfa að koma á
óvart í þessu.“
„Okkar framtíð hafsjór tækifæra“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alhliða fiskútflutningsfyrirtæki Iceland Seafood International mun m.a. flytja út ferskan fisk.
Örn Viðar Kristján Þ. Jakob Ó.
Hættir, tekur við, selur
Örn: „Ég ætla að byrja á að taka mér gott
frí.“ Kristján: „Hér inni er gríðarleg reynsla
og þekking sem við byggjum á.“ Jakob: „Það
á ekkert að þurfa að koma á óvart í þessu.“
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
SEX konur sitja í stjórnum
fimmtán veltumestu fyrirtækj-
anna í Kauphöll Íslands og fjölg-
aði þeim um eina í aðal-
fundahrinu þessa árs. Samtals
eru stjórnarsætin 87 talsins og
er hlutfall kvenna 6,9% að því
gefnu að engin kona taki sæti í
stjórn Samherja á aðalfundi fé-
lagsins í næstu viku en sjálf-
kjörið er í stjórn Actavis Group
á aðalfundi sem haldinn er í dag.
Stjórn Burðaráss er sú eina
þar sem hlutur kvenna jókst en
þar sat kona fyrir í stjórn og er
hlutfall kvenna í þeirri stjórn nú
orðið 40%.
Í byrjun febrúar sl. þegar
fyrstu aðalfundir ársins voru
haldnir sendi Valgerður Sverr-
isdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, stærstu fyr-
irtækjum landsins bréf þar sem
farið var fram á að forsvars-
menn þeirra beittu sér fyrir
auknum tækifærum fyrir konur
til setu í stjórnum viðkomandi
fyrirtækja.
„Þátttaka íslenskra kvenna í
stjórn skráðra fyrirtækja hér-
lendis er minni en í nær öllum
þeim löndum sem við berum
okkur saman við,“ sagði meðal
annars í bréfinu. Í kjölfarið lýsti
hún þeirri skoðun sinni að ekki
væri æskilegt að þurfa atbeina
löggjafans til að auka hlut
kvenna í stjórnum félaga.
Konum í stjórnum
fjölgaði um eina
-./0 1",
!"+ )
BC 1
*
B&
*
9 && 1+
*
97
/>
*:/
7
/
*
, 0 &
) *L
0 &
)+
> 0 &,
-
D
M 8
# (3I
# (
E
#B-JB>#
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
2
2
2
3
3
2
3
3
2
3
2
2
2
2
2
4
/3+
% 3'
5 8
&
N8
&1
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
2
2
2
5
3
2
3
3
2
3
2
2
2
2
2
6
/3+
% 3'
5 8
&
N8
&1
I 7L1%
8 7
& & = 3'# (3 7 8 %= 1&
LÁNTÖKUR bandarískra fyrir-
tækja hafa aukist verulega á síð-
ustu misserum og námu lán fyr-
irtækja sem ekki starfa innan
fjármálageirans á lokafjórðungi
síðasta árs alls
428,5 milljörð-
um Banda-
ríkjadala, sem
samsvarar ríf-
lega 26 billjón-
um íslenskra
króna.
Samkvæmt
The Economist
hafa lántökur
ekki verið hærri síðan á öðrum
fjórðungi ársins 2000. Samtímis
hafa skammtímalán aukist um 8%
það sem af er ári.
„Hvers vegna,“ spyr dálkahöf-
undur The Economist. Hagnaður
fyrirtækja hefur verið mjög góður
upp á síðkastið auk þess sem
lausafjárstaða þeirra hefur sjaldan
verið betri.
Yfirtökur með reiðufé
Ástæðan er sú að hans mati að
stór hluti af samrunum og yfirtök-
um síðustu mánaða hafa verið fjár-
magnaður með reiðufé auk þess
sem fyrirtækin eru að reyna að
laða til sín fleiri fjárfesta. Það gera
þau með því að borga hærri arð og
þar með þurfa þau að hafa reiðufé
handbært.
Lántökur
fyrirtækja
í Banda-
ríkjunum
aukast
J (
J (
J (
J (
80 ( 3
!!
80 ( 3
80 ( 3
80 ( 3
!!
!
!