Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 32
Hvort sem fyrirtækið þitt er stórt eða smátt getur þú
treyst því að Síminn leggur sig fram um að þekkja þarfir
þess. Við sníðum samskiptalausnirnar þannig að þær
passi fullkomlega og mæti óskum þínum um öruggt
samband við samstarfsfólk og viðskiptavini nær og fjær.
Þitt fyrirtæki er einstakt.
Síminn þjónustar yfir 15.000 fyrirtæki á Íslandi
Þau eru öll einstök
800 4000 - siminn.is
Við hjálpum þér
að láta það gerast
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
3
4
2
4
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
3
4
2
4
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
L
ilja Dóra Halldórsdóttir er fædd í Vest-
mannaeyjum í desember 1967 og er þar
uppalin. „Því fylgir mikið frelsi að alast upp
í Vestmannaeyjum. Maður er beintengdur
við náttúruna, hún er algjörlega hluti af líf-
inu. Ég var niðri í fjöru, uppi á fjöllum, niðri á bryggju
auk þess sem maður fór á sjó og út í eyju. Eyjar eru æv-
intýraheimur fyrir krakka að alast upp í,“ segir Lilja
Dóra.
Úr MR í lögfræði
Hún flutti til Reykjavíkur á unglingsárunum og fór í
Menntaskólann í Reykjavík en þaðan útskrifaðist hún
árið 1987 og fór svo í lögfræði við Háskóla Íslands. Það-
an útskrifaðist hún 1994 og tók svo að starfa sem lög-
fræðingur hjá Skeljungi. Hjá Skeljungi starfaði ég allt til
ársins 1998 þegar fjölskyldan fluttist til Brüssel. Þar
starfaði hún í verkefnum fyrir Eftirlitsstofnun EFTA og
einnig lauk hún MBA námi árið 2001.
„Þegar ég útskrifaðist úr lögfræðinni fór ég strax að
vinna í viðskiptaumhverfi. Ég fékk að kynnast ýmsu og
fékk mikinn áhuga á viðskiptalífinu, miklu meira en bara
lögfræðihliðinni. MBA námið var þess vegna eðlilegt
framhald fyrir mig og í kjölfarið fékk ég aukinn áhuga á
stjórnun og stefnumótun,“ segir Lilja Dóra.
Í stjórn Samskipa
Í Brüssel var fjölskyldan í sex ár og fluttu þau heim á
síðastliðnu hausti. „Ég fékk starf hjá Háskólanum í
Reykjavík og nú er ég aðjúnkt við viðskiptadeild og leið-
beinandi á námskeiðum við stjórnunarskóla Háskólans í
Reykjavík,“ segir Lilja Dóra.
Nýlega tók Lilja Dóra sæti í stjórn Samskipa og þegar
hún er spurð hvað hún telji sig geta lært af því og hvað
hún telji sig geta fært fyrirtækinu segir hún „Samskip
eru að mínu mati vel rekið fyrirtæki og í mjög spennandi
stöðu í dag. Ég held að það sé afskaplega gaman að fá að
taka þátt í því sem er að gerast þarna. Á skömmum tíma
hefur fyrirtækið unnið sig upp í að vera alþjóðlegt flutn-
ingafyrirtæki.“
Áhugi á hundum
Í lögfræðinni kynntist Lilja Dóra manni sínum sem heit-
ir Jónas Friðrik Jónsson. Hann er lögfræðingur og er að
ljúka störfum sem framkvæmdastjóri hjá Eftirlits-
stofnun EFTA. Þau eiga tvö börn, 15 ára stelpu og 8 ára
strák.
En hvað gerir hún í frítíma sínum?
„Ég er mikil hundamanneskja og hef mikla gleði af
dýrum. Hundarnir hafa fylgt mér mjög lengi en í dag á
ég tvo hunda.“
Ein helsta vinkona Lilju Dóru staðfestir þetta. „Það er
ekki hægt að tala um Lilju öðruvísi en að minnast á
helsta áhugamál hennar en það eru hundar. Slík er þekk-
ing hennar og fróðleikur um hunda að hún fær alla til að
horfa á hunda í nýju ljósi,“ segir hún.
Að eigin sögn er Lilja Dóra mikil útivistarmanneskja
og þá er það fjallamennska sem á hug hennar. „Ég hef
fyrst og fremst áhuga á fjallgöngu en á veturna fer ég í
jeppaferðir sem einnig er mjög skemmtilegt,“ segir hún.
Eilítið viðutan
Ein vinkvenna Lilju Dóru sem Morgunblaðið talaði við
segir að Lilja Dóra sé með klárasta og skarpgreindasta
fólki sem hún hafi kynnst og segir: „Hún hefur unun af
því að sökkva sér djúpt í viðfangsefni sem heilla hana, og
þá hlífir hún sér ekki.“
Eins og er algengt með slíkar manneskjur á Lilja
Dóra það þó til að vera utan við sig. „Ég man eiginlega
ekki eftir því að vera með henni án þess að hún gleymi
einhverju,“ heldur hún áfram. Innt eftir þessu hlær Lilja
Dóra og segir: „Ég passa alltaf að hafa einhverja mann-
eskju sem getur minnt mig á hlutina en ég man eftir
þeim sjálf ef ég hef engan annan til þess.“
Skarpgreind
hundamanneskja
Morgunblaðið/RAX
Lilja Dóra Halldórsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum
1967. Eftir að hafa lokið námi í lögfræði og MBA-gráðu
starfar hún nú við HR og á sæti í stjórn Samskipa.
sverrirth@mbl.is
SVIPMYND
DAGBÓK | VIÐSKIPTI
Aðalfundur
31. mars | Alþjóðlegur skattarétt-
ur í örri þróun. Lagadeild Við-
skiptaháskólans á Bifröst efnir til
málþings um al-
þjóðlegan skatta-
rétt kl. 13 en það
verður haldið í
Hriflu á Bifröst.
Aðgangur að mál-
þinginu er ókeyp-
is og öllum opinn.
Fyrirlesarar
verða lögfræð-
ingarnir Bern-
hard Bogason frá
KPMG, Elín
Árnadóttir frá PWC, Erna Hjalte-
sted frá Logos, Páll Jóhannesson
frá Deloitte og Touche, Ragnheiður
Snorradóttir frá fjármálaráðuneyt-
inu og Vala Valtýsdóttir frá Taxis.
Aðalfundur | Actavis Group hf.
verður haldinn á Grand Hótel kl. 17.
Atkvæðaseðlar og önnur fund-
argögn verða afhent við upphaf
fundarins.
Neytendahegðun
6. apríl | Hvaða stefnu á markaður-
inn að taka? er yfirskrift ráðstefnu
á Nordica Hótel sem stendur frá kl.
9-12. Þar mun
Reinier Evers,
stofnandi Trend-
watching.com,
kynna greiningu
sína á kaup-
hegðun almenn-
ings á heimsvísu
en Evers er
margreyndur í að
greina breyt-
ingar á neytenda-
hegðun
Berlín | Viðskiptafulltrúi VUR,
Ruth Bobrich, frá sendiráði Íslands
í Berlín, verður með viðtalstíma 6.,
7. og 8. apríl. Gert er ráð fyrir að
fundur viðskiptafulltrúa með
hverju fyrirtæki standi í eina
klukkustund en fundirnir verða
haldnir á skrifstofu Útflutnings-
ráðs, Borgartúni 35, þar sem einnig
má bóka tíma.
ll INNLENT
Bernhard
Bogason
Reinier Evers
31. mars | Birtar verða tölur um at-
vinnuleysi, landsframleiðslu og
væntingar heimilanna í Frakklandi
auk atvinnuleysis í Þýskalandi og
landsframleiðslu í Hollandi.
Ennfremur verða birtar tölur um
vísitölu neysluverðs í Mynt-
bandalagi Evrópu auk talna um trú
almennings á efnahagslífið og talna
um stöðu fyrirtækja innan banda-
lagsins. Í Bandaríkjunum verða
birtar tölur um tekjur og neyslu al-
mennings auk þess sem tölur um ný-
skráða atvinnulausa og pantanir
iðnfyrirtækja verða opinberaðar.
4. apríl | Vísitala
framleiðsluverðs
í Myntbandalag-
inu og efnahags-
horfur í Evrópu-
sambandinu
verða opinber-
aðar.
5. apríl | Vísitala smásöluverðs í
Myntbandalaginu verður birt.
6. apríl | Vikulegar tölur um trú al-
mennings á efnahagslífið verða
birtar í Bandaríkjunum.
ll ERLENT
Tölur um framleiðslu og atvinnuleysi
Innleiðing kerfa
1. apríl | Hópvinnukerfi standa fyrir morgunverð-
arfundi á Grand Hótel kl. 8.30 þar sem mikilvæg atriði
við innleiðingu kerfa verða rædd af stjórnendum nokk-
urra fyrirtækja sem hafa gengið í gegnum stór verkefni
af þeim toga. Á meðal þeirra sem halda erindi er Karl
Friðriksson, framkvæmdastjóri Iðntæknistofnunar. Karl Friðriksson
Vísitala innkaupastjóra
1. apríl | Vísitala innkaupastjóra í Bretlandi og löndum
Myntbandalagsins verður birt auk atvinnuleysistalna í
bandalaginu. Ennfremur verða tölur um atvinnuleysi í
marsmánuði í Bandaríkjunum birtar.