Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 24
24 B FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur HBGranda hf. verður haldinn
föstudaginn 15. apríl 2005 í matsal
fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík,
og hefst hann kl. 17:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 18. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin
hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Einnig er hægt að nálgast þessi gögn á vefsíðu
félagsins,www.hbgrandi.is.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað frá kl. 16:30.
Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði tekin til
meðferðar á aðalfundinum þarf skrifleg beiðni um
það að hafa borist félagsstjórn með nægjanlegum
fyrirvara, þannig að unnt sé að taka málið á
dagskrá fundarins.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn, en
hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega.
Stjórn HBGranda hf.
Norðurgarður | 101 Reykjavík | www.hbgrandi.is
F
A
B
R
I
K
A
N
Aðalfundur
2005
M
erki Heilsuhússins
verður haldið á lofti
og vörur þess munu
fara víðar en áður
eftir kaup Lyfju á
fyrirtækinu Heilsu og verslununum
Heilsuhúsið. Þetta segir Örn Svav-
arsson að sé meginástæðan fyrir því
að hann hafi ákveðið að selja fyr-
irtækið til Lyfju. Hann segir að í
gegnum tíðina hafi margir falast eft-
ir fyrirtækinu, enda hafi reksturinn
gengið vel, auk þess sem markaður-
inn fyrir heilsuvörur af ýmsu tagi
fari stöðugt vaxandi.
„Vegna þess hve margir höfðu
haft samband hafði ég myndað mér
skoðun á því hver gæti verið heppi-
legur eða æskilegur kaupandi á
Heilsu,“ segir Örn. „Á þeim lista
mínum voru fáeinir aðilar og Lyfja
var í þeim hópi. Ég mat það fyrst og
fremst út frá því hver gæti hugs-
anlega haldið merki Heilsuhússins
áfram vel á lofti en gæti jafnframt
nýtt sér það. Lyfja smellpassar að
þessum hugmyndum mínum og mun
úrval af þeim vörum sem við bjóðum
fara inn í öll apótek Lyfju. Þetta á til
að mynda við um þá vítamínlínu sem
við höfum þróað hjá Heilsuhúsinu,
og stundum er kölluð guli miðinn.
Þessi lína mun nú fá veglegan sess í
apótekum Lyfju. Það þykir mér
vænt um því ég tel mjög mikilvægt
að það starf sem unnið hefur verið
hjá Heilsuhúsinu verði unnið
áfram.“
Örn segir að verslanirnar Heilsu-
húsið verði áfram reknar óbreyttar í
þeirri mynd sem verið hefur. Þá
muni núverandi starfsmenn þeirra,
sem eru liðlega 20 talsins, einnig
starfa áfram hjá fyrirtækinu, og þar
á meðal bæði hann og fram-
kvæmdastjórinn Hafdís Þorsteins-
dóttir. „Mín verkefni verða eins og
hingað til að vinna að vöruþróun,
vera með í ákvörðun á vöruvali,
finna ný umboð, þróa ný bætiefni og
vinna að markaðsmálum.“
Heilsa hefur flutt inn vítamín,
heilsufæði og lífrænt ræktaðan mat
og bætiefni til sölu í eigin búðum og
til dreifingar í aðrar verslanir, apó-
tek og veitingahús. Fyrirtækið var
stofnaði árið 1973. Örn segir að
fyrstu árin hafi hann verið eini
starfsmaðurinn.
Áhuginn frá móðurinni
„Þetta var hæg þróun í upphafi. Ég
keypti fyrstu vörurnar á fyrsta
starfsárinu og fékk þær seldar í
Náttúrulækningabúðinni og hjá
Sláturfélaginu. Jóhannes Jónsson í
Bónus var þá með SS-búðina í Aust-
urveri og hann var mjög framsýnn.
Hann kom upp stórri heilsu-
vörudeild í búðinni, sem var ekki al-
gengt á þessum tíma. Reyndar höfðu
afskaplega fáir í matvörugeiranum
áhuga á þessu þá.“
Fyrsta verslunin sem Örn opnaði
undir merkinu Heilsuhúsið var á
Skólavörðustíg í Reykjavík. Það var
árið 1979.
„Móðir mín Elfriede Kjartansson
var með mér í byrjun, en það var
einmitt hún sem vakti áhuga minn á
heilsuvörum almennt. Hún er þýsk
og hafði alltaf haft áhuga á þessu.
Hún hafði lesið sér mikið til um jurt-
ir og grös og lækningamátt þeirra
og keypt ýmsar vörur frá útlöndum.
Mér er það minnisstætt að ef eitt-
hvað var að okkur systkinunum þá
fengum við beiska útlenda jurta-
dropa hjá henni, jafnt við hálsbólgu
sem magakveisu. Þessir jurtadropar
eru reyndar enn til í apótekum og
heilsubúðum í Þýskalandi, en þeir
heita Klosterfrau Melissengeist.
Sumum þótti nafnið fyndið
Örn segir að Heilsuhúsið hafi mark-
að sér skýra og ákveðna stefnu.
„Þegar Heilsuhúsið var opnað 1979
var strax lagt mikið upp úr lífrænt
ræktuðu. Á þessum tíma var lífrænt
ræktað frekar dýrt, við það bættust
há aðflutningsgjöld og þekking á líf-
rænni ræktun var afar takmörkuð
og áhugi almennings því lítill. Í dag
eru flestar vörur í Heilsuhúsinu úr
lífrænni ræktun, enda eru æ fleiri að
átta sig á gæðum þeirrar vöru, bæði
hvað varðar bragð og hollustu.“
Hann segir að mikið sé lagt upp úr
því að þær vörur sem fást í versl-
ununum fullnægi ströngum kröfum
og margar vörutegundir komist þar
ekki inn. „Við höfum til að mynda
haldið Heilsuhúsinu alveg hreinu af
vörum sem innihalda efni eins og
MSG, svonefndu þriðja kryddi. Það
er sífellt að stækka sá hópur fólks
sem hefur óþol fyrir því og svo eru
jafnvel margir sem af heilsufars-
ástæðum kæra sig ekki um að borða
vörur sem innihalda þetta efni.
Að sögn Arnar er MSG annars í
flestum súpum, sósum, krydd-
blöndum, snakki og ýmsum hefð-
bundnum vörum sem seldar eru í
verslunum í dag. Hann segir að
þetta efni hafi lengi verið notað en á
síðastliðnum 5–6 árum hafi almenn
vitund um það hins vegar aukist
mikið.
„Það má segja að á allra síðustu
árum hafi átt sér stað vakning í því
sem snýr að heilsuvörum almennt.
Þegar ég var að byrja á þessu þótti
þetta frekar skrýtið. Og margir
töldu að þær heilsuvörur sem við
vorum að bjóða upp á væru ein-
göngu fyrir þá sem voru með melt-
ingartruflanir eða eitthvað svoleiðis.
Þá þótti nafnið Heilsuhúsið nánast
fyndið í huga sumra. Það er því
óhætt að segja að hugarfarsbreyt-
ingin sé mikil á þeim rúmlega þrem-
ur áratugum sem liðnir eru frá því
þetta hófst. Nú er hins vegar kom-
inn tími til að fleiri komi að þessum
málum,“ segir Örn Svavarsson.
Merki Heilsuhússins
haldið á lofti
Lyfsölukeðjan Lyfja
keypti fyrirtækið
Heilsu fyrir
skemmstu. Heilsa
rekur þrjár verslanir í
Reykjavík og Kópa-
vogi undir nafninu
Heilsuhúsið. Örn
Svavarsson stofnaði
Heilsu fyrir rúmum
þremur áratugum.
Grétar Júníus Guð-
mundsson ræddi við
Örn Svavarsson.
Morgunblaðið/Eyþór
Morgunblaðið/Árni Torfason
Meiri útbreiðsla Örn Svavarsson segir að vörur Heilsuhússins verði víðar í boði en áður eftir kaup Lyfju.
gretar@mbl.is