Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 26
26 B FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
TEMPRA - leiðandi í framleiðslu EPS umbúða á Íslandi í 20 ár
Sími: 550 9600 • fmv@fmv.is • www.fmv.is
Við vöktum allar fréttir - alla daga!
Ómetanleg fréttayfirsýn
• Fréttavöktun
- er þitt fyrirtæki í fréttum?
- missir þú af umfjöllun um vörur
þínar eða atvinnugrein?
• Aðgangur að gagnasöfnum frétta
• Greining fréttaumfjöllunar
• Innihalds- og ímyndargreining
Það gilda sömu lögmál á erlendum
mörkuðum og þeim íslenska,
áhættan á að fá ekki greitt er til staðar
• veistu við hverja á ekki að skipta?
• hefur lánshæfi gamalla
viðskiptavina skerst?
• eru afskrifaðar viðskiptakröfur
jafn lágar og þær gætu verið?
Sími: 550 9600 • LT@LT.is • www.LT.is
Í gegnum alþjóðanet okkar
útvegum við lánshæfiskýrslur
um öll fyrirtæki í heiminum.
Láttu skynsemina ráða - ekki tilviljanir
FATAFRAMLEIÐANDINN
Hugo Boss í Þýzkalandi hyggst
kanna möguleika á að hefja fram-
leiðslu tízkufatnaðar í Kína.
Bruno Sälzer, framkvæmdastjóri
hjá Boss, segir í þýzka viðskipta-
blaðinu Handelsblatt að nú séu
gerðar tilraunir með að láta kín-
verskar verksmiðjur sauma föt fyr-
ir fyrirtækið, en síðar kunni það að
reisa eigin verksmiðju í Kína.
Sälzer segir að fataframleið-
endur í Kína eigi varla meira en
3–5 ár í að ná sambærilegum gæð-
um í framleiðslunni og evrópsk
tízkufyrirtæki. Það muni einnig
eiga við um framleiðslu dýrra
herrajakkafata, sem Boss er einna
þekktast fyrir.
Boss-fötin
framleidd í Kína?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ENERGISTYRELSEN, eftirlitsstofnun danska orku-
markaðarins, hefur sett orkufyrirtækjum í eigu sveitarfé-
laga skorður varðandi þátttöku þeirra í fjarskiptarekstri.
Energistyrelsen hefur hafnað áætlun Energi Viborg
um að leggja breiðband í borginni.
Í ákvörðun Energistyrelsen kemur fram strangari túlk-
un en áður á reglum um þátttöku orkufyrirtækja í öðrum
rekstri en þeim, sem telst til leyfisbundinnar starfsemi
þeirra, að því er fram kemur í Børsen. Að sögn samtaka
orkufyrirtækjanna, Elfor, leyfir eftirlitsstofnunin orkufyr-
irtækjunum því aðeins að leggja breiðbandskapla ásamt
rafmagnsköplum að þeir séu lagðir á sama tíma og í sama
skurð og rafmagnskaplarnir. Þetta þýðir að orkufyr-
irtækin geta ekki lagt breiðband þar sem það er hag-
kvæmast eða lagt breiðbandsstreng inn til einstakra við-
skiptavina.
Haft er eftir Claus Nørr Lorenzen, talsmanni breið-
bandsnefndar orkufyrirtækjanna, að þessi ákvörðun
stjórnvalda hitti þau sjálf fyrir, því að danska stjórnin vilji
gera Danmörku að einu af samkeppnishæfustu löndum
heims. Ákvörðunin sé til marks um þröngsýni.
Orkufyrirtæki hindruð
í fjarskiptastarfsemi
Morgunblaðið/Golli
Breiðbandslögn Orkuveita Reykjavíkur leggur ljós-
leiðara. Dönsk orkufyrirtæki fá ekki að grafa sérstaka
skurði fyrir fjarskiptalagnir.