Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 28
28 B FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
!"
#
!
" !#$#$!!$%!&' (!!) '(! *+#! ,*$ ) #* $ % -! . ) $ $/ %$!! $!) *+#! ,*
. ) !* ) * )!!'$*$!) #/$01))$
$)!2,)* *3) ) 41 5#%!$#$! * % *-%2#2 )* !++6 !) * $/*!++6 !*'*$! !*-)!%$
) (!$6 *2 *%!
$ %& ' (#
(
!
) "*
!
+
!
!
"#
+,! +
"
LAUN bestu og/eða vinsælustu
knattspyrnumanna heimsins hafa
keyrt um þverbak á undanförnum
árum. Um það eru flestir sammála.
Þessi svimandi háu laun eru að sliga
knattspyrnufélögin og eru þau
stærstu og þau sem skarta skærustu
stjörnunum farin að leita nýrra leiða
til að auka tekjur sínar, því ljóst er
aðekki dugir að selja rækjur og kló-
settpappír til að skrapa saman fyrir
launakostnaðinum. Í því skyni hafa
félögin í auknum mæli horft til
nýrra markaða, bæði í austri og
vestri.
Ensk stórlið eru meðal þeirra
knattspyrnuliða sem hyggjast seilast
í vasa knattspyrnuunnenda í Asíu og
Bandaríkjum. Chelsea, sem tapaði
rúmum 10 milljörðum króna á síð-
asta ári, hefur þannig beinlínis lýst
því yfir að félagið stefni að aukinni
sölu á hvers kyns varningi tengdum
félaginu í Kína og í Bandaríkjunum,
þar séu framtíðartekjulindirnar.
Mörg stóru félaganna hafa í þessu
skyni farið í nokkurs konar „sýning-
arferðir“ til Asíu og fengið feikna-
góða aðsókn. Og það þrátt fyrir að
sýna ekki alltaf bestu gripina. Þann-
ig var Manchester United legið á
hálsi fyrir að hafa ekki skartað
helstu stjörnunum á ferðalagi sínu í
austurvegi á síðasta ári.
En viðbrögðin hafa ekki verið eins
góð vestanhafs. Knattspyrnan hefur
fram til þessa ekki verið ýkja hátt
skrifuð íþróttagrein í Bandaríkj-
unum, a.m.k. ekki notið viðlíka vin-
sælda og í Evrópu og má þannig
ætla að þar sé óplægður pen-
ingaakur fyrir risaklúbbana í Evr-
ópu. En það hafa verið gerðar marg-
ar en árangurslitlar tilraunir til að
kynna knattspyrnuna í landinu. Ein-
hverra hluta vegna virðist hún ekki
höfða til Kanans.
En nú gætu ensk knattspyrnulið
hugsanlega misst spón úr aski sínum
vegna þess að Championsworld, fyr-
irtækið sem annast markaðs-
setningu knattspyrnunnar í Banda-
ríkjunum, rambar á barmi
gjaldþrots, ef marka má frétt á
fréttavef BBC.
Markmiðið með stofnun Champ-
ionsworld árið 2000 var að auka
hróður greinarinnar, til dæmis með
því að bjóða
stórliðum frá
Evrópu og
Suður-
Ameríku að
taka þátt í
knatt-
spyrnumótum í
Bandaríkj-
unum á sumr-
in. Auk
enskra stór-
liða, s.s. Liv-
erpool,
Chelsea og
Manchester
United, hafa
lið á borð við
Juventus,
Barcelona,
AC Milan,
Celtic, Boca
Juniors og
Bayern
München
þekkst boðið og
spilað í Banda-
ríkjunum und-
anfarin tvö sumur.
Championsworld
skuldar um 600 millj-
ónir króna en talið er
að knattspyrnumótið
sem fyrirtækið stóð fyrir síðasta
sumar hafi kostað nærri 2 milljarða
króna. Leikið var í 7 borgum en að-
sóknin olli vonbrigðum. Þó fylgdust
ríflega 50 þúsund manns með leik
Manchester United og Celtic síðast-
liðið sumar. Aftur á móti mættu að-
eins rúmlega 15 þúsund manns
á leik Evrópumeistaranna í
Porto og gríska liðsins
Galatasaray en hann fór
fram á Giants-
leikvanginum í New
York sem tekur 76
þúsund manns í sæti.
Meðalaðsókn á
hvern leik var ann-
ars ágæt, um 34 þús-
und manns, sem þætti
gott hjá mörgum evrópskum
stórliðum.
Forsvarsmenn Championsworld
vonast til að bjarga fyrirtækinu frá
gjaldþroti og benda á að tekjur af
mótinu í fyrra hafi verið miklar, um
25 milljónir dollara sem svara til um
1,5 milljarðs íslenskra króna. Mikill
kostnaður hafi komið þeim í opna
skjöldu. Þannig hafi Celtic fengið
greidda 350 þúsund dollara, nærri
22 milljónir, fyrir hvern leik á
mótinu síðasta sumar. Flest önnur
lið fengu mun meiri pening fyrir
sinn snúð.
Segja forsvarsmenn Champions-
world að sennilega hafi þeir farið of
geyst í sakirnar, fengið of mörg
stórlið til að leika og á stöðum sem
skiluðu ekki áhorfendum. Þeir
stefna á að halda annað mót í sumar
en margir telja að hrakfarir Champ-
ionsworld valdi því að stórlið veigri
sér við því að spila í Bandaríkjunum
hér eftir. En forsvarsmenn Champ-
ionsworld eru sannfærðir um að sú
verði ekki raunin. Þeir segja að
stærstu félögunum sé mikið í mun að
ná fótfestu í Bandaríkjunum til að
geta selt meira af varningi og auka
þannig sölutekjur sínar.
Það eru dollaramerki í augum
evrópskra knattspyrnuliða en
þó eru blikur á lofti
hema@mbl.is
Fótboltinn
sækir austur
og vestur