Morgunblaðið - 15.04.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 15.04.2005, Síða 6
6|Morgunblaðið HVELLUR.COM - G. TÓMASSON ehf. Smiðjuvegi 8 • 200 Kópavogur • Sími 577 6400 Hvellur@hvellur.com Reiðhjól Hlaupahjól Hjólahjálmar Körfuboltaspjöld Jafnvægishjól Hvellur.com býður mikið úrval fermingargjafa. Allt sem nútíma fermingarbörn óska sér. Um þessar mundir eru margirfarnir að hyggja að garðinumsínum. Ýmsir hafa skipt umhúsnæði síðan í fyrravor og eignir með garða hafa ekki síst gengið kaupum og sölum, mikið er því um að nýir garðeigendur fari að hugsa sér til hreyf- ings. Fyrst verður þessu fólki fyrir að velta fyrir sér hvaða áhöld þurfi að vera til taks í upphafi garðvinnunnar, ekki síst vefst fyrir fólki meðhöndlun á trjám og runnum. Steinn Kárason er mörgum kunnur fyrir garðyrkjurit sín, en hann er auk þess að vera garðyrkjumeistari með meistarapróf í alþjóðlegri viðskiptahagfræði og umhverf- isstjórnun. Hann hefur í bókum sínum rætt um garðyrkju í víðum skilningi. Þess má geta að hann verður með fyrirlestra um trjáklippingar og vorverkin í garðinum á sýningu Vorboðans í Smáralind. Góðar greinaklippur Hvað skyldi Steinn álíta að fólk þurfi að byrja með þegar garðyrkjan á að hefjast? „Við skulum tala hér um miðlungsgarð- eiganda. Skipta má verkfærunum í tvo hluta, annars vegar handverkfæri og hins vegar vélar,“ segir Steinn. „Ef við skoðum fyrst hin algengustu handverkfæri byrjum við á verkfærum til trjáklippinga. Langalgengasta verkfærið er greinaklippur fyrir aðra hönd. Þær þurfa að vera þannig að kjafturinn mis- gangist, gott er að í klippunum sé skipt- anlegt blað, stamt hald fyrir gott handgrip og gúmmípúði til að dempa höggið þegar klippt er og fyrir hendi sér hersluskrúfa með læsingu. Svona klippur þurfa að vera mjög vandaðar, fólk ætti ekki að spara peninginn í kaupum á svona klippum, þær eru svo mikið notaðar. Limgerðisklippur með löngu blaði Næsta verkfæri er limgerðisklippur með löngu blaði og höldum. Blaðið má gjarnan vera bylgjað eða tennt í kverkina og það er til mikilla bóta að gúmmípúðar dempi átakið þegar klippt er. Þeir sem eru með stór og mikil limgerði kaupa sér gjarnan eða leigja vélklippur. Bogasög og greinasög Þá er gott að eiga boga- sög til þess að saga sverari greinar eða sérstaka greinasög með holu haldi sem hægt er að stinga kústskafti inní til að ná greina hátt uppi eða inni í þéttum runnum. Einnig er hægt að fá fyr- ir mjög há tré toppklippur með lengjanlegu skafti. Þá er í raun togað í spotta til að klippa. Spíssskóflur og laufhrífur Þá skulum við snúa okk- ur að handverkfærum til jarðvinnu. Til að moka mold er gott að hafa skóflur sem margir kalla spíssskóflur eða mal- arskóflur með löngu skafti. Garðhrífur eru notaðar í moldarvinnu, 14 tinda breiður haus er heppilegur. Gott er að eiga sérstaka skóflu sem nýtist jafnt til að moka snjó og klaka og líka má nota að einhverju leyti í garðinum, slíkar skóflur eru með flötu blaði. Til er sérstakar lauf- hrífur sem heppilegt er að eiga. Slíkar hrífur eru með plasthaus og gagnast í raun bæði til raka hey og lauf og þá þarf ekki endilega sérstaka heyhrífu af gömlu teg- undinni. Arfasköfur og litlar klórur Í illgresiseyðinguna þarf arfasköfu með löngu skafti. Hægt er að nota litlar klórur inn á milli trjáa og runna. Og sérstaklega er gott að eiga klórur til að skera burtu ræturnar á fíflunum. Til að stinga upp matjurtagarðinn og blómabeð þarf að eiga góðan stungugaffal. Loks þarf garðeigandi að eiga kant- skera. Tvær gerðir eru til, sá sem er með hálfmánalegu blaði hentar best í tyrfingu en til viðhalds er kantskeri með ástigi sem er heppilegastur. Rafmagnssláttuvélar menga minnst Til eru fleiri og sérhæfðari verkfæri sem eru þá seinni tíma viðbót. Þá er komið að stærri verkfærum. Ég mæli með því að fólk noti rafmagns- sláttuvélar á minni fleti til að forðast meng- un. Bensínsláttuvélarnar menga meira en meðalfólksbílar, þær eru hins vegar not- aðar á stærri grasfleti. Gamla hand- sláttuvélin stendur enn fyrir sínu, hún mengar ekki og gefur góða hreyfingu og góðan slátt. Hjólbörur og léttir stigar Hjólbörur eru tæki sem flestir garðeig- endur þurfa á að halda. Þær eru mjög mis- munandi að gerð og verði en miðlungs- hjólbörur eru heppilegar fyrir almennt viðhald. Léttir stigar og strákústar eru líka með- al þess sem garðeigandi þarf að eiga. Þeir sem vilja vera umhverfisvænir koma sér upp safnhaugum og þá er gott að eiga eða leigja safnhaugakvörn. Einnig má leigja sér mosatætara ef á þarf að halda. Áríðandi að þrífa verkfæri vel Mjög áríðandi er að þrífa verkfæri vel eftir notkun og geyma þau á þurrum og svölum stað. Gott er að olíubera málmhluti á haustin. Það má gera með olíuúða eða nota uppþvottabursta og sláttuvélaolíu. Ef verkfæri með trésköftum eru geymd í mjög þurri vetrargeymslu geta sköftin ver- ið stökk á vorin en það jafnar sig þegar raki kemst í viðinn.“ Verkfæri garðeigandans Garðeigendur þurfa að eiga verkfæri til þess að geta sinnt garði sínum sóma- samlega. En hvaða verk- færi – það er spurning sem Steinn Kárason leitast hér við að svara. Morgunblaðið/Golli Steinn Kárason F.v. plöntuskeið, plöntugaffall og klóra. Úr Garðverkin eftir Stein Kárason. Tvær tegundir af kantskerum sem gott er að eiga. F.v. Arfaskafa, garðhrífa, laufhrífur, skúffujárn, strá- kústur og sandskófla.Teikningin er úr bók Steins Kára- sonar, Garðverkin. Morgunblaðið/Árni Torfason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.