Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is AKUREYRARBÆR, Skóladeild Glerárgötu 26, 600 Akureyri. Við grunnskóla Akureyrar eru lausar stöður kennara Grunnskólar Akureyrar eru átta, sex þeirra eru einsetnir og heildstæðir með 1.-10. bekk. Hlutfall fagmenntaðra starfsmanna er um 90%. Óskað er eftir jákvæðum og kraftmiklum einstaklingum til starfa. Mikilvægt er að þeir eigi auðvelt með mannleg samskipti og séu tilbúnir til að taka þátt í umbótum á skólastarfi og þróunarvinnu næstu skólaár. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Akureyrar: http://www.akureyri.is/ undir Auglýsingar og umsóknir. Framúrskarandi & hugmyndaríkir forritarar óskast í spennandi alþjóðleg verkefni Industria leitar að starfsmönnum í eftirtalin störf: Industria sérhæfir sig í hönnun, uppsetningu og rekstri háhraða breiðbandsneta. Félagið býður uppá heildarlausnir á þessu sviði. Vinna í hugbúnaðardeild Industria felst í að rannsaka, þróa og hanna hugbúnað til að stjórna flóknum breiðbandsnetum og þjónustum eins og stafrænu sjónvarpi og síma. Fyrirtækið er með starfsemi á Íslandi, Írlandi og í Danmörku. Umsóknarfrestur er til 25. apríl nk. Umsóknir og fyrirspurnir berist rafrænt á netfangið jobs@industria.com. Frekari upplýsingar um Industria er að finna á www.industria.com Háskólamenntun í verk- eða tölvunarfæði æskileg. Frumkvæði og reynsla í að ná markmiðum í nýju og hröðu umhverfi. Yfir 5 ára reynsla í hugbúnaðarþróun. Góð þekking í C#, Microsoft .NET og MS Visual Studio. Framúrskarandi XML þekking. C/C++ forritunar er kostur. Áhugi til að takast á við krefjandi verkefni. Áhugi á ferlum og business logic. Tungumálakunnátta í ensku. Kostur ef umsækjandi er reiðubúinn að ferðast. Háskólamenntun í verk- eða tölvunarfæði eða sambærileg menntun. 3-5 ára reynsla í að stýra hugbúnaðarverkefnum. Hugmyndaauðgi og frumkvæði. Lipurð í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar. Tungumálakunnátta í ensku. Nauðsynlegt að umsækjandi sé reiðubúinn að ferðast. F O R R I T A R A R Á Í S L A N D I O G Í R L A N D I : Y F I R M A Ð U R H U G B Ú N A Ð A R D E I L D A R : Menntun og hæfnislýsing: Menntun og hæfnislýsing: Þroskaþjálfi Blindravinnustofan leitar eftir þroskaþjálfa í 50% starf. Um er að ræða dagvinnustarf með sveigjanlegum vinnutíma. Starfið felur í sér þroskaþjálfun með blindum og sjónskertum auk annars konar fötlunar. Að auki felur starfið í sér lítils háttar skrifstofuvinnu. Laun eru sam- kvæmt kjarasamningum Þroskaþjálfafélagsins og ríksins. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Margréti Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Blindravinnustofunnar, netfang: mg@blind.is eða í s. 695 4113 og 525 0025. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 22. apríl. ALLS voru 87.300 atvinnuleysisdagar skráðir á landinu í marsmánuði og jafngildir það því að 3.799 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá að meðaltali í mánuðinum. Samkvæmt áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins var mannafli á vinnumarkaði í mars 146.035 og jafn- gildir þetta því 2,6% atvinnuleysi. Hér er um að ræða 0,2% lækkun atvinnuleysis síðan í febrúarmánuði þegar atvinnuleysi var 2,8% og 0,9% lækkun á 12 mánaða grundvelli en í mars á síðasta ári var atvinnuleysi 3,5%. Þetta kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar um atvinnuástand í mars. Fleiri konur en karlar Í lok mars voru 4.069 manns á atvinnuleys- isskrá og fækkaði atvinnulausum um 415 frá lokum febrúar. Atvinnuleysi var meira meðal kvenna en karla en alls voru 3,3% kvenna atvinnulausar en 2,1% karla. Þá var atvinnuleysi meira á höf- uðborgarsvæðinu, 2,8%, en á landsbyggðinni, 2,3%. Minnst var atvinnuleysi á Austurlandi, 1,5%, mest á Norðurlandi eystra, 3,2%. Hlutfall atvinnuleysis minnkaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Minnkar enn frekar Vinnumálastofnun telur líklegt að atvinnuleysi minnki enn frekar í apríl og að það verði á bilinu 2,4–2,7% af mannafla á vinnumarkaði. Þetta mat er miðað við að oft dregur út atvinnu- leysi á milli mars og apríl vegna árstíðasveiflu á vinnumarkaði auk þess sem umsvif fara al- mennt vaxandi á tímabilinu en jafnframt hefur verkbeiðnum til vinnumiðlana um ráðningu auk- ist. Atvinnuleysi minnkar                                                                  !  "  " # $  %  & #     ' ' ' ' ' ' '         #    % $ # ( " ( "  "    ' ' ' ' ' ' '      $  # ( $ % ) ) $ % $ " ) &    ' ' ' ' ' ' '          ! !   !    !                  " "          " #          $ %  $ $ & ' ( ) * $ %  $ $ & ' ( ) * Morgunblaðið/Kristinn alltaf á fimmtudögumVIÐSKIPTABLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.