Morgunblaðið - 17.04.2005, Page 5

Morgunblaðið - 17.04.2005, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 B 5 Rútubílstjórar GT verktakar ehf. óska eftir rútubílstjórum til starfa við Kárahnjúka. Góð laun í boði. Uppl. gefur verkstjóri á staðnum í síma 896 3845 eða 896 3890. Einnig vantar okkur vana vélamenn til starfa á höfuðborgarsvæðinu. Uppl. í s. 580 1600. Grunnskóli Snæfellsbæjar Aðstoðarskólastjóri - deildarstjórar Grunnskóli Snæfellsbæjar er nýsameinaður skóli með um 300 nemendur sem tók til starfa haustið 2004. Skólinn er aldursskiptur, með 3 starfsstöðvar; yngri deild á Hellissandi með 1.-4. bekk; deild á Lýsuhóli í Staðarsveit með 1.-10. bekk og eldri deild í Ólafsvík með 5.-10. bekk. Eftirtaldar stjórnunarstöður við skólann eru lausar til umsóknar: Aðstoðarskólastjóri Starfið felst ekki síst í því aðstoða skólastjóra í að móta skólastarfið í nýju umhverfi og er því spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling. Aðstoðarskólastjóri er jafnframt deildastjóri 5.-10. bekkjar. Gerð er krafa um kennaramenntun. Menntun og reynsla á sviði stjórnunar er æskileg. Nánari upplýsingar fást hjá Óskari H. Óskarssyni, formanni skólanefndar, í sím- um 436 1107 eða 868 2547. Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir menntun sinni og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2005. Skriflegum umsóknum ber að skila til Óskars H. Óskarssonar, formanns skólanefndar, Lindarholti 8, 355 Ólafsvík. Stöður deildastjóra Eftirtaldar stöður millistjórnenda við skólann eru lausar til umsóknar:  Deildarstjóri yngsta stigs; 1.-4. bekk á Hellis- sandi.  Deildarstjóri 1.-10. bekk á Lýsuhóli í Staðar- sveit.  Deildarstjóri námsþróunar og stoðþjónustu. Starf deildarstjóra við skólann felst m.a. í stað- bundinni, aldurs- og fagbundinni stjórnun við skólann. Auk þess taka millistjórnendur virkan þátt í stjórnun og stefnumótun skólastarfsins undir forystu skólastjóra. Gerð er krafa um kennaramenntun og kennslureynslu. Umsóknir um stöður þessar berist skólastjóra, Sveini Þór Elinbergssyni, Ennisbraut 11, 355 Ólafsvík, ellegar á netfangið sveinn@gsnb.is. Upplýsingar í símum 433 9900 og 894 9903. Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2005. Snæfellsbær er ungt sveitarfélag sem vefur sig utan um Snæfellsjök- ul: Staðarsveit, Búðir, Breiðuvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur, Rif, Ólafsvík og Fróðárhreppur. Í góðu veðri eru þéttbýliskjarnarnir Hellissandur og Ólafsvík í aðeins tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík - og veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott undir Jökli! Hér býr gott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snæfellsbæinga velkomna. Í Snæfellsbæ er sérstaklega fallegt umhverfi þar sem Snæfellsjökul ber hæst, enda býður bæjarfélagið upp á alla flóru landsins þegar kemur að landslagi, fugla- og dýralífi. Útivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem er ársins, skíði og snjóbretti, gönguferðir, golf, hestamennsku, sund og margt fleira. Nýtt glæsilegt íþróttahús er í Ólafsvík. Öflugt tónlistarlíf er í sveitarfélaginu og félagastarfsemi með miklum blóma. Þroskaþjálfi Blindravinnustofan leitar eftir þroskaþjálfa í 50% starf. Um er að ræða dagvinnustarf með sveigjanlegum vinnutíma. Starfið felur í sér þroskaþjálfun með blindum og sjónskertum auk annars konar fötlunar. Að auki felur starfið í sér lítils háttar skrifstofuvinnu. Laun eru sam- kvæmt kjarasamningum Þroskaþjálfafélagsins og ríksins. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Margréti Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Blindravinnustofunnar, netfang: mg@blind.is eða í s. 695 4113 og 525 0025. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 22. apríl. Styrktarfélag vangefinna Ertu að leita að krefj- andi og fjölbreyttu starfi? Yfirþroskaþjálfi í búsetu óskast til starfa á Háteigsvegi. Um er að ræða 80—85% starf í vaktavinnu. Staðan er laus frá 06.05.05 eða eftir nánara sam- komulagi. Hlutverk yfirþroskaþjálfa er fyrst og fremst fólgið í því að sjá um innra fag- legt starf, leiðbeina og styðja íbúa í dag- legu lífi og leiðbeina starfsmönnum. Hæfniskröfur:  Góð fagleg þekking  Skipulagshæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði í starfi  Jákvætt hugarfar og færni í samskipt- um og samvinnu  Þriggja ára starfsreynsla  Almenn tölvukunnátta Boðið er upp á stuðning, ráðgjöf og regl- uleg starfsmannasamtöl ásamt ágætri starfsaðstöðu. Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu fé- lagsins fyrir 25. apríl. Nánari upplýsingar veita Bryndís Jóns- dóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma 551 0014 og 659 3958 og Erna Einars- dóttir starfsmannastjóri í síma 551 5941. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Þroskaþjálfafélags Íslands og Styrktarfé- lags vangefinna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.