Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Yfirþroskaþjálfi á heimili fyrir börn
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík óskar eftir að
ráða yfirþroskaþjálfa á heimili fyrir börn í Árlandi, Reykjavík.
Yfirþroskaþjálfi þarf að
◆ taka þátt í sífelldri mótun og uppbyggingu á
innra skipulagi heimilisins,
◆ vera staðgengill forstöðuþroskaþjálfa,
◆ geta unnið vaktavinnu,
◆ hafa jákvæð viðhorf og góða hæfni í samskiptum
og samstarfi,
◆ hafa reynslu af starfsmannahaldi.
Menntunarkröfur
◆ Þroskaþjálfapróf frá Kennaraháskóla Íslands.
Starfsreynsla
◆ Að lágmarki 3ja ára reynsla af starfi með
fötluðum börnum.
Launakjör eru samkvæmt samningum ríkisins og
Þroskaþjálfafélags Íslands.
Skriflegar umsóknir ásamt lífsferilskrá berist til Freydísar Guð-
mundsdóttur, forstöðuþroskaþjálfa, Árlandi 9, 108 Reykjavík,
fyrir 2. maí 2005. Umsóknareyðublöð liggja frammi á SSR,
Síðumúla 39, og á netinu, www.ssr.is .
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið
ákvörðun um ráðningu.
Nánari upplýsingar veita Freydís Guðmundsdóttir í síma 588
8088, netfang: freydis.gudmundsdottir@ssr.is og Guðný Anna
Arnþórsdóttir, starfsmannastjóri SSR, netfang gudnya@ssr.is .
Á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra er unnið í samræmi við
ný samþykkta jafnréttisáætlun.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Tónlistarskólann
á Akureyri
Fiðlukennari 100%
Óskað er eftir jákvæðum, skipulögðum,
metnaðarfullum og hvetjandi einstaklingi
í fiðlukennslu skv. aðferðarfræði Suzuki. Um er að
ræða afleysingu til eins árs.
Starfssvið: Kennsla á fiðlu í einkatímum, hóptímum
og aðstoð inni í hljómsveitum.
Frekari upplýsingar um starfið og skólann veita Kaldo
Kiis, aðstoðarskólastjóri, og Helgi Þ. Svavarsson, skóla-
stjóri, í síma 462 1788 eða 893 1788. Frekari upplýs-
ingar um skólann má einnig nálgast á heimasíðu skól-
ans www.tonak.is og á www.akureyri.is .
Umsóknafrestur til 2. maí 2005.
Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700
Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is
Laus störf
Sjóntækjafræ›ingur (4450)
Óskum a› rá›a sjóntækjafræ›ing til starfa.
Nau›synlegt a› vi›komandi hafi menntun til
sjóntækja- og linsumælinga.
Afgrei›sluma›ur (4451)
Óskum a› rá›a afgrei›slumann til starfa í gleraugnaverslun.
Reynsla í afgrei›slustörfum er æskileg.
Númer starfanna eru 4450 og 4451.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
fyrir 23. apríl nk.
Uppl‡singar veita fiórir fiorvar›arson og Gu›n‡
Sævinsdóttir.
Netföng: thorir@hagvangur.is gudny@hagvangur.is
- vi› rá›um
Tannlæknastofa
Aðstoðarmaður óskast á tannlæknastofu.
Um er að ræða 75% starf seinni hluta dags.
Umsóknir sendist á auglýsingadeild Morgun-
blaðsins eða í box@mbl.is merkt: „T - 17000“.
Bílamálari óskast
Óskum að ráða bílamálara eða aðstoðarmann.
Leitum að metnaðarfullum, vandvirkum ein-
staklingi sem skilar góðu handverki. Góð
vinnuaðstaða. Upplýsingar í síma 567 8686.
Ert þú vélstjóri?
Viltu koma í land?
Jarðvélar ehf. óska eftir að ráða sem fyrst vana
vélstjóra til að starfa við viðhald á sívaxandi
tækjaflota fyrirtækisins. Um er að ræða
hefðbundin viðhaldsstörf á nýlegum beltagröf-
um, jarðýtum og fleiri tækjum.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Jarð-
véla í síma 564 6980, eða fyllið út umsóknareyðu-
blað á vefsíðu fyrirtækisins www.jardvelar.is
Bakkabraut 14, 200 Reykjavík.
Ræstingastörf
Vantar starfskraft sem fyrst í hálft starf fyrir
hádegi við ræstingar á gistiheimili í miðbæn-
um. Mjög góð laun og góður andi á vinnu-
staðnum. Nánari upplýsingar í síma 861 1836.
Atvinnuauglýsingar
augl@mbl.is
EKKI hefur mikið breyst til hins
betra á sænskum vinnumarkaði ef
marka má skýrslu sænsku vinnu-
málastofnunarinnar, AMS, um þró-
un vinnumarkaðar í marsmánuði.
Þar kemur fram að störfum í boði
fækki en að á sama tíma fjölgi upp-
sögnum en þó er tekið fram að hér
sé um tímabundna þróun að ræða
sem skýrist af því að búið er að ráða
í flest sumarstörf, sem fækkar á
milli ára, og að sænski herinn hefur
verið að segja upp fólki vegna nið-
urskurðar. Alls fækkaði störfum um
4 þúsund á milli ára en uppsögnum
fjölgaði um 2.700 á milli ára.
Alls voru 231 þúsund manns á at-
vinnuleysisskrá í lok mars og sam-
svarar það 5,3% af mannafla á
vinnumarkaði. Þar með fækkar
skráðum atvinnulausum um 3 þús-
und, 0,1%, frá mars 2004 og um 9
þúsund, 0,2%, frá því í febrúar á
þessu ári.
Reuters
Atvinnuleysi minnkar í Svíþjóð
GISTINÆTUR á hótelum hér
á landi voru um 2,5% fleiri í
febrúarmánuði síðastliðnum en í
sama mánuði í fyrra. Frá þessu
er greint í tilkynningu frá Hag-
stofu Íslands.
Samtals voru gistinætur á hót-
elum í febrúar í ár um 55 þús-
und talsins. Þar af voru gisti-
nætur Íslendinga rúmlega 17
þúsund og fjölgaði um rúmlega
15%. Gistinóttum útlendinga
fækkaði hins vegar um 2,4% frá
fyrra ári, en gistinóttum útlend-
inga í febrúar hafði fjölgað allt
frá árinu 1997.
Í Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka segir að hugsanlegt
sé að hátt gengi krónunnar
skýri samdrátt í gistinóttum út-
lendinga. Hátt gengi dragi veru-
lega úr samkeppnishæfni ís-
lenskrar ferðaþjónustu. Þó verði
að hafa þann fyrirvara á að
mæling Hagstofunnar nái ein-
göngu til hótela sem opin séu
allt árið og að ekki séu mældar
gistinætur á gistiheimilum.
Mögulega hafi því orðið tilfærsla
frá hótelum til gistiheimila sem
einnig mætti rekja til hækkunar
á gengi krónunnar.
Gistinóttum á
hótelum fjölgar
Hótel Búðir.